Morgunblaðið - 05.01.1982, Qupperneq 47
MORGUNBLAÉHÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
27
m
• Hinn frægi míluhlaupari Englendinga Steve Ow-
ett gekk í heilagt hjónaband á síðasta ári. Hann
gekk að eiga 23 ára gamla Ijósmyndafyrirsætu Rach-
el Waller. Steve Owett gekk nýlega undir uppskurð
á hné og hefur ekkert getað æft lengi, en vonast til
að vera búinn að ná sér er nær dregur vori, og ætlar
sér þá að taka til við æfingar og keppni á nýjan leik.
• í öllu er nú sett heimsmet. Þessir tveir stúdentar frá
Luzern í Sviss unnu það afrek síðastliðið sumar að hjóla
80 kflómetra á þríhjólum og settu þar nýtt met. Þetta
tók þá 24 klukkustundir. Hér koma þeir í mark. Þeir
verða því væntanlega í heimsmetabók Guinness þegar
hún kemur út á árinu.
Steve Fleet þjálfar
1. deildar-lió IBV
ÍBV HEFUR ráðið Englendinginn
Steve Fleet sem þjálfara fyrir 1.
deildar-lið sitt næsta sumar. Steve
Fleet þjálfaði lið ÍA síðastliðið
sumar og þekkir því nokkuð til
knattspyrnunnar hér á landi. Steve
er 43ja ára gamall og fæddur í út-
borg Manchester. Hann hefur mikla
reynslu sem þjálfari.
Steve byrjaði að æfa knattspyrnu
strax sem strákur í skóla. í sömu
götu og Steve bjó, bjó jafnaldri hans
og besti vinur, Eddy Colman. Þeir
notuðu hverja frístund til að iðka
knattspyrnu og svo fór að báðir
skrifuðu undir atvinnusamning,
Steve við Manchester City en Eddy
við Manchester United. Eddy Col-
man lést í flugslysinu við Miinchen
1958, þegar stór hluti liðs Manchest-
er United fórst. Eins og gefur að
skilja varð það mikið áfall fyrir
Steve að sjá á eftir besta vini sínum
í þessu hörmulega slysi.
Hjá Manchester City
Steve gerðist Ieikmaður Man-
chester City árið 1953 og hann var
hjá félaginu til ársins 1963 eða í 10
ár. Steve lék í markinu og lengst
af var hann varamarkmaður hins
fræga Bert Trautmann og fékk því
ekki eins mörg tækifæri með aðal-
liðinu og skyldi. Árið 1963 fór
Steve til Wrexham og var aðal-
markmaður liðsins til 1966 er
hann fór til Stockport County. Þar
lék hann í markinu til 1969 er leið-
in lá til Altringham, þar sem hann
gerðist leikmaður og þjálfari. Lið-
inu gekk vel en hins vegar varð
Steve fyrir því óláni að brotna um
úlnlið og þar með voru dagar hans
sem leikmanns taldir.
Hér urðu þáttaskil hjá Steve.
Stockport bauð honum starf þjálf-
ara og umsjónarmanns unglinga-
starfs. Þar var hann árin 1969—73
og gekk vel. Margir efnilegir ungl-
ingar voru undir handleiðslu
Steve á þessum árum, þeirra
þekktastur er líklega Paul Hart,
sem nú leikur með Leeds. í ágúst
1973 gerðist það svo að Steve Fleet
var boðið að taka að sér starf
unglingaþjálfara Manchester
City. Malcolm Allison hafði þá ný-
verið farið frá félaginu og við
starfi hans tók í stuttan tíma John
Hart, faðir fyrrnefnds Pauls.
Hann hætti fljótlega vegna veik-
inda en við tók Ron'Saunders, sem
nú er framkvæmdastjóri Eng-
landsmeistara Aston Villa, eins og
flestum mun víst vera kunnugt.
Saunders var ekki lengi hjá
Manchester City en engu að síður
var samvinna hans og Steve mjög
góð. Og þegar Saunders fór til
Áston Villa bauð hann Steve að
• Steve Fleet
gerast aðstoðarmaður sinn. En
Steve hafnaði því eftir nokkra um-
hugsun og var ástæðan sú að son-
ur hans, Wesley, þurfti að ganga í
sérstakan skóla í Manchester og
Steve tók fjölskylduna fram yfir
eigin frama.
Steve náði frábærum árangri
sem unglingaþjálfari Manchester
City og margir efnilegir knatt-
spyrnumenn komu fram í ungl-
ingaliðum hans. Má t.d. nefna Pet-
er Barnes og Gary Owen, en þeir
leika báðir með WBA nú. í vetur
urðu enn framkvæmdastjóraskipti
hjá City, Allison var enn á ný lát-
inn fjúka og með honum Tony
Book. Við tók John Bond og hann
kom með nýja menn í allar stöður.
Steve Fleet var því skyndilega at-
vinnulaus þótt Bond léti þau orð
falla að hann hefði engar athuga-
semdir að gera við starf hans,
hann vildi bara skipta um fólk i
öllum stöðum.
