Morgunblaðið - 10.11.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
17
fyrirUekja þá yfirfarnir? Hvað er hér
um háar upphæðir að ræða?
c) Hvað hefur verið gert til þess að
bæta úr aðfinnslum bæjarendur
skoðanda?
d) Hvaða stóru óvissuþættir, sem bæj-
arendurskoðandi taldi óleysta 21.
október, höfðu verið leystir tveimur
dögum síðar og þá hvernig og hve-
nær?
3. Viðskipti forstjórans
Athugasemdir bæjarendurskoð-
anda snúast að töluverðu leyti um
viðskipti og fjárreiður forstjóra bæj-
arútgerðarinnar. Þar kemur meðal
annars fram eftirfarandi:
A. Viðskiptareikningur forstjóra:
í framhaldsskýrslu bæjarendur-
skoðanda frá 6. ágúst 1981 stendur:
„Áður en tekið er tillit til 2ja loka-
færslna á viðskiptareikningnum,
nemur skuld forstjóra gkr.
5.755.322,00 í lok ársins 1980. Loka-
færslur nema nákvæmlega þessari
framangreindu fjárhæð og eru tald-
ar laun fyrir jan. 1981, orlof o.fl. og
uppfært á viðskiptareikning: Bið-
reikn. fyrirframgreidd laun starfs-
fólks.“
Bæjarstjórn skortir hér upplýs-
ingar.
a) Hvernig og hvenær myndaðist þessi
skuld forstjórans g.kr. 5.755.322,00
við fyrirtækið?
b) Hefur þessi skuld verið gerð upp og
þá hvenær og hvernig?
c) Hvenær voru þær lokafærslur færð-
ar, sem bæjarendurskoðandi nefnir?
d) Hefur biðreikningurinn verið gerður
upp og honum lokað og þá hvernig
og hvenær?
B. Orlof forstjóra:
í skýrslu bæjarendurskoðanda frá
6. ágúst 1981 segir svo um orlof for-
stjórans: „Annars vegar kemur fram
reikningur í apríl 1980 g.kr.
1.709.100,00 vegna orlofsársins
1979—1980, og hins vegar reikningur
í febrúar 1981 g.kr. 2.306.090,00
vegna orlofsársins 1980—1981.
Orlofsárið skv. kjarasamningi
Hafnarfjarðarkaupstaðar við
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar er
frá 1. maí — 30. apríl þannig að þeg-
ar t.d. seinni reikningurinn kemur
fram þá er orlofsárið ekki nærri því
búið. Skv. upplýsingum forstjóra tók
hann sér orlof í apríl 1981, þannig að
svo virðist sem um tvígreiðslu sé að
ræða.“
Á fundi sínum 8. október 1981 bók-
ar útgerðarráð eftirfarandi um þetta
mál: „Útgerðarráð telur, þar sem
mismunur er á orlofsútreikningi
Helga Númasonar og Björns Ólafs-
sonar á orlofsreikningi Björns Ólafs-
sonar, að þeir komi sér saman um
niðurstöðutölu og ljúki málinu
samkv. því.
Þann 20. október 1981 samþykkir
útgerðarráð að láta útreikninga
endurskoðanda gilda um orlof for-
stjórans. I bréfi bæjarendurskoð-
anda frá 21. október 1981 segir: „Það
þýðir lækkun á áðursendum reikn-
ingum forstjóra um gkr. 600.766,00.“
Engar frekari upplýsingar hafa bor-
ist bæjarstjórn um málið, en hér
vakna margar spurningar, sem
nauðsynlegt er að bæjarstjórn fái
svarað:
a) Hver heimilaði forstjóranum, að
taka sér ekki lögboðið sumarleyfi,
heldur greiða sér sjálfum út orlofs-
féð í peningum? Er slfkt heimilt
samkvæmt orlofslögunum?
b) Hefur sú tvíborgun orlofs til for
stjórans, sem bæjarendurskoðandi
talar um í skýrslu sinni frá 6. ágúst
1981 verið leiðrétt og þá hvernig?
c) Með hvaða heimild greiddi forstjór
inn sér út orlofsféð fyrir orlofsárið
1980—1981 í febrúar 1981, og.
hvernig gat hann reiknað út, að
orlofsfé hans væri gkr. 2.306.090,00,
löngu áður en orlofsárið var búið?
d) Hvernig er fundinn sá mismunur á
orlofsútreikningum forstjórans og
bæjarendurskoðandans g.kr.
600.766,00 sem fram kemur í bréfi
bæjarendurskoðanda frá 21. októ-
ber 1981. Hefur hann verið gerður
upp og þá hvernig og hvenær?
C. Bifreiðakaup forstjóra:
Fram kemur í 9. lið fyrirspurnar
bréfs bæjarendurskoðenda frá 21.
janúar 1981 og í sama lið svarbréfs
forstjóra frá 26. janúar 1981, að inn-
borgun bæjarútgerðarinnar á bif-
reið, sem hún ætlaði að kaupa af
Sveini Egilssyni hf., hafi síðan runn-
ið upp í kaup á bifreið, sem forstjór-
inn keypti af sama fyrirtæki.
