Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAPIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
Pólland:
130% gengisfelling og
miklar verðhækkanir
Wojciech Jaruzel.ski, hershöfdingi, forsetisrádherra og formaður kommúnistaflokksins, sést hér þar sem hann
kannar flokk manna úr pólska hernum. Myndin birtist í pólska sjónvarpinu en ekki er vitað hvar eða hvenær hún var
tekin. AP-símamynd.
4. janúar. AP.
l*OLSK stjórnvöld felldu gengi zlotysins um helgina og sögðu jafnframt
frá fyrirhuguðum verðhækkunum á ýmsum helstu nauðsynjavörum.
Einnig var tilkynnt, að 90 háttsettir embættismenn í borgar og héraðs-
stjórnum hefðu verið reknir fyrir „að valda ekki starfi sínu á tímum
herlaga í landinu" og í fréttum frá Vín segir, að níu forystumenn
Samstöðu í Katowice hefðu verið dæmdir í fangelsi fyrir að hvetja til og
standa fyrir verkföllum.
Herstjórnin pólska tilkynnti
sl. laugardag, að verð á brýn-
ustu lífsnauðsynjum yrði stór-
hækkað einhvern næstu daga,
allt að fjórfaldað og auk þess, að
gengi zlotysins hefði þegar verið
fellt um 130%. Ekki er liðin
nema vika síðan matarskömmt-
un var enn aukin í Póllandi en
hún ásamt verðhækkunum voru
ástæðurnar fyrir óeirðunum
1970, 1976 og stofnun Samstöðu
1980.
í fréttum Varsjárútvarpsins,
sem náðust í Vín, sagði sl. laug-
ardag, að níu forystumenn í
Samstöðu hefðu verið dæmdir í
þriggja til sjö ára fangelsi fyrir
verkfallsstarfsemi. Mikið var
gert úr þessum dómum í Var-
sjárútvarpinu og augljóslega til
að skjóta fólki skelk í bringu.
90 háttsettir embættismenn í
borgar- og héraðsstjórnum víða
í Póllandi hafa verið reknir, að
því er Varsjárútvarpið sagði. Er
þeim gefið að sök að hafa ekki
getað uppfyllt þær kröfur, sem
gerðar hefðu verið til þeirra á
tímum herlaga, en ekki nánar
skýrt hvað við var átt.
Hörð átök í stríði
írana og Iraka
Beirut, 4. janúar. AP.
Útvarpsstöóvarnar í Teheran og Bagdad skýrðu báðar frá því í dag, að komið
hefði til mikilla átaka írana og íraka á landamærum ríkjanna um helgina. í
Teheran var því haldið fram að 700 íraskir hermenn hefðu verið felldir og 144
teknir til fanga, en aðeins hefðu 14 íranskir hermenn fallið. í Bagdad var því
hins vegar haldið fram að 997 íranskir hermenn hefðu verið felldir og viðurkennt
að 58 íraskir hermenn hefðu fallið i
klukkustundir.
Utanríkisráðherra írana sagði í
dag að íranir hefðu engan áhuga á
að ræða um frið við Iraka meðan
íraskar hersveitir væru í íran. Af
hálfu yfirvalda í Kuwait voru yfir-
völd í Bagdad og Teheran hvött til
þess að leggja niður vopn og semja
um frið, en stríð þeirra hefur staðið
yfir í 14 mánuði og hafa tilraunir til
þess að koma deiluaðilum að samn-
ingaborði engan árangur borið.
Fimm andstæðingar klerka-
orrustunni, sem stóð yfir án hléa í 20
stjórnarinnar í Teheran voru teknir
af lífi á ýmsum stöðum í íran um
helgina og tveir féllu í átökum við
byltingarverði, að sögn útvarpsins í
Teheran. Þá skýrði hin opinbera
fréttastofa landsins frá því í dag, að
þrír byltingarverðir hefðu týnt lífi
og kona og barn særst er sprengja
sprakk í íbúðarhverfi í miðhluta Te-
heran. Var neðanjarðarhreyfingu
Khalq-skæruliða kennt um verknað-
inn og hefndum heitið.
