Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
Listahátíð í Reykjavík
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Listahátíð í Reykjavík 1982 er að
því leyti athyglisverð að með
tveimur undantekningum er ís-
lensk tónlist utan dagskrár. Að
vísu er frumflutningur nýrrar
óperu stór tíðindi og gleðileg og
ávallt spennandi að heyra tónverk
ungra tónskálda. Óperan Silki-
tromman, eftir Atla Heimi
Sveinsson, og Ad Astra, eftir
Þorstein Hauksson, eru einu verkin
sem raunverulega eru kynnt af
Listahátíð í Reykjavík 1982.
Á kápu efnisskrár er mynd eftir
Jón Reykdal, sem á að vera tákn-
ræn fyrir listahátíðina. I páfugls-
hári fjallkonunnar, lengst til
vinstri, er vorboðinn okkar, lóan,
sem sungið hefur í þúsund ár með
sínum lækjartæra tóni, til mann-
fólks í þessu kalda landi boð um
„betri tíð og blóm í haga“. Á mynd-
inni ríður henni saxafónleikari og
má til sanns vegar færa, að þar fari
manneskja ofan af Miðnesheiði
með boðskap nýs tíma og einkar
virðulegum hætti. Við hinn vanga
páfuglsfjallkonunnar er svo lista-
hátíðin. Álfkonan er þar komin
með fluguvængi og frá stalli Jónas-
ar Hallgrímssonar er veifað marg-
litum flugdrekum. Málarinn setur
sjálfan sig inn í þessa mynd og til
hægri er trúður og dreymandi eng-
ill, en yfir þessu öllu svo tildrað
með konsert upp á þak hljómskál-
ans. Þannig skopast Listahátíðin af
sjálfri sér, sér sjálfa sig sem
skrumskælda innfellda mynd í
landslagi, sem næstum því er að
verða óþekkjanlegt. Innihald efn-
isskrár skiptist í frásagnir af því
sem til skipta kemur og er þar fyrst
að nefna átta listsýningar.
Á bls. 14 eru svo dagskrárþættir
hátíðarinnar. Á bls. 44 og þar eftir
eru svo viðbótaratriði eins og t.d.
Vorvaka á Akureyri, tónleikar á
Kjarvalsstöðum, barnadagskrá,
sirkusskóli og föndurvinnustofa
fyrir börn. Þegar rýnt er í bls. 45,
kemúr í ljós að þarna er boðið upp
á íslenska tónlist, stutta tónleika
sem fara eiga fram í Kjarvalssal,
skipulagðir af stjórn hússins og
sem nokkurs konar „viðbótarhapp-
ening“ fyrir gesti á myndlistarsýn-
ingunum. Þessum tónleikum er svo
skemmtilega skáskotiö á listahátíð-
i ardagana, að gagnrýnendur, sem
auðvitað fengu alla miða og efn-
isskrá næstum jafn snemma og há-
tíðin hófst, misstu af fyrstu tón-
leikunum, er Snorri Sigfús Birgis-
son var látinn þjófstarta hátíðinni
með flutningi píanóverka sinna.
f hverjum veislufagnaði var það
til siðs að leggja sérstaklega á borð
fyrir sveitarómaga og förulýð og
talið gæfumerki þeim er veitti
aumingjum vel, þá er fyrirfólki var
boðið til fagnaðar, og voru þiggj-
endur ósparir á þakklætisræður,
kveðjukossa og frásagnir af örlæti
og góðmennsku gestgjafa sinna.
Hvort sem þessi ræða á hér við
eða ekki er það samt til íhugunar
hversu mjög íslensk tónlist skipar
óvirðulegan sess í því tilstandi er
heitir Listahátíð í Reykjavík, að
vísu með einni undantekningu, sem
þegar öllu bramboltinu lýkur, mun
að líkindum verða það eina sem
vert er að muna sérstaklega eftir
og er hér átt við Silkitrommuna
eftir Atla Heimi Sveinsson. Á öðr-
um „ómagatónleikum" Listahátíðar
í Reykjavík 1982 voru flutt verk
eftir Pál P. Pálsson og voru flytj-
endur Rut Magnússon og Kamm-
ersveit Reykjavíkur. Flutt voru tvö
verk eftir Pál, það fyrra Lantao
fyrir óbó, hörpu og slagverk, er Páll
samdi í Kína, þá hann var þar á
hljómleikaferð með Karlakór
Reykjavíkur. Flytjendur voru Mon-
ika Abendroth, Kristján Stephen-
sen og Reynir Sigurðsson sem
fluttu verkið mjög fallega, þó sér-
staklega megi nefna Ieik Kristjáns.
Hann er sá hljóðfæraleikari ís-
lenskur sem ávallt hefur glatt
hlustendur með góðum og á stund-
um frábærum leik sínum. Seinna
verkið, Morgen, var flutt af Rut
Magnússon og Kammersveitinni
undir stjórn höfundar. Þrátt fyrir
ýmiss konar ónæði og að tónleik-
arnir yrðu fyrir vikið eins truflandi
fyrir þá gesti er komu að sjá
myndlistarsýninguna, og þá er sér-
staklega áttu erindi við tónlistina,
var flutningurinn áhrifamikill og
rétt að það komi fram, að gerð sé
gangskör að því að þessi verk verði
flutt á sérstökum og eiginlegum
tónleikum. Tónverkin, flytjendur
og hlustendur eiga betra skilið en
að þurfa að þiggja pláss á gangvegi
þeirra er ekki vilja staldra við eða
hlusta á tóniist af þessu taginu.
Braga Ásgeirssyni listmálara afhent Bjartsýnisverftlaun Bröstes. Vift hlift hans stendur Kolbrún kona hans.
Bragi Ásgeirsson veitir Bjartsýn-
isverðlaunum Bröstes móttöku
BRAGI Ásgeirsson listmálari tók við
Bjartsýnisverðlaunum Bröstes 2. júní
síðastliðinn í Kaupmannahöfn. Bjart-
sýnisverðlaun Bröstes eru að upphæð
25 þúsund danskar krónur og eru veitt
islenskum listamanni einu sinni á ári
fyrir að túlka bjartsýni í verkum sín-
um.
Margir merkir menn héldu ræðu
við verðlaunaafhendinguna. Var þar
fyrstur K.B. Andersen, utanríkis-
ráðherra Danmerkur. Þá tók Peter
Bröste til máls og bauð hina mörgu
gesti velkomna, á meðal þeirra
sendiherra íslands í Danmörku, Ein-
ar Ágústsson. Síðan las hann heilla-
óskaskeyti frá forseta Islands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur.
Þá talaði Erik Sönderholm lektor,
fyrrverandi forstjóri Norræna húss-
ins í Reykjavík, og loks Bragi Ás-
geirsson og þakkaði fyrir verðlaunin.
Bragi Ásgeirsson listmálari og K.B. Andersen, utanríkisráðherra Dana.
League
á íslandi 11. og 12. júní nk.
Forsala aðgöngumiða á tónleikana í Laugardalshöll er í
Gimli við Lækjargötu, kl. 14—19.30, daglega.
Huraan
Með
HUMAN LEAGUE
koma fram hinir
landsþekktu
EGÓ
Tryggið ykkur miða tímanlega.
Listahátíð í Reykjavík