Morgunblaðið - 10.11.1981, Síða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ3ÍUDAG<UR 10. NÓVEMBER 1981
Hvað eru húsnæðislán há
miðað við byggingarkostnað?
eftirfarandi samanburði er því
reiknað út hve stór hluti af verði
staðalíbúðar 2 fáist fyrir hvern
þriðjung lánsins, og er þá miðað
við verð íbúðarinar eins og það var
daginn sem viðkomandi lánshluti
kom til greiðslu. Lánshlutfallið í
heild fæst svo með því að leggja
hlutana þrjá saman.
Eftir Leif Benedikts-
son verkfrϚing
Með nýjum lögum um Húsnæð-
isstofnun ríkisins, sem komu til
framkvæmda nú á þessu ári, urðu
tvær meginbreytingar á reglum
um úthlutun svokallaðra Húsnæð-
ismálastjórnarlána. Önnur var sú
að lánsupphæð fer nú að nokkru
eftir . fjölskyldustærð umsækj-
anda, en var áður sú sama fyrir
alla, hvort sem umsækjandi var
einhleypur eða í stórri fjölskyldu.
Hin breytingin er að lánin eru nú
hækkuð fjórum sinnum á ári í
hlutfalli við hækkun á bygg-
ingarkostriaði, en voru áður aðeins
hækkuð einu sinni á ári. Reglur
um greiðslur lána eru hinsvegar
þær sömu og áður. Lánsfjárhæð
hvers umsækjanda ákvarðast af
því hámarksláni sem í gildi er
þegar hús hans verður fokhelt, og
kemur lánið til greiðslu í þremur
hlutum. Síðari hlutar lánsins
hækka ekki þó að lánsfjárhæð til
nýrra umsækjenda hafi hækkað.
Á undanförnum árum hefur bið
lántakenda eftir að fá 1. hluta
lánsins verið nokkuð mislöng eftir
því hvenær ársins þeir gerðu fok-
helt. Lengst hefur hún verið hjá
þeim sem gerðu fokhelt í janúar,
6—7 mánuðir, en styst um 3 mán-
uðir, hjá þeim sem gerðu fokhelt í
ágúst og september. Seinni tveir
hlutar lánsins hafa komið á um
það bil 6 mánaða fresti á eftir 1.
hluta. Þannig hefur lánið að jafn-
aði ekki verið fullgreitt fyrr en 15
til 19 mánuðum eftir að húsin
urðu fokheid og er ekki að sjá að
nein veruleg breyting verði á
þessu á næstunni.
VIÐMIÐUNARÍBÚÐIR
Ef finna á hve hátt hlutfall lán
Húsnæðisstofnunar er af bygg-
ingarkostnaði þarf að huga að
tvennu. I fyrsta lagi þarf að velja
byggingarkostnað einhverrar
heppilegrar íbúðar til viðmiðunar,
í öðru lagi þarf að athuga hvaða
áhrif verðbólgan hefur á lánshlut-
fallið. Verð viðmiðunaríbúða þarf
að vera sem næst meðalverði
þeirra íbúða sem sótt er um lán til
að byggja. Þar sem ekki liggja
fyrir neinar tölur um slíkt meðal-
verð, þarf að nálgast það eftir öðr-
um leiðum. Talið er að meðal-
fjölskyldustærð umsækjenda sé
3—4 og kæmi því eirihver eftirtal-
inna íbúða til greina sem meðal-
íbúð.
im, en um 40% vegna ibúða í fjöl-
býlishúsum.
Samkvæmt þessu er ljóst að
óraunhæft er að nota íbúð í fjöl-
býlisvísitöluhúsinu til viðmiðunar,
því hún er bæði sögð óeðlilega
ódýr og lánsumsóknir eru að
meirihluta til byggingar á einbýl-
is- eða raðhúsum. Einbýlisvísi-
töluhúsið er á hinn bógirjn að lik-
indum dýrara en meðalíbúð. Því
hefur verið valinn sá kostur að
miða við staðalíbúð nr. 2 sem við-
miðun, enda ætti hún að vera til
þess vel fallin, hafi lögum verið
framfylgt við könnun hennar, en
þar segir:
„Miða skal við að (staðal) íbúðir
séu hagkvæmar, einfaldar að
allri gerð, hóflegar að stærð en
Húsgerð: Herbergja- fjöldi: Verð 1.7.1981
íbúð í vísitöluhúsi Fjölbýlishús 3 375.350
Staðalíbúð 2 Parhús 4 739.700
Staðalíbúð 3 Parhús 5 874.000
Einbýlis vísitöluhús Einbýlishús 5 1.092.700
Verð allra þessara íbúða er
reiknað af Rannsóknarstofnun
b.vggingariðnaðarins og Hagstofu
Islands, og eru upphæðir sam-
bærilegar að öðru leyti en því að
„fjármagns- og yfirstjórnunar-
kostnað á byggingartíma" vantar í
verð vísitöluhúsanna. Þessi liður
er tæp 4% af verði íbúðanna.
