Morgunblaðið - 08.06.1982, Side 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
25
i
Marteinn Geirsson:
— Þrátt fyrir mikla pressu
tókst ekki að jafna leikinn
Malta — ísland
2—1
Frá blaðatnanni Mbl., Þórarni Ragnarssyni, Messinu, Sikiley.
FALL er fararheill, segir íslenskt máltæki. Vonandi verður sú raunin þegar
riðlakeppninni i Evrópukeppni landsliða er lokið. í fyrsta leik sínum í
keppninni að þessu sinni tapaði ísland 1—2, fyrir Möltu er liðin léku á
Sikiley síðastliðinn laugardag. íslensku landsliðmennirnir í knattspyrnu hafa
alla burði til þess að standa sig vel í sínum riðli í keppninni. Það hafa þeir
sýnt í undanförnum landsleikjum. Þrátt fyrir að liðið hafi tapað gegn Möltu
með einu marki gefur það ekki neina ásUeðu til svartsýni. fslenska liðið var
betra liðið á vellinum þegar það loks fór í gang í síðari hálfleiknum. En
meðan það náði sér alls ekki á strik var jafnræði með liðunum. Þá fékk liðið
a sig tvö mjög ódýr mörk. En þrátt fyrir mörg góð tækifæri í siðari hálfleikn-
um og mjög mikla pressu á mark Möltu tókst landanum ekki að skora neraa
eitt mark og það úr vítaspyrnu. En það er sjaldgæf sjón í landsleikjum í
knattspyrnu hjá íslandi að um algjöra einstefnu sé að ræða á mark mótherj-
anna, eins og raunin varð á í siðari hálfleik liðanna á Sikiley.
Afspyrnuslakur
fyrri hálfleikur
Leikmenn beggja liða fóru sér
mjög hægt af stað í leiknum.
Varla skeði nokkuð markvert
fyrstu 10 mínúturnar. Liðin þreif-
uðu fyrir sér, en engin hætta skap-
aðist. Á 10. mínutu munaði litlu að
Lárusi tækist að komast í gegn um
vörn Möltu, en einn varnarmann-
anna náði boitanum frá honum á
síðustu stundu. Lárus var svo
bókaður á 15. mínútu, fyrir að
mótmæla dómaranum. En ís-
lensku leikmönnunum fannst
hann full smámunasamur í leikn-
um. Lítill kraftur var í leik-
mönnum beggja liða. Samleikur
slakur og mikið um tilviljunar-
kennda knattspyrnu. Teitur átti
skot á mark Möltu á 25. mínútu en
það var auðveldlega varið. Þegar
um 30 mínútur voru liðnar af
leiknum sóttu leikmenn Möltu
nokkuð og áttu þá tvö ágæt
marktækifæri. Á. 30. mínútu varði
Guðmundur mjög vel fast skot
sem stefndi í bláhorn marksins al-
veg niður við stöngina. En á 33.
mínútu for þrumuskot rétt fram-
hjá stöng. Miðjuspil íslenska
landsliðsins var mjög slakt á þess-
um tíma og einna helst voru það
varnarmenn íslenska liðsins sem
reyndu að byggja upp spilið.
Marteinn nálægt því
að skora mark
Á 40. mínútu hálfleiksins mun-
aði mjög litlu að fyrirliða íslenska
liðsins tækist að ná forystunni
fyrir ísland. Marteinn brunaði
upp völlinn og með góðri sam-
vinnu við Lárus Guðmundsson
tókst honum að komast alla leið
inn á markteigshorn Möltu þar
sem hann náði föstu skoti. Mark-
vörður Möltu bjargaði vel með
snöggu úthlaupi og varði boltann í
horn. Skömmu síðar brunaði örn
Óskarsson í gegn og átti þrumu-
skot frá vítateig sem sleikti stöng-
ina utanverða. Marktækifæri Is-
lands voru ekki mikið fleiri í hálf-
leiknum. Enda sóknarleikurinn al-
veg bitlaus.
Fyrsta áfallið kom svo á marka-
mínútunni frægu. Á 43. mínútu
svaf íslenska vörnin á verðinum,
einn leikmanna Möltu, Ganzi, fékk
sendingu inn að markteigshorninu
og var ekki í vandræðum með að
skora með snöggu skoti af stuttu
færi. Malta náði því forystunni áð-
ur en flautað var til hálfleiks. Það
segir nokkuð um gang fyrri hálf-
leiksins að lið Möltu fékk átta
hornspyrnur en íslenska liðið að-
eins eina.
