Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 31

Morgunblaðið - 05.01.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 39 Minning: Arni Guðmundsson frá Syðra-Lóni Látinn er um aldur fram góður drengur, Árni Guðmundsson í Keflavík. Hann var fæddur 28. febrúar 1919 á Syðra-Lóni í Norður-Þingeyjarsýslu. Árni var af góðu bergi brotinn, sonur merkishjónanna Guðmund- ar Vilhjálmssonar, oddvita og kaupfélagsstjóra á Syðra-Lóni, og hans ágætu konu, Herborgar Frið- riksdóttur frá Syðri-Bakka í Kelduhverfi. Var Herborg komin af hinni kunnu Gottskálksætt. Guðmundur og Herborg eignuð- ust 12 börn, 5 dætur og 7 syni, og var Árni sjötta barnið í röðinni af þeim systkinum. Áður eru látnir bræður hans tveir, Jón Erlingur, sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði, dá- inn 1976, og Vilhjálmur bóndi á Syðra-Lóni, dáinn 1980. Mjög var gestkvæmt á Syðra- Lóni enda bærinn í þjóðbraut og öllum tekið með hlýju viðmóti. Góðvinur foreldra Árna hafði þetta um Syðra-Lóns-hjónin að segja að þeim látnum: hjónin á Syðra-Lóni voru æðrulaus, þau lifðu ekki erfiðleikalausu lífi, en heiðríkjan yfir heimilinu leiddi margan mæddan mann heim til þeirra, til að létta af sér raunum og áhyggjum yfir á þeirra hjálp- fúsu hendur. Guðmundur Viihjálmsson bjó jafnan stórbúi, enda er Syðra-Lón mikil og góð hlunnindajörð. Kauptúnið Þórshöfn byggðist í landi jarðarinnar. Guðmundur var kaupfélagsstjóri á Þórshöfn um 20 ára skeið, stofnandi kaupfélags Langnesinga 1911. Hann var odd- viti Sauðaneshrepps og síðar Þórshafnarhrepps í 30 ár og fleiri félagsstörf hafði hann með hönd- um. Árni var vélstjóri að mennt. Starfsævi hans var að mestu bundin við Keflavík í sambandi við sjávarútveginn. Lengst af starfaði hann hjá Fiskiðjunni í Keflavík, eða um 29 ára skeið. í einkalífi sínu var Árni mikill gæfumaður, átti þá góðu konu Ingunni Einarsdóttur, Hjartar- sonar, bónda í Saurbæ á Langa- nesströnd í Norður-Múlasýslu. Þau giftust 28. júlí 1945. Þau eign- uðust fjögur myndarleg börn. Þau eru: Stefán, byggingarmeistari í Reykjavík, giftur Bryndísi Guð- mundsdóttur; Herborg, sem gift er Guðmundi Sigþórssyni frá Ein- arsnesi í Borgarfirði syðra, deild- arstjóra í Landbúnaðarráðuneyt- inu og tvíburabræðurnir Einar og Guðmundur, byggingarmeistarar í Keflavík. Barnabörn Árna og Ing- unnar eru fjögur. Ég kynntist Árna mági mínum og fjölskyldu hans fyrir rúmum þremur áratugum. Ógleymanlegar eru þær mörgu ánægjustundir sem ég og fjölskylda mín höfum átt á heimili hans og hans ágætu konu í gegnum árin. Börn okkar hjónanna eiga margar góðar bernskuminningar frá þeim árum þegar Árni frændi og Ingunn voru sótt heim, hvort heldur var á jól- um eða í annan tíma. Árna var alla tíð efst í huga vel- ferð fjölskyldu sinnar, í þeim efn- um var hann einstakur heimilis- faðir. Hann gerði fyrst og fremst kröfu til sjálfs sín og hafði alla tíð fastmótaða skoðun í þeim efnum. Hafði að leiðarljósi það uppeldi er hann naut í bernsku og mótaði svo djúpt huga hans allan. Árni var vandur að virðingu sinni, starfaði á meðan ýtrustu kraftar leyfðu og lét ekkert það verk eftir sig liggja sem betur hefði mátt gera. Hann hélt alla tíð tryggð við æskuslóðir sínar og naut þess í ríkum mæli að heimsækja vini og vandamenn þar eystra ásamt eiginkonu sinni. Þakkir skulu færðar Árna og Ingunni fyrir allt sem þau hafa verið fjölskyldu minni fyrr og síð- ar. Það er margs að minnast