Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
122. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
ísraelsmenn ná Tyros og
fleiri mikilvægum stöðum
Brezkir hermenn
sækja fram á
Vestur-Faiklandi
Tel Aviv, 7. júní. AP.
ÍSRAELSMENN sögðu frá fleiri sigrum í Líbanon í dag,
mánudag, og Menachem Begin forsætisráðherra fór í þyrlu til
Beaufort-kastala, áður helztu miðstöðvar Palestínumanna til
stórskotaárása á ísrael. Þar fékk hann skýrslu hjá Ariel
Sharon landvarnaráðherra um vígstöðuna.
ísraelsmenn virðast ætla að króa
Palestínumenn inni með tangarsókn
eftir blóðuga bardaga í návígi. ísra-
elskur herforingi sagði að ísra-
elsmenn ættu í höggi við skipulagð-
an palestínskan her sem væri þægi-
legra að eiga við en skæruliða.
Israelsmenn segjast hafa um-
kringt Sidon og tekið þrjú palestínsk
vígi: Tyros á ströndinni, Nabatiyeh á
miðvígstöðvunum og Hasbaya í
„Fatahlandi" í austri, í rótum Herm-
onfjalls. Raphael Eytan herráðsfor-
seti sagði að innrásin gengi vel og
væri á undan áætlun.
Haim Herzog fv. hershöfðingi
sagði að aðgerðunum lyki e.t.v. á
miðvikudag ef Sýrlendingar skærust
ekki í leikinn. ísraelsmenn hefðu
reynt að króa Palestínumenn inni
með landgöngu norðan við Sidon og
sóknaraðgerðum á austursvæðunum.
Palestínumenn yrðu að ákveða fljótt
hvort þeir ættu að hætta á mikið
mannfall eða hörfa norður á bóginn.
Herstjórnin sagði að herskip,
brynsveitir, fallhlífahermenn og
fótgöngulið hefðu tekið ósasvæði
AI-Awali 3 km norðan við Sidon án
Reagan í
Windsor
Windsor, 7. júni. AP.
RONALD REAGAN forseta var
tekið með viðhöfn þegar hann kom
til Windsor-kastala i dag mánu-
dag, og hann verður fyrsti forseti
Bandaríkjanna sem þar gistir.
Strangar öryggisráðstafanir
höfðu verið gerðar þegar forset-
inn og kona hans komu til
Heathrow-flugvallar. í London
var 41 fallbyssuskoti skotið
Reagan til heiðurs og um 2.000
háværir andófsmenn mótmæltu
stefnu hans í kjarnorkumálum
fyrir utan Downing-stræti 10.
Ellefu voru handteknir síðar.
Reagan ávarpar báðar deildir
brezka þingsins á morgun, mið-
vikudag. Alexander Haig utan-
ríkisráðherra mun ræða við
Francis Pym embættisbróður
sinn um Falklandseyjadeiluna,
sem varpar skugga á heimsókn-
ina, og umrótið í Miðausturlönd-
um. Sjá frétt á bls. 18.
mannfalls og skotið á veginn til að
koma í veg fyrir undanhald skæru-
liða til Beirút. Fátt var um varnir í
fjallabænum Hasbayah í austri, 16
km norðaustur af landamærunum,
en landslagið er erfitt.
ísraelsmenn kalla aðgerðina „Frið
fyrir Galíleu" og segja eina tilgang-
inn þann að hrekja skæruliða frá
svæðinu hjá landamærunum. Þeir
segjast ekki vilja berjast við Sýr-
lendinga, sem hafa heitið að verja
Palestínumenn, en hafa greinilega
nánar gætur á þeim. Israelskir
stjórnmálaleiðtogar hvetja til að
ísrael krefjist brottflutnings Sýr-
lendinga frá Líbanon gegn því að
ísraelsmenn hörfi frá svæðinu sem
þeir hafa tekið.
