Morgunblaðið - 08.06.1982, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
21
Mikil gleði var í
herbúðum Möltu eftir
sigurinn gegn íslandi
I>að ríkti mikil glcði í búningsklef-
anum hjá leikmönnum Möltu eftir
sigurleikinn gegn íslandi i Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu. „Við
erum í sjöunda himni yfir því að
hafa unnið sigur í leiknum. Það var
meira en við áttum von á,“ sagði
fyrirliði Möltu eftir leikinn. „Það
var jafnræði með liðunum í fyrri
hálfleiknum, en i þeim síðari urðum
við að leika mjög stifan varnarleik
til þess að halda fengnum hlut. Síð-
ara markið sem við skoruðum var
mikið heppnismark. Það var eigin-
lega gjöf okkar liði til handa. Við
vissum fyrir þennan leik úrslitin í
leik íslands gegn Englandi og þau
hræddu okkur. Það verður að leika
vel til þcss að ná jafntefli gegn jafn
sterkri þjóð. Island á marga góða
knattspyrnumenn og við vitum að
þeir verða erfiðir heim að sækja á
næsta ári.“ — ÞR.
Jafntefli hjá
Fortuna og IBV
ÍBV og Fortuna Dusseldorf gerðu
jafntefli 1—1, í gærkvöldi er liðin
léku á Hásteinsvelli í Vestmannaeyj-
um. Lið ÍBV náði forystunni i leikn-
um strax á fjórðu mínútu. Þá skoraði
Ómar Jóhannsson eftir glæsilega
sendingu frá Sigurlási. Fortuna
tókst ekki aö jafna metin fyrr en á
76. mínútu leiksins. Þá loks tókst
Gunter Kurzinski að skora fallegt
mark eftir góðan samleik. Bæði liðin
léku létta, hraða og fallega knatt-
spyrnu. Lið ÍBV átti mun hættulegri
og fleiri marktækifæri í leiknum, og
verðskuldaði sigur í leiknum. Páll
Pálmason lék með í marki ÍBV á
nýjan leik og átti góðan leik eins og
reyndar allir í liði ÍBV sem lék sem
ein sterk heild. Næsti leikur Duss-
eldorf er á miðvikudagskvöldið á
Laugardalsvcllinum. Þá leikur liðið
gegn Fram. HKJ.
Hrönn stórbætir
sig í 800 m hlaupi
Hrönn Guðmundsdóttir, Garða-
bæjarstúlkan efnilega, sem keppir
fyrir UBK, stórbætti sig í 800
metra hlaupi á innanfélagsmmóti
ÍR í Laugardal á sunnudag, hljóp
á 2:09,6 mínútum, sem er rúmum
fimm sekúndu betri tími en hún
átti áður. Hrönn er í mikilli fram-
för, og aðeins á 17. aldursári,
þannig að framtíðin er hennar.
Árangur Hrannar er fjórði bezti
árangur íslenzkra kvenna frá upp-
hafi, aðeins Lilja Guðmundsdóttir
ÍR (2:06,2), Ragnheiður Ólafsdótt-
ir FH (2:06,22) og Rut Ólafsdóttir
FH (2:06,7) hafa gert betur. Tæpl-
ega er við öðru að búast en Hrönn
bæti þennan árangur sinn í
sumar, þetta var hennar fyrsta
hlaup.
Á IR-mótinu kepptu nokkrir
FH-ingar í 800 metra hlaupi. At-
hyglisverðum árangri náði hinn
ungi hlaupari Viggó Þ. Þórisson,
hljóp á 2:03,8 mínútum, sem er
mikil bæting frá í fyrra. Bræðurn-
ir Sigurður og Magnús Haraldss-
ynir voru skammt á undan Viggó,
Sigurður hlaut 2:02,0 og Magnús
2:02,5 mínútur.
Greiða 20 millj.
dala fyrir
sjónvarpsréttindi
NÚ ER Ijóst, að a.m.k. 120 sjón-
varpsstöðvar, og líkast til 150 stöð-
var í sjálfum úrslitaleiknum, muni
sýna leiki beint frá HM í knatt-
spyrnu. Fyrir þau réttindi eru
greiddar í allt um 20 milijónir
Bandaríkjadala. Þar af er vitað að
brasilískar sjónvarpsstöðvar greiða
2 milljónir og BBC hin breska hálfa
milljón.
Spænsk knattspyrnuyfirvöld
standa nú frammi fyrir þeim
vanda, að starfsmenn á tveimur
leikvöngum i Madrid hafa farið
fram á kauphækkun fyrir tvo
leiki, sem fram eiga að fara í 2.
umferð keppninnar. Vilja starfs-
mennirnir fá 40 dala kauphækkun,
auk aðgöngumiða á viðkomandi
leiki og greiddrar líftryggingar.
