Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
7
Plasteinangrun
ARMAPLAST
Glerull — Steinull
'Armúla 16 sími 38640
£3 Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Hótelherbergi
á bflpalli
Þessu ameríska Camperhúsi fylgja tjakkar þannig aö
hægt er að setja húsiö á eöa taka af á 10 mínútum.
Vigt 480 kg. í húsinu eru fjögur svefnpláss og fuli-
komiö eldhús meö eldavél, ísskáp, vask, vatnsdælu,
bekkir, borö, skápar, Ijós o.fl.
Húsin eru á afar hagstæöu veröi og eru fyrirliggj-
andi.
Gísli Jónsson & Co h.f.
Sundaborg, sími 86644.
Cetec Benmar
skipa- og báta sjálfstýringar
Bjóöum þessar frábæru amerísku sjálfstýringar fyrir
allar stæröir skipa og fiskibáta á mjög hagstæöu
veröi. Sjálfstýringarnar eru bæöi fyrir vökva- og
barkastýri.
Fjöldi Benmar sjálfstýringar þegar í notkun viö góöa
reynslu. Býöur möguleika á tengingu viö Loran C.
Gengi 1/6 1982.
Verð frá kr. 13.862.
Góðir
greiðsluskilmálar
Benco.
Bolholti 4, sími 91-21945
Tveir kjaramálaaérfrasAingar Alþýðubandalagsina — OuAmundur J. Guðmundsaon og
Þröatur Ólafaaon.
Losnar um flokksbönd
í Alþýöubandalaginu
Alþýöubandalagiö hefur auk takmarkaös flokksfylgis sótt
fylgi til ýmis konar óánægjuhópa í þjóöfélaginu, sem eiga
fátt sameiginlegt annaö en þjóðfélagslegt fúllyndi. Stjórn-
araöild Alþýöubandalagsins og meöferö ráöherra þess á
viðkomandi málaflokkum hefur ýtt ýmsum þessum laus-
beizluöu óánægjuhópum út úr flokksrammanum. Þetta á
m.a. við ýmsa sérsöfnuöi á vinstri kanti flokksins. Þar er
nú talað um „þingræðismakk" og „ráðherrasósíalisma" og
þess krafizt, að „hafna forræöi Alþýöubandalagsins" á
vinstri væng íslenzkra stjórnmála.
„Óhæfur for-
ystuflokkur“
í VerkalýðsbUðinu (5.
tbl. 11. árgangs), sem gefið
er út af Kommúnistasam-
tökunum, segir m.a. svo í
forsíðusfétt:
„Nú eru sveitarstjórn-
arkosningar afstaðnar, svo
sem aðlþjóð hefur ekki far-
ið varhluta af. Tölulega séð
þýddu þær talsverða fylgis-
aukningu íhaldsmanna en
fylgishrun A-flokkanna, sér
í lagi þó Alþýðubandalags-
ins.
Eftir kosningar er fróð-
legt að fylgjast með skýr-
ingum forystu AB á fylgis-
tapinu. Ölhi er kennt um
nema stefnu flokksins og
starfi á undanförnum árum
og fylgi fiokksins frá því
1978 er afskrifað á frekari
umsvifa. Þeir eigna sér
hlut í Kvennaframboðinu,
sér til sárabóta, þótt Ijóst
megi vera af fylgissveifhim
að það höfðaði einkum til
vinstri krata og fyrrum
fylgismanna Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna.
Sveitarstjórnarkosn-
ingarnar nu eru þrátt fyrir
mannalæti forystumanna
Alþýðubandalagsins og
Þjóðviljans enn ein vís-
bending til vinstri manna
um að Alþýðubandalagið
er óhæfur forystufiokkur í
hreyfingu islenskra sósíal-
Lsta.
Allir einlægir sósíalistar
og kommúnistar verða að
hafna forræði Alþýðu-
bandalagsins í hreyfingu
sinni. Verkefni okkar eru
Ijós: Að byggja upp rót-
fasta, lýðræðislega komm-
únistahreyfingu, sem hafn-
ar þingræðismakkinu og
ráðherrasósíalismanum og
fer leið fjöldastefnu að
markinu. I*ess væri
óskandi að úrslit nýafstað-
inna kosninga færðu
mönnum heim sanninn um
þessa nauðsyn."
