Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
19
Þannig er umhorfs í írönsku hafnarborginni Khorramshahr eftir uppgjöf íraska herliðsins þar. Á myndinni sjást einnig leifar
víggirðinga íraka.
Stjórnarbylting í Chad
Vilja fækka
þeldökkum
hermönnum
New York, 7. júní. Al\
SUM ríki Atlantshafsbanda-
lagsins hafa lagt hart að
Bandaríkjastjórn að fækka
blökkumönnum í bandaríska
hernum, og að takmarka
fjölda þeldökkra manna, sem
sendir eru til bandarískra
herstöðva í Evrópu, að sögn
New York Times.
Háttsettur embættismaður í
Pentagon lét svo um mælt á lok-
uðum fundi í Wisconsin, að
stjórn Ronald Reagans hefði vís-
að þessum kröfum á bug, að sögn
blaðsins.
Embættismaðurinn sagði eink-
um V-Þjóðverja hafa barist fyrir
hlutfallslegri fækkun blakkra í
Bandaríkjaher. Teldu Þjóðverjar
ýmsa örðugleika því fylgjandi að
taka á móti stórum hópi blakkra
inn á meðal hvítra manna með
ólíka menningu. Jafnframt væru
ýmsir af yfirmönnum Atlants-
hafsbandalagsins efins um hæfni
bandalagsherjanna, ef stuðst
yrði um of við blakka hermenn.
París, 7. júní. AP.
BYLTINGARSINNAR marséruðu
inn í höfuðborg Afríkuríkisins Chad
í dag, eftir fall stjórarinnar, sem set-
ið hefur að völdum undanfarin 3 ár.
Hvorki hinir 3800 friðargæsluher-
menn Samtaka Afríkuríkja né þeir
Líbýumenn, sem studdu stjórnina,
Pcshawar, Pakistan, 7. júní. AP.
HUNDRUÐ vel vopnaðra skæruliða
eru nú á leið inn í Afganistan til þess
að aðstoða félaga sína við að reyna að
halda l’anjshir-dalnum, sem til þessa
hefur verið helsta bækistöð skæruliða í
landinu.
„Við eigum von á árás Sovét-
manna á hverri stundu," sagði helsti
forvígismaður skæruliðanna í Paki-
stan. Hann upplýsti einnig, að næðu
Sovétmenn yfirhöndinni í dalnum
gæti það markað þáttaskil í tveggja
og hálfs árs gömlu stríði á milli
þessara aðila í landinu. „Ef við töp-
um dalnum höfum við misst tökin á
varnarkerfi okkar,“ sagði hann
ennfremur.
Daglegar skærur hafa átt sér stað
á milli deiluaðila í dalsmynninu óg
hafa óljósar fregnir borist af sigri
skæruliðanna í síðustu orrustunni.
Dalurinn er því enn á þeirra valdi.
Litlar fregnir hafa borist af mann-
Manntjón
í óveðri
Ncw York og l-ondon, 7. júní. AP.
FELLIBYLUR, sem gekk yfir norð-
austurhluta Bandaríkjanna olli, gíf-
urlegu tjóni þar um helgina. Létu
a.m.k. 18 manns lifið er allt að
þriggja og hálfs metra háar (lóð-
bylgjur skullu á mannvirkjum og
ruddu niður öllu er á vegi þeirra
varð.
Verst varð ástandið í Ivorytown
í Connecticut. Þar varð úrkoman
svo mikil, að tvær stíflur brustu
og flóðbylgjan, sem fylgdi í kjöl-
farið, ruddi niður fjórum húsum
og hreif með sér fjölda bifreiða.
Alls létust 9 manns i Connecticut.
Talið er víst, að tjónið nemi millj-
ónum Bandaríkjadala.
í Englandi létust 9 manns í
miklu þrumuveðri og rigningum
sem þar gengu yfir. Sex manns
drukknuðu og þrír létust er þeir
urðu fyrir eldingum. Mjög heitt
var í Englandi um helgina þar sem
hitabylgja gekk yfir landið.
gerðu nokkra tilraun til að stöðva
fall stjórnarinnar.