Brasilíumenn eru eftir sem áður
taldir sigurstranglegastir í keppn-
inni, en flestir hallast að því að
V-Þjóðverjar, Spánverjar, Árgent
ínumenn og jafnvel Sovétmenn
muni verða í baráttusætunum.
Marteinn Geirsson fyrirliði íslenska landsliðsins i knattspyrnu heilsar fyrirliða Möltu áður en leikur liðanna í
Evrópukeppninni hófst á Sikiley á laugardag. Á railli þeirra má sjá ítalska dómaratríóið sem dæmdi leikinn. Sjá
frásögn af leiknum á bls. 24, 25. Mbl. Þórarinn Ragnarsson.
Jóhannes Atlason:
„Ferðaþreytan og vanmat
á liði Möltu varð
leikmönnum okkar að falli“
— Það er fyrst og fremst ferða-
þreytan og vanmat á leikmönnum
Möltu sem varð okkur að falli í þess-
um leik. Leikmenn fóru ekki i gang
fyrr en í síðari hálfleik, en í þeim
fyrri léku þeir mjög illa. Erfiður leik-
ur gegn Englandi, langt ferðalag og
lítill svefn spila mikið inni þetta. Ég
er alls ekki að afsaka þetta tap. Ég
var hræddur fyrir leikinn. Á fundi
með leikmönnum sagði ég við þá að
það væri vel hugsanlegt að við
myndum vakna upp við vondan
draum með 1—0 á bakinu. En þess í
stað vöknum við ekki upp fyrr en við
erum búnir að fá á okkur tvö mörk.
Bæði ódýr. Malta er með grútmátt-
laust knattspyrnuliö. Við sjáum fyrst
heima á íslandi næsta sumar þegar
liðið leikur þar hversu stór þessi
skellur var fyrir okkur.
Malta hefur náð góðum úrslit-
um á móti sterkum þjóðum á
knattspyrnusviðinu þrátt fyrir að
þeir séu slakir og því ægilegt til
þess að vita ef leikmenn vanmeti
þá. Við höfum sko alls ekki neitt
efni á því, síður en svo. Nú, heilla-
dísirnar voru ekki með okkur í
leiknum. Við eigum góð marktæki-
færi sem renna öll út í sandinn.
Góð skallafæri, þar á meðal skalla
í stöngina. Og nokkur önnur
dauðafæri. En það er svo oft og
iðulega sem við fáum skell eftir
góð úrslit. Strákarnir léku vel
gegn Englandi, og nú átti að sýna
glansknattspyrnu gegn Möltu en
dæmið gekk ekki upp. Þeir spiluðu
göngubolta í fyrri hálfleiknum,
sem var slakur af þeirra hálfu og
ekkert gekk. Þegar þeir svo loks
vakna upp þá pressum við látlaust
en það dugði ekki til. Það var ægi-
legt að tapa þessum leik í Evrópu-
riðlinum. En hann ætti að geta
orðið okkur góð lexía, sagði Jó-
hannes Atlason landsliðsþjálfari.
- ÞR.
Þórdís setti íslandsmet og
varð bandarískur meistari
WJRDÍS Gísladóttir frjálsíþrótta-
kona úr ÍR vann óvænt og gott afrek
í hástökki á handaríska háskóla-
raeistaramótinu í frjálsum íþróttum.
sem lauk í Provo í Utah á laugardag.
Sigraði hún i þessari miklu keppni á
nýju íslandsmeti, stökk 1,86 metra.
Sjálf átti hún gamla metið, sem var
1,85, sett í Memphis í fyrra.
Þessi frammistaða Þórdisar kem-
ur þægilega á óvart, því ekki hafði
gengið alltof vel hjá henni undan-
farnar vikur, algengast að hún
stykki 1,75 til 1,80, þótt hún stykki
1,83 innanhúss og svo aftur á fyrsta
utanhússmótinu. Hins vegar hefur
það aðeins þótt tímaspursmál hven-
ær hún hækkaði flugiö, og þetta
„flugtak'* hennar í Provo er bæði
ánægjulegt og lofar góðu með fram-
haldið.
Keppnin í hástökkinu á banda-
ríska háskólamótinu var mjög hörð,
fjórar efstu stúlkurnar stukku allar
sömu hæð, en Þórdis sigraði þar sem
hún hafði notað fæstar tilraunir. f
þessum hópi var sænski methafinn
Susanne Lorentzen, sem keppir á
Reykjavíkurleikunum 17. og 18. júlí
næstkomandi. Hið sama var uppi á
teningnum á þessu móti i fyrra, þeg-
ar Þórdís hafnaði í fimmta sæti með
sömu stökkhæð og silfurverðlauna-
hafinn.
Þórdís Gísladóttir setti met og vann stóran sigur.