Morgunblaðið - 10.11.1981, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
íslenzkir vopnaflytjendur?:
„Líbýa uppeldisstöð
hryðjuverkamanna“
sagði Árni Gunnarsson á Alþingi
- Ekkert komið fram sem
Árni Gunnarsson (A) kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár á Alþingi sl.
mánudag og heindi fvrirspurnum
til samgönguráðherra varðandi
meinta vopnaflutninga með ís-
lenzkum flugvélum til Líbýu, sem
hann kallaði uppeldisstöð hcrmd-
arverkamanna, og S-Arabíu. Hann
kvað íslenzkum flugfélögum
óheimilt að flytja vopn nema með
sérstöku leyfi samgönguráðuneyt-
isins og taldi að um slík leyfi hafi
verið sótt varðandi flutninga til
S-Arabíu. Hann sagði Arnarflug
hafa farið 7 ferðir til Líbýu. I
farmskrám hafi verið getið bæði
um „æfingaskot“ og efni, sem
sprengihætta stafaði af. Ekki hafi
vopn verið tilgreind, en farmskrár
væru ekki einhlítar um, hver
flutmingur er, sagði hann.
Arni sagði ekki við hæfi að ís-
lenzkir farkostir væri notaðir til
þessara verkefna, þ.e. flutninga,
sem aðrir litu hornauga, enda
væri Líhýa uppeldisstöð hryðju-
verkamanna, sem sendir væru til
illvirkja vítt um heim.
Steingrímur Hermannsson, sam-
gönguráðherra, sagði kæru hafa
borizt um meinta vopnaflutninga
á vegum Arnarflugs frá Frakk-
landi til Líbýu. Loftferðaeftirlit
hafi tekið þessa kæru til meðferð-
ar og fengið ljósrit af farm-
skjölum. Ekkert hafi komið fram í
þeim, sem bent hafi til ólöglegra
flutninga, en rétt væri, að þar
væri getið um sprengihætt efni og
æfingaskot. Ekkert hafi heldur
komið fram sem benti til óleyfi-
legra flutninga Flugleiðavéla í Lí-
býu á hættulegum efnum. Hins-
vegar hafi það flugfélag fengið
leyfi til vopnaflutninga til S-Ar-
abíu. Ráðherra kvaðst láta kanna,
hvern veg þessum málum væri
háttað hjá öðrum þjóðum, en í
Bretlandi væri i gildi reglugerð,
sem heimilaði vopnaflutninga frá
ákveðnum stöðum til ákveðinna
staða. Alit eftirlit hér að lútandi
er erfiðleikum háð, sagði ráð-
herra, en spurning er, hvort banna
á íslenzkum flugvélum alfarið
vopnaflutninga, en þeir eru veru-
legur hluti farms í veröldinni.
Benedikt Gröndal (A) sagði Is-
lendinga ekki geta hagað utanrík-
isviðskiptum sínum eftir því,
hverskonar stjórnir sætu við völd
í einstökum ríkjum. Hinsvegar
væri Líbýa ekki fýsilegur félagi í
hópi siðaðra og friðelskandi þjóða.
Eg skora á samgönguráðherra að
beita áhrifum ráðuneytis síns á
viðkomandi íslenzka flutnings-
aðila, að þeir hætti með öllu við-
skiptum sínum við Líbýu.
Guðrún Helgadóttir (Abl) þakk-
aði Arna tímabæra fyrirspurn og
hvatti ráðherra til að gefa Alþingi
tæmandi skýrslu um þessi til-
greindu flutningamál. Hinsvegar
bendir til ólöglegra flutninga,
kvað hún illt í efni, ef strand sov-
ét-kafbáts á sænskri grund væri
notað til að berja á friðarhreyf-
ingum í V-Evrópu.
Ólafur 1>. Þórðarson (F) sagði þá
hugsun hafa sótt á sig undir þess-
ari umræðu, hvort veröldin væri
yfirleitt við hæfi íslendinga, sem
teldu sig svo miklu betri en af-
ganginn af mannkyni. Sósíal-
demókratar í ' Svíþjóð eru bæði
vopnaframleiðendur og vopnaselj-
endur um allan heim. Vita já-
bræður þeirra hér á landi ekkert
Hver verður af-
staða Framsóknar?:
„Það er
eftir að
vita“
- sagði Tómas Árna-
son um sérstakan
skatt á verzlunar-
húsnæði
Kagnar Arnald.s, fjármála-
ráðherra, mælti fyrir stjórnar-
frumvarpi til framlengingar á sér
stökum skatti á verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði í neðri deild Al-
þingis sl. mánudag. Matthias A.
