Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
3
Í2 SJálfskiptur
CHARADE
liiltiá 102.908 kr.
(með öllu)
Viö vorum aö fá til landsins nýja sendingu af sjálfskiptum DAIHATSU CHARADE og getum
nú loksins annaö eftirspurn þótt ekki veröi nema smátíma.
Þessi frábæri hagnýti verölaunabíll nýtur gífurlegra vinsælda hérlendis og á annaö þúsund
bílar seldir.
Charadeinn er einnig viöurkenndur sem einn langbesti endursölubíllinn á markaönum.
Flýttu þér aö tryggja
þér Charade áður en
hækkunar aldan
Arsreikningur
lagður fram
ÁRSREIKNINGUR borgarsjóðs og
stofnana han.s var til fyrri umrærtu á
fundi borgarstjórnar sl. fimmtudag.
Samkvæmt reikningnum voru tekjur
633 milljónir, rekstrargjöld 483,2
milljónir og afgangur til eignabreyt-
inga var 149,8 milljónir.
Gunnlaugur Pétursson borgar-
ritari kynnti ársreikr.inginn og
var reikningnum síðan vísað til
annarar umræðu. Davíð Oddsson
borgarstjóri, sagði í samtali við
Morgunblaðið að við aðra umræðu
í borgarstjórn yrði reikningurinn
tekinn til efnislegar meðferðar.
Úr aldaannál á Listahátíð í kvöld
UTLI leikklúbburinn á ísafirði sýnir leikritið Úr
aldaannál í Gamla bíói í kvöld, þriðjudagskvöld, og er
sýningin liður í Listahátíð í Reykjavík. Hefst sýningin
kl. 20.00.
Úr aldaannál er eftir Böðvar Guðmundsson, leik-
stjóri er Kári Halldór. Leikarar Litla leikklúbbsins
gengu síðdegis í gær um miðbæ Reykjavíkur og
kynntu vegfarendum leiksýninguna og tók Ólafur K.
Magnússon ljósmyndari Mbl. þessa mynd af hópnum
á Austurvelli.
DAIHATSU-UMBOÐIÐ
ÁRMULA 23-SIMI 85870 0G 39179
Öll hótel eru full-
bókuð um helgina
Meðlimir hljómsveitarinnar Human
League gista í Valhöll á Þingvöllum
„VIÐ höfum fengið mikið af bókun-
um í sumar, fleiri en í fyrra en hins
vegar ber talsvert á því, aö „stopp-
over“ farþegar hafi afpantað. Þeir
vilja ekki eiga á hættu, að lokast
inni í landinu vegna verkfalla,“
sagöi Einar Olgeirsson, hótelstjóri á
Hótel Esju í samtali við Mbl.
„Júní-mánuður er þó mjög góð-
ur og öll hótel eru full um helgina
vegna norræns þings röntgen-
lækna. Þá eru júlí og ágúst góðir.
Hitt er svo, að verkföllin hafa
mjög skaðleg áhrif á ferðamanna-
straum til landsins. Málarinn
málar síðar þó verk falli niður
vegna vinnustöðvunar, en ferða-
maðurinn hættir alfarið við ferð
Fræst ofan af
Reykjanes-
braut í sumar
AUGLÝST hefur verið útboð
vegna fræsunar Reykjanesbraut-
ar, en það felst í því að tekið
verður um 2,5 cm. lag ofan af
akbrautinni. Reykjanesbraut er
orðin talsvert slitin og hefur vatn
safnast í hjólfór og valdið slysa-
hættu, og því hefur verið ákveðið
að lagfæra veginn, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Jóni Birgi Jónssyni, yfir-
verkfræðingi hjá Vegagerð ríkis-
ins.
Jón Birgir sagði verkið yrði
unnið í tveimur aföngum, í sumar
og næsta sumar. Fræst yrði ofan
af veginum með þar til gerðum
tækjum og yrði þá vegurinn með
sléttu og jöfnu yfirborði. Ekki
sagði Jón Birgir að loka þyrfti
veginum á meðan fræsunin færi
fram. Frestur til að skila inn til-
boðum rennur út í lok þessa mán-
aðar.
og skaðinn verður ekki bættur,“
sagði Einar.
„Fjöldi bókana er svipaður og í
fyrra, sem var gott ár og útlitið er
þokkalega gott. Helgin núna er
fullbókuð og þá vegna komu nor-
rænna röntgenlækna. Hins vegar
er farið að bera á afpöntunum
vegna boðaðra verkfalla, sem geta
haft ófyrirsjánlegar afleiðingar
fyrir afkomu hótelsins," sagði
Konráð Guðmundsson, hótelstjóri
á Hótel Sögu.
„Mikið hefur verið bókað hjá
okkur í sumar og er útlitið mjög
gott,“ sagði Ómar Hallsson, hótel-
stjóri á Hótel Valhöll á Þingvöll-
um í samtali við Mbl. Popp-
hljómsveitin Human League mun
gista á Valhöll en hún kemur
hingað til lands í vikunni. „Með-
limir Human League gista á Þing-
völlum vegna þess, að hótelið þar
gefur bestu hótelum í Reykjavík
ekkert eftir,“ sagði Þorsteinn
Viggósson, en hann hefur haft veg
og vanda af komu hljómsveitar-
innar fyrir Listahátíð.
Borgarsjóður:
Viðurkennd gæði, við-
urkennd þjónusta
og valið er auðvelt og
öruggt.
□AIHATSU
Charade
Garðyrkju-
þjónusta
Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐIÐ minnir les-
endur sína á, að garðyrkjuþjón-
usta blaðsins verður starfrækt
áfram um sinn. Getur fólk
hringt á ritstjórn blaðsins á
milli kl. 11 og 12 mánudaga til
föstudaga í síma 10100 og lagt
fram spurningar um garðyrkju.
Mun blaðið siðan koma
þeim áleiðis til Hafliða Jóns-
sonar, garðyrkjustjóra, og
verða svörin síðan birt hér á
síðum blaðsins í þeirri röð
sem þau berast.