Morgunblaðið - 05.01.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
15
með sitt lag í prýðilegu gervi
Loga leikhússtjóra.
Ingibjörg Björnsdóttir kom til
liðs við sýninguna með dönsum
sínum og góðri frammistöðu
nemenda sinna í Listdansskóla
Þjóðleikhússins.
Leikmynd Birgis Engilberts
var ævintýraleg og við hæfi.
Hann naut góðrar aðstoðar
Ásmundar Karlssonar við að
laða fram yndislegan heim fjarri
öllu hversdagslegu amstri. Eg
hef ekki séð skemmtilegri og
markvissari leikmynd frá hendi
Birgis Engilberts.
Leikstjórn Brynju Benedikts-
dóttur var örugg og frammistaða
leikara eftir því. Þeir féllu vel
inn í hlutverk sín. Árni Tryggva-
son var Láki eins og fyrr er sagt,
Flosi Ólafsson Logi leikhússtjóri
og Sigurður Sigurjónsson
Flökkujói. Árni Blandon lék
Gosa eins og skapaður fyrir
hlutverkið. Margrét Ákadóttir
var Hulda. Anna Kristín Arn-
grímsdóttir og Hákon Waage
voru i kostulegum gervum Kisu
og Refs. Andri Örn Clausen lék
Ára. Sigrún Edda Björnsdóttir
var Stelpa.
Of langt mál yrði að telja upp
alla hina góðu liðsmenn Gervi-
karlaleikhússins, en geta má
þess að þeir sem voru í hefð-
bundnum hlutverkum ítalska
gamanleiksins voru Ásta Hen-
riksdóttir, Soffía Marteinsdóttir,
Jódís Pétursdóttir og Jóhanna
Guðlaugsdóttir.
Þessi sýning Gosa er gott
framlag Þjoðleikhússins til að
skemmta börnum.
Jóhann Hjálmarsson
hléi að þeim fannst þetta atriði
hálf „asnalegt". Mér fannst það
gera myndina barnalegri en um
leið léttari og skemmtilegri. Hins
vegar er ekki því að neita að raun-
veruleikablær á vísindaskáldskap
gerir áhorfandanum ætíð auðveld-
ara fyrir að lifa sig inní atburða-
rásina, ég tala nú ekki um jafn fá-
ránlega atburðarás og þarna er
spunnin. Að þessu leyti víkja höf-
undar Star Wars-myndanna, snill-
ingarnir George Lucas og Steven
Spielberg, frá formúlu Laurentiis
um léttvæga skemmtun. Þeirra
markmið virðist vera að skapa
raunverulegan „framtíðarheim"
fyrir augum áhorfenda. Hvort að-
standendur Hvell-Geira hafa gefist
upp við að skapa fullkominn fram-
tíðarheim á hvíta tjaldinu skal
ósagt látið, ég veit aðeins að mér
fannst ósköp notalegt að svífa eina
kvöldstund milli skrautlegra
geimkastala fjarri grátbólginni
móður jörð. Það ætti kannski að
senda apaketti á borð við Jaruz-
elski hershöfðingja á svona mynd
þá sæi hann formyrkvun eigin sál-
ar og hve allífið lítur veru kúgar-
anna á jarðartítlunni með mikilli
fyrirlitningu.
verki. Karl Guðmundsson er ætíð
bráðfyndinn, sama hvaða hlutverk
hann tekur fyrir. Hér lyftir hann
smáborgaranum Gústafi í „absúrd“
hæðir. Eg hef áður minnst á Viðar
Eggertsson, Edda Hólm er sömu-
leiðis óvenju tilfinningarík í túlkun
ófullnægðrar eiginkonu. Edda
Björgvinsdóttir skilar nokkuð vel
hlutverki Klöru, táningsins á heim-
ilinu. Karl Ágúst Úlfsson sýnir að í
honum býr kómíker. Man ég varla
eftir að hafa séð á sviði Hafnarbíós
jafn samstilltan leikhóp þar sem
hver bætir annan upp. En Krist-
björg Kjeld samhæfir kraftana.
