Morgunblaðið - 10.11.1981, Side 36

Morgunblaðið - 10.11.1981, Side 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 ást er... \/ O 10 !5 ... ad halda saman <jeynum l>ykkt oy frunnt. TM Reo U.S Pat Ott -all rigtits rtMrveö c 1981 Los Angales Times Syndicate Þykir þír poppkorn gott? Með morgunkaffinu l’assailu þig, ég er með berja- sultubréf í rassvösunum og þú eyðileggur huxurnar mínar. HÖGNI HREKKVÍSI /, £>o /47p 5£~*r. . 'orÓ6r/Z6 //oTAO/r /c/bS/c/r/pPc'/ " tT,T rf TT T T-T-T • V • • # • « • # *•«• ■* *■ » 4 íslenskir sjómenn: Galeiðuþrælar tölvu- og tækniþjóðfélagsins? Kinar Grétar Björnsson skrifar: „Nú vitum við sjómenn það, eftir fögur og sanngjörn orð Kristjáns Ragnarssonar í okkar garð í Frétta- spegli á föstudagskvöld, 2,5 millj. gkr. á mánuði. Það munar ekki um það. En hann minnist reyndar ekki á annað en minni gerð skuttogar- anna, og þá langaflahæstu, hefur líklega haft Vestfjarðatogarana í huga. Þá vitum við það. Og ekki var minni hlutur fréttamannsins í þættinum. Hann sýndi landsmönn- um, hvernig við sjómenn búum á hafinu, eða réttara sagt hann sýndi vistarverur um borð í einum nýj- asta togaranum, íbúðir og aðstöðu. Ef hann hefði á hinn bóginn verið sanngjarn og hlutlaus, hefði hann einnig átt að sýna aðstæður um borð i 10—20 ára gömlum bát til að sýna mismuninn, og taka svo viðtal við einn eða tvo starfandi sjómenn til að fá fram þeirra sjónarmið. Nei, þess þurfti ekki, að hans mati, það skiptir víst engu máli, enda hef ég sagt það áður og segi enn: Við erum ekki álitnir fólk, heldur þrælar. En Óskar Vigfússon komst vel frá sínu og skýrði hlutina eins vel og hann gat á jafnstuttum tíma og honum var skammtaður. Það lá svo mikið á því hjá fréttamönnunum að koma kafbátsmálinu að, sem þó var búið að glymja í eyrum landsmanna í meira en viku. Það hefði mátt halda að þjóðarhagur stæði og félli með þessum kafbát en ekki íslenska fiskiskipaflotanum. Ég spyr: Ætli hefði nokkuð veitt af öllum þættin- um til að ræða málefni sjómanna? Ég er ansi hræddur um að Óskar Vigfússon hefði þegið að fá að and- mæla Kristjáni Ragnarssyni kröft- uglega og þeim tölum sem hann nefndi. Én Óskari var ekki gefið tækifæri til slíks. Það lá svo mikið á að koma kafbátnum á skjáinn, að halda hefði mátt, að hann lægi strandaður í fjörunni við Skúlagöt- una. Ekki datt fréttamanninum held- ur í hug að ræða við formann Sjó- mannafélags Reykjavíkur. Álítur sennilega að honum komi fiskverðs- ákvörðun ekkert við. Skrýtin frétta- mennska það. Ég er heldur ekkert hrifinn af því hvað fjölmiðlar hafa verið daufir við að skýra frá fiskverðsmálinu, t.d. eftir fundinn á Hótel Sögu, sem var allheitur á köflum. Þar vantaði þó ekki fréttamenn og Ijósmyndara. En til hvers voru þeir þarna? Það birtist lítið sem ekkert um þennan fund í blöðunum, nema smáklausa i Vísi. Það er ekki að sjá, að fólk geri sér þess enn grein, að þjóðfélag okkar á allt undir fiskveiðum. Af- koma þeirra ræður úrslitum um velmegun þjóðarinnar. Fiskurinn er okkar olíuauður. En það vilja allir þiggja afrakstur veiðanna. Eða get- ur einhver verið svo góður að benda á eitthvað annað sem þjóðartekjur og velmegun hvíla jafnþungt á? Kristján Ragnarsson talaði um að sjómennskan væri orðin svo tækni- og tölvuvædd, að helst mátti skilja, að þetta væri bara „hobbý“ hjá sjómönnum, vinnan væri orðin svo miklu minni en verið hefði. Ég ætla samt að fræöa Kristján um það, svo og aðra landsmenn, að enn þá er ekki búið að tölvuvæða það að taka inn troll, bæta troll, splæsa víra, blóðga, gera að fiski, ganga frá honum í lest eða landa, beita, leggja og draga línu, að leggja, steina niður og draga net. Nei, engin tækni, engin tölvuvæðing, heldur mjög svipuð vinnubrögð og tíðkast hafa í áratugi og meir. Þá veit Kristján það og líka hitt að það er miklu skynsamlegra að kynna sér hlutina áður en farið er Glöggt er auga á annars lýti Agnar Hannesson skrifar: „Velvakandi. Vegna skrifa Árnýjar Björns- dóttur 22. október („Ekki hefði ég...