Morgunblaðið - 28.02.1982, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1982
57
skíðaíþróttinni. En það reyndust
óþarfa áhyggjur.
Pabba grunaði það
Fleiri góðir skíðamenn voru í
Tárnaby, svo sem Bengt-Erik
Grahn og Sven Mikaelsson.
Hinn 17. janúar 1971 tók Inge-
mar, þá 14 ára, í fyrsta skipti þátt
í unglingakeppni. ~Hann byrjaði
númer 79 en hafnaði í 12. sæti. Þá
varð föður hans á orði, að erfitt
yrði að sigra Ingemar úr þessu.
Þarna varð Erik og mörgum öðr-
um ljóst hvað i vændum var. Ári
síðar vann Stenmark sigur í
keppni í sínum aldurshópi. Aðeins
16 ára fór hann brautina heima í
Tárnaby á betri tíma en Ólympíu-
farinn Sven Mikaelsson, sem þá
æfði fyrir OS-keppni i Sapporo.
Erik Stenmark tók tímann, en allt
frá því (árið 1972) er Stenmark
líklega besti skíðamaður Svía. En
enginn vissi það nema þeir þrír.
Vorið 1974
Stórsigur var að nálgast. Menn
héldu að hann myndi líta dagsins
ljós á unglingakeppninni 1973, en
þá mistókst Ingemar. Seinna
hafnaði hann í níunda sæti í
heimsmeistarakeppni í Saalbach.
Vorið 1974 náði hann mjög góð-
um árangri í heimsmeistara-
keppni í Voss og víðar, þá 18 ára
gamall. Þá sagði Gustavo Thöni í
Voss: „Þessi verður næsti heims-
meistari." Það stóð heima. í árslok
1974 vann Stenmark sinn fyrsta
heimsmeistaratitil í skiðaiþrótt-
inni. Allt frá þeim tíma hefur
hann verið í röð fremstu skíða-
kappa heims.
Hann æfði og æfði
og varð meistari
Á skólaárunum var ekkert sér-
stakt sem benti til þess að Inge-
mar Stenmark yrði „súper-
stjarna“. Hvernig það þróaðist
smátt og smátt að hann varð
framúrskarandi íþróttamaður —
og hefði getað orðið það í fleiri
greinum — er ekki meðfæddum
hæfileikum einum að þakka, held-
ur, og ekki síður, þrotlausum æf-
ingum og viljastyrk.
Vinnan á bak
við afrekin
Fjöllum nú dálítið um hina hlið-
ina á lífi Stenmarks; vinnuna á
bak við sigrana.
Stenmark og Ann
Ingemar Stenmark, 25 ára, var einn af eftirsóttustu piparsveinum
heims. Flugfreyjan Ann Uvhagen, 31 árs, varð svo lánsöm að vinna
ástir hans. Mikið var rætt og ritað um samband þeirra á síðastliðnu
ári, en lífið var ekki bara dans á rósum hjá Ann. Eftir að samband
þeirra varð opinbert viku þau vart frá hvort öðru. Hún fylgdi
honum í keppnisferðir hans og þegar illa gekk var sökinni gjarnan
skellt á hana. En segjum að Ann hefði setið heima í Monte Carlo
meðan Ingemar keppti, án nægilega góðs árangurs, hefði þá ekki
einhver sagt: „Ann, hvar ertu? — Ingemar þarfnast þín.“
Á þessum myndum má sjá hversu vel þjálfaður líkami Stenmarks er. Takið eftir fótleggjunum.
Það liggur í augum uppi, að bak
við hinn stælta líkama Stenmarks
er þrotlaus vinna og aftur vinna.
Hann býr yfir einstökum krafti í
fótleggjunum, enda hefur hann
lagt mesta áherslu á að byggja þá
upp. Hann pressar í dag 360 kg
með fótunum.
Sem drengur var hann grannur
og fremur væskilslegur, og þótt
honum gengi ungum vel á skíðum,
var það ekki fyrr en hann var
13—14 ára að skíðaþjálfara fór að
renna grun í að í honum byggi
efniviður í góðan skíðamann, enda
var hann lítið fyrir að hafa sig í
frammi og láta ljós sitt skína. Fór
sínar eigin leiðir.
