Morgunblaðið - 08.06.1982, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
23
_ Setti nýtt
• 2. deildar lidin í knattepyrnu leika sum hver oft við slæmar aðstæður. Þessi mynd er frá leik Þróttar Nesk. og Þórs
Akureyri, er liðin léku í 2. deildinni á Neskaupstað. wm ■ ■■
VíAir Garði sioraði 7—0 n6IIHSIH6t
V ■ %#■■ Mlll BANDARÍSKA stúlkan Mary Deck- um tíma, 15:08,26 mín. Bætti hú
er Tabb setti á lausardac nýtt gildandi heimsmet nýsjálensk
VÍÐIR í Garði sigraði Hveragerði
7—0 í bikarkeppni KSÍ, en leikurinn
fór fram í Garðinum sl. fimmtu-
dagskvöld. Víðismenn skoruðu tvö
mörk í fyrri hálfleik en í síðari hálf-
leik tóku þeir leikinn í sinar hendur
og skoruðu 5 mörk.
Guðjón Guðmundsson skoraði
fyrsta markið úr vítaspyrnu. Vil-
berg Þorvaldsson skoraði eitt
mark, Guðmundur Knútsson tvö
og Björgvin Björgvinsson þrjú.
Öruggur sigur Þróttara
gegn Völsungi á Húsavík
ÞRÓTTARAR héldu sigurgöngu
sinni í 2. deildinni áfram um helgina
er þeir heimsóttu Völsung á Húsa-
vík. Heimamenn höfðu ekki tapað
leik í fyrstu þremur umferðum ann-
arrar deildar, en máttu aö þessu
sinni lúta í lægra haldi fyrir Þróttur-
um, sem voru allan tímann sterkari
aðilinn. Lokatölur urðu 2—0, Þrótti í
vil.
Þróttarar hófu leikinn betur og
um miðjan fyrri hálfleikinn skor-
aði Júlíus Júlíusson, fyrrum Vals-
maður og Ármenningur, fyrsta
mark leiksins. Spyrnti hann á
markið rétt utan vítateigs og fór
knötturinn í stöngina og þaðan í
netið. Laglegt mark.
Heimamenn gáfust ekki upp
þótt á móti blési og sýndu á köfl-
Víðir hefir oft komist langt í
bikarkeppninni. Þeir voru slegnir
út úr keppninni í fyrra af sigurliði
annarrar deildar, Keflavík, en
fyrir tveimur árum slógu þeir m.a.
lið FH út úr bikarkeppninni í
sögulegum leik þegar Janus Guð-
laugsson misnotaði vítaspyrnu í
vítaspyrnukeppni að leik loknum.
AR/ÞR
BANDARÍSKA stúlkan Mary Deck-
er Tabb setti á laugardag nýtt
heimsmet í 5000 metra hlaupi
kvenna er hún kom í mark á frábær-
um tíma, 15:08,26 mín. Bætti hún
gildandi heimsmet nýsjálensku
stúlkunnar Ann Audain um 5 sek.,
en það var 15:13,22 mín.
Rótburst Reynts-
manna í Sandgerði
um ágæta takta, en lengstum var
spil þeirra einhæft. Þeir fengu ein
þrjú dauðafæri, en nýttu þau ekki.
Það reyndist dýrkeypt að þessu
sinni og hefði getað vegið þungt á
metunum. Þróttarar innsigluðu
sigur sinn snemma í síðari hálf-
leiknum er Bjarni Harðarson
skoraði laglegt mark eftir fallegan
undirbúning Baldurs Hannesson-
ar á hægri kantinum.
Byrjun Þróttara í 2. deildinni í
ár er glæsileg. Mikil mannaskipti
hafa orðið í liði félagsins og nýir
og yngri menn hafa tekið við af
eldri og reyndari. Þá hafa Þróttar-
ar misst fjölda lykilmanna yfir í
önnur félög. Liðið hefur aðeins
fengið á sig eitt mark til þessa og
það var úr vítaspyrnu.
— SSv.
KFTIR slakt gengi í fyrstu leikjum
íslandsmótsins tóku Reynismenn
loksins almennilega við sér og það
þótt líðið léki sennilega sinn lakasta
leik í 2. deildinni til þessa. Það kom
Glæsimark og fyrsti
sigur Skallagríms
GLÆSIMARK Borgnesingsins
Björns Axelssonar tryggði Skalla-
grími sinn fyrsta sigur í 2. deildinni í
ár. Scnnilega hafa þó fæstir búist við
því, að leikar færu þannig því aust-
anmenn hafa löngum verið erfiðir
heima að sækja.
Mark Björns reyndist eina mark
leiksins og var ekki neitt slor.
Hann sendi tuðruna í netið með
miklum þrumufleyg af um 30
metra færi. Hafnaði knötturinn
efst í markhorninu án þess að
markvörður Þróttar fengi rönd við
reist.
Ef nokkuð var voru gestirnir
ívið sprækari í leiknum. Þeir áttu
m.a. þrumuskot í þverslá og niður.
Heimamenn Þróttar áttu aðeins
eitt marktækifæri, sem heitið gat
því nafni. Halldór, markvörður
Skallagríms, varði þá meistara-
lega.
ekki að sök gegn Einherja því
heimamenn unnu 4—1 í Sandgerði á
laugardag.
Leikurinn var ekki nema fárra
mínútna gamall þegar Ari Haukur
Arason skoraði fyrsta markið á
laglegan hátt.
Annað mark leiksins var skorað
á 30. mínútu og var þar á ferðinni
Sigurður Guðnason. Ari Haukur
skoraði síðan annað mark sitt rétt
fyrir leikhlé þannig að staðan í
hálfleik var 3—0.
Reynismenn bættu sínu fjórða
marki við í síðari hálfleiknum áð-
ur en Einherji náði að svara fyrir
sig. Júlíus Jónsson, hinn eini
sanni, skoraði þá úr vítaspyrnu
eins og honum er einum lagið.
Baldur Kjartansson lagaði stöð-
una fyrir gestina 15 mínútum
fyrir leikslok, en það dugði
skammt. Öruggur sigur Reynis í
höfn. - SSv./ JJ
Bandaríkjamenn
vilja halda HM
Bandaríkjamenn, Mexíkanar og
Brasilíumenn lýstu því yfir um helg-
ina, að þeir væru reiöubúnir til að
halda HM í knattspyrnu árið 1986 ef
svo færi að Kolombía gæti ekki
haldið keppnina. Kom þetta fram i
útvarpsviðtali við Hermann Neu-
berger, forseta skipulagsnefndar
HM, í Þýskalandi um helgina.
Tekin verður ákvörðun um
næsta keppnisstað HM í lok þessa
árs, fari svo að Kolombíumenn
geti ekki haldið keppnina, eins og
orðrómur er uppi um. Ekki þarf að
efa, að margir muni verða um hit-
una eins og endranær, en vissu-
lega vekur það athygli, að Banda-
rikjamenn skuli vera reiðubúnir
til að taka keppnina að sér.
Aðalleikvangur Laugardal
6 íslenskir landsliösmenn leika: Pétur, Atli, Marteinn, Trausti,
Guömundur B. ásamt Janusi Guðlaugssyni, sem leikur með
Fram.
Miövikudag 9. júní kl. 20.30.
FORTUNA
DUSSELDORF
Forsala í Austurstræti
þriöjudag/miövikudag frá kl. 12.00.