Morgunblaðið - 08.06.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
Flying Tigers:
Leyfi til vöruflugs milli
íslands og Bandaríkjanna
FLUGLEIÐIR hafa nú fengið mikla
samkeppni í vöruflutningum á leið-
inni milli íslands og Randaríkjanna,
þar sem handaríska vöruflugfélagið
Flying Tigers hefur fengið leyfi til
vöruflugs milli landanna, en það er
stærsta vöruflugfélag veraldar.
Flying Tigers var fengið til að
fljúga nokkrar ferðir í vetur með
ferskan fisk á Bandaríkjamarkað
fyrir sölusamtök útflytjenda og
óskaði í framhaldi af því eftir leyfi
bandarískra flugmálayfirvalda til
að stunda vöruflug milli landanna
í a.m.k. eitt ár, en síðan var lögð
inn beiðni um áframhaldandi
reglubundið flug, en félagið hyggst
nota flugvélar af gerðinni Boeing
747 og DC-8-63, sem eru í ferðum
milli Bandaríkjanna og Evrópu til
þessa flugs eftir þörfum.
Samgönguráðuneytinu barst
orðsending bandaríska sendiráðs-
ins, þar sem Flyging Tigers var til-
nefnt til að fljúga reglulega með
vörur og póst milli Bandaríkjanna
og Keflavíkur, í samræmi við 2.
grein loftferðasamnings landanna
frá 1945. Ráðuneytið féllst fyrir
sitt leyti á þetta flug Flying Tig-
ers, og sagði Birgir Guðjónsson,
deildarstjóri, að það væri í fullu
samræmi við loftferðasamninga
landanna, en skilyrði fyrir leyfinu
væri, að flugmálastjórn verði
sendar allar nauðsynlegar upplýs-
ingar um reksturinn, svo sem um
áætlun, flugvélar til flugsins og
farmgjöld.
Birgir Guðjónsson sagði enn-
fremur, að loftferðasamningurinn
við Bandaríkin væri sérstakur að
því leyti, að í honum væri ekkert
fjallað um fargjöld, eins og t.d. í
loftferðasamningum við Evrópu-
lönd, þar sem fargjöld eru öll inn-
an sama rammans, þ.e. ramma
IATA, Alþjóðasamtaka flugfélaga.
Ágúst Flygenring formaður stjórnar SH:
Stöðvun ef ekki verð-
ur gripið til aðgerða
„ÞAÐ ER Ijóst að ef ekki
koma fljótlega til aðrar ráð-
stafanir stöðvast rekstur
frystihúsanna og útgerðar
mjög fljótlega,“ sagði Ágúst
Flygenring, formaður stjórn-
ar Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, er Mbl. spuröi
hann hver áhrif 10,5% fisk-
verðshækkun kæmi til með
að hafa á rekstur hraðfrysti-
húsanna.
Ágúst Flygenring
Ragnar
son hrl.
RAGNAK Olafsson, hæstaréttarlög-
maöur og löggiltur endurskoðandi,
er látinn, 77 ára að aldri.
Ragnar fæddist í Lindarbæ í
Holtum þann 2. maí 1906. Hann
Ragnar Ólafsson
Ólafs-
látinn
var sonur Ólafs Ólafssonar hrepp-
stjóra og Margrétar Þórðardóttur.
Ragnar varð stúdent frá Reykja-
vík árið 1926, cand. juris frá Há-
skóla íslands 1931. Hann stundaði
framhaldsnám í Svíþjóð og Eng-
landi um tveggja ára skeið,
1932—33 og við endurskoðun í
Bandaríkjunum árin 1938—39.
Hann vann að lögfræðistörfum
og endurskoðun hjá Sambandi ís-
lenzkra samvinnufélaga í Reykja-
vík á árunum 1931—42, en hefur
rekið málaflutnings- og endur-
skoðunarskrifstofu í Reykjavík
síðan 1940. Ragnar gegndi margs
konar trúnaðarstörfum, átti sæti í
yfirskattanefnd, sat um langt ára-
bil í landskjörstjórn og var for-
maður Kaupfélags Reykjavíkur og
nágrennis og stjórnarformaður
Seölabanka íslands.
Eftirlifandi kona hans er Krist-
ín Ólafsson og áttu þau tvenna tví-
bura, Ólaf og Oddnýju, f. 1941, og
Kristínu og Ragnar, f. 1944.
Ágúst sagði einnig: „Fiskverð
var ákveðið að þessu sinni með
atkvæði fiskkaupenda, sem sjald-
an gerist." Aðspurður um ástæðu
þess að fiskkaupendur sam-
þykktu sagði hann: „Þetta hefur
verið talinn skásti kosturinn.
10,5% hækkun þýðir 5% hækkun
á framleiðsluverðmæti. Það er þó
sjáanlegt að eitthvað frekara
þarf til að koma. Kaupendur sam-
þykktu í trausti þess, að slíkt
kæmi til, enda lögðu þeir fram
bókun um að frekari ráðstafanir
yrðu til að koma.“ Ágúst sagði
aðspurður í lokin, að ekkert vil-
yrði lægi þó fyrir um aðrar
ráðstafanir sér vitanlega. Þá
sagði hann einnig, að gengisfell-
ing væri ekki endilega eina
lausnin, aðrar efnahagsráðstaf-
anir kæmu einnig til greina.