I leikfimitímum skólans voru
það bekkjabræður hans sem létu
ljós sitt skína og nutu þess að sýna
hvað þeir gátu. Ingemar stóð
álengdar og horfði hljóður á. Síð-
an gekk hann út og fór að æfa —
einn, vikum, mánuðum saman, án
þess að nokkur vissi.
Dag einn fann hann að hann var
tilbúinn. Hann gekk fram á mitt
gólfið í leikfimitíma og fór þrjú
heljarstökk í einum rykk afturá-
bak. Svona var Stenmark; sýndi
aldrei neitt fyrr en það var full-
komið.
En þó skrifaði hann eitt sinn í
skólablaðið, þá níu ára: „Ég ætla
að verða skíðakappi. Og ég ætla að
verða bestur."
Allt frá því hann var átta-níu
ára hefur hann stundað æfingar
dag hvern til að byggja upp lík-
ama sinn og oft æfði hann marga
tíma á dag. Eftirá hefur hann ját-
að að hann hafi stundum lagt svo
hart að sér, að hann hafi varla
getað stigið í fæturna á eftir.
Alltaf einn.
Alltaf æfði Stenmark einn. Ekki
einu sinni Jan-Erik, litli bróðir
fékk að koma með. Einstöku sinn-
um fékkst hann til að sýna hluta
af listum sínum: Heljarstökk aft-
urábak og áfram, hjóla á einu
hjóli upp og niður tröppur, ganga
á línu o.fl.
En þetta var aðeins undirbún-
ingsvinnan að því sem hann ætlaði
sér að verða: Skíðastjarna.
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu
mig á 80 ára afmæli mínu með gjöfum, skeytum
og margs konar hugulsemi.
Gertrud Friðriksson,
Húsavík.
Megrunarnámskeið
Vegna mikillar eftirspurnar hefst nýtt 12 vikna
megrunarnámskeið 3. marz (bandarískt megrunar-
námskeið sem hefur notið mikilla vinsælda og gefið
mjög góðan árangur). Síðasta námskeið vetrarins.
Upplýsingar og innritun í síma 74204.
Kristrún Jóhannsdóttir,
manneldisfræðingur.
NYTT
NÝTT
„ELEKTROKOKST" er eitt mest selda heilsu- og
megrunarfæði í Danmörku.
„ELEKTROKOST“ er eitt próteinríkasta megrunar-
og heilsufæði á markaðnum.
„ELEKTROKOST" er 47,6% soja- og mjólkurprótein
og 52,4% bætiefni.
„ELEKTROKOST" geta allir notaö án tillits til aldurs.
„ELEKTROKOST" er hrært út í léttmjólk, juice eða
mjólk. Kemur í stað matar á meðan megrun stendur.
„ELEKTROKOST“ stuðlar að heilbrigðum líkama og
gerir hann hæfari að vinna rétt úr fæðunni.
„ELEKTROKOST" má einnig taka með léttu fæöi
fyrir þá sem vilja hreinsa út líkamann og hvíla maga
og þarma.
„ELEKTROKOST" gerir þaö sem mörg önnur megr-
unarduft gera EKKI.
Það hreinsar út öll eiturefni og ólyfjan sem safnast
hafa fyrir í líkamanum, og þar af leiöindi byggir upp
heilbrigðan líkama á meöan megrun stendur.
„EINNIG RÁÐLEGGJUM VIГ að taka eitt til tvö glös
á dag öðru hvoru fyrir þá sem ekki þurfa endilega á
megrun aö halda, heldur vilja stuöla aö fallegum
líkama og heilbrigöri meltingu.
ER FÁANLEGT MED VANILLU EDA SÍTRONUBRAGOI.
ÍSLENSKUR LEIÐARVÍSIR.
Sendum
í póstkröfu
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík:
Líkamsrækt JSB, Bolholti 6 og Stigahlíö 45, Suöurveri.
Landsbyggðin:
Akranesapótek, Borgarnesapótek, Stjörnuapótek, Akur-
eyri, Stykkishólmsapótek, Patreksfjaröarapótek, Söluskál-
inn Víöigeröi, Blönduósapótek, Sauöárkróksapótek, Siglu-
fjaröarapótek, Dalvíkurapótek, Húsavíkurapótek, Hafnar-
apótek, Vestmannaeyjar, Heilsuhorniö, Selfoss og Sól-
baösstofan Sóley, Keflavík.
Einkaumboö á íslandi.
Á. Schram
Heildverslun.
Bolholti 6, Reykjavík 91-31899.