Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
29
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 120 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 8 kr. eintakiö.
Flugstöð í ljósi
Helguvíkur- og
álstefnu
Alþýðubandalagið galt mikið afhroð í Reykjaneskjör-
dæmi í bæjar- og sveitarstjórnakosningunum. Það
tapaði samtals 5 fulltrúum og datt út úr bæjarstjórn í
Grindavík og Njarðvík. Alþýðubandalagið tapaði 4% í
Kópavogi, rúmlega 6% í Garðabæ, 2,4% í Hafnarfirði,
rúmlega 5% í Keflavík, 4% í Njarðvík og hátt í 60% í
Grindavík. Hvað veldur þessu mikla tapi? Hvers vegna
benda úrslitin í Reykjaneskjördæmi til þess, að Geir Gunn-
arsson, þingmaður Alþýðubandalagsins þar, nái ekki kjöri
í næstu þingkosningum?
Tvö af helstu baráttumálum Alþýðubandalagsins snerta
Reykjaneskjördæmi mjög mikið. Annars vegar hefur
flokkurinn gert áform um nýja olíustöð varnarliðsins í
Helguvík að stórmáli og hins vegar hefur hann beint at-
hyglinni að álverinu í Straumsvík og eigendum þess, Alu-
suisse. Ef þessi tvö stefnumál flokksins nytu almennra
vinsælda, hefði það helst átt að koma fram í Reykjanes-
kjördæmi — þar hrynur hins vegar fylgið af Alþýðubanda-
laginu. Þriðja málið mætti einnig nefna í þessu samhengi,
en það eru áform um smíði nýrrar flugstöðvar fyrir
farþegaflug á Keflavíkurflugvelli. Þar stendur Alþýðu-
bandalagið þvert fyrir innan ríkisstjórnarinnar og hafa
framsóknarmenn og aðrir ráðherrar beygt sig undir neit-
unarvald kommúnista um flugstöðina.
Helguvíkur- og álstefnu Alþýðubandalagsins var ótví-
rætt hafnað af kjósendum í bæjar- og sveitarstjórnakosn-
ingunum. Öll rök mæla með því, að smíði nýrrar flugstöðv-
ar á Keflavíkurflugvelli sé íslendingum meira kappsmál en
að ný olíustöð rísi fyrir varnarliðið í Helguvík. Staðan í
flugstöðvarmálinu er nú þannig, að 20 milljóna dollara
fjárveiting bandaríska þingsins til byggingarinnar fellur
niður 1. október næstkomandi, verði ekki stigin fyrstu
framkvæmdaskref fyrir þann tíma.
Framsóknarmenn í ríkisstjórninni hafa látið kommún-
ista kúga sig með mörgum hætti, meðal annars í flugstöðv-
armálinu. Kjósendur fá tækifæri til að fella dóm um fram-
göngu ríkisstjórnarinnar í því máli í næstu þingkosning-
um. Framsóknarflokkurinn bætti stöðu sína aðeins í
Reykjaneskjördæmi í bæjar- og sveitarstjórnakosningun-
um, en ætli Jóhann Einvarðsson, þingmaður Framsóknar
þar, verði ekki í sömu fallhættu og Geir Gunnarsson, ef svo
fer fram sem horfir í flugstöðvarmálinu, en að því „vinnur"
ríkisstjórnarnefnd undir formennsku Jóhanns Einvarðs-
sonar.
Innrás í Líbanon
Israelsher réðst inn í Líbanon um helgina til að hrekja
PLO-hermenn um 40 km norðar en þeir eru nú, svo að
þeir geti ekki skotið eTdflaugum suður yfir landamæri ísra-
els. Þegar þetta er ritað, er ísraelsher kominn norðar en
1978, þegar hann réðst síðast inn í Líbanon. Hermenn PLO
eru á milli herja ísraels og Sýrlands. Rétti Sýrlendingar
eða aðrir Arabar PLO ekki hjálparhönd, verður liðsafla
þeirra í Líbanon si.ndrað. Á milli PLO og ísraelshers eru
friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna, sem geta ekkert
aðhafst, þegar átökin verða jafn harkaleg og nú. Hins
vegar munu ísrael smenn vafalaust krefjast þess, að gæslu-
svæði SÞ verði fært norðar, annars er innrás þeirra til-
gangslaus, nema þeir ætli sjálfir að leggja undir sig suður-
hluta Líbanon.
