Morgunblaðið - 30.04.1981, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.04.1981, Qupperneq 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 JM«r0unl>Uibib FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1981 Síminn á afgreiðslunni er 83033 JtWrsunbfabift Seðlabankinn: Skuld ríkissjóðs hefur hækkað um 63% frá áramótum SKULD ríkissjóðs við Seðla- bankann nam í marslok 487 milljónum króna, en um áramótin síðustu var hún 298 milljónir og heíur hún því ha kkað á þessu tímabili um 63.3%. Upplýsingar þessar feng- ust hjá Seðlabankanum í gær. Hér er um að ræða A hluta ríkissjóðs og á sama tíma í fyrra, þ.e. í marslok, var skuld ríkissjóðs við bankann um 357 milljónir króna. Sex Eyjabátar með yfir þúsund lestir Vostmannaoyjum 29. april. AFLI er enn mjoK þokkaleKur i netin ok komu bátarnir inn i «aLr meO KiWan afla, marKÍr voru með i krinKum 20 tonn. en mest rúmlcKa 10 tonn. Iljá toKbátunum helur verið þokkalcKasta kropp ok hlut- urinn á minni toKbátunum hefur verirt stórKÓOur i þessum mánuói. I'art ber þó art hafa i huK» art fyrstu þrjá mánurti ársins var afli litill ok stórtuKar ÓKa'ftir. Níu bátar mega veiða 200 hrefnur NÍU hátar hafa fengið leyfi tii hrefnuveiða í ár ok er leyít að veiða 200 dýr eins ok undanfar- in sumur. Bátarnir, sem gera út á hrefn- una á sumrin eru 15—30 tonn að stærð og eru hrefnuafurðirnar ýmist seldar á Japansmarkað eða hér innanlands. Tveir bátanna leggja upp á Brjánslæk á Barðaströnd en hinir á Súðavík, Hólmavík, Blönduósi, Arskógsströnd, Ak- ureyri, Þórshöfn og Neskaup- stað. Hér eru nú sex bátar komnir með yfir þúsund tonn á vertíðinni, Surtur- ey, Þórunn Sveinsdóttir, Glófaxi, Valdimar Sveinsson, Gjafar og Ál- sey, og Gandí er ekki langt undan. Mikil keppni virðist framundan um aflakóngstitilinn á þessari vertíð. Suðurey hefur talsvert dregið á Friðrik Sigurösson frá Þorlákshöfn síðustu vikurnar, en Þórunn Sveins- dóttir hefur hins vegar nálgast Suðureyna á sama tíma. Hér í Eyjum byrjaði að snjóa síðdeis í dag og er nú nánast orðið alhvítt um að litast í bænum. — Fréttaritari. Um 170 fóstrur héldu fund i Kærkvoldi ok ræddu kjaramál sln. Var fundinum ekki lokirt á tólfta timanum í gær. en þar voru miklar umræður ok skiptar skortanir um kjaramálin að þvi er talsmenn fóstra tjáðu Mhl. f-k | • • 1 • 1 1 • i i • Ljósm. Kristján. Barnaheimili loka eftir helgina: Ekki útlit fyrir að sætt- ir takist í fóstrudeilunni Um 170 fóstrur er starfa í Reykja- vik, Ilafnarfirrti. Garrtabæ ok á veKum rikisins, sátu í gærkvöldi á fundi i húsakynnum BSRB ok ra'ddu kjaramál sin. en allt útlit er nú fyrir að fóstrur í Reykjavík mæti ekki til vinnu eftir mánarta- mótin ok daKvistarstofnanir verði þvi lokaðar frá mánudegi. Marta Sigurðardóttir, talsmaður fóstra, tjáði Mbl. í gærkvöldi, að ekki hefði í gær verið fundur með fóstrum í Reykjavík eða Hafnar- firði, en rætt var við fóstrur í Garðabæ og þær er starfa á dagheimilum á vegum ríkisins. Kvaðst hún búast við frekari viðræðum í dag, en ekki hefur verið boðað til viðræðna í Hafnar- firði né Reykjavík. Sagði Marta því allt útlit fyrir að dagvistarstofnan- ir