Mathiesen (S) sagði sjálfstæðis-
menn, bæði stjórnarsinna og
stjórnarandstæðinga, hafa lýst yfír
andstöðu við þessa skattheimtu.
Sama mætti segja um framsóknar
þingmenn, ef marka mætti um-
mæli Steingríms Hermannssonar,
formanns flokksins, og Tómasar
Árnasonar, viðskiptaráðherra,
sem látið hafí að því liggja í þing-
ræðum að þessi skattur yðri felld-
ur niður, enda kæmi hann til við-
bótar hækkuðum eignaskatti og
mjög illa við strjálbýlisverzlunina.
Matthías sagðist efast um að
þessi skattheimta hefði tilskilið
þingfylgi. Beindi hann þeirri
fyrirspurn til Tómasar Arna-
sonar, hver væri afstaða hans og
framsóknarþingmanna til þess-
arar skattheimtu nú. Tómas
svaraði því einu að vísa til ræðu
sinnar á fyrra þingi. Þá spurði
Matthías enn: „Stendur ráð-
herra við hana?“ Og ráðherra
svaraði: „Það er eftir að vita."
Matthías spurði þá, hvort sú
saga endurtæki sig að varaþing-
maður kæmi inn fyrir ráðherr-
ann til að samþykja það sem
honum væri óljúft. Það er auð-
séð, sagði Matthías, hverjir ráða
ferð í skattheimtunni, þ.e. Al-
þýðubandalagið.
sagði samgönguráðherra
þar um? Og hver veit nema ís-
/lenzkur fiskur hafi verið á borðum
í sovézka kafbátnum, er hann
strandaði hjá sænskum. Naumast
hættum við að selja þeim ugga.
Auðvitað var það rétt hjá Grön-
dal, að íslenzk utanríkisviðskipti
geta ekki tekið mið af stjórnarfari
einstakra ríkja, en okkur ber að
halda alþjóðlega samninga.
Ragnhildur Helgadóttir (S) sagði
strand sovézks kafbáts, með
kjarnvopn innanborðs, á ströndu
S-Svíþjóðar, að viðbættri upp-
ljóstran um danskan Sovétþjón,
sem starfaði á vegum svokallaðrar
friðarhreyfingar um einhliða af-
vopnun í V-Evrópu, og haft hafi
milligöngu um rússneska fjár-
mögnun á tiltekinni starfsemi
hreyfingarinnar, hafa svipt áróð-
urshulunni af þessari starfsemi.
Hún vitnaði til leiðara í málgagni
Guðrúnar Helgadóttur, sem séð
hefði sig knúið til að lýsa því yfir,
að friðarhreyfing, byggð á rússn-
eskum friði, væri verri en engin
friðarhreyfing.
Guðrún Helgadóttir (Abl.) sagði
sök kollega síns í Danmörku ekki
sannaða. Hún biði með eigin for-
dæmingu málalykta.
Friðrik Sophusson (S) las úr leið-
ara Þjóðviljans, þar sem friðartali
Sovétríkjanna var líkt við heims-
met í hræsni og yfirdrepsskap.
Hann sagði framvindu mála hafa
sýnt svo ekki yrði um villst, að
einhliða yfirlýsing um afvopnun
af hálfu lýðræðisríkjanna væri út
í bláinn.
Svipmynd frá Alþingi
Einn flokkur, tveir armar, gæti hún heitið myndin sú
arna, sem tekin var í bakgarði Alþingis: Pálmi Jónsson
landbúnaðarráðherra og Birgir Isleifur Gunnarsson
fyrrv. borgarstjóri í Reykjavík
Sjálfvirk lán í Útvegsbanka:
Óheppilegur fjölmiðlamatur
- sagði Alexander Stefánsson
Sighvatur Björgvinsson(A) beindi þeirri fyrirspurn tii Tóm-
asar Árnasonar, ráðherra bankamála, í neðri deild sl. mánu-
dag, hvað fælist í þeim orðum Halldórs Ásgrímssonar, for
manns bankaráðs Seðlabanka, að grípa þyrfti til „viðeigandi
ráðstafana", ef Útvegsbankinn hætti sjálfvirkri afgreiðslu
afurðalána til atvinnuveganna, eins og Albert Guðmundsson,
formaður bankaráðs Útvegsbankans, hefði látið að liggja.
Hver er afstaða annarra viðskiptabanka til þessa máls? Hvað
felst í orðunum „viðeigandi ráðstafanir“?
Tómas Árnason, vióskiptaráð-
herra, sagði spurningunum fljót-
svarað. Enginn hefur rætt við mig
um þetta mál, hvorki af hálfu
Seðlabanka né Útvegsbanka, ég
hefi því ekkert um málið að segja
hér og nú.