Svæðin fyrir botni Miðjarðarhafs og fyrir botni Persa-
flóa hafa bæði verið nefnd púðurtunnur, þegar rætt er um
heimsfriðinn og þær hættur, sem að honum steðja. Nú er
barist á báðum þessum stöðum og á öðrum eru friðar-
gæslu-hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna aðeins
áhorfendur. Er það ekki dæmigert?
Fjölmenni tók þátt í hátíðahöldum sjó-
mannadagsins í einstakri veðurblíðu
4—5000 manns
við hátíðahöld
sjómannadagsins
í Nauthólsvík
„ÞÁTTTAKA almennings var mjög
góð og hátíðahöldin í Nauthólsvík fóru
vel fram. Ég giska á að 4—5 þús.
manns hafi verið þar enda vorum við
sérlega heppin með veður,“ sagði
Garðar Þorsteinsson ritari Sjómanna-
dagsráðs.
Avörp fluttu Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsmálaráð-
herra, Haraldur Sturlaugsson fram-
kvæmdastjóri fyrir hönd útgerð-
armanna, og Guðjón Ármann Eyj-
ólfsson skólastjóri Sjómannaskól-
ans fyrir hönd sjómanna. Pétur Sig-
urðsson formaður Sjómannadags-
ráðs heiðraði aldraða sjómenn með
heiðursmerki sjómannadagsins.
Þeir sem voru heiðraðir að þessu
sinni fyrir langan sjómannsferil og
mikið starf í þágu sjómanna voru
Einar Bjarnason loftskeytamaður,
Sigurlaugur Sigurðsson vélstjóri,
Jónas Böðvarsson skipstjóri og
Stefanía Jakobsdóttir skipsþerna,
en Stefanía hefur verið yfir 7000
daga á sjó á 25 ára tímabili.
I róðri landsveita sigraði Sendi-
bílastöðin hf., en áhöfnin á Ásbirni
RE 50 í hópi skipshafna og hlaut því
Fiskimann Morgunblaðsins, sem
Morgunblaðið gaf sem farandgrip
1929.
í róðri kvenna vann sveit ísbjarn-
arins, en sveit BÚR, sem hefur sigr-
að undanfarin 3 ár, varð í öðru sæti.
í stakkasundi kepptu 6 menn, þar á
meðal 3 bræður, og skipuðu þeir sér
í þrjú efstu sætin. Jón Sigurðsson
sigraði, en Einar og Pétur Sigurðs-
synir urðu í öðru og þriðja sæti.
Einnig var keppt i koddaslag og
tveim flokkum í siglingu seglbáta,
Fireball-flokki þar sem tveir menn
eru á, og opnum flokki með forgjöf,
þar sem einn maður er á, en þetta
atriði var á vegum Siglinga-
sambandsins og siglingaklúbbanna í
Reykjavík og nágrenni.
Þorlákshöfn:
Gott veður
Gott veður setti svip sinn á há-
tíðahöld sjómannadagsins í Þor-
lákshöfn. Þau voru annars með
hefðbundnum hætti. Fjöldi fólks
tók þátt í hátíðahöldunum og átti
veðrið þar eflaust stóran hlut að
máli.
Ólafsvík:
Tveir starfandi
sjómenn
heiðraðir
Sjómannadagshátíðahöldin á
Olafsvík fóru fram með hefðbundnum
hætti, að sögn tíðindamanns Morgun-
blaðsins þar, Helga Kristjánssonar.
Ýmislegt var til skemmtunar,
ræður fluttar, guðsþjónusta þar
sem minnst var látinna sjómanna
og aldraðir sjómenn heiðraðir, svo
helstu dagskráratriðin við hátíða-
höldin séu nefnd.
Aðalræðu dagsins flutti Eiður
Guðnason alþingismaður. Tveir
aldraðir sjómenn voru heiðraðir,
Guðlaugur Guðmundsson og
Tryggvi Jónsson, sem báðir starfa
að sjómennsku, annar tæplega og
hinn rúmlega sjötugur. Til marks
um það, að þeir hafi ekki lagt sjó-
mennskuna alveg á hilluna, má geta
þess, að Guðlaugur Guðmundsson
gat ekki verið viðstaddur heiðrun-
ina í eigin persónu, vegna þess að
hann var ásamt sonum sínum að
taka á móti nýjum bát á ísafirði,
sem skipasmíðastöð Marcellíusar
Bernharðssonar var að skila honum.
