Morgunblaðið - 08.06.1982, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
27
• Trimmdagsncfnd ÍSÍ er á myndinni hér að ofan, en að neðan má sjá hina
glæsilegu verðlaunagripi sem Morgunblaðið gefur.
ÍSÍ gengst fyrir trimmdegi
27. júní næstkomandi
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
sérstaks trimmdags fyrir alla lands-
menn og fyrir valinu hefur orðið
sunnudagurinn 27. júní nk. Með
þcssu er ætlunin að vekja athygli
alls almennings á íþróttastarfinu og
hvetja sem flesta til þátttöku.
Yfirstjórn þessa verkefnis verður
hjá Trimmnefnd ÍSÍ, en framkvæmd
verður í höndum héraðssambanda,
íþrótta- og ungmennafélaga innan
fsf.
Þátttökugreinar:
Allir geta orðið þátttakendur í
Trimmdeginum og hlotið fyrir eitt
stig með þátttöku sinni í einni
grein eftirfarandi íþrótta:
200 m sundi
2000 m skokki
5000 m göngu
10000 m hjólreiðum
25 m sundi fatlaðra
hjólastólaakstri
boccia
bogfimi
hestamennsku fyrir fatlaða
eða þátttöku í hvers konar
íþróttaæfingum í 30—40 mínútur,
t.d. fimleikum, badminton, blaki,
knattspyrnu, handknattleik,
körfuknattleik o.s.frv.
Keppt verður um þrjá veglega
verðlaunagripi, gefna af Morgun-
blaðinu, sem veittir verða sigur-
vegara er hlýtur: í fyrsta lagi
hæstu stigatölu miðað við íbúa-
fjölda, í öðru lagi hæstu stigatölu
miðað við íbúafjölda í kaupstöð-
um, sem hafa 10000 íbúa eða fleiri,
og í þriðja lagi hæstu stigatölu
miðað við íbúafjölda í kaupstöðum
sem hafa 2000—10000 íbúa.
Hverjum þátttakanda gefst
kostur á að kaupa sér merki
Trimmdagsins, sem gildir sem
happdrættisnúmer. Vinningar
verða 5 vönduð reiðhjól gefin af
Reiðhjólaversluninni Erninum.
Merki dagsins verða seld á kr.
10,00 og hljóta framkvæmdaaðilar
allan ágóða af sölunni.
Hlutverk trimmnefndar ÍSÍ er
að halda uppi útbreiðslu- og kynn-
ingarstarfsemi í því skyni að
glæða áhuga almennings á nauð-
syn þess að stunda íþróttir og úti-
vist — að trimma.
Almennur áhugi á líkamsrækt
hefur aukist mjög á síðustu árum,
og skilningur fólks á nauðsyn lík-
amsræktar er ríkjandi meðal alls
þorra fólks og margir stunda
reglubundna hreyfingu. Megin-
tilgangur Trimmdagsins 27. júní
nk. er að fá fleiri trimmara, að fá
fleiri til að skynja og skilja nauð-
syn þess að hreyfing gerir alla
hæfari til starfa.
Spurt og svarað um líkamsrækt og heilbrigði
í tilefni af trimmdeginum, hefur
Jóhannes Sæmundsson fræðslu-
fulltrúi ÍSÍ tekið saman spurningar
og svör varðandi líkamsrækt og
heilbrigði. Er það fróðleg lesning
og fer hér á eftir með leyfi trimm-
dagsnefndar ÍSÍ:
Sp: Hvaða áhrif hefur lík-
amsþjálfun á heilbrigði?
Svar: Heilbrigði felst ekki ein-
ungis í því að vera laus við
sjúkdóma heldur einnig að menn
séu vel á sig komnir líkamlega
og andlega. Reglubundin lík-
amsrækt bætir og viðheldjir lík-
amlegu og andlegu atgervi og er
einn af hornsteinum góðs heilsu-
fars.
— Góð líkamsþjálfun stuðlar að
andlegu heilbrigði og auð-
veldar fólki að mæta stressi
daglegs lífs.
— Líkamsþjálfun getur dregið
úr of háum blóðþrýstingí, og
komið í veg fyrir of háan
blóðþrýsting.
— Líkamsþjálfun styrkir hjart-
að. Við þjálfun eykst dælu-
hæfni hjartans. Það sést á
því að púls lækkar í hvíld og
við áreynslu.
— Súrefnisflutningur til hjart-
ans eykst vegna þess að þjálf-
un hefur áhrif á kransæðar
hjartans.
— Við líkamsþjálfun dregur úr
meltingartruflunum.
— Fituforði líkamans minnkar
við líkamsþjálfun.