Albert Guðmundsson (S) sagðist
harma orð ráðherra, sem stönguð-
ust á við það sem hann (Albert)
hefði áður sagt um þetta mál.
Bankaráð hefur ekki aðeins gert
samþykkt í málinu, heldur og rit-
að ríkisstjórn um væntanlegar
ráðstafanir af hálfu bankans. Áuk
þessa hefi ég rætt persónulega
bæði við forsætisráðherra og
bankamálaráðherra um málið.
Tómas Árnason, ráðherra, endur-
tók, að hann hefði ekki séð nein
bréf né átt neinar viðræður varð-
andi þetta mál.
Sighvatur Björgvinsson (A)
sagði alvarlegt mái, ef einn af
þrem viðskiptabönkum ríkisins
tæki ákvörðun um að hætta lána-
fyrirgreiðslu við atvinnuvegina,
sem honum bæri að sinna. Ég trúi
ekki að slíkt verði gert án samráðs
við ríkisstjórn, þó ráðherra þykist
ekkert vita.
Alexander Stefánsso (F), sem
jafnframt er bankaráðsmaður Út-
vegsbanka, sagði samþykkt
bankaráðs vera gerða fyrr á þessu
ári, áður en til kom sérstök aðstoð
við bankann. Samþykktin hafi fal-
ið það í sér að bankinn gæti ekki
veitt viðbótarlán, ofan á venjuleg
lán, nema að undangenginni fyrir-
greiðslu. Hann hefði ekki fjár-
magn til slíks. Engin önnur sam-
þykkt hefur verið gerð í banka-
ráði. Og ég tel óheppilegt að gera
þetta mála að fjölmiðlamat.
r r ^
I stuttu máli I stuttu máli — I stuttu máli — I stuttu máli
Fasteignaskattur af
sumarbústöðum
Pétur Sigurðmon (S), Guðmund-
ur J. Guðmundsson (Abl.), Vil-
mundur Gylfason (A) og Guð-
mundur G. Þórarinsson (F) flytja
frumvarp til laga um breytingu
á lögum um tekjustofna sveitar-
félaga, þess efnis, að fasteigna-
skattur af mati sumarbústaða-
lóða og mannvirkja á þeim skuli
vera 0.25%. Með hliðsjón af því
að not af þessum bústöðum séu
ekki að jafnaði nema 3 mánuðir
á ári sé rétt, að skatturinn sé
aðeins fjórðungur af samskonar
skatti af heilsárshúsnæði.
Námsmenn og
alþingiskosningar
Salome Þorkelsdóttir (S), Stefán
Jónsson (Abl.), Stefán Guð-
mundsson (F) og Eiður Guðnason
(A) flytja frumvarp til breytinga
á kosningalögum, þess efnis, að
námsmenn búsettir á Norður-
löndum skuli færðir á kjörskrár
þar sem þeir vóru síðast heimil-
isfastir hérlendis, nema gild
ástæða sé til annars. Frumvarp-
ið felur og í sér styttingu á
kærufresti til sveitarstjórna.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
laugardagskosningu í stað
sunnudags. Og veltistimplakosn-
ingu við utankjörstaðaatkvæða-
greiðslu, til að fyrirbyggja ógildi
seðla vegna þess að listabók-
stafir eru á stundum illa skrifað-
ir.
Samkvæmt samstarfssamn-
ingi Norðurlanda er aðeins hægt
að eiga lögheimili í einu land-
anna. Þetta hefur skapað örðug-
leika við að koma atkvæðum
— í stuttu máli
námsmanna til skila. Frumvarp-
ið á að gera bragarbót á því.
Sjónvarp á Vestfjörðum
Karvel Pálmason (A) kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár í neðri
deild sl. mánudag og gerði at-
hugasemdir við sjónvarpsskil-
yrði á Vestfjörðum, en skil á
sjónvarpsefni til Vestfirðinga
væru fyrir neðan allar hellur og
þann veg, að ekki væri við hæfi
að heimta afnotagjöld af þeim,
ef ekki yrðu tafarlausar bætur
gerðar. Menntamálaráðherra las
— í stuttu máli
upp skýringu tæknideildar Pósts
og síma, sem fól í sér vilyrði um
úrbætur, eftir því sem aðstæður
og efnahagur leyfðu frekast.
Fríiðnaðarsvæði við
Keflavíkurflugvöll
Karl Steinar Guónason (A)
endurflytur tillögu til þings-
ályktunar um fríiðnaðarsvæði
við Keflavíkurflugvöll, sem ætl-
að er að styrkja atvinnugrund-
völl á Suðurnesjum.