Mikil flóð
í Bretlandi
liondon, 4. januar. AP.
MIKIL flóð urðu víða í norðurhluta Englands og suðurhluta Skotlands,
sums staðar hin mestu í manna minnum. Gífurleg rigning var á þessu
svæði í dag og mikill snjór hefur fallið þar síðustu vikur og leysingar því
miklar í dag sökum hlýviðrisins.
í bænum Boroughbridge,
nyrst í Jórvíkurskíri, braust áin
Ure yfir bakka sína og rúmlega
meters djúpt vatn flæddi um
næsta nágrenni og fyllti hús og
verslanir. Lögreglumenn og her-
menn skutu út bátum til að
bjarga þeim sem lokuðust inni i
flóðunum.
Þá einangraðist þorpið Lower
Dunsforth í næsta nágrenni en
þar er flóðvatnið 1,5 metrar.
Einnig er færð í York erfið
vegna vatns og áin Ouse við það
að flæða yfir bakka sína í dag,
var jafnvel búist við flóðum í
kvöld.
Vegna leysinganna hafa fjöl-
margir lent í erfiðleikum, en
ekki er vitað um manntjón enn-
þá. Þá er ljóst að tjón á mann-
virkjum og gróðri er orðið mikið.
Búist er við frekari flóðum og
áframhaldandi erfiðleikum af
þeirra völdum næstu daga.
Mubarak útnefnir
12 nýja ráðherra
Kosningabandalag jafnaðarmanna og frjálslyndra:
Aukakosningar í
(.lasgow, 4. janúar. AP.
óeiningar
Kairó, 4. janúar. AP.
NÝ RÍKISSTJÓRN sór embættiseiða í Egyptalandi í dag og hvatti
Hosni Mubarak forseti ráðherrana 34 til að forðast að gefa glæst
loforð en halda sig heldur við staðreyndir og láta verkin tala.
KOSNINGABANDALAG jafnaðar
manna og frjálsiyndra á Bretlandi
hefur nú fengið enn eitt tækifærið til
að auka þingmannatölu sína. Um
helgina lést Sir. Thomas Galbraith,
þingmaður íhaldsflokksins fyrir Hill-
head-kjördæmi í Glasgow, og af þeim
sökum verður að efna þar til auka-
kosninga innan skamms.
Sigurlíkur kosningabandalagsins
eru taldar miklar í Hilihead enda
var meirihluti íhaldsflokksins þar
mjög lítill. Hitt veldur þó vandræð-
um, að nú eru uppi miklar deilur
innan bandalagsins um hvernig
skipta skuli kjördæmum á milli
flokkanna og slitnaði upp úr við-
ræðunum um það í síðustu viku.
Hvor flokkanna um sig sakar hinn
um að vilja tryggja sér líklegustu
kjördæmin og frjálslyndir óttast
auk þess margir hverjir, að jafnað-
armenn ætli bara að nota þá til að
komast til valda en varpa þeim síð-
an fyrir róða.
Hva sem þessum ágreiningi líður
er búist við, að tekin verði um það
ákvörðun nk. föstudag hver verði í
framboði fyrir kosningabandalagið
í Hillhead og er einkum hallast að
því, að Roy Jenkins verði fyrir val-
inu.
Jenkins er nú sá eini úr fjór-
menningaklíkunni svonefndu, sem
ekki situr á þingi, en honum er tal-
ið það nauðsynlegt ef hann á að
geta gert sér vonir um formannsst-
EITT stærsta blaðið í Japan skýrði frá
því sl. sunnudag, að Bandaríkjamenn
hefðu á síðasta sumri komið upp eftir
litsstöð í VesturKína til að fylgjast
mcð eldflaugatilraunum Sovétmanna
og öðrum herumsvifum. Einnig var
sagt, að Kínverjar hygðust veita skip-
um úr 7. flotanum bandaríska aðstöðu
til að taka vatn og vistir í hafnarborg-
inni Dalian í NorðausturKína, en
kínverskur embættismaður ber þær
fréttir til baka.