Ég minntist í upphafi á þá
sautjándajúnístemmningu sem
stúdínurnar og blöðrurnar vöktu í
salnum fyrir sýninguna. Þar á
Guðrún Svava Svavarsdóttir stór-
an hlut að máli með ágætri hönnun
búninga og all skemmtilegri
sviðsmynd, dálítið sundrgerðar-
legri. Lýsing Davids Walter er
hugmyndarík. En síðast en ekki
síst ber að nefna leikhljóð Gunnars
Reynis Sveinssonar. Fyrir utan
einstaka „móment" í leiknum er
þáttur Gunnars hvað eftirtektar-
verðastur í þessari undarlegu leik-
sýningu. Þá vakti athygli mína
vönduð leikskrá sem gæti orðið
gagnleg heimild.
íslensk málfræði gefin út í Japan
NÝÚTKOMIN er hjá Daigakusy-
orins-forlaginu í Tókýó bókin
AISURANDO-GO BÚMPO („fs-
lenzk málfræði") eftir prófessor
Sadao Morita. Bókin skiptist í
þrjá meginhluta auk inngangs,
og er í þeim fjallað um I. fram-
burð og hljóðfræði (þ.á m.
framburðarsérkenni eftir
landshlutum), II. beygingar-
fræði og III. setningafræði, í
samtals 38 köflum. Tekið er í
senn mið af fornu máli og nú-
tímamáli, og er munur forn-
máls- og nýmálsorðmynda
sýndur með tveimur leturgerð-
um (beinu letri og skáletri), en
þriðja leturgerðin (feitt letur)
er á orðmyndum, sem sameig-
inlegar eru fornu máli og nýju.
Hefur bókin þannig að geyma
drög að málsögulegu yfirliti,
auk þess sem víða eru málsögu-
legar og samanburðarmál-
fræðilegar athugasemdir til
skýringar. I bókinni er rækileg
ritaskrá, og henni lýkur á
nafna-, atriða- og orðaskrám.
Samtals er bókin xiii + 280 bls.
auk Islandskorts.
Höfundurinn, prófessor Sa-
dao Morita, er mörgum kunnur
hérlendis, frá því er hann var
við nám í Háskóla íslands fyrir
tuttugu árum; hann hefur og
lagt leið sína til íslands nokkr-
um sinnum síðan. Hann er
prófessor í norrænum málum í
Waseda-háskólanum í Tókýó og
kennir þar íslenzku að stað-
aldri.
Sadao Morita
HÉR KAUPiR ÞÚ MIÐA
FYRIR „
I2.JANUAR!
Aðalumboð, Suðurgötu 10, Reykjavík.
Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, Reykjavík.
Bensínsala Hreyfils, Fellsmúla 24, Reykjavík.
Verslunin Straumnes, Vesturbergi 76, Reykjavik.
SÍBS-deildin, Reykjalundi, Mosfellssveit.
Hulda Sigurjónsdóttir, Eyrarkoti, Kjós.
Verslunin Staðarfell, Akranesi.
Sigríður Bjamadóttir, Reykholti, Borgarfirði.
Elsa Ambergsdóttir, Borgamesi.
Anna Þórðardóttir, Miðhrauni, Miklaholtshreppi.
Gunnar Bjamason, Böðvarsholti, Staðarsveit.
Ingjaldur Indriðason, Stóra-Kambi, Breiðuvík, Snæfellsnesi.
Svanhildur Snæbjömsdóttir, Hellissandi.
Verslunin Þóra, Ólafsvík.
Guðlaug E. Pétursdóttir, Grundarfirði.
Esther Hansen, Stykkishólmi.
Ólafur Jóhannsson, Búðardal.
Jóhann G. Pétursson, Stóm-Tungu, Fellsströnd.
HalldórD. Gunnarsson, Króksfjarðamesi.
Einar V. Hafliðason, Sveinungseyri, Gufudalssveit.
Vigdís Helgadóttir, Hjöllum 2, Patreksfirði.
Sóley Þórarinsdóttir, Bjarmalandi, Tálknafirði.
Gunnar Valdimarsson, Bíldudal.
Guðrún Ingimundardóttir, Þingeyri.
Alla Gunnlaugsdóttir, Ólafstúni 7, Flateyri.
Guðmundur Elíasson, Suðureyri.
Guðrún Ólafsdóttir, Bolungarvík.
Vinnuver, Mjallargötu 5, ísafirði.
Steinunn Gunnarsdóttir, Súðavík.
Engilbert Ingvarsson, Tyrðilsmýri, Snæfjallaströnd.
Pálína Þórólfsdóttir, Finnbogastöðum, Ámeshreppi.
Sigurmunda Guðmundsdóttir, Drangsnesi.