Ástæða er til, að bæjarstjórn fái
upplýsingar um, á hvers nafn inn-
borgunarkvittunin frá Sveini Egils-
syni hf. hljóðaði, svo og hver það var,
sem endurgreiddi bæjarútgerðinni
þessa peninga 31. desember 1980.
Um þetta hefur bæjarstjórn engar
upplýsingar fengið.
D. Utanlandsferðir
forstjórans:
Margar fyrirspurnir og athuga-
semdir endurskoðandans varða
utanlandsferðir forstjórans. í
skýrslu endurskoðanda frá 6. ágúst
1981 kemur fram, að forstjórinn hafi
mótað sér þá reglu að vera með 30%
ofaná venjulega dagpeninga sem
opinberir starfsmenn fá. Ennfremur
segir bæjarendurskoðandi, að svo
virðist sem hærra en 30% álag hafi
verið notað þegar út var farið vegna
Júní í júlí 1980.
Engar upplýsingar liggja fyrir
bæjarstjórn, samkvæmt hvaða
heimild forstjórinn hefur greitt sér
þetta álag og heldur ekki um það,
hversu mikið hærra en 30% álagið
var, sem hann fékk í það sinn, sem
bæjarendurskoðandi nefnir. Nauð-
synlegt er, að bæjarstjórn fái þetta
hvoru tveggja upplýst.
Hér skal látið staðar numið í upp-
talningu á þeim helztu atriðum, sem
fram koma í athugasemdum bæjar-
endurskoðanda og við teljum nauð-
synlegt að bæjarstjórn fái frekari
upplýsingar um, þó ýmislegt fleira
mætti nefna, svo sem gögn málsins
bera með sér.
Tillögur til úrskurðar:
í 57. grein sveitarstjórnarlaga eru
svofelld ákvæði:
„Að lokinni endurskoðun skal
endurskoðandi gera skriflega
skýrslu um endurskoðunina, þar sem
grein er gerð fyrir öllum athuga-
semdum, sem gerðar hafa verið við
bókhald og fjárreiður.
Reikningshaldari skal eiga kost á
einnar viku fresti til þess að svara
athugasemdum, en síðan gerir
endurskoðandi tillögur til sveitar-
stjórnar um úrskurð á athugasemd-
um.
Ársreikningar, ásamt endurskoð-
unarskýrslu, svörum reikningshald-
ara og úrskurðartillögum endur-
skoðenda, skulu lagðar fyrir sveitar-
stiórn til ályktunar."
Svo sem áður hefur verið marg-
rakið, þá héfur bæjarendurskoðandi
gert margar athugasemdir við reikn-
inga og fjárreiður bæjarútgerðar-
innar. Hann hefur hinsvegar ekki
gert neinar tillögur til bæjarstjórn-
ar til úrskurðar á þessum atriðum,
svo sem framangreind lagaákvæði
mæla fyrir um. I bréfi bæjarend-
urskoðanda frá 21. október 1981
kveðst hann vilja gera tillögur um
ákveðin atriði, síðan koma aðeins
fram ýmsar upplýsingar um stöðu
mála í 7 liðum, en engar tillögur til
úrskurðar á athugasemdum hans.
Til þess að hægt sé fyrir bæjar-
stjórn að afgreiða reikninga hæjar-
útgerðarinnar svo sem lög mæla
fyrir um, er nauðsynlegt að fyrir
liggi tillögur frá endurskoðanda til
úrskurðar á athugasemdum hans.
Nánar um þau atriði, sem telja verð-
ur, að bæjarstjórn sé skylt að úr-
skurða um, leyfum við okkur að vísa
til þeirra mála, sem við höfum talið
hér upp að framan og við teljum
nauðsynlegt að upplýst verði betur,
svo og ýmissa atriða, sem fram koma
í fyrirspurnarbréfum bæjarendur-
skoðanda og svarbréfum bæjarút-
gerðarinnar, en ekki eru talin upp
hér sérstaklega.
í tillögu okkar undirritaðra, sem
áður er getið og meirihluti bæjar-
fulltrúa samþykkti að vísa frá á bæj-
arstjórnarfundi 27. okt. sl., er einnig
lagt til, að bókhald fyrirtækisins
fyrir yfirstandandi ár verði endur-
skoðað eftir því sem tilefni kann að
gefast til, enda ná mörg þau atriði,
sem bæjarendurskoðandi hefur gert
athugasemdir við fram á þetta ár.
