Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
LAWN-BOY
QARDSLÁTTUVÉLIN
Þaö er leikur einn að
slá meö LAWN-BOY
garösláttuvélinni,
enda hefur allt verið
gert til aö auövelda
þér verkið.
Rafeindakveikja. sem
tryggir örugga gang-
setningu.
Grassafnari, svo ekki
þarf að^raka.
3,5 hö, sjálfsmurð tvi-
gengisvél, tryggir lág-
marks viðhald.
Hljóðlát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp að veggjum.
Auðveld hæðarstilling.
Ryðfri.
Fyrirferðalitil, létt og
meðfærileg.
VELDU GARÐSLÁTTUVÉL, SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
Leiðtogafundurinn í Versölum:
Ákveðið að sýna varkárni
í viðskiptum við Sovétríkin
Versölum, 7. júní. AP.
LEIÐTOGAR helztu iðnaðarríkja hins vestræna heims urðu
sammála um það á fundi sínum í Versölum að sýna meiri
varkárni í viðskiptum sínum við Sovétríkin og semja um
lánsviðskipti af mikilli varúð. Ákveðið var að endurskoöa
viðskipti við Sovétríkin og leppríki þeirra á nokkurra mánaöa
fresti.
Fulltrúar Bandaríkjanna á
fundinum sögðu þetta hafa í för
með sér að dregið yrði úr láns-
viðskiptum við Sovétríkin, en fyrir
fundinn lögðu Bandraíkjamenn á
það áherzlu að taka þyrfti á þessu
máli af alvöru á fundinum þrátt
fyrir að það væri ekki á formlegri
dagskrá fundarins. Var um tíma
búist við hávaðasömum fundi af
þessum sökum, þar sem talið var
að Bandaríkjamenn vildu minnk-
un viðskipta við Sovétríkin af póli-
tískum ástæðum, en ekki við-
skiptalegum.
Héldu Bandaríkjamenn því
fram að lánsviðskipti við Sovét-
ríkin auðvelduðu Sovétmönnum
hernaðaruppbyggingu sína. Hel-
mut Schmidt kanzlari V-Þýzka-
lands sagði á blaðamannafundi
eftir Versalafundinn, að það væru
Bandaríkin — ekki V-Þýzkaland
eða Frakkland — sem aukið hefðu
viðskipti sín við Sovétríkin fjögur
síðastliðin ár. í lokaályktun leið-
toganna er ekkert sem skyldar
iðnríkin til að draga úr viðskipt-
um sínum við Sovétríkin.
Klaus Bölling, talsmaður
stjórnarinnar í Bonn, sagði
Bandaríkjamenn leggja annan
skilning í ákvæðin um viðskipti
við Austantjaldsríkin en evrópskir
leiðtogar gerðu, en hins vegar vildi
hann ekki útfæra þá fullyrðingu
nánar. Embættismaður sagði
Reagan Bandaríkjaforseta og
Mitterrand Frakklandsforseta
hafa hnakkrifist um þessi mál yfir
kvöldverði á Iaugardagskvöld og
hefðu óskynsamleg og ódiplómat-
ísk orð fallið.
Á Versalafundinum hétu leið-
togarnir áframhaldandi aðstoð við
þróunarlöndin, að stuðla að því að
ekki yrði hægt að misnota geng-
isbreytingar , að tryggja að geng-
isbreytingar yrðu ekki til að skapa
óréttláta samkeppnisaðstöðu, og
að vinna saman að þróun nýrra
orkugjafa. Jafnframt voru vaxta-
mál til umræðu, og sagði Pierre
Trudeau forsætisrðherra Kanada,
að leiðtogafundurinn hefði verið
„erfiður", því örðugt hefði reynst
að komast að málamiðlun í ýms-
um atriðum.
Enn leita Svíar að
óþekktum kafbát
Stokkhólmi, 7. júní. AP.
DEILDIR INNAN sænska hersins héldu um helgina áfram leit sinni, að
óþekktum kafbáti innan landhelgi Svíþjóðar. Um leið var leit að öðrum
kafbáti innan skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm hætt.
Leitardeildir voru sendar á stað Að sögn sænska varnarmála-
um leið og fregnir bárust af því að ráðuneytisins kann það engar
sést hefði til kafbáts rétt fyrir
utan Umea, sem er norðarlega á
strönd landsins. Bárust margar
upphringingar þess efnis, að fólk
hefði séð til kafbáts um þessar
slóðir.
skýringar á þessum kafbátaferð-
um við strönd landsins og hefur
upplýst að engar æfingar á vegum
sænska sjóhersins standi yfir. Því
séu þessar ferðir freklegt brot á
sjóferðalögum.
Flokkur Schmidts
tapar í Hamborg
Hamborg, 7. júní. AP.