Fróðlegt er að sjá hve íbúðin úr
fjölbýlisvísitöluhúsinu er sögð
miklu ódýrari en hinar íbúðirnar,
og er raunar vafasamt að unnt sé
að fá íbúð á þessu verði.
Könnun á lánSumsóknum bend-
ir til að um 60% umsókna sé
vegna íbúða í einbýlis- og raðhús-
vandaðar og uppfylla kröfur um
hönnun, gerð og búnað á hverj-
um tíma.“
Þess má og geta að lán til verka-
mannabústaða miðast við verð
staðalíbúða, þannig að þau nema
90% af öllum byggingarkostnaði
svo lengi sem hann er undir bygg-
ingarkostnaði staðalíbúða.
ÁHRIF VERÐBÓLGU
OG BIÐTÍMA
Áhrif verðbólgunnar eru í því
fólgin að lánið er ekki fullgreitt
fyrr en um hálfu öðru ári eftir að
lánslofrtrðið var veitt. Á þessum
tíma hefur upphæð lánsins í krón-
um haldist óbreytt en raunveru-
legt verðmæti minnkar um eða yf-
ir 30% miðað við 40—50% verð-
bólgu eins og hún hefur verið á
undanförnum árum. Að sjálfsögðu
geta húsbyggjendur ekki farið að
greiða kostnað með lánsfénu fyrr
en þeir hafa sjálfir tekið við því. í
NIÐURSTÖÐUR
Niðurstöður framangreindra út-
reikninga eru sýndar á meðfylgj-
andi súluriti. Þar er sýnt hve hátt
hlutfall hver einstök lánveiting
frá 1975 hefur verið af bygg-
ingarkostnaði staðalíbúða 2 eins
og hann var á hverjum tíma um-
Norræni iðnþróunarsjóðurinn — Nordforsk:
Lánveitingar og styrkir
til iðnþróunar á íslandi
Hugsanlega mætti spara 40 prósent af olíunotkun fiskiskipaflotans
Samstarfastofnun norra nna rann-
sóknarstofnana, Nordforsk, hefur
nú í undirbúningi rannsóknarverk-
efni sem miðar að bættri orkunýt-
ingu í fiskveiðum, einkanlega með
tilliti til olíusparnaðar. Kr talið af
þeim sem að undirbúningi verkefn
isins standa að spara mætti um 40
prósent þeirrar olíu sem nú er notuð
með því að haga öllum þáttum út-
gerðar með tilliti til olíusparnaðar.
Kins og segir í frétt Mbl. af þessu sl.
lostudag er heildarkostnaður við
rannsóknarverkefnið áætlaður rúml.
19 millj. dkr. en farið hefur verið
fram á lán hjá Norraena iðnþróun-
arsjóðnum að upphæð tæplega 4,5
millj dkr. Munu Norðmenn, Danir
og Færeyingar taka þátt í rannsókn-
arverkefninu ásamt íslendingum
samkvæmt áætlun Nordforsk.
Akvörðun um hvort af lánveitingu
verður mun væntanlega verða tekin
á fundi Norræna iðnþróunarsjóðsins
hinn 21. þessa mánaðar.