Það er skoðun okkar, að á meðan
bæjarstjórn skortir enn margvísleg-
ar upplýsingar varðandi reikninga
og fjárreiður bæjarútgerðarinnar
fyrir árið 1980, svo og á meðan að
ekki liggja fyrir frá endurskoðanda
tillögur til úrskurðar á athugasemd-
um hans, þá sé ekki hægt að afgreiða
reikningana í bæjarstjórn með
lögmætum hætti. Við leggjum
áherslu á að lögum samkv. er bæjar-
stjórn úrskurðaraðili um athuga-
semdir endurskoðanda, en ekki út-
gerðarráð. Við teljum, að meirihluti
bæjarfulltrúa hafi ekki farið rétt að,
er hann ákvað að taka reikningana
til afgreiðslu og samþykkti að visa
þeim til síðari umræðu, án þess að
fullnægjandi upplýsingar og tillögur
til úrskurðar lægju fyrir bæjar-
stjórn. Undirskrift bæjarendurskoð-
anda á útgerðarráðsfundi 23. októ-
ber 1981 undir það, að með þeim
þremur atriðum, sem þar eru bókuð
og áður hafa verið rakin, þá telji
hann „að fullnægjandi grein hafi
verið gerð við aðfinnslum hans
vegna endurskoðunar hans fyrir árið
1980,“ breytir hér engu, enda ekki í
samræmi við þau gögn málsins, sem
fyrir liggja, né þær staðreyndir, sem
hér hafa verið raktar. Þessi undir-
skrift bæjarendurskoðanda getur
heldur ekki fríað bæjarfulltrúa
þeirri ábyrgð, að upplýsa öll atriði
málsins, né að gegna þeirri skyldu
sinni að taka athugasemdir endur-
skoðandans til efnislegs úrskurðar.
I framhaldi af því, sem nú hefur
verið rakið, leyfum við okkur með
vísan til 3. kafla sveitarstjórnarlaga,
sérstaklega 61. greinar, að kæra mál
þetta til hins háa ráðuneytis.
Við óskum úrskurðar um eftirtalin
atriði:
1. Er sú meðferð á fjárreiðum Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar, sem fram
kemur í skýrslum bæjarendurskoð-
anda og öðrum gögnum málsins
heimil samkvæmt ákvæðum 3. kafla
sveitarstjórnarlaga, sérstaklega
ákvæðum 47. greinar, samanber d-
lið 56. greinar?
2. Ber endurskoðanda ekki skylda til
að gera tillögu til bæjarstjórnar um
úrskurð á athugasemdum sínum við
reikninga Bæjarútgerðar Hafnar
fjarðar fyrir árið 1980, samkvæmt
ákvæðum 57. greinar sveitarstjórn-
arlaga? Ber bæjarstjórn ekki skylda
til að taka síðan þær tillögur að úr
skurði til ályktunar við afgreiðslu
reikningana?
3. Er bæjarstjóm heimilt að taka reikn-
inga Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar til
afgreiðslu, áður en nefndar tillögur
bæjarendurskoðanda til úrskurðar
liggja fyrir og áður en bæjarfulltrúar
hafa fengið þær upplýsingar, sem við
höfum rakið hér að framan, að enn
skorti, vegna athugasemda bæjar
endurskoðanda?
4. Ef ráðuneytið kæmist að þeirri
niðurstöðu, að ekki hafi verið farið
að lögum í máli þessu, þá óskum við
eftir því að ráðuneytið leggi fyrir
bæjarstjóm Hafnarfjarðar, að þau
atriði, sem rakin hafa verið hér að
framan, og við teljum enn skorta á
að hafi verið upplýst, verði kunngerð
bæjarfulltrúum á fullnægjandi hátt."
Ennfremur, að lagt verði fyrir bæjar
stjórn að afgreiða reikningana í sam-
ræmi við 57. grein sveitarstjórnar
laga, þannig að fyrir liggi tillögur um
úrskurð á athugasemdum bæjarend-
urskoðanda, sem bæjarstjórn álykti
um.
Með bréfi þessu sendum við eftir-
talin gögn:
1. Ljósrit af bréfi bæjarendurskoð-
anda til forstjóra BUH dagsett 21.
janúar 1981.
2. Ljósrit af svarbréfi forstjórans til
baejarendurskoðanda dags. 26.
janúar 1981.
3. Ljósrit af bréfi bæjarendurskoð-
anda til BÚH dags. 28. apríl 1981.
4. Ljósrit af svarbréfi skrifstofu-
stjóra BÚH dags. 15. maí 1981.
5. Ljósrit af endurskoðunarskýrslu
dags. 21. maí 1981.
6. Ljósrit af framhaldsendurskoðun-
arskýrslu dags. 6. ágúst 1981.
7. Ljósrit af bréfi bæjarendurskoð-
anda til bæjarráðs dags. 21. októ-
ber 1981.
8. Ljósrit af fundargerðum bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar dags. 13.
og 27. október 1981.
9. Ljósrit af fundargerðum útgerð-
arráðs dags. 8., 20. og 23. október
1981.
Virðingarfyllst,
Árni Grétar Finnsson,
Einar Þ. Mathiesen.
OtNSTELLIb
Glæsilegt í formi -
fágað í áferð
Nýja Öðustellið er glæsilega
yfirvegað í formi með silkimjúka
pastelgráa áferð og býður
upp á fjölbreyttustu möguleika
í uppröðun.
Einfalt, beint á tréborðið, eða á
glæsilegt veisluborö með kertum
og blómaskreytingum.
— Ö^ustellið, form og áferð,
fer allsstaðar vel.
Ööustellið er glerjað með
sterkustu steinefnum.
SENDUM MYNDALISTA
HANDVERKí SÉRFLOKKI