Morgunblaðið - 08.06.1982, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
Landssamband iðnaðarmanna:
Hátíðarfund-
ur á hálfrar
aldar afmæli
Hátíðarfundur Landssam-
bands iðnaðarmanna í tilefni 50
ára afmælis sambandsins var
haldinn i Gamla Bíói síðastliðinn
laugardag. Meðal gesta voru for-
seti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, forsætisráðherra, Gunnar
Thoroddsen, og iðnaðarráðherra,
Hjörleifur Guttormsson.
Að lokinni fundarsetningu
flutti Sigurður Kristinsson há-
tíðarræðu, ávörp voru flutt og
kveðjur og Gísli Magnússon og
Gunnar Kvaran léku á píanó og
selló.
Meðfylgjandi mynd var tekin
á hátíðarfundinum á laugar-
dag.
(Ljósm. Kmilía.)
Ljóon. Eiríkur Eiríksson.
Ómar og Jón á nýjum Renault 5 ösla einn af mörgum pyttum rallsins.
Ljósm. Mbl.: Gunnlaugur Kögnvaldsson.
Einn fyrir alla og allir fyrir einn. Skipt um dekk á bíl Óskars Ólafssonar
og Arna Friðrikssonar, sem náðu þriðja sæti.
Borgarfjarðarrall:
Ómar og Jón Ragnars-
synir öruggir sigurvegarar
ÓMAR og Jón Ragnarssynir sigruðu
í Borgarfjarðarrallinu, sem fram fór
sl. laugardag. Óku þeir nýsmíðuðum
Renault 5 Alpine. I öðru sæti urðu
Birgir Bragason og Óskar Gunn-
laugsson á Skoda 130 RS eftir harða
keppni við þá Jón Hlöðversson og
Jóhannes Helgason á Escort 2000.
Þriðja sæti náðu Óskar Gunnlaugs-
son og Árni Óli Friðriksson á Escort
2000 og kom sá árangur skemmti-
lega á óvart, en þeir félagar eru til-
tölulega nýbyrjaðir að keppa í rall-
akstri.
Ómar og Jón Ragnarssynir náðu
strax forystu í rallinu á laugar-
dagsmorgunn, en þá var Ómar enn
að læra á nýja bílinn. Reyndist
fjöðrunin allt önnur en á gamla
bílnum og tók nokkurn tíma að
venjast henni. Það varð aldrei
virkileg keppni um fyrsta sætið, en
Birgir Bragason á Skoda 130 RS
átti í mikilli keppni við Jóhann
Hlöðversson á Escort 2000 um
annað sætið, eins og fyrr segir. Jó-
hann ók hinsvegar útaf á næst-
síðustu leiðinni og tapaði þar með
dýrmætum tíma.
Taldi Birgir Bragason í samtali
við Morgunblaðið að Jóhann hefði
náð honum á seinustu leiðinni, en
sú leið var hinsvegar felld úr, sök-
um þess að nokkrir öftustu keppn-
isbílarnir festust þar. Endaði Jó-
hann því að lokum í fimmta sæti,
en hann mun örugglega verða i
toppbaráttunni í sumar.
Bragi Guðmundsson og Salberg
Jóhannesson á Lancer 1600 nældu í
fjórða sætið, eftir skemmtilegan
akstur. Óku þeir þá með brotið
fjaðrablað undir lokin. í sjötta
sæti urðu Hafsteinn Hauksson og
Eiríkur Eiríksson á Escort 1600.
Rallinu lauk á laugardagskvöld
og luku 17 bílar af 21 keppni. Hafa
aldrei jafnmargir bílar komist í
mark í ralli hérlendis.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Ómar Ragnarsson að sjaldan hefði
hann ekið jafn vandræðalaust og í
þessu ralli. Bíllinn hefði verið góð-
ur og engar bilanir. Að vísu kvikn-
aði í mælaborði bílsins á ferjuleið,
en viðgerðarmenn hefðu verið
fljótir að kippa því í lag. Jafnframt
þótti Ómari ekkert tiltökumál að
hafa ekið rúma þrjá kílómetra á
sprungnu framdekki. Felgan gjör-
eyðilagðist og töpuðu þeir bræður
tæpri mínútu á þessu ævintýri. „Á
fyrstu leiðinni öskraði Jón bróðir
eitthvað gegnum talkerfið, en ég
hafði aldrei heyrt ámóta leiðbein-
ingar frá honum og og hváði því,“
sagði Ómar. „Jón hrópaði þá:
„Passaðu brettabólgurnar, bretta-
bólgurnar, þær eru meira að segja
nýjar." Var ég þá byrjaður að
kasta bílnum utan í börð eins og ég
gerði á gamla bílnum til að rétta
hann af,“ sagði Ómar að lokum
hlæjandi. Borgarfjarðarrallið bauð
upp á nokkuð skemmtilegar leiðir,
en nokkuð vantaði á að skipulag
væri fulikomið. Tafðist keppnin
því töluvert fram á kvöld.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja:
Sigurgeir Ólafsson
forseti bæjarstjórnar
KYRSTI fundur nýkjörinnar bæjar-
stjórnar í Vestmannaeyjum var hald-
inn í gærkveldi, en Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur hreinan meirihluta i bæj-
arstjórninni, 6 menn af 9.
Á fundinum var Sigurgeir
Ólafsson kosinn forseti bæjar-
stjórnar, en fyrsti varaforseti var
kosinn Georg Þór Kristdánsson. Þá
var samþykkt að ráða Ólaf Elísson
í sterf bæjarstjóra.
í bæjarráð voru kjörnir Sigurður
Jónsson og Arnar Sigmundsson af
hálfu sjálfstæðismanna, en Sveinn
Tómasson var kosinn af hálfu
minnihlutans.
Kosið var í ráð og nefndir bæjar-
ins á fundinum og urðu ýmsar
breytingar á nefndaskipan. Meðal
þeirra sem létu af störfum var Jón
I- Sigurðsson, en hann hætti sem
formaður hafnarstjórnar, en því
starfi hefur hann gegnt í 20 ár, átt
sæti í hafnarstjórn í tæp 30 ár og
verið starfsmaður hafnarinnar í
tæpa hálfa öld. Voru horium á
fundinum færðar þakkir fyrir far-
sæl störf um áratugaskeið í þágu
hafnarinnar.
ÞUMALINA
Rymingarsala
60% afsláttur
af fallegum
tækifærisfatnaöi
Sumartískufatnaður barna í miklu og Tjölbreyttu úrvali frá 0—7 á mjög hagstæöu veröi.
Sokkar, kjólar, blússur, pils, anorakkar, skyrtur, bolir, buxur og matrósaföt í klassísku
litunum og sumarlitum, aö ógleymdum aðmírálsjakkanum.
Sjón er sögu ríkari. ÞUMALÍNA Sími: 12136.