og mikið að þakka. Við hjónin heimsóttum Árna nokkrum sinnum á sjúkrahúsið. Sýndi hann ætíð mikinn andlegan styrk og æðruleysi í þungbærum veikindum sínum. Gerði hann sér þó grein fyrir að hverju stefndi. Þess bið ég ástvinum hans, að umhyggjan, er hann bar fyrir þeim, megi verða þeim styrkur, þótt hann sé nú ekki lengur nærri með sama hætti og áður var. Guð blessi minningu Árna Guð- mundssonar. Reynir Ármannsson. Hrefna Erlendsdótt- ir Hollan - Minning Fædd 11. nóvember 1925. Dáin 24. desember 1981. Það er skammt stórra högga á milli, Hrefna er sú þriðja úr hópi sjö systkina sem látist hafa á ár- inu 1981: bræður hennar létust einnig, Ólafur Pálmi 28. maí og Haukur 17. júlí. Það er því stórt skarð höggvið í systkinahópinn. Hrefna var næstyngst þeirra systkina og kynntist ég henni fyrst ungri stúlku er ég bættist í fjölskylduna sem eiginkona Hauks. Með okkur tókst strax mikil vinátta sem haldist hefur alla tíð síðan, þó langt hafi verið á milli okkar. Þær minningar sem koma upp í hugann eru allar tengdar skemmtilegum atvikum, því alltaf var Hrefna hrókur alls fagnaðar. Oft var glatt á hjalla þegar farið var í ferðalög, hún hafði mikið yndi af náttúrunni, enda hafði hún eytt mörgum sumrum í sveit á unglingsárum sínum. Árið 1947 flutti Hrefna til Am- eríku og kynntist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, James F. Holl- an, og var búsett þar alla tíð síðan. Sjálfri hefur mér aldrei hlotnast sú ánægja að heimsækja þau hjón, en það voru hennar mestu gleði- dagar þegar fjölskyldan kom frá íslandi og þá var allt gert til að gestunum liði sem best. Á undanförnum árum hefur Hrefna oft komið til íslands, allt- af einu sinni á ári og stundum oftar. Það hefur oft verið mikið átak að drífa sig í svona langa ferð þrátt fyrir veikindi, en sl. 5 ár hef- ur hún barist við þann sjúkdóm, sem loks leiddi hana til dauða. Þann 6. desember sl. kom hún heim í sína síðustu ferð. Þá var hún orðin mikið veik. Síðustu vik- urnar bjó hún hjá Grétu systur sinni, sem annaðist hana af ein- stakri alúð fram á síðasta dag, en Hrefna lést á afmælisdegi Hauks bróður síns 24. desember. Það var ósk hennar að fá að hvíla í ís- lenskri mold og nú fær hún þá ósk uppfyllta. Þessar fátæklegu línur vil ég enda með ósk um að Guð gefi eig- inmanni hennar og ástvinum styrk í þeirra miklu sorg. Söster. í dag er til moldar borin Hrefna Erlendsdóttir Hollan. Hrefna fæddist þann 11. nóvember 1925 í Reykjavík. Hún var dóttir hjón- anna Hrefnu Ólafsdóttur og Er- lendar Pálmasonar. Hún var næstyngst af sjö börnum þeirra hjóna þar sem voru tveir bræður og fimm systur. Hrefna fór til Ameríku árið 1949 og kynntist þar tilvonandi eiginmanni sínum, James F. Hollan. Þau giftu sig 24. mars 1951. Síðan hefur Hrefna bú- ið í Ameríku, fyrst í Washington, svo í Charlotte, North Carolina. Það hefur verið skammt stórra högga á milli á nýliðnu ári í systk- inahópnum. Bræðurnir tveir, Ólafur og Haukur, létust með skömmu millibili á síðastliðnu sumri og nú síðast kvaddi Hrefna okkur aðfaranótt aðfangadags jóla. Árið hefur markað djúp spor í lifi fjölskyldunnar. Okkur er ekki ætlað að lifa að eilífu hér á jörð. Dauðinn er stað- reynd sem hvert okkar verður að gera upp við sig innra með sér. Það fer eftir trú og innri styrk hvers og eins hversu vel okkur tekst að sætta okkur við þessa staðreynd lífsins. Meðan við erum ung leiðum við hugann lítið að dauðanum, hann