Leikmenn vöknuðu
upp við vondan draum
Það var greinilegt á upphafs-
mínútum síðari hálfleiks að leik-
menn íslenska liðsins höfðu fengið
að heyra það hjá þjálfara sínum.
Þeir voru mun ákveðnari í öllum
leik sínum. En þrátt fyrir það fékk
liðið annað áfall. Á 48. mínutu er
dæmd aukaspyrna á íslenska liðið
um það bil 12 metrum utan víta-
teigs. Skotið fór beint í varnar-
vegg íslensku leikmannanna en
hrökk svo þaðan út á völlinn. Þar
kom einn af varnarmönnum
Möltu, Emuel Fabi, náði að hitta
boltann mjög vel, og fast skot
hans af um 28 metra færi hafnaði
í íslenska markinu. Boltinn fór á
milli handanna á Guðmundi
markverði sem kastaði sér á eftir
boltanum. Sorglegt fyrir þennan
annars snjalla markvörð að fá á
sig svo slysalegt mark.
Staðan orðin 2—0
fyrir Möltu
Við þetta síðara áfall í leiknum
vöknuðu leikmennirnir loks til
lífsins, og þá svo um munaði. Nú
skall hver sóknarlotan af annari á
marki Möltu. íslensku leikmenn-
irnir tóku öll völd á vellinum, og
voru óþekkjanlegir frá fyrri hálf-
leiknum. Lárus Guðmundsson
komst í gegn um vörn Möltu á 50.
mínútu og var felldur rétt utan
markteigs. Dómarinn dæmdi um-
svifalaust vítaspyrnu. Marteinn
Geirsson skoraði svo úr henni með
föstu skoti af miklu öryggi. Svo til
allir leikmenn Möltu lögðu nú
ofurkapp á að verjast og oft mátti
sjá 10 leikmenn þeirra inni í víta-
teignum. Vörn þeirra tókst þokka-
lega. Janus Guðlaugsson var
nærri því að skora á 60. mínútu er
hann átti ofsafast skot frá víta-
punkti en boltinn fór rétt yfir
þverslá. Mínútu síðar náðu leik-
menn Möltu góðri sókn. Við hina
miklu pressu opnaðist vörn ís-
lenska liðsins illa. Einn framherja
Möltu komst í gegn á kantinum og
brunaði inn í vítateig. En Guð-
mundur kom mjög vel út á móti og
bjargaði örugglega. Var þetta eina
marktækifæri Möltu allan síðari
hálfleik.
• Landsliö Möltu og íslands hlýöa á þjóðsöngva landa ainna áöur en landsleikurinn í Messina á Sikilay hefst. Lió*m'MbL Þór*rinn R*fln,r**on
Lárus á þrumu-
skalla í stöng
Karl Þórðarson átti mjög gott
skot af stuttu færi inn í vítateig en
fór of mikið undir boltann og lyfti
honum naumlega yfir. Janus og
Atli áttu og bðir góð skot sem voru
varin. Mikil hætta skapaðist í síð-
ari hálfleik við mark Möltu vegna
fyrirgjafa. En framherjunum ís-
lensku tókst ekki að nýta þær sem
skildi. Þegar 10 mínutur voru til
leiksloka slapp Malta svo sannar-
lega naumlega fyrir horn. Lárus
Guðmundsson átti þrumuskalla
sem small í stönginni, og síðan út
til Marteins sem kastði sér fram
og skallaði en markvörður Möltu
bjargaði á marklínunni. Inn vildi
boltinn ekki. Síðustu mínútur
leiksins hugsuðu leikmenn Möltu
um það eitt að tefja leikinn og
hreinsa frá markinu. I síðari hálf-
leiknum fékk íslenska liðið sjö
hornspyrnur en lið Möltu enga.
Vanmat og þreyta
í spjalli við íslensku leikmenn-
ina eftir leikinn, voru þeir sam-
mála um það að hið erfiða ferða-
lag hefði setið í þeim í fyrri hálf-
leiknum. Jafnframt að innst inni
hefðu þeir hreinlega vanmetið
leikmenn Möltu, þrátt fyrir að það
hafi alls ekki verið ætlunin, og Jó-
hannes þjálfari hafi varað við
slíku.