Hallvarður Einvarðsson, rannsóknarlögreglustjóri, skýrði blaða-
mönnum frá þvi, að þjófnaðurinn í Gull & Silfur væri upplýstur.
Myndir Mbl. Kristján
Þjófnaðurinn í Gull & Silfur upplýstur:
Voru að freista þess að
koma þýfinu úr landi
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur upplýst þjófnaðinn í skart-
gripaverzlunina Gull & Silfur þann
8. apríl síðastliðinn og voru þrír
menn handteknir um helgina
vegna þjófnaðarins. Á laugardag-
inn var maður um tvítugt handtek-
inn á Keflavíkurflugvelli þegar
hann ætlaði til Kaupmannahafnar.
Við leit fannst hluti þýfisins í fór-
um hans.
Hann hugðist fara úr landi og
koma hluta þýfisins í verð ytra. I
kjölfarið var maður sá, sem sat á
sínum tíma í gæzluvarðhaldi
vegna þessa máls, handtekinn og um í borginni.
hefur hann viðurkennt að hafa
brotizt inn í Gull & Silfur og
stolið skartgripum að andvirði
um 800 þúsund krónur. Hann var
einn að verki. Þriðji maðurinn
var svo handtekinn vegna máls
þessa og þá fyrir að hafa gætt
hluta þýfisins.
Rannsóknarlögreglumenn
undir stjórn Þóris Oddssonar,
vararannsóknarlögreglustjóra,
unnu alla helgina að því að upp-
lýsa þjófnaðinn og hefur megin-
hluti þýfisins komið í leitirnar.
Það var geymt á nokkrum stöð-
WKSmXSSSm
RLR hefur tekist að ná aftur stærstum hhita þýfisins.
Búið að framleiða upp
1 alla karfasamninga
Aðalfundur Heimdallar:
Árni Sigfússon end-
urkjörinn formaður
AÐALFUNDUR Heimdallar, SUS í
Reykjavík, var haldinn í Valhöll
sunnudaginn 6. júní sl.
Árni Sigfússon var einróma endur-
kjörinn formaður Heimdallar.
Aðrir í stjórn voru kosnir: Árni
Sigurðsson, nemi, Ásdís Loftsdótt-
ir, verslunarmaður, Baldvin Ein-
arsson, laganemi, Edda Magnús-
dóttir, menntaskólanemi, Haukur
Þ. Hauksson, verslunarmaður, Jó-
hannes Sigurðsson, laganemi, Ólaf-
ur Jóhannsson, blaðamaður, Sig-
urður Ólafsson, læknanemi,
Svanbjörn Thoroddsen, mennta-
skólanemi, Þorsteinn Haraldsson,
iðnnemi, Örn Þ. Þorvarðarson,
menntaskólanemi.
Á fundinum var skýrsla stjórnar
lögð fram og samþykktir voru
reikningar félagsins.
AFSKIPANIR á karfa ganga
nú mjög hægt, þar sem búið
er að fylla upp í þá sölusamn-
inga, sem gerðir voru við
Rússa um áramót, en þá var
gengiö frá 17.000 tonna
samningi við þá. I maí síðast-
liðnum var gengið frá 500
tonna viðbótarsamningi við
Rússa og er löngu búið að
framleiða upp í þann samn-
ing.
Fyrirhugaðar eru samningavið-
ræður við Rússa á næstunni um
viðskiptamál og verður fundurinn
haldinn í Reykjavík. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
verður þá reynt að fá Rússa til að
auka fiskkaup sín frá íslandi, sér-
staklega á karfa.
Sem dæmi um aukna karfa-
framleiðslu frystihúsa, þá má
benda á að nú nemur karfafram-
leiðsla Sambandsfrystihúsanna á
karfaflökum 2.533 tonnum, en á
sama tíma í fyrra var framleiðsl-
an 1853 tonn.
Á meðan ekki hefur tekist að ná
frekari samningum um sölu á
karfaflökum munu frystihúsin að
líkindum safna birgðum á svipað-
an hátt og gert var á síðastliðnu
ári. Þá söfnuðu húsin birgðum,
sem síðan voru afgreiddar upp í þá
samninga, sem gerðir voru við
Rússa um áramót.
Aftur á móti hefur gengið vel að
selja grálúðuflök, þrátt fyrir að
lúðan sé enn mjög mögur og virð-
ist nægur markaður fyrir grálúðu-
flök, bæði austan hafs og vestan.
Halldór Arinbjarn-
ar læknir er látinn
IIALLDÓK Arinbjarnar læknir varð
bráðkvaddur laust fyrir helgi, þar
sem hann var staddur í sumarleyfi
erlendis. Halldór var fæddur á
Gunnfríðarstöðum Ásum 4. sept-
ember 1926, og var því 55 ára er
hann lézt.
Halldór lauk stúdentsprófi frá
Reykjavík 1946, læknaprófi frá
Háskóla íslands 1953. Þá var hann
við nám og störf erlendis um tíma.
Hann varð sérfræðingur í hand-
lækningum, kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp. Við Landspítalann
starfaði Halldór bæði við fæð-
ingar- og handlækningar. Síðustu
árin var hann heimilislæknir í
Reykjavík.
Eftirlifandi kona Halldórs er
Gerður Guðnadóttir prófessors
Jónssonar í Reykjavík.
Halldór Arinbjarnar