virðist fjarlægur og framtíðin blasir við. En við hljótum að vera minnt á hann af og til. Það var ómetanlegt innlegg í þetta innra uppgjör hjá undirrit- aðri að fá að vera samvistum við Hrefnu hennar síðustu daga í þessu lífi. Öll hennar framkoma einkenndist af æðruleysi og skapstyrk sem var með ólíkindum. Það verður ómetanlegt seinna í lífinu þegar að herðir að hafa ver- ið þess aðnjótandi að kynnast Hrefnu og verða vitni að því hve lengi er hægt að halda mannlegri reisn þrátt fyrir þung áföll. Létt- lyndi er dýrmætt veganesti í líf- inu. Hrefna var gædd þessum eiginleika í ríkum mæli. Hún var næm á björtu hliðarnar á lífinu og hvers konar þunglyndi og sjálfs- vorkunn var andstætt hennar eðli. Hrefna bjó meirihluta ævi sinn- ar erlendis. En hún kom alltaf reglulega til íslands til ættmenna og vina. Hún var ættrækin og það var fastur liður þegar einhver fjöl- skyldumeðlimur átti afmæli að kort kom frá Hrefnu og James til að minna á að hún hugsaði heim og myndi eftir sínu fólki. Og það var í hennar anda að kortin komu alltaf á réttum tíma. Hrefna var snyrtileg kona, ró- lynd og fastmótaður persónuleiki sem líður seint úr minni þeim sem kynntust henni. Eftirlifandi eig- inmanni hennar votta ég mína dýpstu samúð, svo og öðrum að- standendum. Megi hún hvíla í friði. Valborg Kjartansdóttir. + Eiginmaöur minn, ÞÓR SKAFTASON, yfirvólstjóri andaöist um borö í m.s. Stuölafossi í Boulogne 4. janúar 1982. Hulda Helgadóttir. Faöir okkar, tengdafaöir og afi, JÓNAS JÓNSSON fró Bessastöóum, Kambsvegi 21, sem lést á Borgarspitalanum á aöfangadag jóla, veröur jarösung- inn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 6. janúar kl. 13.30. Erla Kristin Jónasdóttir, Birgir Sveinbergsson, Jón Jónasson, Gunilla Skaptason, og barnabörn. Faöir okkar og tengdafaöir, ÞORKELL KRISTJÁNSSON, fyrrverandi fulltrúi, Dalbraut 27, er andaöist 24. desember sl., veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju miövikudaginn 6. janúar kl. 10.30. Siguröur Ómar Þorkelsson, Inga Eiríksdóttir, Margrét Þorkelsdóttir, Magnús Friöriksson. Móöir mín, LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Hraunbæ 86, er látin. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Fyrir hönd vandamanna. Hafsteinn Már Matthíasson. Faöir minn, BJARNI GUÐBJARTSSON, Bergstaöastræti 33, er lést á heimili sínu 22. desember, veröur jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 7. janúar 1982 kl. 3.00 e.h. Jóhann Þ. Bjarnason. Útför móöursystur minnar, GUÐLAUGAR SNÆBJARNARDÓTTUR, Hátúni 10, verður gerð frá Fríkirkjunni, miövikudaginn 6. janúar kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar, góöfúslega látiö öryrkjabandalag islands, Hátúni 10, njóta þess. Haraldur Hannesson. + Utför, JÓNU AOALSTEINSDÓTTUR, Uthlíö 5, fer fram frá Háteigskirkju, fimmtudaginn 7. janúar kl. 3 e.h. Ingvi Þórðarson. + Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, THEODÓR GUÐMUNDSSON, vélvirkjameistari, Flókagötu 9, veröur jarösunginn þriöjudaginn 5. janúar kl. 15.00 frá Fríkirkjunnl í Reykjavik. Blóm eru vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á liknarsjóö Oddfellow-reglunnar, stúku nr. 5 Þor- steinn. Laufey Þorgeirsdóttir, Louíse Kristín Theodórsdóttir, Ragnar Már Hansson, Hlíf Theodórsdóttir, Þorgeir Theodórsson, Birna Björnsdóttir, Guómundur Ægir Theodórsson, Ingveidur Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.