Morgunblaðið - 28.02.1982, Page 37

Morgunblaðið - 28.02.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRÚAR 1982 85 lækningafélags og sinnti því af áhuga, enda voru heilbrigðir lífs- hættir honum mjög að skapi. Hann neytti aldrei áfengis né tóbaks. Hann tók virkan þátt í störfum innan Verslunarmannafélagsins. Eftir að Páll fluttist til Reykja- víkur vann hann ýms störf sem til féllu þar til hann gerðist skrif- stofumaður hjá Náttúrulækninga- félagi Isiands. Þar vann raunar Sigríður einnig á meðan hún hafði heilsu til, en hún átti við erfið veikindi að stríða síðustu æviárin. Hún andaðist 30. október 1975. Eftir lát konu sinnar annaðist Páll heimili sitt sjálfur og þurfti engrar aðstoðar við þar til um mánaðamótin janúar og febrúar sl. Þá varð hann að fara á sjúkra- hús í fyrsta sinn á ævi sinni, svo hraustur hafði hann verið. Sjúkra- húsvist hans varð ekki löng, hann andaðist 21. febrúar. Páll Sigurgeirsson var mikill mannkostamaður. Hann gerði ekki á hlut samborgara sinna og mátti ekki vamm sitt vita. Hann var vinum sínum hjálparhella. Leitaði réttlætis og var kaupmað- ur þeirrar gerðar, sem stétt hans má vera stolt af og þjóðin öll. Tryggð, vinfesti og frændrækni Páls Sigurgeirssonar var ríkur þáttur í fari hans. Má raunar sama segja um allan hinn stóra systkinahóp, börn Sigurgeirs Jónssonar og Friðriku Tómasdótt- ur. Það eru skapgerðareinkenni sem auðga lífið og gera betra og léttara að lifa því. Páll H. Jónsson frá Laugum. ur í framkomu og bjó yfir mikilli kímnigáfu, sem og frændur hans. Hann var félagslyndur og ræðinn enda maður fjölfróður. Jón kvæntist Þorbjörgu Biering, en sambúð þeirra var ekki löng, hann missti hana eftir nokkurra ára hjúskap. Þau áttu ekki börn saman. Jón var ekki gamall er kallið kom, en enginn ræður sínum næt- urstað. Þetta eru fátækleg orð um slík- an persónuleika er Jón var, en við þökkum honum samfylgdina og óskum honum góðrar heimkomu yfir móðuna miklu. Við vottum eftirlifandi bróður hans, Þórði Sturlaugssyni og öðr- um ættingjum innilega samúð. Samstarfsfólk Birting afmœlis- og minningar- greina ATIIYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frunr ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Nú bjóðum við ýmsa möguleika fyrir fermingarnar. Tweedjakkar frá kr. 900.—, buxur kr. 450.— og prjónavesti kr. 150.—, eða buxur og vesti og sportblússur í ýmsum gerðum og verðum. Og auðvitað er skyrtan og bindið með klút í stíl ásamt skónum á sama stað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.