Logn var og hiti við hátíðahöldin,
þó ekki sæi til sólar, og þátttaka
almennings mikil. Hátíðahöldunum
lauk með dansleik um kvöldið.
Dalvík:
Logn og blíða
Dalvík, 7. júní.
SJÓMANNADAGURINN á Dalvík
var haldinn hátíðlegur í hinu besta
veðri, logni og blíðu með 18—20 stiga
hita. Á laugardaginn var farið í hóp-
siglingu og um kvöldið var dansleikur
í Víkurröst, sem fór hið besta fram.
Fánar blöktu víðast hvar við hún á
sunnudagsmorgun og skip sem í höfn-
inni lágu voru fánum skrýdd.
Klukkan 10 fyrir hádegi hófst sjó-
mannamessa í Dalvíkurkirkju þar
sem séra Stefán Snævarr messaði.
Að því loknu var öldruð sjómanns-
kona, Sigríður Sölvadóttir, heiðruð
og veitt heiðursmerki sjómanna-
dagsins. Sigríður, sem er 75 ára að
aldri, er gift Stefáni Gunnlaugssyni,
fyrrum formanni hér á Dalvík. Það
var einkennileg tilviljun, að einmitt
þennan sama dag, 6. júní fyrir 36
árum, flutti Sigríður Sölvadóttir frá
Siglufirði til Dalvíkur, þar sem hún
hefur verið búsett síðan. Athöfn
þessi fór fram í kirkjunni.
Því næst var gengið úr kirkju að
minnisvarða um drukknaða sjó-
menn, og var blómsveigur lagður að
minnisvarðanum. Klukkan 14 hóf-
ust við höfnina hin hefðbundnu há-
tíðarhöld. Ávarp dagsins flutti Guð-
laugur Arason, rithöfundur. Síðan
fór fram kappróður og tóku 18 sveit-
ir þátt í honum. Sveit ms. Oturs
sigraði eins og svo oft áður, en í
reiptogi sigraði karlasveit Frysti-
húss KEA. Veitingar voru fram-
reiddar í Víkurröst af Slysavarnafé-
lagskonum og merki og blað dagsins
voru seld á götum bæjarins.
Fréttaritarar
Akureyri:
Mjög gott veður
Á AKUREYRI fóru hátíðahöld sjó-
mannadagsins vel fram, að sögn
fréttaritara Morgunblaðsins þar,
Sverris Pálssonar.
Veður var fádæma gott og fallegt
og áhorfendur afar margir, bæði við
sundlaugina og við Akureyrarpoll,
þar sem kappróðurinn fór fram og
lauk með sigri áhafnarinnar á
Kaldbak. Stefán Einarsson hlaut
Atlastöngina, fyrir flest samanlögð
stig í íþróttagreinum dagsins, þar á
meðal í björgunarsundi og stakka-
sundi. Tveir aldraðir sjómenn voru
heiðraðir, Brynjólfur Kristinsson og
Snælaugur Stefánsson.
Húsavík:
Kona heiðruð
llúsavík, 7. júni.
AÐ ÞESSU sinni var 40. sjómanna-
dagurinn haldinn hátíðlegur á Húsa-
vík í besta veðri. Á laugardaginn fóru
fram margvíslegar íþróttir, bæði til
sjós og lands, og dansaö var i félags-
heimilinu lengi nætur.
Á sunnudaginn hófust hátiða-
höldin með messu og stólræðu flutti
að þessu sinni Hörður Þórhallsson
skipstjóri, en svo vildi til, að hann
var til skírnar borinn á sama stað,
sjómannadaginn fyrir 40 árum.
Kaffisala var í félagsheimilinu á
vegum slysavarnarfélagsins, afhent
voru verðlaun unnin í íþróttakeppn-
um og aldraðir sjómenn heiðraðir,
sem núna voru Guðmundur Finn-
bogason og Hrefna Bjarnadóttir.
Hrefna var á sínum yngri árum
þerna á strandferðaskipunum og
hefur öll hennar fjölskylda haft sitt
lifibrauð af sjó, synirnir starfandi
skipstjórar og dóttirin um áratuga-
skeið siglt um heimsins höf, nú síð-
ast sem loftskeytamaður á norskum
skipum. Hrefna var frumkvöðull
þess að sjómannadagurinn var fyrst
haldinn hátíðlegur á Húsavík.