Varnarmenn liðsins léku vel í
þessum leik og voru bestu menn
liðsins. Sérstaklega Marteinn
Geirsson , örn Oskarsson og
Trausti Haraldsson. Þeir sýndu
allir mikla yfirferð og ódrepandi
baráttuvilja.
Karl og Janus áttu góða spretti á
miðjunni í síðari hálfleiknum, en
náðu sér ekki verulega á strik í
fyrri hálfleiknum.
Allur leikur íslenska liðsins var
mjög slakur í fyrri hálfleiknum,
en breyttist mjög til batnaðar í
þeim síðari. Þó vantaði að leik-
menn íslenska liðsins gætu nýtt
sér hin fjölmörgu ágætu mark-
tækifæri.
Landslið Möltu lék þokkalega
framanaf, en allur síðari hálfleik-
ur fór í að verjast, og léku leik-
menn liðsins þá oft nokkuð gróft.
í stuttu máli: Evrópukeppni
landsliða. Malta — ísland 2—1
(1—0). Leikið í Messina á Sikiley.
Mörk Möltu: Ganzi á 43. mín og
Fabi á 48. mín.
Mark Islands: Marteinn Geirsson
úr vítaspyrnu á 50. mínútu.
Áhorfendur voru tæplega 3000.
Gult spjald: Lárus Guðmundsson.
Dómaratrío var frá Ítalíu og slapp
það ágætlega frá leiknum.
Tuttugu og átta stiga hiti var og
logn meðan leikurinn fór
fram.— ÞR.
SÆNSKI kringlukastarinn Ricky
Bruch, fvrrum heimsmeistari í þess-
ari grein, hefur tilkynnt þátttöku
sína i Reykjavíkurleikunum í frjáls-
íþróttum, sem haldnir verða i Laug-
ardal 17. og 18. júli. Bruch hefur i
rúman áratug verid í fremstu röð
kringlukastara, og er svo enn. Hann
hefur kastað um 63 metra það sem
af er keppnistimabilinu, og ætti því
að geta orðið skemmtileg keppni
milli hans og ÍR-inganna Oskars
Jakobssonar og Erlends V'aldimars-
sonar, og Vésteins Hafsteinssonar,
HSK.
Auk Bruchs er að því unnið að
fá aðra heimsklassafrjálsíþrótta-
menn frá Svíþjóð, svo sem stang-
arstökkvarann Miro Zalar, en þau
mál eru enn óljós. Hins vegar er
nokkuð öruggt að kanadíski kúlu-
varparinn Bishop Dologewiscz,
sem varpað hefur langleiðina í 22
metra, verður meðal keppenda. Þá
er beðið eftir svari frá fremstu
sprett- og millivegalengdahlaup-
urum Hollands, en margir erlend-
ir frjálsíþróttamenn hafa spurzt
fyrir um þátttöku í Reykjavíkur-
leikunum.
landsleikjanna*
— Ég er búinn að fara í mörg
ferðalög siðan ég hóf feril minn sem
knattspyrnumaður. En þaö hefur
ekkert ferðalag jafnast á við þetta.
Við lékum mjög erfiðan landsleik
við England á miðvikudagskvöldi.
Þar lögöu menn sig alla fram, og
voru dauðþreyttir eftir leikinn. í staö
þess að fá að sofa og hvíla sig um
nóttina þurfa leikmenn aö fara á
fætur um miöja nótt og leggja af
stað í ferðalag, sem stendur síðan
yfir allan daginn og langt fram á
næstu nótt. Það má segja að næt-
ursvefn okkar hafi raskast mjög
vcrulcga. Ofan á þreytuna eftir
landsleikinn við England kom svo
ferðaþreytan. Það var því of skamm-
ur tími sem leið á milli landsleikja.
Aðeins tveir dagar. Ég tel það vera
mikil mistök hjá stjórn KSÍ að
semja um þessa leiki með svo
skömmu millibili, ekki síst þegar á
það er litið hversu erfitt var fyrir
okkur að komast til Sikileyjar.
Landslið Möltu er ekki sterkt og
við eigum ekki einu sinni að þurfa
góðan dag til þess að vinna liðið.