Jafnaðarmannaflokkur
Helmuts Schmidt kanzlara
(SPD) beið ósigur í fylkis-
kosningum í heimabæ kanzl-
Reagan þakkar lögreglu-
mönnum björgun Doziers
Kómaborg, 7. júní. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, átti óvæntan fund með víkingasveitum
ítölsku lögreglunnar sem björguðu James Dozier, hershöfðingja, úr klóm
mannræningja í janúar og þakkaði forsetinn þeim persónulega frammistöðu
þeirra. „Með vinnubrögðum eins og ykkar, mun okkur takast að útrýma
hryðjuverkum," sagði Keagan.
Reagan kom í dag í opinbera
heimsókn til Ítalíu, og virtist hann
þreytulegur þegar hann kom til
Vatikansins til fundar við Jóhann-
es Pál páfa. Stóð fundur þeirra yf-
ir í 50 mínútur, og að honum lokn-
um var efnt til blaðamannafund-
ar, þar sem páfi lagði áherzlu á þá
ábyrgð sem Bandaríkin, sem stór-
veldi, hefðu í sambandi við varð-
veizlu friðar á jörðunni. Sagði páfi
heimsfrið undir því komin, að leið-
togar stórveldanna sýndu ávallt
framsýni og hyggni. í ávarpi réð-
ist Reagan að herstjórninni í Pól-
landi.
Einnig átti Reagan viðræður við
ítalska ráðamenn, Sandro Pertini
forseta og Giovanni Spadolini for-
sætisráðherra, en síðdegis hélt
hann til Lundúna í opinbera heim-
sókn. Reagan er áttundi Banda-
ríkjaforsetinn sem kemur til Vati-
kansins.
arans, Hamborg, og hefur út-
koma flokksins ekki verið
jafn slök frá því 1957.
Hlutu jafnaðarmenn 42,9 pró-
sent atkvæða miðað við 51,5
prósent 978, en Kristilegir
demókratar(CDU) unnu hins
vegar stórsigur, og samtals 43,2
prósent atkvæða. Hefur flokkn-
um aldrei vegnað jafn vel í
Hamborg. í kosningunum 1978
hlaut CDU 37,6 prósent at-
kvæða.
„Tap Helmut Schmidt er
stórt og ósigur hans mikill,"
sagði Helmut Kohl, leiðtogi
CDU og helzti andstæðingur
kanzlarans á þingi, þegar úrslit
voru ljós.
Jafnframt beið Frjálslyndi
flokkurinn mikinn hnekki, náði
ekki þeim atkvæðafjölda sem
tilskilinn er til að hljóta sæti á
þingi, eða 5%. Flokkur um-
hverfissinna, hlaut í fyrsta sinn
sæti á fylkisþinginu, hlaut 7,6%
atkvæða í kosningunum.
Eftirmaður Brezhnevs mun
ekki fá eins mikil völd
Washinglon, 7. júní. AP.
EFTIRMAÐUR Leonid Brezhnev kemur ekki til með að
hafa eins mikil völd og hann, að því er sovéski flóttamað-
urinn Arkadi N. Shevchenko, sem nú er búsettur í Banda-
ríkjunum, segir. Shevchenko er hæst settur þeirra, sem
flúið hafa frá Sovétríkjunum. Kom þetta fram í viðtali við
Washington Post um helgina. Er þetta fyrsta ítarlega við-
talið við hann frá því hann bað um hæli sem pólitískur
flóttamaður í Bandaríkjunum. Starfaði hann sem vara-
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
„í Sovétríkjunum gerist allt étríkjunum fara sér að engu
ákaflega hægt,“ segir Shevch-
enko í viðtalinu. Benti hann á þá
staðreynd, að Brezhnev, Krúséff
og Stalín hefðu allir þurft 4—5
ár til að ná fullum völdum eftir
útnefningu sem aðalritarar
kommúnistaflokksins. Brezhnev,
sem nú er 75 ára gamall, á við
hrakandi heilsufar að stríða.
Núverandi valdamenn í Sov-
óðslega og taka ekki neina
áhættu á valdsviðinu. Hætta
ekki á að tapa þeim völdum, sem
þeir hafa sjálfir. Þar af leiðandi
er víst að vandað verður til vals-
ins á eftirmanni Brezhnevs.
„Þessir menn eru pólitískir
dvergar," sagði Shevchenko.
Sagði hann ennfremur að öruggt
væri, að hver svo sem tæki við
völdum, myndi leggja sig í líma
við að bæta sambúðina á milli
austurs og vesturs, en myndi
jafnframt hvika eins lítið og
auðið væri frá utanrikisstefnu
Sovétríkjanna í þeim tilraunum
sínum.
„Þetta er nauðsynlegt af
tveimur orsökum. Sovétríkin
þurfa nú nauðsynlega á hjálp
Bandaríkjanna að halda, t.d.
hvað varðar tækniupplýsingar
og kaup á korni. Þá er þetta
heldur ekki rétta augnablikið til
að veikja sambandið við Banda-
ríkin enn frekar því Sovétmenn
eiga í nógum vandræðum fyrir."
Shevchenko tók undir þær
spár fréttaskýrenda, að Yuri
Andropov væri líklegasti arftaki
Brezhnevs. Þá væru þeir Konst-
antin Chernenko og Ándrei Kir-
elenko einnig inni í myndinni.