Morgunblaðið - 30.04.1981, Page 5

Morgunblaðið - 30.04.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1981 5 Aðalfundur Heimdallar 10. maí: Árni Sigfússon og Björn Hermannsson í framboði til formanns STJÓRN Heimdallar. samtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík, hefur ákveðið að aðalfundur samtakanna verði haldinn sunnu- daginn 10. mai næstkomandi. Fundurinn verður haldinn i Val- höil við Háaleitisbraut, og hefst hann klukkan 13.30. A dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, svo sem afgreiðsla skýrslu og reikn- inga fráfarandi stjórnar, og formanns- og stjórnarkjör. Pétur Rafnsson formaður Heimdallar, hefur þegar tilkynnt að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs, en hann hefur verið formaður frá því vorið 1979. Þegar er kunnugt um tvö framboð til Stúdentaráð HÍ: Fordæmir meðferð Sovétstjómar á Korchnoi- fjölskyldunni MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá stúdentaráði Há- skóla Íslands. „Á stúdentaráðsfundi 28. apríl sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: SHI fordæmir harðlega meðferð Sovétstjórnarinnar á skákmeistar- anum Viktor Kortsnoj og fjölskyldu hans. Einn helgasti réttur mannsins er að fá að lifa með fjölskyldu sinni og það ætti að vera auðsætt mannúð- armál að leyfa sundruðum fjöl- skyldum að sameinast. Meðferðin a Kortsnoj er eitt skírasta og átakan- legasta dæmið um mannréttinda- skerðingu í Sovétríkjunum. SHÍ lýsir enn fremur ánægju með störf íslensku stuðningsnefndarinn- ar við málstað Kortsnojs og tekur undir það áskorunarskjal sem nefndin sendi sendiráði Sovétríkj- anna en harmar jafnframt undir- tektir sendiráðsins við málaleitan þessari og hvetur Skáksamband Islands og íslensku ríkisstjórnina til að ganga fram fyrir skjöldu við lausn þessa máls.“ formanns: Árni Sigfússon blaða- maður sagði í samtali við Morgun- blaöið að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér fyrir röskum mánuði síðan, og í gær sagði Björn Hermannsson flugvirki í samtali við blaðamann Morgunblaðsins að hann hefði fyrr um daginn ákveðið að gefa kost á sér í formannskjör- inu. Báðir hafa þeir Árni og Björn starfað innan Heimdallar um ára- bil. Á stjórnarfundi í Heimdalli á þriðjudaginn var ákveðið að ganga eftir því, að aðeins skráðir félagar sitji aðalfundinn. Félagaskrá, sem jafnframt er kjörskrá aðalfundar- ins, liggur frammi á skrifstofu félagsins í Valhöll, og geta félagar því kannað hvort þeir eru ekki örugglega á skrá. Inntökubeiðnum í félagið verður jafnframt veitt móttaka næstu daga. Fáséð prentverk á bókauppboði Klaust- urhóla á laugardag 2 l m Björn Hermannsson flugvirki. Árni Sigfússon blaðamaður. KLAUSTURHÓLAR, listmuna- uppboð Guðmundar Axelssonar, efna til 81. uppboðs á vegum fyrirtækisins n.k. laugardag kl. 14.00 að Laugavegi 81 i Reykja- vík. Að þessu sinni verða seldar bækur og rit, einnig tímarit. í uppboðsskrá er ritunum skipt eftir efnisflokkum: ýmis rit, búnaður og ræktun, rit erlendra höfunda, ljóð, minningarrit, þjóð- sögur, ferða- og landfræðirit, heil- brigðismál, æviminningar, trú- málarit, rit íslenzkra höfunda, fornritaútgáfur, saga lands og lýðs, blöð og tímarit. Það vekur einkum athygli á þessu uppboði, að margt er þar ritað um náttúrufræði, sögu, at- vinnuhætti og mörg mjög fáséð smárit, sem sárasjaldan eru á markaði. Einnig verða þar seld öll hin eldri og fágætari rit Sögufé- lags, svo sem Búalög, Galdur og galdramál á íslandi, Ævisaga Jóns Steingrímssonar, Ævisaga Gísla Konráðssonar, Biskupasög- ur Jóns Halldórssonar I—II o.fl. Þá eru boðin upp afar mörg fáséð smárit eftir þekkta íslenzka höfunda, má þar nefna Steingrím J. Þorsteinsson, Jóhannes Kjarval, Sigurð Nordal, Finn Jónsson, Jón Borgfirðing, Guðmund Björnsson og marga fleiri. Bækurnar og ritin verða til sýnis að Klausturhólum, Lauga- vegi 71, föstudaginn 1. maí kl. 9-17. (Úr fréttatilkynningu.) Trésmiðjan Akur: Hefur byggt 9 fjölbýlishús á 12 árum Akranosi 29. apríl. TRÉSMIÐJAN Akur hf., Akra- nesi afhcnti 15. april sl. níunda fjölhýlishúsið sem fyrirtækið hef- ur byggt á síðustu 12 árum, er húsið mcð 24. íbúðum tvcggja og þriggja herbcrgja ibúðum. Þessi 9 fjölbýlishús eru með samtals 156 íbúðum. íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með innrétt- ingum og gólfteppum, húsið málað að utan og lóð frágengin og girt. Verð á 2ja herbergja íbúðum var endanlegt kr. 261.600.- og 3ja herbergja kr. 364.700.- — kr. 394.700.-. Fyrirtækið hefur hafið byggingu á tíunda fjölbýlishúsinu og er það með 12 íbúðum og á að afhendast í mars—apríl 1982. Framkvæmdastjórar Akurs hf. eru Stefán Teitsson og Gísli Sig- urðsson. Júlíus. Við kynnum þér Kenwood SigmaDrive, turbo hlaðic) Hi-Fi. Það sem er turbo fyrir bíla, er Sigma Drive fynr Hi-Fi hljómburð. Þetta er ný einstök Kenwood aðferð við að láta magnarann annast eftirlit með, og stjóma tónblæ hátalaranna. Aðferðin er í því fólgin, að á sama andartaki og magnarinn sendir frá sér rafboð til hátalaranna, nemur Sigma Drive hvemig þau birtast í þeim, gerir samanburð og knýr fram leiðréttingu til samræmis við upprunalega gerð þeirra. Þess vegna tengjast 4 leiðarar í hvem hátalara. ^KENWOOD T HIFI stepeo DRIVE NEW HI-SPEED KENWOOD SIGMA DRIVE er algjör stökkbreyting í gerð hljómtækja FREQUENCY CHARACTERISTIC AT SPEAKER INPUT SPEAKER SIGNAL INPUT SENSOR CORD FRCOUENCY |Hl| Distortion characteristic between X and normal drive. Simplified block diagram of 51 Drive. FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 KA-1000: Sigma Drive system "hi-speed '-100 watts per channel-distortion—0.005%—Non magnetic construction—DC coupied—dual power supply—Zero switching

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.