• Það verða oft miklir árekstrar í formúlu 1-kappakstri, einn slíkur er í uppsiglingu á þessari mynd. Ljósmyndar
inn náði að smella af rétt áður en bifreiðin skall niður á næsta bfl. Myndin er tekin í Kaliforníu.
Knattspyrnumenn Evrópu
• Sir Stanley Matthews var fyrsti knattspyrnumaðurinn sem hlaut
titilinn Knattspyrnumaður Evrópu. Var það árið 1956. Á myndinni hér
að ofan má sjá hvar Matthews er borinn af leikvelli í kveðjuleik
sínum. Og sá, sem er hægra megin við hann, er enginn annar en sá
frægi Puskas. Hér að neðan má svo sjá, hverjir hafa hlotið kosningu í
gegnum árin. Og víst er að ailir kannast við nöfnin.
ÞESSIR hafa hlotið titilinn knattspyrnumaður Evrópu
frá því fyrst var farið að velja hann árið 1956.
FyrsU s**ti:
1956 Stanley Matthews (Blackpool)
1957 Alfredo di Stefano (Real Madrid)
1958 Raymond Kopa (Real Madrid)
1959 Alfredo di Stefano (Real Madrid)
1960 Luis Suarez (Barcelona)
1961 Omar Sivori (Juventus)
1%2 Josef Masopust (Dukla Prague)
1963 Lev Yashin (Moscow Dynamo)
1964 Denis Law (Manchester l'nited)
1965 Fusebio (Benfica)
1%6 Bobby ('harlton (Manchester l’nited)
1%7 Florian Albert (Ferencvaros)
1968 (ieorge Best (Manchester l’nited)
1969 (vianni Rivera(A(' Milan)
1970 (ierd Miiller (Bayern Munich)
1971 Johan (’ruyff (Ajax)
1972 Franz Beckenbauer (Bayern Munich)
1973 Johan ('ruyff (Barcelona)
1974 Johan (’ruyff (Barcelona)
1975 Oleg Blokhin (Dynamo Kiev)
1976 Franz Beckenbauer (Bayern Munich)
1977 Allan Simonsen (Bor. Moenchengladb.)
1978 Kevin Keegan (Hamburger SV)
1979 Keving Keegan (Hamburgar SV)
1980 Karl H. Rummenigge (Bayern Munich)
1981 Rummenigge (B. Munich)
Annad sæti:
Alfredo di Stefano (Real Madrid)
Billy Wright (Wolverhampton Wanderers)
Helmut Rahn (Rot-Weiss Rssen)
Raymond Kopa (Reims)
Ferenc Puskas (Real Madrid)
Luis Suarez (Internazionale)
Kusebio (Benfica)
(•ianni-Rivera (A(' Milan) .
Luis Suarez (Internazionale)
Giacinto Facchetti (Internazionale)
Kusebio (Benfica)
Bobby ('harlton (Manchester l'nited)
Bobby ( harlton (Manchester United)
Luigi Riva (('agliari)
Bobby Moore (West Ham United)
Sandro Mazzola (Internazionale)
(ierd Miiller (Bayern Munich)
Dino Zoff (Juventus)
Frans Beckenbauer (Bayern Munich)
Franz Beckenbauer (Bayern Munich)
Robbie Rensenbrink (Anderlecht)
Kevin Keegan (Hamburgar SV)
Hans Krankl (Barcelona)
Karl-Heinz Rummenigge (Bayern Munich)
Bernd Schuster (Barcelona)
Paul Breitner (B. Munich)
• Guðmundur Jóhannsson, íþróttamaður ársins á ísafirði. Myndin er tekin
við afhendingu heiðursverðlauna og eru foreldrar Guðmundar með á mynd-
inni.
íþróttamaður ísafjaröar
NÚ FER VÍÐA fram kosning á íþróttamanni nýliðins árs. Við rákumst á
eftirfarandi mynd og klausu í Vestfirska fréttablaðinu og þar er skýrt frá þvi
hver var kjörinn fþróttamaður ísafjarðar.
„Guðmundur Jóhannsson skíða-
maður var kosinn íþróttamaður
ársins 1980. Var honum og for-
ystumönnum íþróttamála og öðr-
um gestum haldið veglegt hóf í Fé-
lagsheimilinu í Hnífsdal af bæjar-
stjórn ísafjarðar, þar sem Guð-
mundi var afhentur farandbikar
er sæmdarheitinu fylgir það ár er
hann var valinn, einnig sérstakt
viðurkenningarskjal og ákveðin
verðlaunaupphæð í peningum.
Guðmundur Jóhannsson var
einróma kosinn, enda árangur
hans á skíðamótum vetrarins 1980
mjög góður. Einnig þótti Guð-
mundur vel að sæmdarheitinu
kominn sakir prúðmennsku og
góðrar framkomu, bæði í leik og
starfi.
Þetta var í fyrsta sinni sem
íþróttamaður ársins var valinn
samkvæmt nýrri reglugerð sem
bæjarstjórn ísafjarðar lét semja
fyrir sæmdarheitið íþróttamaður
ársins ísafirði."