Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 48
Coe tókst ekki að
setja heimsmet
BRESKA stórhlauparanum Scbasti-
an Coe tókst ekki ætlunarverk sitt á
IBA og UBK
skildu jöfn
Á LAUGAKDAGINN brá öldungalið
UBK sér norður yfir heiðar og áttist
þar við hið gamla góða ÍBA. Leikur-
inn var liður í íslandsmóti öldunga í
knattspyrnu. Liðin skildu jöfn og
gerðu bau hvort um sig tvö mörk.
Mörk ÍBA gerðu þeir Þormóður Ein-
arsson og Árni Gunnarsson en hann
skoraði úr vítaspyrnu. Mörk UBK
gerðu þeir Sæmundur Sæmundsson
og Gísii Sigurðsson. — re
laugardag er hann ætlaði sér að
setja nýtt heimsmet í 2000 metra
hlaupi. Coe hafði aldrei hlaupið
þessa vegalengd áður i keppni, en
réðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur.
Hann varð að sætta sig við að
hlaupa á tíma yfir gildandi heims- og
Evrópumeti, þótt svo hann yrði langt
á undan keppinautunum í hlaupinu.
Coe fékk tímann 4:58,8 mín., en
heimsmet Johnnie Walker frá Nýja-
Sjálandi, sett fyrir 6 árum, er 4:51,4.
Hið 16 ára gamla Evrópumet Frakk-
ans Michel Jazy er 4:56,2 mín.
Coe er núverandi heimsmethafi
í 800 metra hlaupi svo og einnar
mílu hlaupi. Hefur hann sett 9
Frjalsiþrottapunktar
SOVÉZKI stangarstökkvarinn
Aiexander Tjernjajev náði
bezta árangri ársins I stang-
arstökki á móti i Sotsji við
Svartahaf um helgina, stökk
5,70 metra. Bandariski stang-
arstökkvarinn Mike Tully
stökk 5,60 metra á frjáls-
íþróttamóti i Long Beach í
Kaliforníu i vikunni, og sömu
hæð stukku frönsku stökkvar-
arnir Serge Ferreira og Jean-
Michel Bellot í Evrópukeppni
félagsliða í París um belgina.
Þá stökk Finninn Rauli Pudas
5,50 á móti í Oravais i heima-
landi sínu. Fyrrum beimsmet-
hafi í greininni, Pólverjinn
Kozakiewicz, sigraði á móti í
Flórens á ítaliu i vikunni,
stökk 5,40 metra, og Sviinn
Miro Zalar stökk einnig þá
hæð.
Góður árangur náðist í 10
kílómetra hlaupi á mótinu í
Flórens. Bretinn Dave Clark,
sem er 24 ára gamall, sigraði á
27:55,77 mínútum, næstur kom
ítalinn Alberto Cova á
27:56,37, þriðji varð sænski
hlauparinn Mats Erixon á nýju
sænsku meti, 27:56,56 mínút-
um, kom sannarlega á óvart,
bætti sig um beiiar 70 sekúnd-
ur á þessari vegalengd. Fjórði
varð sjálfúr heimsmethafinn
Henry Rono frá Kenýa á
27:59,93. Fimmti I hlaupinu
varð finnski hlauparinn Martti
Vanio á 28:05,20, Svíinn Hans
Segerfelt varð sjöundi á sinum
bezta tíma, 28:19,68, og Norð-
maðurinn Roy Andersen frá
Tönsberg, sem varð áttundi,
setti einnig persónulegt met,
hljóp á 28:21,00. Níundi í
hlaupinu varð| gamla kempan
Emil Puttemans á 28:27,22
mln.
Hörð og skemmtileg keppni
var í hástökki á alþjóðlegu
fijálsfþróttamóti f Stuttgart í
Vestur-Þýzkalandi í síðustu
viku. Náðist góður árangur,
fjórír efstu stukku allir 2,30
metra, Roland Dalhauser frá
Sviss, Gerd Nagel frá V-Þýzka-
landi, Janusz Trazepiur frá
Póllandi og ('arlo Tránhardt
frá V-Þýzkalandi. Fyrrum
Ólympiumeistari, Pólverjinn
Jacek Wzola, varð fimmti með
2,26 metra.
Portúgalski hlaupagarpurinn
Fernando Mamede, Evrópu-
methafi í 10 km hlaupi, var
ekki langt frá meti sfnu í
.Evrópukeppni félagsliða í París
um helgina, hljóp á 27:33,37
mínútum og var rúma mínútu á
undan næsta manni. Af öðrum
athyglisverðum árangri á mót-
inu má nefna iangstökk ítalans
Evangelisti, sem stökk 8,21
metra. Spánverjinn Gorgoz
stökk 7,99 metra og þriðji varð
Evrópumetshafinn Stekic frá
Júgóslavíu með 7,96 metra. Þá
stökk sovézki langstökkvarinn
Sergej Lajevskij 8,13 metra á
móti í Sotsji við Svartahaf um
helgina, en á því móti var börð
keppni í 3.000 metra hlaupi
kvenna milli sovézku Jtvenn-
anna Olgu Dvirna og Tatjönu
Kasankinu, heimsmethafa og
Ólympíumeistara, á ýmsum
vegalengdum. Dvirna hljóp á
8:36,40 og Kasankina á 8:36,54
mín.