Aðalstöðvar öryggisþjónustu PLO
urðu fyrir ísraelskum loftárásum í
dag, en herstjórnarbyrgi Yasser
Arafats slapp. Sýrlendingar segja að
þeir hafi skotið niður tvær ísraelsk-
ar flugvélar í loftbardögum yfir
Beirút og fimm sýrlenzkir hermenn
hafi fallið og 10 særzt í bardögum í
dag. (ísraelsmenn segjast liafa skot-
ið niður eina sýrlenzka MIG-þotu.)
Sýrlendingar hafa sent brynvarið
herfyiki til Líbanons.
PLO segir að ísraelskir fallhlífa-
hermenn og ísraelskt landöngulið
hafi sameinazt til árásar á Sidon,
sem sé í „ísraelskri snöru“. Fallhlífa-
hermenn hefðu tekið allar hæðir
umhverfis borgina og fjörurnar
norðan og sunnan við Sidon væru
morandi af skriðdrekum og víkinga-
hermönnum,
Útvarpsstöð falangista segir að
ísraelskir skriðdrekar og fallhlífa-
hermenn hafi ráðizt inn í Sidon
skömmu eftir sólsetur og séu að upp-
ræta einangraða hópa skæruliða í
borginni. Sidon yrði mesta herfang
innrásarliðsins.
Bandarískir hernaðarsérfræð-
ingar efast um að innrásin leiði til
stórstríðs og telja að Sýrlendingar
muni ekki hætta á algert stríð.
George Bush boðaði til fundar í
Hvita húsinu til að kanna leiðir til
að binda enda á átökin. Þótt samúð
með ísrael sé töluverð munu ýmsir
embættismenn vilja refsiaðgerðir.
Sagt er að ísraelsmenn fái 48 tíma
frest til að hörfa, ella fái þeir ekki
afhent bandarísk vopn. Sharon land-
varnaráðherra hafði varað Alexand-
er Haig utanríkisráðherra við inn-
rásinni í maí.
Setuliðið í Stanley
hvatt til uppgiafar
litnHnn 7 mní AP
l/ondon, 7. júní. AP.
YFIRMAÐUR brezka herliðsins á Falklandseyjum, Jeremy Moore hershöfð-
ingi, hefur í talstöð skorað á argentínska yfirmanninn, Mario Menendez
hershöfðingja, að gefast upp að sögn fréttastofunnar Press Association (PA).
Ekkert er vitað um viðbrögð Menendez í London.
Brezka landvarnaráðuneytið
segir að brezka herliðið treysti
stöðvar sínar og sendi varðflokka
fram fyrir víglínuna. Argentínsk-
ar flugvélar réðust á brezka her-
menn í gær, mánudag, en engan
sakaði. PA segir að allt að 60 arg-
entínskir hermenn hafi fallið síð-
ustu fimm daga, en enginn Breti.
Tilkynnt var að brezka Gazelle-
njósnaþyrlan hefði farizt á
Austur-Falklandi á laugardag og
Diplómat veginn 1 Lissabon
Líssabon, 7. júní. AP.
VERND tyrknesks sendiráðsfólks í Lissabon var aukin i dag þegar samtök
armenskra hryðjuverkamanna höfðu lýst því yfir að þau bæru ábyrgðina á
dauða tyrkneska sendiráðsfulltrúans Erkut Akbay.
Kona hans, Naidede, særðist í
árásinni og liggur meðvitundar-
laus í sjúkrahúsi. Tilraunin til
þess að ráða þau af dögum var
gerð fyrir utan íbúð þeirra í einu
úthverfi Lissabon þegar þau voru
að koma heim til hádegisverðar.
Sjónarvottum ber ekki saman,
en þeir eru sammála um að Akbay
hafi látizt samstundis eftir snögga
árás. Lík Akbays lá enn í bíl-
stjórasæti Peugeot-bifreiðar hans
tveimur tímum eftir tilræðið með-
an sérfræðingar lögreglunnar leit-
uðu að vísbendingum um morð-
ingjann eða morðingjana.