yrðu lokaðar eftir helgina. I frétt frá launamálanefnd Reykja- víkur í gær segir að fóstrur hafi hafnað tilboðum um sömu launa- flokka og hjá hjúkrunarfræðing- um, þ.e. 11. til 13. fl. og að í nýrri kröfugerð fóstra um 12. til 14. fl. felist enginn sáttargrundvöllur. Afleiðingar frumvarps rikisstjórnarinnar: Fari eitt fyrirtæki upp fyrir þakið þarf að skera annað niður „FRUMVARPIÐ gerir ráð fyrir þvi, að þarna sé um að rærta mertaltalshækkanir samkvæmt ákvörrtunum rikisstjórnarinnar fyrir hvert tímahil. Þart hefur þart i för mert sér. að þart verrtur mjög mikill vandi fyrir Verðlagsráð. að framkva'ma þessi lög,“ sagrti Þors- teinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ. sem jafnframt á sæti í Verð- lagsráði, i samtali við Mbl., er hann var inntur eftir þvi hverjar breytingar m.a. hin nýju verrtstöðv- unarlog rikisstjórnarinnar heírtu i för með sér. „Fyrir það fyrsta þarf að gæta mjög vel að því, að framkvæmdin leiði ekki til mismununar milli atvinnugreina. Eins þarf að gæta þess, að ekki komi fram óeðlileg mismunun milli fyrirtækja, því að lögin gera ráð fyrir því, að ef eitt fyrirtæki fer upp fyrir þakið þá verði að skera annað niður að sama Matthías Bjarnason um verðlagsfrumvarpið: Málsmeðferð ráðherra lýsir virðingarleysi við Alþingi ÞAÐ IIEFUR verirt ákaflega und- arlega art þessu máli staðirt á Alþingi. sagrti Matthias Bjarna- son. fulltrúi Sjálfsta'rtisflokksins i fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar. þegar Morgunhlartirt spurrti hann í gærkvoldi um fram- gang frumvarps rikisstjórnarinn- ar um verðlagsmál og fleira. — Við fengum ekki að sjá frumvarpið fyrr en hálftíma áður en það var fram lagt á mánudag. Á þriðjudag voru umræður stuttar til að flýta málsmeðferðinni og nefnd- arfundir hófust klukkan 8 á mið- vikudagsmorgun. Við notuðum hverja stund til þingflokksfunda. Frá upphafi var ljóst, að fram kæmu nefndarálit frá stjórn og stjórnarandstöðu. Nefndarfundum lauk ekki fyrr en á seinni tímanum í sjö á miðvikudagskvöld. Þá gerist það, að forsætisráðherra heimtar umræðu rúmum tveimur tímum seinna. Þótt stjórnarliðar, sem haft hafa málið milli handanna dögum og vikum saman, hefðu getað skilað nefndaráliti á svo skömmum tíma, gilti annað um stjórnarandstöðu. Það var þó ekki fyrr en forseti neðri deildar hafði ásamt fleirum komið viti fyrir forsætisráðherra, að hægt var að fá hann ofan af þingfundi. Og í samræmi við vilja okkar til að greiða fyrir meðferð málsins hefur verið boðaður fundur klukkan 13 á fimmtudag í stað klukkan 14 eins og venja er. Eg á von á því, að málið verði afgreitt úr neðri deild á einum degi, en veit ekki, hvað efri deildarmenn gera. Allt fram- ferði stjórnarliða og einstakra ráðherra í kringum þetta mál hefur lýst miklu virðingarleysi við viðteknar starfsvenjur á Alþingi. — Um efnishlið málsins get ég verið stuttorður á þessu stigi, sagði Matthías Bjarnason. Svokölluð verðstöðvunarákvæði ganga út yfir allt, sem nokkur vinstri stjórn hefur áður vogað sér að gera. í raun er gengið þvert á þá starfs- hætti, sem til dæmis eru tíundaðir í Ólafslögum, því að ekki á