Morgunblaðið - 30.04.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR50, APRÍL 1981
15
Þorvaldur Skúlason
listmálari - 75 ára
Stundum er tíminn svo snar í
snúningum, að fólk varar sig ekki
á honum. Nú finnst mér til daemis
svo stutt síðan Þorvaldur Skúla-
son varð sjötugur, að vart verður
trúað, að fimm ár hafi bæst við.
Þetta er eins og andartak í
tilverunni. Svolítil andakt, eins og
Þorvaldur mundi sagt hafa. En
samt hefur feiknalega mikið skeð.
Þar á ég fyrst og fremst við þau
ótrúlegu afköst, er Þorvaldur hef-
ur skilað á þessum tíma og þá
ágætu heilsu, er hann hefur notið,
orðinn þetta roskinn.
Eins og allir vita, er Þorvaldur
Skúlason einn af okkar allra
fremstu listamönnum, og hann
hefur verið í fremstu víglínu
málara um langan tíma. Allt frá
því er hann fyrst sýndi verk sín
hér í Reykjavík, hefur hann verið
nokkuð umdeildur, og er það besta
merkið um, hverja þýðingu hann
hefur haft fyrir hina hratt vax-
andi myndlist í þessu þjóðfélagi.
Það eru, til allrar guðslukku,
margir, sem allt frá fyrstu sýning-
um hafa gert sér grein fyrir
hlutverki Þorvaldar sem málara,
og er ljósasta dæmi þess hið
merka safn, er þau hjónin Sverrir
Sigurðsson og Ingibjörg kona hans
hafa komið saman af mikilli
vandvirkni, þekkingu og natni. Nú
hafa þau afhent einni virðulegustu
menntastofnun Islands þetta safn,
og verður Jíað vísir að Listasafni
Háskóla Islands. Þar má líta
ágætt yfirlit af verkum Þorvaldar,
og efast ég ekki um, að þau eiga
eftir að hafa sín áhrif þar og
kveikja ef til vill í ungum hugum
áhuga og virðingu fyrir þessari
listgrein. Það má með sanni segja,
að margir hafi byrjað með minna.
Það er alger óþarfi að fara'
nánar út í þýðingu ævistarfs
Þorvalds fyrir menningu okkar
íslendinga. Ég bæti aðeins við
margkveðna vísu: Þorvaldur
Skúlason er mjög sérstæður
persónuleiki, sem-byggt hefur list
sína á framsækni, staðfestu og
virðingu fyrir viðfangsefni sínu.
Hann er afar sterk viðmiðun í
íslenskri málaralist, sem oft á
tíðum hefur verkað sem kjölfesta,
en um leið örvandi á starfsbræður
hans. Þótt hann sjálfur sé ekki
hár í loftinu, er hann risi í verkum
sínum. Nú læt ég þessi fáu orð
blífa og' vind mér í aðra sálma.
Segir ekki Shakespeare einhvers
staðar: All that is past is prol-
ogue? Ég vitna í þessa setningu
hér í sambandi við afmæli Þor-
valdar. Ekki af rælni, heldur
vegna þess sannleika, sem felst í
þessum orðum, og hve vel þau eru
fallin til að verða afmæliskveðja
til svo vinnuglaðs manns sem
Þorvaldur er.
Bestu óskir með daginn, og við
vitum að í uppsiglingu er sýning á
verkum Þorvaldar í Norræna hús-
inu. Það verður skemmtilegt.
Þetta er alveg eins og hér á
árunum, Þorvaldur minn; sýning á
verkum Þorvaldar og óróleiki í
Heklu.
Valtýr Pétursson
Bridge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
íslandsmótið
í tvímenningi
íslandsmótið í tvímenningi,
undanúrslit hefjast í kvöld í
Domus Medica og hefst keppnin
kl. 20.
Undanúrslit:
1. umf. fimmtud. 30. apríl kl. 20.00.
2. umf. föstudag 1. maí kl. 13.00.
3. umf. föstudag 1. maí kl. 20.00.
Crslit:
1. umf. laugardag 2. maí kl. 13.00.
2. umf. sunnudag 3. maí kl. 10.00.
Áhorfendur eru velkomnir.
Keppnisstjóri verður Agnar
Jörgensson.
Bikarkeppni sveita
Nú er að renna út sá tími sem
þátttökutilkynningar þurfa að
berast fyrir en það er 4. maí.
Fyrirliðar sveita snúi sér til
Sævars Þorbjörnssonar í síma
10320.
Spilatíminn verður sem hér
segir:
1. umf. skal lokið fyrir 15. júní.
2. umf. skal lokið fyrir 27. júlí.
3. umf. skal lokið fyrir 31. ágúst.
4. umf. skal lokið fyrir 21. sept.
Úrslit verða spiluð 3. október.
Brídgefélag
Akureyrar
Nýlega lauk þriggja kvölda
sveitahraðkeppni Bridgefélags
Akureyrar. Alls spiluðu 15 sveit-
ir sem er mjög góð þátttaka.
Að þessu sinni sigraði sveit
Jóns Stefánssonar nokkuð ör-
ugglega, hlaut 865 stig. Auk Jóns
spiluðu í sveitinni Hörður Stein-
bergsson og feðgarnir Svein-
björn Jónsson og Einar Svein-
björnsson. Röð efstu sveita varð
þessi:
sveit stig
1. Jóns Stefánssonar 865
2. Magnúsar Aðalbjörnssonar 840
3. Páls Pálssonar 837
4. -5. Jónasar Karelssonar 794
4.-5. Stefáns Vilhjálmssonar 794
6. Ferðaskrifstofu Akureyrar 778
Meðalárangur er 756 stig.
Beztum árangri út úr einni
umferð náði sveit Páls Pálssonar
318 stigum í síðustu umferð.
Keppnisstjóri var sem fyrr Al-
bert Sigurðsson.
Síðasta keppnin á þessu
starfsári er hafin en það er
minningarmót um Halldór
Helgason. Spilað er með sveita-
keppnisfyrirkomulagi. Núver-
andi verðlaunahafi er sveit Al-
freðs Pálssonar.
Bridgefélag
Selfoss
Sveitakeppninni er nú lokið.
Röð efstu sveita varð þessi:
Sveit stig
Halldórs Magnússonar 168
Steingerðar Steingrímsd. 138
Gunnars Þórðarsonar 115
Málningarþjónustunnar 95
Hjálparsveitarinnar 87
Með Halldóri spila: Haraldur
Gestsson, Vilhjálmur Þ. Pálsson,
Sigfús Þórðarson og Tage Ole-
sen.
Úrslit í firmakeppni Bridgefé-
lagsins voru spiluð 6. apríl sl. 50
fyrirtæki tóku þátt í keppninni.
Nr. 1. MBF. Spilari Sigfús
Þórðarson, 306 stig. Nr. 2
Prentsm. Suðurlands. Spilari
Guðjón Einarsson, 302 stig. Nr. 3
Verzl. Hildar Þorl. Spilari Vil-
hjálmur Þ. Pálsson, 297 stig. Nr.
4 Rakarastofa Leifs österby.
Spilari Þórður Sigurðsson, 281
stig. Nr. 5 Málningarþjónustan.
Spilari Gunnar Andrésson, 280
stig.
Sértílboð
vörukynning
ss
á Medisterpylsu í SS búóinni
Austurveri í dag kl 2-6
Komió og bragóió á