Það tókst okkur ekki. Fyrri hálf-
leikur var mjög slakur af okkar
hálfu. Og þrátt fyrir að við lékum
vel í þeim síðari dugði það ekki til.
Sorglegt að við skyldum ekki
skora úr dauðafærum okkar. Þá
held ég að við höfum vanmetið lið
Möltu og þegar svo er getur oft
farið illa. En fyrst og fremst var
það ferðaþreytan sem kom okkur í
koll. Við eigum góð tækifæri á að
skora en allt mistókst hjá okkur á
sama tíma og allt heppnaðist hjá
þeim. Þeir fá tvö heppnismörk. Og
fyrst þá þegar staðan er orðinn
tvö núll þá förum við í gang, sagði
Marteinn Geirsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins. — ÞR.
• Martoinn fyrirliöi loiöir loikmonnina Inn á vðdlnn. Hann og Guömundur markvöröur voifa til íslond-
inganna som voru á vellinum, og fögnuöu liöi aínu óapart, or þaö gokk inná völlinn. Ljó»m. Þórarinn Ragnarsson.
Lárus Guðmundsson:
„Áttum að sigra
verðskuldað"
— Ég ætla mér ekki að reyna að
afsaka þetta tap. Mér fannst liö
Möltu vera frekar slakt. En það er
ýmislegt sem spilar þarna inní. Við
leikum mjög erfiðan leik gegn Eng-
lendingum á miðvikudag, förum síð-
an í ægierfitt feröalag, þar sem við
missum mikinn svefn. Komum síðan
í mikinn hita og þaö er alls enginn
tími til þess að jafna sig. Það tók
alla leikmenn heilar 45 mínútur að
komast í gang. Við áttum að vinna
leikinn verðskuldað ef við lítum á
marktækifærin. En boltinn vildi
bara ekki i netið. Þetta tap er okkur
ölium mikil vonbrigði. Ekki síst eftir
að hafa lagt á okkur langt og strangt
feröalag alla þessa löngu leið, sagði
Lárus Guðmundsson framherji.
— ÞR.
Guðmundur Baldursson:
„Sár vonbrigði að
tapa þessum leik“
— Það var slæmt að tapa þessum
landsleik. Vonbrigðin urðu mun sár-
ari vegna þess að undir eðlilegum
kringumstæðum áttum við að sigra.
Við áttum góð marktækifæri í leikn-
um en tókst ekki að nýta þau. Við
fáum á okkur tvö ódýr mörk í leikn-
um, sérstaklega síðara markið.
Þannig að það var margt sem spilaði
inn í tap okkar. Síðast en ekki síst
sat í okkur mikil þreyta eftir erfitt
ferðalag, og við vanmátum leikmenn
Möltu innst inni, sagði Guðmundur
Baldursson markvörður íslenska
liðsins eftir leikinn. Guðmundur
hafði fram að þessum landsleik ekki
verið í landsliði sem tapaö hafði leik.
—Það var mikil óheppni hvern-
ig síðara markið kom. Eg sá bolt-
ann allan tímann. Þetta var fast
skot af um 28 metra færi. Leik-
maðurinn hitti boltann vel. Ég
hafði ekki tök á því að hlaupa til í
markinu og varð að kasta mér. En
ég var ekki kominn niður með lík-
amann, þegar boltinn kom. Hann
skaust á milli handa mér á óskilj-
anlegan hátt. Það var ægilegt að
sjá boltann fara í netið, sagði
Guðmundur Baldursson. — ÞR.
Siglfirðingar á skotskónum
Það fór ekki hjá því að mikil bar-
átta var í þeim leikjum er leiknir
voru í 3. og 4. deild norðan heiða um
sl. helgi. Alls voru leiknir 6 leikir, 2 í
þriðju deild og 4 í þeirri fjórðu en
minna var um mörk en oftast áður.
3. deild, B-riðill:
KS — Sindri 9:0 (6:0)
Eins og tölurnar bera með sér
var hér um mikla yfirburði heima-
manna að ræða og eru Siglfirð-
ingar ákveðnir í að komast upp en
til þessa hafa þeir verið ákaflega
nærri því. Mörk þeirra í leiknum
gerðu Olafur Agnarsson 4, Hörður
Júlíusson og Ivar Geirsson 2 hvor
og loks Björn Sveinsson 1 mark.
