Morgunblaðið - 08.06.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
5
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri
sem leikstýrir Silkitrommunni og Gilbert Levine hljómsveitarstjóri.
Silkitromman hlaut
frábærar viðtökur
Síðasta sýningin verður í kvöld
FAGNAÐARLÁTUM ætlaði seint
að linna í Þjóðleikhúsinu sl. laug-
ardagskvöld þegar lokið var frum-
sýningu á nýju íslenzku óperunni,
Silkitrommunni, eftir Atla Heimi
Sveinsson. Tónskáldið, leikstjóri,
hljómsveitarstjóri, söngvarar og
aðrir sem áttu hlut að uppfærsl-
unni voru kallaðir fram hvað eftir
annað og að lokum risu leikhús-
gestir úr sætum til að hylla lista-
fólkið.
Á Listahátíð eru aðeins áætl-
aðar þrjár sýningar á Silki-
trommunni. Önnur sýning var í
gærkvöldi, en í kvöld, þriðjudag,
eru síðustu forvöð að sjá óper-
una að þessu sinni.
Eftir frumsýningu var sam-
koma að tjaldabaki og voru með-
fylgjandi myndir teknar við það
tækifæri.
Guðmundur Jónsson fer með erfiðasta hlutverk óperunnar. Hér ræðir
hann við Gylfa Þ. Gíslason sem sæti á í Þjóðleikhúsráði.
Húsavík:
Samstarf Framsókn-
ar og sjálfstæðismanna
llúsavík, 5. júní, 1982.
HIN nýkjörna bæjarstjórn Húsavíkur
kom saman í gær til fyrsta fundar eftir
kosningar. Þar var því lýst yfir að
meirihlutaflokkar síðasta kjörtímabils,
ætluðu að halda áfram samvinnu,
framsóknarmenn og sjálfstæðismenn.
Forseti bæjarstjórnar var kosin
Katrín Eymundsdóttir, og varafor-
seti Sigurður Kr. Sigurðsson. Bjarni
Aðalgeirsson var endurkjörinn bæj-
arstjóri, og hlaut hann stuðning
allra flokka nema Alþýðubandalags,
sem sátu hjá.
Samkomulag náðist um nefnd-
arskipanir, milli minnihlutaflokk-
anna, svo aðeins var lagður fram
einn listi til nefndakjörs. Annars
hefði hlutkesti ráðið til kjörs í flest-
ar nefndir milli Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags.
— Fréttaritari.
Dr. Gunnar Thoroddsen og Ólafur
Jóhannesson á leiðtogafund NATO
DR. GUNNAR Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, og Ólafur Jóhannesson,
utanríkisráðherra, munu sækja leið-
togafund Atlantshafsbandalagsins i
Bonn i V-Þýzkalandi dagana 9. og 10.
júní. f (oruneyti dr. Gunnars verða
Gunnar Schram, prófessor, og Jón
Ormur Halldórsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra. í föruneyti utanrík-
isráðherra verða Henrik Sv. Björnsson,
sendiherra, Hannes Hafstein, skrif-
stofustjóri í utanríkisráðuneytinu, og
Pétur Eggerz, sendiherra.
Steingrímur Hermannsson, sjáv-
arútvegsráðherra, og frú Edda Guð-
mundsdóttir hafa þegið boð V.M.
Kamantzev, sjávarútvegsráðherra
Sovétríkjanna, um að koma í opin-
bera heimsókn til Sovétríkjanna
dagana 8.—15. júní. í för með ráð-
herra verða Jón L. Arnalds, ráðu-
neytisstjóri, og kona hans, Sigríður
Eyþórsdóttir.
Svavar Gestsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra, var í opinberri
heimsókn í Færeyjum í siðustu viku.
Tómas Árnason, viðskiptaráð-
herra, situr nú ráðherrafund EFTA,
Fríverzlunarbandalags Evrópu, í
Helsinki í Finnlandi. Fundurinn
hófst á miðvikudag og lýkur þann 12.
júní.
Hentu nú
sainla burstanum
og láttLi Philips
le^aþigaf!
Það eru ófáir klukkutímamir, sem eytt er í uppvask
á meðalheimili í viku hverri.
Þar að auki eru jafnt rauðsokkur sem húslegustu heimilisfeður
sammála um að uppvask sé með leiðinlegri
húsverkum til lengdar.
Uppþvottavélar eru svo sem engin nýjung, en fram til þessa
hafa þær af flestum verið taldar „lúxustæki”,
ef ekki hreinn og beinn óþarfi og bruðl.
Nýja Philips uppþvottavélin veldur þáttaskilum í þessu efni.
Hún er ekki bara tæknilega fullkomin, hljóðlát og vandvirk
heldur líka ódýr!
Verð frá 7.850.- krónum.
Hafðu samband, við erum sveigjanlegir í samningum. &
PHILIPS
fullkomin og ódýr
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655