Samkvæmt frétt japanska blaðs-
öðu í jafnaðarmannaflokknum síð-
ar á þessu ári. Frambjóðandaefni
frjálslyndra í Hillhead sagði í dag,
að hann myndi ekki taka um það
ákvörðun fyrr en eftir fund bandal-
agsstjórnarinnar nk. föstudag
hvort hann drægi sig í hlé.
ins Yomiuri Shimbun, sem ber fyrir
sig heimildir innan japanska varn-
armálaráðuneytisins, er eftirlits-
stöðin nálægt Lop Nor í Xinjiang
Uygur í Vestur-Kína, afskekktu og
lítt byggðu héraði við landamæri
Sovétríkjanna. Sagt er, að stöðin sé
mönnuð bandarískum tækni-
mönnum, sem fylgist með fjarskipt-
um, eldflaugatilraunum og öðrum
umsvifum sovéska hersins á þessum
slóðum.
Áður höfðu Bandaríkja-
menn slíkar stöðvar í Iran en misstu
í stjórninni eru 22 ráðherr-
ar úr síðustu ríkisstjórn og 12
ný andlit. Ein kona fer með
ráðherradóm í nýju stjórninni,
en forsætisráðherra er Fuad
Mohieddin.
Helztu breytingar frá fyrri
stjórn er að finna í þeim ráðu-
neytum er fara með fjármál og
atvinnumál. Þannig tók Mo-
hammed Abdel-Fattah Ibra-
him fyrrum seðlabankastjóri
við af Abdel-Meguid sem að-
stoðarforsætisráðherra og yf-
irmaður fjármála og atvinnu-
þær með byltingunni. Kínversk
stjórnvöld og bandarísk gera hvorki
að játa né neita þessum fréttum.
í Yomiuri Shimbun var einnig
sagt, að Kínverjar hygðust leyfa
skipum úr 7. flotanum bandaríska að
taka vatn og vistir í hafnarborginni
Dalian en í dag var haft eftir
ónefndum embættismanni í kín-
verska varnarmálaráðuneytinu, að
slíkt kæmi ekki til mála vegna fyrir-
hugaðrar hergagnasölu Bandaríkja-
manna til Taiwan.
mála og skipt var um ráðherra
er fara með efnahagsmál, fjár-
mál, iðnaðarmál, landbúnað-
ar- og ferðamál.
Talsmaður hinnar nýju
stjórnar sagði í dag, að búast
mætti við óbreyttri stefnu Eg-
ypta í utanríkismálum.
Stjórnarbreytingin er hin
fyrsta sem Mubarak fram-
kvæmir frá því hann tók við af
Sadat, sem myrtur var í
októberbyrjun. Herma fregnir
að Mubarak hafi notað tæki-
færið til að losa sig við ýmsa
ráðherra er honum þótti ekki
hafa skilað árangri í starfi eft-
ir að Meguid fyrrum aðstoð-
arforsætisráðherra var orð-
aður við hneykslismál og mút-
ur. Ekki hafði verið búist við
því að Mubarak gerði breyt-
ingar á stjórninni fyrr en í
janúarlok í fyrsta lagi.
Mubarak hefur gagnrýnt
efnahagsstefnu Sadats fyrrum
forseta og eru breytingarnar á
stjórninni m.a. liður í því að
snúa við blaðinu í þeim efnum.
Þá hefur hann stefnt mörgum
gagnrýnendum efnahags-
stefnu Sadats til fundar í
Kairó síðar í janúar. Nýju ráð-
herrarnir í stjórn Mubaraks
eru ýmist fræðimenn eða
tæknikratar.
Bandarísk eftirlits-
stöð í Vestur-Kína?
Tókýó, 4. janúar. AP.