“), J.P. 31. október („Dekur- börn víndrykkjurnnar") og Árna Helgasonar 4. nóvember („Þurfa allt annað til að reisa sig við en vorkunnsemi") langar mig að leggja orð í belg. Áfengi er staðreynd. Áhrif þess eru staðreynd. Drykkjusýki er sjúkdómur, sjúkdómur sem ekki verður læknaður að fullu, aðeins gerður óvirkur, — þannig að lifa má eðlilegu lífi meðan áfengis er ekki neytt. Flestir vita að alkóhólismi er eitt af elstu vandamálum mann- kynsins. Það er ekki langt síðan við fórum að njóta góðs af hinum nýju viðhorfum til þessa vanda. Lækna- vísindin vita nú miklu meira um alkóhólisma en fyrir nokkrum ára- tugum. En það er ekki nóg, að þau staðfesti að um sjúkdóm er að ræða, heldur verður almenningur einnig að gangast við því. Til að rumska við gömlum og rótgrónum hindurvitnum, svo og þekkingarleysi almennings hér á landi voru samtökin SÁÁ meðal annars stofnuð. Þau hafa á öfga- lausan hátt útrýmt hjá fjölda fólks hindurvitnum og fordómum gagn- vart áfengisvandamálinu. Samtökin reka fræðslustöð, sjúkrastöð og endurhæfingarheimili. Og krafta- verkin gerast daglega á þessum stofnunum. Fjöldinn allur af fólki tekur þar á vandamálum sínum, öðlast von um betra líf og snýr sið- an út í hringiðu lífsins á ný, með meiri þekkingu og fræðslu. Þegar út er komið taka AA- samtökin við, samtök mannkær- leika og samvinnu. Þeir sem ekkki fá bata í gegnum þetta starf eru einstaklingar sem geta ekki eða vilja gefa sig algerlega á vald að- ferðum samtakanna. Sem betur fer hefur almennings- álitið hér á landi gjörbreyst til hins betra í áfengismálum. En því miður er ennþá til fólk með svipaðar skoð- anir og Árný Björnsdóttir, J.P. og Árni Helgason, fólk sem ber óvild og biturleika í garð alkóhólista. Þetta fólk lifir í sjálfsblekkingu, hindurvitnum, vanþekkingu og for- dómum. Það er ætíð reiðubúið að stíga á stall og benda með fyrirlitn- ingarsvip á meðbræður sína og segja: „Þú ert aumingi og ræfill, sjálfselskur monthani, vegna þess að þú ert háður vímugjöfum." Já, glöggt er auga á annars lýti. Ég hef virkilega samúð með þessu fólki; því hlýtur að líða illa. Rosknir hjarta- sjúklingar Jifi eðlilegu kynlífi WMhMfttan, 1 nóxrembf-r AP. BANDARÍSKA ökfnmarfnedr starauaia riðlcgfDr roukDD fólki dó láu krorki hjDrUDUg mt Wóó UpfD hÍDdra uig I k*i aó lifa rólr lcgD kynlífi. Tekió «r fram aó raun ar koBDl kjnmók aó draga nr lík um á þrf aó keir am HM Éu hafa f»gió hjartaifall fái haó oóru Að lokum: Fjöldi fólks neytir áfengis. Hjá sumum verður neysla þess að vandamáli, hjá öðrum ekki. Afstöðu fjöldans til áfengis mætti líkja við litróf ljósbrotsins, allt frá Ijósasta Ijósu niður í dekksta dökkt, og allt þar á milli. Þegar einstakl- ingurinn byrjar að bragða áfengi, ætlar hann sér auðvitað ekki að missa tökin á áfengisvenjum sínum og drekka sér eða öðrum til miska. En margir missa þau samt og er ástæðan sú að alkóhólismi er sjúk- dómur, margþættur sjúkdómur, en afleiðing hans er þó enn þá marg- þættari. Og vitað er að þótt aðeins einn úr fjölskyldunni drekki, skaðar það alla fjölskylduna, enda er alkó- hólisminn talinn fjölskyldu- sjúkdómur. Því er það ekki aðeins alkóhólistinn, heldur fjölskyldan öll, sem þarfnast aðstoðar." Ef þig biður stiílka um strok, strjúktu niður falda. Meðan iðar augnalok á þeim sið að halda. Ilákur. VÍSA VIKUNNAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.