Þann hluta verkefnisins er fram
fer á íslandi munu Fiskifélag Ís-
lands og Raunvísindastofnun Há-
skólans annast, en þátttakendur í
verkefninu er áætlaó að verði:
Sjávarútvegsráðuneytið, Iðnað-
arráðuneytið, Landssamb. ísl. Ut-
vegsmanna, Farmanna- og fiski-
mannasambandið, Sjómannsam-
bandið, Siglingamálastofnun
ríkisins, Félag dráttarbrauta- og
skipasmiðjaeigenda, Knörr — fé-
lag ísl. skipafræðinga, Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins og Hafn-
arsamband sveitarfélaga. í verk-
efninu felst víðtæk rannsókn á öll-
um þáttum útgerðar s.s. sóknar-
háttum, vélbúnaði og notkun hans,
lögun skipsskrokka með tilliti til
vatns- og vindmótstöðu á siglingu,
skrúfubúnaði o.fl. Áætlað er að
kostnaður við rannsóknir hér
verði rúml. 1,5 millj. dkr. en þar af
mun Norræni iðnþróunarsjóður-
inn lána rúml. 0,5 millj. dkr. ef af
lánveitingunni verður.
Iðntæknistofnun boðaði til
blaðamannafundar sl. fimmtudag
þar sem starfsemi Norræna iðn-
þróunarsjóðsins var kynnt/
Markmið sjóðsins er að stuðla að
betri nýtingu á tækniþekkingu og
iðnþróunarmöguleikum á Norður-
löndum. Leiðir að þessu marki eru
m.a. stuðningur við saínstarfs-
verkefni á ýmsum tæknisviðum í
iðnaði, sem unnið er að sameigin-
lega með þátttöku a.m.k. tveggja
landa. Til greina koma einnig
lánveiting til vprkefna sem unnin
Á /
eru á vegum stofnana, starfs-
greina og fyrir tækja eða samtaka
þeirra. Auk þessara verkefna ef
sjóðnum ætlað að styðja samnor-
ræna rannsóknar- og þróunar-
starfsemi á sviði orkumála.
Stuðningur sjóðsins getur verið
með tvennum hætti. í fyrsta lagi
styrkur til verkefna sem tengd eru
starfssviði iðngreina og áhugverð
eru fyrir tvö eða fleiri lönd.
Skýrslur um árangur skulu að-
gengilegar öllum aðilum á Norður-
löndum sem áhuga hafa á viðkom-
andi verkefni. I öðru lagi áhættu-
lán til þróunarverkefna á vegum
a.m.k. tveggja iðnfyrirtækja í
tveim löndum þar sem niðurstöður
koma lántakendum til góða. Ekki
er skylt að birta niðurstöður öðr-
um aðilum. Lánaskilmálar eru
hagstæðir og lánið aðeins endur-
greitt ef verkefni ber árangur og
niðurstöður nýtast í framleiðslu.
Stuðningur sjóðsins fer að jafnaði
ekki fram úr helmingi kostnaðar
við verkefni.
Norræni iðnþróunarsjóðurinn
hefur aðsetur í Stokkhólmi og eru
starfsmenn átta talsins. Stjórn
sjóðsins er skipuð einum fulltrúa
hjá hverju landanna og einum
varamanni. Iðnaðarráðuneytið fer
með mál sjóðsins að því er ísland
varðar. Fjárveitingar til sjóðsins
erú hluti af sameiginlegum fjár-
lögum Norðurlandaráðs. í ár
nema framlög til sjóðsins um 26
millj. kr. miðað við núverandi
gengi.
ísland hefur haft nokkra sér-
stöðu að því er varðar lánsum-
sóknir. Stjórn sjóðsins hefur í því
efni tekið sérstakt tillit til ís-
lenzkra aðstæðna m.a. með hlið-
sjón af iðnaðaruppbyggingu hér
og þróunarstigi íslensks iðnaðar.
Samstarf fyrirtækja og starfs-
greina hér á landi við aðilja á öðr-
um Norðurlöndum er miklum erf-
iðleikum bundið. Stjórn sjóðsins
hefur hinsvegar jafnan tekið vel í
umsóknir frá íslandi sem varða
miðlun á tækniþekkingu og
reynslu frá hinum löndunum til
íslenzkra fyrirtækja eða starfs-
jfl w ► A
n Á
Frá blaðamannafundinum á Iðntæknistofnun. F.v. Kristmundur Halldórsson deildarstjóri í Iðnaðarráðuneytinu, Hörður Jónsson framkvæmdastj. hjá
Iðntæknistofnun, Robert von Ffaler og Jens Peter Nielsen starfsmenn Norræna iðnþróunarsjóðsins, og Vilhjálmur Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsókn-
arráðs ríkisins.
V