Á Húsavík er aflakóngur ekki sá
sem mestan afla dregur úr sjó, held-
ur sá sem hæstu meðalverði skilar
fyrir innveginn fisk. Landsbanka-
bátinn hreppti að þessu sinni ms.
Geiri Péturs, skipstjóri Sigurður
Olgeirsson, en næstur honum kom
Sigþór. í sams konar keppni smærri
báta, sigraði Ársæll, formaður Við-
ar Þórðarson.
Fréttaritari.
Neskaupstaður:
Bærinn skreyttur
fánum og veifum
„Sjómannadagurinn rann upp bjart-
ur og fagur, með besta veðrinu á þessu
ári,“ sagði tíðindamaður Morgun-
blaðsins á Neskaupstað, Ásgeir Lár-
usson. Annars hófst sjómannadagur-
inn hjá okkur á laugardagskvöldið kl.
8 með róðrarkeppni. Bærinn er þá all-
ur skreyttur fánum og yeifum, sem
sjómenn hafa sjálfir séð um að koma
upp. Núna kepptu 16 sveitir, en róðr-
Áhorfendur og stúlkur sem þátt tólni i kappróðrinum við sjómannadagshátíðar-
höldin á Akranesi. Mynd Árni S. Árnanon.
Það var líf og fjör á bryggjunni í Garðinum á sjómannadaginn. Myndin var tekin
þegar Gunnjón lagðist að bryggju eftir að hafa siglt út á flóann með um 250
manns. Ljósm. Arnór.
arsveit Barkar NK 120 bar sigur úr
býtum.“
Á sunnudaginn hófust svo hátíða-
höldin með hópsiglingu fyrir börnin
og einnig var sýnd björgun í björg-
unarstól. Eftir hádegið var sjó-
mannamessa kl. 2 og kl. 4 hófust
hátíðahöld við sundlaugina, þar sem
meðal annars fór fram stakkasund,
koddaslagur og reiptog. í reiptoginu
sigraði skipshöfnin á Barða.
Aðalræðumaður sjómannadags-
ins á Neskaupstað var Þórður Jó-
hannsson kennari. Tveir aldraðir
sjómenn voru heiðraðir, Halldór
Einarsson og Kristinn Marteinsson.
Vestmannaeyjar:
Tveggja daga
hátíðahöld
Sjómannadagshátiðahöldin í Vest-
mannaeyjum fóru vel fram í alla staði,
að sögn Sigurgeirs Jónassonar, en þau
stóðu í 2 daga og fóru fram í þokka-
legu veðri. Á laugardaginn voru
skemmtiatriði í Friðarhöfn, kappróður
meðal margs annars, sem var til
skemmtunar, og má nefna að 11
kvennasveitir tóku þátt í kappróðrin-
um.
Á sunnudaginn var sjómanna-
messa og lagður var krans að fót-
stalli minnismerkis þeirra sem far-
ist hafa af slysförum. Minnismerki
um Oddgeir Kristjánsson tónskáld
var afhjúpað, pallur sem ætlaður er
undir tónlistarflutning. Síðan voru
veitingar í Alþýðuhúsinu. Um
kvöldið var skemmtun, þar sem fór
fram afhending hefðbundinna verð-
launa, svo sem til nemenda Vélskól-
ans og Stýrimannaskólans. Mikill
mannfjöldi tók þátt í hátíðahöldun-
um í Vestmannaeyjum.
Garðurinn:
5—700 manns
tóku þátt!
hátíðahöldunum
(■arói, 6. júní.
Gifurlegur fjöldi fólks tók þátt í há-
tíðahöldum sjómannadagsins og þegar
mest var í Gerðavörinni var áætlað að
milli 500 og 700 manns hefðu verið
þar. Að sjálfsögðu var það veðrið sem
gerði útslagið með þessa miklu þátt-
töku en svona veður hefir ekki verið á
sjómannadaginn í mörg ár.
Hátíðahöld dagsins hófust með
því að mikill fjöldi manna mætti
niður á bryggju kl. 10 um morgun-
inn til að fara í siglingu með börnin.
Kom þá í ljós að ferðinni hafði verið
frestað til kvölds.