— Blóðrás, súrefnisflutningur
og efnaskipti batna. Kraftur
og þol aukast.
— Unnt er að draga úr líkum á
því að menn verði bakveikir
með því að gera æfingar fyrir
kvið- og bakvöðva.
— Bein, sinar og liðbrjósk
styrkjast við líkamsþjálfun.
— Reglubundin líkamsþjálfun
ásamt réttu mataræði kemur
í veg fyrir offitu.
— Reglubundin líkamsþjálfun
viðheldur starfsþreki og get-
ur komið í veg fyrir óeðlilega
snemmbær öldrunarein-
kenni.
Sp: Þurfa trimmarar að fara í
læknisskoðun áður en þeir hefja
æfingar?
Svar: Þeir sem eru mjög feitir,
eða með of háan blóðþrýsting
eða hjartatruflanir eiga að leita
ráða hjá lækni áður en þeir hefja
líkamsæfingar. Sama gildir um
þá sem eru í einhverjum vafa um
heilsufar sitt. Langflestir geta
stundað líkamsþjálfun án þess
að fara í læknisskoðun fyrst. í
raun mætti aiveg eins snúa
spurningunni við og spyrja hvort
ekki ætti alveg eins að fara í
læknisskoðun og fá leyfi hjá
lækni ef fólk ætlar að lifa kyrr-
setulífi.
Sp: Ég er nokkrum kílóum of
þung(ur) og hef ekki lagt í að byrja
að trimma vegna þess að mér hef-
ur verið sagt að ég þurfi að ganga
tugi kílómetra til að brenna 1 kg af
líkamsfitu. Er þetta rétt?
Svar: Líkamsþyngd er háð þeim
fjölda hitaeininga, sem við lát-
um í okkur og þeim hitaeining-
um, sem við brennum. Ef við
brennum færri hitaeiningum en
við tökum inn fitnum við. Það er
einungis hægt að halda í við sig í
mat að vissu marki. Mörgum líð-
ur illa á matarkúrum er inni-
halda færri en 1200 hitaeiningar.
Kyrrseta hefur þau neikvæðu
áhrif að hún dregur úr „bruna" á
hitaeiningum, sérstaklega á
þeim hitaeiningum er við fáum
úr líkamsfitunni. í líkamanum
eru svokallaðir hvatar er taka
þátt í að brjóta fæðuna niður
bæði til orkugjafar og líkaman-
um til viðhalds. Við langvarandi
kyrrsetu dregur úr framleiðslu
iíkamans á fitubrennandi hvöt-
um, sem veldur því að við brenn-
um ekki fitunni heldur kolvetn-
um. Kolvetnisforði líkamans
endist einungis skamma stund,
1— Vfe klst., og þess vegna þarf
stöðugt að vera að endurnýja
hann. Fituforðinn endist aftur á
móti í marga daga og vikur.
Þetta er ástæðan fyrir því að
margt kyrrsetufólk, sem er of
feitt, verður fljótlega svangt
þótt það sé nýbúið að borða. Fit-
an og hreyfingarleysið er víta-
hringur sem ekki er unnt að
brjótast út úr nema með því að
minnka við sig mat og auka
hreyfingu.
Sp: Er öll líkamsþjálfun jafn góö?
Svar: Öll skynsamlega stunduð
líkamsþjálfun er til bóta. Mikil-
vægast er þó að gera æfingar er
reyna á blóðrásar- og öndunar-
kerfið í nokkurn tíma. Með því er
átt við t.d. göngur, skokk og
hlaup, sund, skíðagöngu, hjól-
reiðar og knattleiki.
Sp: Hve oft á viku þarf ég að
trimma til að hafa áhrif á blóðrás-
ar- og öndunarkerfið?
Svar: Til að viðhalda núverandi
ástandi þarf að reyna á sig
a.m.k. 1 sinni í viku. Til þess að
um framfarir verði að ræða, þarf
að trimma 2—3 sinnum á viku.
Sp: Hve lengi á ég að reyna á mig í
einu?
Svar: Svarið við því fer eftir því
hvernig hver og einn er á sig
kominn og einnig eftir aldri. Að-
alatriðið er að byrja rólega og
ætla sér að sjá framfarir á löng-
um tíma. Þeir sem ekki hafa
reynt á sig lengi ættu að byrja á
því að ganga eða synda í 4—10
mín., til að byrja með. Síðan á að
bæta við tímann eftir þvi sem
þolið eykst. 12—15 mínútna
stöðug áreynsla 3 sinnum í viku
er álitin hæfileg til þess að þol-
þjálfun hafi áhrif á hjartað,
æðakerfið og efnaskipti líkam-
ans.