Hans Magnússon, Hólmavík.
Erla Magnúsdóttir, Þambárvöllum, Bitrufirði.
Pálmi Sæmundsson, Borðeyri.
Helgi Benediktssson, Hvammstanga.
Kaupfélag Hiinveminga, Blönduósi.
Ása Jóhannsdóttir, Lækjarbakka, Skagaströnd.
Verlsunin Björk, Aðalgötu 10B, Sauðárkróki.
Guðni S. Óskarsson, Hofsósi.
Georg Hermannsson, Ysta-Mói, Haganeshreppi.
Kristín Hannesdóttir, Siglufirði.
Jórflnn Magnúsdóttir, Grímsey.
Valberg hf., Ólafsfirði.
Guðlaugur Jóhannesson, Hrísey.
Sólveig Antonsdóttir, Versluninni Sogn, Dalvík.
Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, Akureyri.
SIBS-deildin, Krismesi, Eyjafirði.
Bára Sævaldsdóttir, Sigluvík, Svalbarðsströnd.
Hafdís Hermannsdóttir, Túngötu 15, Grenivík.
Rannveig H. Ólafsdóttir. Laugum, Suður-Þingeyjarsýslu.
Hólmfríður Pétursdóttir, Víðihlíð, Mývamssveit.
Eysteinn Hallgrímsson, Grímshúsum, Aðaldal.
Jónas Egilsson, Húsavík.
Óli Gunnarsson, Kópaskeri.
Vilhjálmur Hólmgeirsson, Raufarhöfn.
Hulda Gestsdóttir, Lækjarvegi 4, Þórshöfn.
Hafliði Jónsson, Sunnuhlíö, Bakkafiröi.
Kaupfélag Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Jón Helgason, Laufási, Borgarfirði eystra.
Óli Stefánsson, Merki, Jökuldal.
Bjöm Pálsson, Laufási 11, Egilsstöðum.
Ragnar Nikulásson, Seyðisfirði.
Viðskiptaþjónusta Guðm. Ásgeirssonar, Neskaupstað.
Benedikt Friðriksson, Hóli, Fljótsdal.
Hildur Metúsalemsdóttir, Eskifirði.
Ásgeir Metúsalemsson, Reyðarfirði.
Margeir Þórormsson, Fáskrúðsfirði.
Kristín Helgadóttir, Stöðvarfirði.
Þórður Sigurjónsson, Snæhvammi, Breiðdal.
Elís Þórarinsson, Höfða, Djúpavogi.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, Höfn, Homafiröi.
Einar Ó. Valdimarsson, Kirkjubæjarklaustri.
Marteinn Jóhannsson, Bakkakoti, Meðallandi.
Halldóra Sigurjónsdóttir, Vík, Mýrdal.
Fanný Guðjónsdóttir, Skólavegi 6, Vestmannaeyjum.
Jóna Guðmundsdóttir, Amarhvoli, Hvolsvelli.
Magnús Sigurlásson, Þykkvabæ.
Aðalheiður Högnadóttir, Verkalýðshúsinu, Hellu.
Hjalti Gunnarsson, Fossnesi, Gnúpverjahreppi.
Sólveig Ólafsdóttir, Grund, Hmnamannahreppi.
Sigurður Bjamason, Hlemmiskeiði, Skeiðum.
Ásta Skúladóttir, Sólveigarstöðum, Biskupstungum.
Þórir Þorgeirsson, Laugarvatni.
Kaupfélag Ámesinga, Bókabúð, Selfossi.
Þórgunnur Bjömsdóttir, Þórsmörk 9, Hveragerði.
Oddný Steingrímsdóttir, Stokkseyri.
Pétur Gíslason, Eyrarbakka.
Bóka- og gjafabúðin, Unubakka 4, Þorlákshöfn.
Guðfinna Óskarsdóttir, Grindavík.
Guðlaug Magnúsdóttir, Jaðri, Höfnum.
Jórunn Guðmundsdóttir, Hlíðargötu 31, Sandgerði.
Ingveldur Jónsdóttir, Gerðum, Garði.
JónTómasson, Vatnsnesvegi 11, Keflavík.
Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Vogum, Vatnsleysuströnd.
Sigríður Jóhannesdóttir, c/o Bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18, Garðabæ.
SÍBS-deildin, Vífilsstöðum.
Borgarbúðin, Hófgeröi 30, Kópavogi.
HAPPDRÆTn SIBS