„Kosningar
innan árs“
l'röstur Olafsson, sérleg-
ur kjarasérfræðingur fjár-
málaráðherra og Alþýðu-
bandalagsins, segir m.a. í
viðtali við Helgarpóstinn:
„Er ekki allt komið í bál
og brand? Verðbólgan
geysist áfram, launþega-
hreyfingin á í innbyrðis
borgarastyrjöld — ég sé
ekki að það sé úr háum
söðli að detta ...“
Eftir að hafa þannig tí-
undað ástandið eftir stjórn-
araöild Alþýðubandalags-
ins síðan 1978, segir Þröst-
ur ennfremur:
„Ég held að það verði
búið að boða til kosninga
innan árs, já. Ég er þó ekk-
ert að boða að við Alþýðu-
bandalagsmenn ætlum að
koma þeim af stað. Við er-
um alltaf reiðubúnir til
kosninga, tilbúnir í slaginn
— ef mönnum sýnist svo.
En hvað stjórnina varðar
held ég að hún muni ekki
sitja fram í desember 1983,
þegar hennar kjörtimabili
lýkur. Það er m.a. af hrein-
um hagkvæmnisástæðum
— þó ekki væri nema
vegna erfiðra samganga á
vetnim. Pólitíkin hér er
mikið á hverfanda hveli,
svo óskynsamlegt er að
kveða upp úr um lífdaga
ríkisstjórnarinnar.4*
Hér er að vísu kveöið úr
og í um ríkisstjórnina, en
engu að síður er Ijóst að
Alþýðubandalagiö býr sig
nú undir það að ganga til
þingkosninga fyrr en síðar.
„Glundroði
og öngþveiti
í efnahags-
lífinu“
l>að tala fieiri um inn-
byrðis borgarstyrjöld i
verkalýðshreyfingu en
kjaramálasérfræðingur Al-
þýöubandalagsins. l>órar-
inn TimariLstjóri segir m.a.
i forystugrein sl. fostudag:
„Stéttabarátlan er samt
ekki úr sögunni. Það er
komin til sögunnar ný
stéttabarátta, sem heik
brigðu efnahagslífi og
sænjilegum vinnufriði staf-
ar af engu minni hætta en
hinni gömlu stéttabaráttu,
sem var háð milli vinnu-
þega og vinnuveitenda.
Stéttabaráttan er nú háð
innan launþegasamtak-
anna milli hinna ýmsu
stéttahópa, sem telja sig
eiga þar samstöðu, en gera
það ekki í reynd. Hver hóp-
urinn reynir að ota sínum
tota eftir bestu getu og
komast upp fyrir aðra I
launastiganum. Takist ein-
um hópnum að brjótast
þannig áfram með verkföll-
um eða uppsögnum, reyna
svo allir hinir að fylgja á
eftir. þannig fer af stað al-
menn launahækkunar-
skriða, sem er jafnt óbæri-
leg atvinnuvegunum og
ríkinu.
Ef svo heldur áfram í
þessum efnum, eins og nú
horfir, er ekki annaö sjá-
anlegt en að þessi nýja
stéttabarátta eigi ekki að-
eins eftir að valda fullum
glundroða og öngþveiti í
efnahagslífinu, heldur
muni hún valda stórfelldri
kjaraskerðingu, sem
óneitanlega kemur til sögu,
ef atvinnuvegirnir stöðvast
meira og minna vegna
þess, að þeir eru ekki leng-
ur samkeppnishæfir við
erlenda keppinauta.
Um stund getur ef til vill
verið hægt að afstýra þessu
með sífelldu gengissigi eða
stórfelldum gengisfelling-
um á þriggja mánaða
fresti, en til lengri tíma
mun sú leið ekki reynast
fær."
Don Kíkoti
eftir Cervantes
II bindi
í íslenskri þýðingu
Guðbergs Bergssonar.
%
Don Kíkoti — hrakfallariddarinn
sjónumhryggi — einhver dýröleg-
asta persóna heimsbókmenntanna.
Annað bindi sögu hans komiö út hjá
AB í bókaflokknum Úrvalsrit heims-
bókmenntanna.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 18, sími 25544. Skemmuvegi 36, sími 73055.