Um lið Sindra er best að hafa sem
fæst orð, það var gæðaflokki lak-
ara en Siglfirðingar.
HSÞ — Tindastóll 1:1 (0:1)
Ekki þótti leikur þessi rishár en
þó brá fyrir ágætum köflum eins
og oft vill verða þegar þokkaleg lið
spila. En hér var baráttan númer
eitt og Sauðkrækingar töpuðu sínu
fyrsta stigi í deildinni. Sigurfinn-
ur Sigurjónsson kom Tindastól yf-
ír í f.h. en Ari Hallgrímsson svar-
aði fyrir heimamenn úr víti í síð-
ari hálfleik.
Árroðinn — Magni. Leiknum
frestað um óákv. tíma vegna lé-
legra vallarskilyrða á Laugar-
landi, heimavelli Árroðans.
4. deild — C-riðill:
Vorboðinn — Reynir Á
0:1 (0:0)
Örn Viðar Arnarson gerði út um
leikinn í s.h. með ágætu marki í
fremur jöfnum leik.
Glóöafeykir — Dagsbrún
2:0 (1:0)
Skagfirðingar tóku vel á móti
Akureyringunum og unnu þá
næsta létt en baráttuna vantaði i
• Quömundur BaldurMon
Reykjavíkurleikarnir verða
mikil frjálsíþróttahátíð. Á mótinu
verður blandað saman lands-
keppni íslands og Wales í karla-
greinum, þar sem tveir frá hvoru
landi teljast til stiga, og Norður-
landabikarkeppni kvenna, þar sem
kvennalandslið íslands, Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands og Danmerk-
ur í frjálsíþróttum etja kappi, en í
þeim hópi eru frjálsíþróttakonur á
heimsmælikvarða. Ljóst er að
mótið stefnir í að verða hvalreki
fyrir íslenzka frjálsíþróttaunn-
endur.
lið aðkomumanna. Mörk Glóða-
feykis gerðu Rúnar Þórðarson og
Ólafur Knútsson.
D-riðill:
Vaskur — Hvöt 1:3 (0:2)
Aftur voru það Akureyringar
sem lágu og nú fyrir frískum leik-
mönnum Blöndósinga. Annars var
leikurinn fremur slakur. Guðjón
Rúnarsson, Pálmi Þórðarson og
Guðmundur Sæmundsson skoruðu
mörk Hvatar en Anton Haralds-
son svaraði fyrir heimamenn úr
víti.
Svarfdælir — Leiftur
1:2 (0:1)
Leiftur náði verðskuldaðri for-
ystu með sjálfsmarki Svarfdæl-
inga og Geir Ágústsson bætti við
öðru í s.h. Tómas Sigurðsson
minnkaði muninn rétt fyrir leiks-
lok úr vítaspyrnu og þar við sat.
MÞ
• Á þaatari mynd má ajá hluta af þaim rúmlaga 100 Útaýnarfarþagum aam maittu
til Maaaina til að ajá laikinn. falandingarnir atuddu frábaarlaga val við bakið á landanum,
an það dugði akki til. Efat má ajá íalanaka fánann aam var haldið á loft maðan
á laiknum atóð.
Gunnar aftur í Víking
UM HELGINA var gengið frá fé-
lagaskiptum Gunnars Gunnarssonar
úr Þrótti yfir í íslandsmeistaralið
Víkings í handknattleik.
Gunnar, sem er rétt liðlega tví-
tugur, lék með Víkingi þar til í
fyrrahaust, er hann gekk í Þrótt.
Hann lék með Þrótti síðasta
keppnistímabil.
Gunnar er fastamaður í meist-
araflokki Víkings í knattspyrnu og
hann varð íslandsmeistari með
Víkingi bæði í handknattleik og
knattspyrnu í fyrra.
íslandsmeistarar Víkings fá
góðan liðsstyrk með Gunnari og
Viggó Sigurðssyni, sem væntan-
legur er alkominn til íslands um
miðjan júní, eftir dvöl í Þýzka-
landi og á Spáni.
— SS
Ricky Bruch kemur á Reykjavíkurleikana
íslenska landsliðið tók ekki við
sér fyrr en staðan var 2—
„Of stutt á milli