lengur að taka tillit til hagkvæmni í rekstri fyrirtækja eða afkomu, þegar heiðnir þeirra eru afgreiddar heldur laga sig að einhverri há- marksreglu, sem ríkisstjórnin set- ur. Þar með hefur verðlagsráð verið gert marklaust. — Ákvæðin um heimild til að hækka bindiskyldu banka og spari- sjóða i Seðlabankanum eru aðför að öllum almennum lánastofnun- um í landinu. Það er algjört einsdæmi, að ákvæði séu sett um bindiskyldu án þess að setja á hana þak, hún nemur nú 28% af innlánsfé í bönkum og sparisjóð- um, sem auk þess verða að kaupa skuldabréf í þágu ríkisins fyrir 7% af inlánsaukningu, þannig eru 35% innlána bundin af ríkinu og stefnt að því að hækka þetta hlutfall að geöþótta ríkisstjórnarinnar. Hér er rangt að farið, endurkaupalán ættu að flytjast í viðskiptabank- ana og bindiskyldan að lækka. — Með heimildinni til ríkis- stjórnarinnar, að hún megi skera niður útgjöld um 31 miiljón króna, er verið að veita henni þriðju slíka heimildina. Sú fyrsta var veitt með fjárlögum fyrir 1981, önnur með bráðabirgðaiögunum um áramótin og nú er þetta enn endurtekið. — Að lokum er ástæða til að lýsa áhyggjum yfir lögbannsákvæðinu í 2. grein frumvarpsins. Með því er farið inn á nýja og hættulega braut, þar sem allur réttur er færður í hendur rikisvaldsins en einstaklingar og fyrirtæki látin sæta afarkostum og lögregluvaldi án þess að þeim sé tryggt, að þeir geti sætt hlutlægri málsmeðferð hjá verðlagsyfirvöldum, áður en lögregla er send á vettvang. Fljót- virkari framkvæmd yfirvalda að þessu leyti krefst þess, að þau séu skuldbundin til aö afgreiða hækk- unarbeiðnir innan ákveðins tíma. skapi. Þetta mat hlýtur að vera mjög erfitt og ég sé ekki annað en að það leiði tii þess, að Verðlagsráð verði að fjalla um málin á mun breiðari grundvelli heldur en verið hefur," sagði Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ, ennfremur. I ályktun stjórnar Félags ís- lenzkra iðnrekenda, sem Mbl. barst í gær segir svo um þetta atriði frumvarps ríkisstjórnarinnar: „Upplýst hefur verið að með ársfjórðungslegum meginmarkmið- um munu stjórnvöld miða við með- altalshækkanir. Þetta þýðir að eftir því sem fleiri opinber fyrirtæki fá verðhækkun umfram meginmark- miðið verður minna til skiptanna fyrir iðnfyrirtæki og þjónustu. Sama máli gegnir um verðhækkanir á erlendum iðnaðarvörum, sem stjórnvöld láta afskiptalausar, að eftir því sem þær eru meiri fá innlendar framleiðsluvörur minni hækkun.“ í Morgunblaðinu í dag eru viðtöl við nokkra forystumenn í einka- og opinberum rekstri. Hjá þeim kemur fram ótti við afleiðingar laga ríkis- stjórnarinnar, ef samþykkt verða. Fyrirtækjum sé stefnt í hættu og þar með atvinnuöryggi og aðeins sé verið að ýta vandanum á undan sér. Hjá opinberum fyrirtækjum þýði minni hækkanir aðeins minni fram- kvæmdir og lélegri þjónustu. Sjá ennfremur á bls. 2, 20 ug 21. Auglýsingar sem birtast eiga í sunnudagsblaðinu 3. maí þurfa að hafa borist auglýsingadeildinni fyrir kl. 18.00 fimmtudaginn 30. apríl. Auglýsingadeildin er lokuð 1. maí og Morgunblaðið kemur ekki út laugardaginn 2. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.