Morgunblaðið - 30.04.1981, Síða 27

Morgunblaðið - 30.04.1981, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981 27 Morguim í maí við þinghúsið Tjarnarmegin Alþingishússins er einn elzti og fegursti skrúðgarður borgarinnar. l>ar er lífrikið að vakna til sólar og sumars í mun meiri sátt en ríkir innanhúss, þó þar sitji margir „vormenn íslands44 á bekkjum. Þessi mynd er tekin í maí 1980 við þetta aldargamla þinghús þjóðarinnar. Og maí- mánuður gengur í garð með hátiðisdegi launafólks á morgun. Þrenn ný lög: Mismunandi útflutnings- gjald á sjávarafurðir Þrenn lög vóru sam- þykkt í neðri deild Alþing- is í gær: 1) Breyting á lögum um fiskvinnsluskóla, sem m.a. kveða á um skólanefnd, hvern veg skipuð skuli, námskeið fyrir starfsfólk í hinum ýmsu greinum fiskiðnaðar og hvaða menntunarkröfur skuli gera til þeirra er öðlast starfsrétt- indi sem fiskiðnaðarmenn. 2) Lög um eiturefni og hættuleg efni, sem m.a. fjalla um skráningu slíkra efna til sérstakra nota, sölumeðferð o.fl. 3) Lög um útflutningsgjald af sjávarafurðum, en um það stjórnarfrumvarp stóð mikill styrr á Alþingi og taldi meiri- hluti sjávarútvegsnefndar neðri deildar að efni þess gengi þvert á markaða stefnu um samræmt útflutningsgjald og væri í hrópandi mótsögn við hlutverk verðjöfnunar- sjóðs fiskiðnaðarins. Hin nýju lög kveða á um mismunandi útflutningsgjald fiskvinnslugreina, 4,5% af fob-verðmæti frystra sjávar- afurða en 10% af fob-verð- mæti skreiðar. Þingmenn Alþýðuflokks: ísland aðili að Orku- málastofnuninni neyðartímum. 4. Framkvæmd neyðarráðstafana. 5. Upplýs- ingamiðlun um alþjóðlega olíumarkaði. 6. Afstaða til samráðs við olíufélög. 7. Lang- tímasamstarf í orkumálum. 8. Tengsl við olíuframleiðslu- og notkunarlönd. 9. Ákvæði um stjórnun og almenn atriði og 10) Lokaákvæði. Viðauki er um neyðarbirgðir olíu. Samningurinn kveður m.a. á um að hvert ríki skuli eiga a.m.k. 90 daga neyðarbirgðir af olíu. Miðað við það sem var á árinu 1979 skorti Island 54ra daga birgðir til að ná þessu marki. Flutningsmenn telja að olíu- öry8gi landsins aukist með aðild að þessu fjölþjóðlega samstarfi, en innan þess eru nú 21 OECD-ríki, þeirra á meðal Noregur, Danmörk og Svíþjóð, en hinsvegar ekki Frakkland, Finnland og ís- land. Eiður Guðnason og þrír aðrir þingmenn Alþýðu- flokks hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartil- lögu, þcss efnis, að ríkis- stjórninni skuli falið að gera ráðstafanir til þess að ísland gerist aðili að Alþjóðaorku- stofnuninni. í greinargerð segir að ísland hafi tekið þátt í störfum OECD (Efnahags- og framfara- stofnunarinnar) fra stofnun hennar 1960, Árið 1974 hafi verið stofnuð sjálfstæð stofn- un innan OECD, Alþjóðaorku- stofnunin, m.a. með atkvæði Islands. Grundvöllur hennar er samningur um alþjóðaorku- áætlun, sem greinist í tíu meginþætti: 1. Neyðarbirgðir olíu. 2. Takmörkun á eftir- spurn eftir olíu á neyðartím- um. 3. Úthlutun á olíu á Verkfall nemenda Myndlist^- og hand- íðaskóla Islands NEMENDUR Myndlista- og handíðaskólans mættu margir hverjir ekki í kennslu í gær og var þetta eins dags verkfall nemenda gert vegna þeirrar hug- myndar að leggja nýlistadeild skólans niður á næstunni sem sérstaka deild. — Það er alls ekki verið að leggja niður þesSa listgrein, held- ur er lagt til að deildin sem slík verði lögð niður að tveimur árum liðnum, þegar hún hefur útskrifað síðustu nemendur sína, en hægt verði áfram að fá kennslu í þessari grein, sagði Einar Hákonarson skólastjóri er Mbl. ræddi við hann. Sagði hann Hildi Hákonardóttur fyrrum skólastjóra hafa tekið að starfrækja þessa deild og á sama hátt og hún stofnaði deildina hefði hann vald til að leggja hana niður. Væri það hans mat og tillaga að nú skyldi það gert, en mál þetta hefur verið rætt að undanförnu af skólastjórn og nemendum. — Eg tel vonlaust að stjórna þessari stofnun ef ég sem ábyrgð- armaður hennar verð að beygja mig undir meirihlutasamþykkt nemenda, sem fengin jer með handauppréttingu og þess vegna hef ég látið að því liggja að ég muni láta af störfum verði þessari ákvörðun breytt, en til þess hefur menntamálaráðherra vald, sagði Einar ennfremur. Einar Hákonarson tók fram, að hann hefði látið deildarstjóra verk- og tæknimenntunardeildar menntamálaráðuneytisins vita af þessari hugmynd. í gær gengu tveir kennarar og tveir nemendur skólans á fund ráðherra vegna málsins. Lítið var um kennslu i Myndlista- og handiðaskólanum i gær vegna verkfalls nemenda. Ljú»m. Krisiján 14 keppendur í Rally Special ÞEIR Birgir Bragason og Birgir Ilalldórsson. sem óku á Datsun 1800 árgerð 1972, urðu sigurveg- arar i Rally Special keppninni. sem fram fór við Loftleiðahótelið um siðustu helgi. í öðru sæti urðu þeir Ævar Sigdórsson og Halldór Sigdórsson, sem óku á Saab 96, árgerð 1973. Þriðju í röðinni urðu svo Ásgeir Sigurðsson og Ingimundur Ingi- mundarson, sem voru á Lada 1500 -bíl. Keppendur í rallyinu voru alls 14 og tókst það að sögn kunnugra með ágætum. Sigurvegararnir Birgir Bragason og Birgir Halldórsson á fullri ferð. Ljásmynd Mbl. GunnlauKur. ’ K. -*• , -3 • > w 4 í rtðru sæti voru þessir ökukappar á Saab 96. Ljosmynd Mbl. GunnlauKur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.