Sp: Hve mikið þarf ég að reyna á
mig í hvert skipti?
Svar: Þeir, sem eru mjög þollitlir
geta bætt þol sitt og þá um leið
styrkt hjarta sitt með því að
ganga hressilega í 10—12 mín.,
2—3 sinnum á viku. Þegar þolið
eykst má nota hjartsláttinn sem
viðmiðun. Almenna reglan er
200 + tvöfaldur aldur, sem er það
mesta sem hjartað á að slá. 200 +
tvöfaldur aldur eru neðri mörk-
in. Ef hjartslátturinn fer niður
fyrir eða upp fyrir þessi mörk er
þjálfunin ekki jafn áhrifamikil.
Dæmi: Efri mörk á hjartslætti
þrítugs manns eru samkvæmt
formúlunni 170 sl/mín., og neðri
mörk 140 sl/mín.
Reyni þessi einstaklingur á sig
í 12—15 mín. 3 sinnum á viku
þannig að hjartsláttur hans fari
ekki yfir 170 sl/mín., og ekki
undir 140 sl/mín., mun þjálfunin
hafa bætandi áhrif á starfsemi
hjartans, lungna, æðakerfis og
efnaskipti líkamans.
Til að ganga úr skugga um
þetta á að taka púlsinn í 10 sek.
og margfalda með 6.
Önnur og einfaldari viðmiðun
er að hafa þá reglu að áreynslan
verði aldrei meiri en svo að
menn geti talað saman meðan
þeir þjálfa sig eða að maður geti
talað upphátt við sjálfan sig
meðan áreynslan varir.
Sp: Ég sit við vinnu mína allan
daginn. Samt sem áður finnst mér
ég vera þreytt allan daginn. Myndi
það hjálpa mér ef ég trimmaði?
Svar: Það geta verið margar
ástæður fyrir langvinnri þreytu,
líkamlegar og andlegar, sem
þurfa læknismeðhöndlunar við.
En þeirri algengu þreytu og sleni
sem margir finna fyrir þótt þeir
reyni lítið sem ekkert á sig, er
hægt að vinna bug á með því að
trimma. Þótt það þurfi oft tölu-
vert viljaátak til að koma sér af
stað muntu fljótt finna að besta
leiðin til að vinna gegn venju-
legu sleni og þreytu er að fara í
góða gönguferð, synda, skokka
eða gera eitthvað annað, sem
fær mann til að svitna svolitið.
Með því að leggja stund á íþrótt
eða líkamsæfingar sem henta
aðstæðum þínum og aldri, og
stunda æfingarnar reglulega,
mun þér líða betur. Þú munt líta
betur út, vöðvar þínir styrkjast
og þér mun finnast þú hafa
meiri krafta til allra hluta. Því
má bæta við að læknisfræðilegar
rannsóknir benda til að þeim
sem reyna reglubundið á sig sé
síður hætt við hjartaáföllum en
kyrrsetufólki. Og ef fólk verður
fyrir hjartaáfalli eru meiri líkur
á að „trimmarinn" hafi það af.
Sp: Ég er að hugsa að byrja æf-
ingar til heilsubótar. Hvað er best
fyrir mig að gera?
Svar: Fólk á margra kosta völ
sem betur fer. Menn geta æft sig
á eigin spýtur farið í heilsurækt-
arstöðvar, sundlaugar, í leik-
fimihópa og fl. Eins og áður
sagði er mikilvægast að reyna á
hjartað þannig að það slái hrað-
ar en í hvíld í nokkurn tíma. Því
næst skiptir mestu máli að
styrkja kvið- og bakvöðva, gera
liðkandi æfingar fyrir liðamót
og teygja á vöðvum.
Sp: Ég er mjög önnum kafin(n) og
hef ekki tíma til að stunda likams-
rækt. Er til einhver pilla eða lyf
sem ég get tekið til að auka hæfni
mína í vinnunni og bæta útlitið.
Svar: Það eru engin önnur lyf til
en trimm, til að bæta vinnuaf-
köst sín til langs tíma. Meðan
fólk er ungt finnur það e.t.v. ekki
sterka þörf til að stunda reglu-
bundið trimm, en staðreyndin er
að þeir, sem hirða ekki líkama
sinn eldast fyrr en ella. Þeim
tíma er vel varið sem notaður er
til líkamsræktar, því hann mun
skila sér í betri líðan og auknum
vinnuafköstum. Mannslíkaminn
er ólíkur vélurn á þann veg að
vélar sem eru mikið notaðar
slitna og ganga úr sér, en líkami
sem ekki er reynt hæfilega á
hrörnar og slitnar fyrr en ef
hann fær hæfilega áreynslu.