Eftir hádegi var messa í Útskála-
kirkju og kl. 15 hófst kaffisala
Slysavarnafélagskvenna. Þá hófust
skemmtiatriði að nýju í Gerðavör
þar sem björgunarsveitarmenn
sýndu meðferð fluglínutækja og
björgunarstóls. Þá stjórnaði sveitin
koddaslag og kenndi knattspyrnufé-
lagsmönnum hvernig taka skal á í
reiptogi. Tókst þetta mjög vel í alla
staði. Seinni hluti hátíðahaldanna
fór fram uppi á knattspyrnuvelli.
Var þar ýmislegt til skemmtunar.
Má þar nefna fótboltaleik milli
hreppsnefndar og starfsmanna ann-
ars vegar gegn meistaraflokki Víðis
hins vegar. Hreppsnefndarmenn
leyfðu Víði að vinna leikinn enda
höfðu þeir tapað fyrir Snæfelli dag-
inn áður 2—1 en fengu að vinna
leikinn gegn hreppsnefnd með sama
mun.
Yfir 200 manns fóru í bátsferðina
með Gunnjóni sem fyrirhuguð hafði
verið um morguninn en farin um
kvöldmatarleytið. Lokapunkturinn
var svo unglingadansleikur um
kvöldið en almennur dansleikur var
á laugardagskvöld.
Arnór
Kristján Thorlacius á 32. þingi BSRB:
„Biölundin er þrotin
«
Almenn óánægja meðal
opinberra starfsmanna
vegna rýrnandi kjara
32. ÞING Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja var sett
sl. föstudag og verður slitið
siðdegis í dag. 193 fulltrúar frá
33 aðildarfélögum hafa setið
þing BSRB um helgina. Fjöl-
margar tillögur og álit bíða af-
greiöslu þingsins, en þegar
Mbl. fór í prentun hafði aðeins
hluti þeirra verið afgreiddur
og umræður stóðu þá yfir um
kjaramálaályktun, en í drög-
um að henni er krafíst 8.000
króna lágmarkslauna. AII-
margar lagabreytingar voru
samþykktar, m.a. ný grein sem
kveður á um að allsherjarat-
kvæðagreiösla um úrsögn úr
BSRB skuli fara fram ef
a.m.k. Vi fundarmanna óski
þess í viðkomandi aðildarfé-
lagi.
I áliti um efnahagsmál sem
þingið samþykkti segir m.a.:
„Þingið leggur áherslu á að helsta
orsök verðbólgunnar, þegar til
lengri tíma er litið, eru fjárfest-
ingar umfram sparnað, fjármagn-
aðar með lánum, og enn frekar
ráðstöfun þessa fjármagns, þar
sem stefnuleysi og skortur á sam-
hæfingu hefur ráðið ferðinni."
Þá er í efnahagsáliti þingsins
minnt á þá skoðun BSRB að leggja
beri áherslu á rannsóknir fiski-
fræðinga og gera þurfi rækilega
úttekt á hagkvæmustu flotastærð
og samsetningu til nýtingar áætl-
aðs aflamagns til lengri tíma. Síð-
an segir að ástand fiskistofnanna
nú megi rekja til þess að tillit hafi
ekki verið tekið til framan-
greindra ábendinga.
í ályktun starfskjaranefndar
um kjaramál kemur fram að
kaupmáttur launa opinberra
starfsmanna hefur minnkað á sl. 3
árum. Segir að á þessum tíma hafi
framfærsluvísitala hækkað 28%
meira en verðbótavísitala og að
grunnkaupshækkanir opinberra
starfsmanna hafi aðeins orðið 14,3
eða 5—6% minni en hjá öðrum
launþegum. Ennfremur er á það
bent að þorri annarra launþega
séu ýmist yfirborgaðir eða njóti
tekjuauka vegna bónus- og ákvæð-
isvinnu. Mbl. spurði formann
BSRB, Kristján Thorlacius, hvað
honum fyndist einkenna þetta
þing öðru fremur:
„Það er tvímælalaust hin mikla
samstaða og baráttuhugur sem
verið hefur ríkjandi í kjaramálun-
um. Hér hefur komið fram að
opinberir starfsmenn hafa dregist
mjög aftur úr öðrum í þjóðfélag-
inu. Auk þess sem menn byggja
þetta á kjararannsóknum, finna
þeir þetta sjálfir á buddunni
sinni.“
77 Hvað veldur?
„I fyrsta lagi sú kjararýrnun
sem orðið hefur á undanförnum 2
árum og stafar af skerðingu verð-
bóta sem önnur stéttafélög hafa
unnið upp með grunnkaupshækk-
unum. Það hefur verið greinilegt
frá 1980 að okkar félagsmenn hafa
viljað sína biðlund og ekki verið
tilbúnir í þau hörðu átök sem þarf
til að rétta við kjörin. Nú er það
mjög almennt, að þetta viðhorf er
breytt. Biðlundin er þrotin. Ég á
von á að ályktunin um kjaramál
verði í samræmi við þann baráttu-
hug sem er í félagsmönnum."
Kristján sagði að staða BSRB
hefði farið sífellt versnandi síðan
á árinu 1977 þegar bandalagið
náði nokkuð góðum samningum.
Sem dæmi nefndi hann að kjara-
rýrnunin frá 1979 næmi 12—13%.
Varðandi hugsanlega verkfalls-
boðun sagði Kristján:
„Það verður ekki boðað verkfall
fyrr en í fyrsta lagi eftir 1. ágúst.
Ég vona að samningaviðræðurnar
í sumar verði til þess að til verk-
falls þurfi ekki að koma.“
- O -
Guðjón B. Jónsson, formaður
samningsréttarnefndar þingsins,
sagði að einkum væri rætt um
tvær hugmyndir í átt til breytts
samningsréttar. Annarsvegar
væri um að ræða þá hugmynd að
aðildarfélögin fái verkfallsrétt
varðandi sérkjarasamning og hins
vegar að þau fái verkfalls- og
samningsrétt varðandi hvort
tveggja sérkjarasamning og
aðalkjarasamning.
- O -
Ragna Ólafsdóttir, formaður
starfskjaranefndar, sagði að inn-
an nefndarinnar virtist sem menn
vildu nú taka harðari afstöðu en
áður og vera tilbúnir til að leggja
nokkuð í sölurnar ef nauðsyn bæri
til. Ragna sagði tregðu ríkisvalds-
ins síst minni nú en áður til
raunhæfra samninga eða, eins og
hún nefndi það, til að leiðrétta
kjörin með tilliti til þeirrar kjara-
skerðingar sem viðgengist hefði á
undanförnum árum.
Viðfangsefni starfskjaranefnd-
ar og samningsréttarnefndar voru
ofar í hugum þingfulltrúa en flest
annað. Tillögur þessara nefnda
höfðu ekki fengið afgreiðslu þegar
þetta var skrifað.
- O -
Valgeir Gestsson, formaður Kenn-
arasambands íslands, kvað mikla
óánægju vera meðal kennara í
launamálum. Aðspurður um hugs-
anlega úrsögn kennara úr BSRB,
sagði Valgeir: „Það hafa engar
beinar hugmyndir komið fram um
úrsögn úr BSRB, enda er fullur
vilji fyrir samstöðu. Hins vegar er
það almenn skoðun að halda beri
þessum möguleika opnum. Sú
launastefna sem BSRB hefur rek-
ið hefur ekki skilað nægilega
miklum árangri, og við opinberir
starfsmenn erum nú langt undir
þeim kjörum sem almennt við-
gangast."
- O -
Ágúst Geirsson, formaður Félags
íslenskra símamanna, sagði að í
vetur hefðu verið uppi raddir sem
mæltust til þess að félagið segði
sig úr BSRB vegna frammistöðu
bandalagsins í undanfarandi 2 að-
alkjarasamningum.
Viðvíkjandi samningsréttar-
málum sagði Ágúst: „Félagið
okkar hefur alltaf verið fylgjandi
frjálsum samningsrétti. Við álít-
um að hann eigi að vera allur á
hendi félaganna eins og hjá ASÍ.
Síðan geta félögin komið sér sam-
an um samflot ef þau kjósa svo.
„BSRB þarf ekki að vera veikt,"
sagði Ágúst, „en ég er þeirrar
skoðunar að bandalagið hafi ekki
synt eins mikinn baráttuhug síð-
ustu árin og á árunuir. 1975 til
1978, þegar það hafði mikinn áróð-
ur í frammi fyrir bættum kjörum
og gegn kjaraskerðingunni 1978“