Talið er að byltingarsinnarnir
undir stjórn Hissine Habre, sem
eitt sinn gegndi starfi varnar-
málaráðherra landsins, hafi náð
falli, en skæruliðarnir eiga við mikið
ofurefli að etja. Eru aðeins um 4.000
talsins gegn 40.000 hermönnum Sov-
étmanna að því er talið er.
Forvígismaður skæruliðanna,
Burhanudein Rabani, gaf frétta-
mönnum greinargóða lýsingu á því
ástandi, sem ríkt hefur í Panjshir-
dalnum undanfarið. Sagði hann
stjórnarherinn hafa sótt að skæru-
liðum úr öllum áttum, en það hefði
bjargað þeim hversu kunnugir þeir
eru í dalnum. „Þeir hreyfa sig ekkert
á nóttunni. Nóttin er okkar tími. Þá
getum við ferðast um að vild óáreitt-
ir,“ sagði Rabani.
höfuðborginni á sitt vald, en heim-
ildir frá París herma að ekki hafi
fengist sönnur fyrir því ennþá.
„Við höfum ekki neinar ná-
kvæmar upplýsingar ennþá", sagði
fulltrúi Habre í París. „Bylting-
unni er þó lokið og nú er aðeins
eftir að koma öllu í samt lag á ný.
Fólkið hefur flykkst út á göturnar
til þess að láta stuðning sinn í
ljósi við okkur".
Að sögn heimildarmannsins
hefur verið sett bráðabirgðastjórn
í landinu og verður reynt að kom-
ast að samkomulagi við forseta
landsins, Goukoni Oueddei. Borg-
arastyrjöld hefur ríkt í Chad
meira og minna sl. 18 ár. Hefur
aldrei tekist að ná sættum á milli
deiluaðila í landinu þrátt fyrir
margar tilraunir.
Talsmaður sendiráðs Chad í
París sagði, að ekki hefði tekist að
ná sambandi við höfuðborgina í
meira en sólarhring, en þær fregn-
ir sem borist hefðu bentu allar til
þess að stjórnin hefði fallið.
Fjölmenni
á friðarfundi
London, 7. júní. AP.
RIIMLEGA eitthundrað þúsund and-
stæðingar kjarnorkuvopna komu sam-
an til fundar í Hyde l’ark garðinum í
London, á sunnudag, daginn fyrir
opinbera heimsókn Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta til Bretlands.
A fundinum í Hyde Park voru
bæði Reagan og Margaret Thatcher
forsætisráðherra Bretlands úthróp-
uð sem „stríðsæsingamenn". Forseti
borgarráðs Lundúnaborgar, sem er
vinstri maður, lýsti yfir því á fund-
inum að ákveðið hefði verið að gera
London að kjarnorkuvopnalausu
svæði.
Hins vegar sagði hann að borgar-
ráð hefði ekkert vald til að fram-
fylgja þessari ákvörðun. Talið er að
engin kjarnorkuvopn séu innan
borgarmarkanna, en fyrirhugað er
að koma nýjum kjarnorkuflaugum
Atlantshafsbandalagsins fyrir á
Greenham Common, sem er 100 km
vestur af London.
Tæki, sem skilar
fullunninni skreið
Osló, 7. júní, frá Jan Krik Laurc, frcttaritara Mbl.
NORBKT fyrirtæki vinnur nú að gerð tækis, sem skilar frá sér fullunninni
skreið. Fer öll verkunin fram í sjálfvirkri vél, sem staðsett er innanhúss.
Fram til þessa hefur skreiðin Meiri gæði og betri nýting eru
verið þurrkuð í hjöllum utandyra. einkunnarorð fyrirtækisins, sem
vinnur að gerð tækisins. Hefur eitt
Sú áhætta hefur fylgt þeirri slíkt þegar verið sett upp til
vinnslu, að slæmt veður getur eyði- reynslu í sænska smábænum
legt verkunina með öllu. Strömstad.
Skipholti 7 símar 20080 — 26800
Skæruliðar í Panjshir-dalnum í Pakistan fá liðsauka:
Berjast til síðasta manns
en eiga við ofurefli að etja