Onefndur sjónarvottur sagði að
einn árásarmaður hefði sézt,
grímubúinn, en yfirvöld vilja ekk-
ert um það segja.
„Við höfum drepið tvo tyrkn-
eska diplómata," sagði maður
nokkur, sem hringdi í fréttastof-
una AFP og virtist halda, rang-
lega, að kona Akbays hefði einnig
unnið í tyrkneska sendiráðinu.
Maðurinn sagðist fulltrúi samtaka
sem vilji koma fram hefndum
fyrir þjóðarmorð á Armenum.
Akbay hafði starfað í Lissabon í
tvö og hálft ár. Erlendir fulltrúar
voru síðast vegnir í Lissabon fyrir
sex árum þegar tveir kúbanskir
sendiráðsmenn létust í sprengingu
í sendiráði Kúbu. Misheppnuð til-
raun var gerð 1979 til að myrða
sendiherra ísraels, sem særðist
lítillega, en lögreglumaður beið
bana. Síðan 1973 hafa Armenar
vegið 22 tyrkneska diplómata.
fjórir beðið bana. Þar með hafa
Bretar misst 142 menn.
Michael Nicholson, fréttamaður
ITN, sagði að landgönguliðar
hefðu komið sér fyrir í traustum
stöðvum í fjöllunum fyrir norðan
Port Stanley og komið Argentínu-
mönnum í opna skjöldu. Hann
sagði að rofað hefði til í dag eftir
þoku, hvassviðri, rigningu og
slyddu í eina viku og argentínskar
flugvélar hefðu notað tækifærið
til að ráðast á San Carlos, en ekki
komizt nógu nálægt. Ein þeirra
var skotin niður með eldflaug frá
brezku herskipi.
Brian Hanrahan, fréttamaður
BBC, sagði að sveit Gurkhaher-
manna færi daglega í leiðangra í
þyrlum til að leita uppi einangr-
aða hópa argentínskra hermanna
að baki brezku víglínunnar, en
fyndu yfirleitt ekkert nema yfir-
gefin hergögn og skotfæri.
Nicholson sagði að brezkir her-
menn yrðu að „þola afleit veður-
skilyrði, stundum snjókomu,
stundum ísingu, alltaf leðju. Þeir
hafast við í skotgröfum, sem hafa
verið grafnar niður í blautar
mómýrar og lág ský umlykja þá
allan sólarhringinn. Allan tímann
er þess vænzt að þeir séu reiðu-
búnir til orrustu."
Tilkynnt var að fimm argent-
ínskir fangar hefðu beðið bana og
sjö særzt þegar skotfæri hefðu
sprungið fyrir slysni í Goose
Green 1. júní. Talsmaður vildi
ekki ræða þá frétt BBC að Argen-
tínumenn hefðu verið að hreinsa
skotfærageymslu þegar slysið
varð. Útför 250 Argentínumanna,
sem féllu við Darwin og Goose
Green, hefur verið gerð.
Mikil fagnaðarlæti urðu þegar
133 menn, sem björguðust af
gámaskipinu „Atlantic Conveyor",
komu með DC-10 flugvél brezka
flughersins til flugstöðvarinnar
Brize Noreton nálægt Oxford.
Sjá grein á bls. 34.
Þýzk hjón
handtekin
Austur--Berlín, 7. júní. AP.
VESTUR-ÞÝZK hjón hafa verid
handtekin, gninuð um njósnir í þágu
vestur-þýzku njósnaþjónustunnar
BND, ad sögn austur-þýzku frétta-
stofunnar ADN. Talsmaður BND í
Munchen vill ekkert um málið
segja.
ADN kallar hjónin „Wolfgang
og Heike B.“ og segir að þau hafi
stundað njósnir árum saman.
Rannsókn sé hafin í málinu.