Gefa bónusgreiöslurnar
sínar til mannúðarmála
Á SAMA tíma og flest landsliðin eru
um það bil að tínast til Spánar til-
kynntu leikmenn júgóslavneska
landsliðsins, að þeir myndu ekki
taka neina þeirra bónusa, sem þeim
hafði verið heitið fyrir góðan árang-
ur i keppninni, heldur myndu þeir
gefa alla peningana til mannúðar-
mála.
Þær upphæðir, sem hér um ræð-
ir, eru ekki nein ósköp en frá 6.000
og upp í 22.000 Bandaríkjadala,
allt eftir því hve vel liðinu gengur.
Þá hefur náðst samkomulag við
leikmenn liðsins um að leika í
skóm frá Adidas, framleiddum í
Júgóslavíu. Einhver ágreiningur
reis út af fótabúnaðinum og höfðu
einhverjir leikmanna liðsins í hót-
unum um að leika í Puma-skóm.
Nýtt undrabarn í tennisíþróttinni:
Sautján ára Svíi
sigraði í opna
franska meistaramótinu
„ÞAÐ SKIPTIR mig engu þótt ég
hafi verið sá yngsti til að vinna þessa
keppni. Þaö, sem öllu máli skiptir,
var að vinna hana,“ sagði hinn korn-
ungi Mats Wilander eftir að hann
hafði unnið sigur í opna franska
mcistaramótinu í tennis á sunnudag,
aðeins 17 ára og 10 mánaða gamall.
Bar hann sigurorð af Guillermo Vil-
as í úrslitaleiknum. Wilander sigraði
1—6, 7—6, 6—0 og 6—4. „Ég réði
ekkert við langsendingar hans. Þær
virtust aldrei ætla að koma niður,“
sagði mótherji hans, Vilas.
Landi Wilanders, tennissnill-
ingurinn Björn Borg, var áður sá
yngsti sem unnið hafði þetta mót.
Var hann 18 ára gamall er hann
sigraði 1974. Borg hefur ennfrem-
ur unnið þetta mót oftar en nokk-
ur annar, sex sinnum alls. Vilas
sigraði í þessari keppni 1977 og
tapaði í úrslitum fyrir Birni Borg
árin 1975 og 1978. Fyrr á þessu ári
hafði Vilas tekið þátt í fimm
stórmótum og unnið þau öll.
Árangur Wilanders kom geysi-
lega á óvart. Hann var einn fjöl-
margra „unseeded„ leikmanna í
mótinu, en þeir bestu njóta alltaf
nokkurra forréttinda og þurfa
ekki að þreyta sig í fyrstu umferð-
unum. Svo var þó ekki með þennan
unga Svía.
Wilander hafði sýnt það á síð-
asta ári að vænta mætti stóraf-
reka af hans hálfu er fram liðu
stundir. Enginn átti þó von á að
hann slægi jafn rækilega í gegn og
raun varð á í þessu stórmóti. Fyrir
sigurinn hlaut hann 66.000 Banda-
ríkjadali í verðlaun, en fékk líka
að vinna fyrir þeim. Á leið sinni í
úrslitin þurfti hann að ryðja úr
vegi ekki ómerkari köppum en
Ivan Lendl og Vitas Gerulaitis,
auk Jose Luis Clerc.
Urslitaviðureign Svíans unga og
Guillermo Vilas er sú lengsta, sem
um getur í þessu móti. Stóð hún í
fjórar klukkustundir og 42 mínút-
um betur. Aðstæðumar voru ekki
beint Svíanum í vil, 37 stiga hiti.
Til að auka enn á spennuna mátti
heyra þrumur í fjarska.
Framan af benti ekkert til þess,
að Wilander myndi fara með sigur
af hólmi. Leikur þeirra var róleg-
ur og allt upp í 50 sendingar fóru
þeirra á milli áður en annar hvor
skoraði stig. Vilas hafði þó betur í
fyrstu lotunni, sem stóð í klukku-
stund og sigraði 6—1.
Flestum bar saman um, að
vendipunkturinn hefði verið í 2.
lotunni. Vilas var þá kominn í
6—5, en mistókst þá uppgjöf. Sví-
inn ungi nýtti sér það til fullnustu
og vann 7—6. Þetta virtist hafa
afar slæm áhrif á Vilas og Wil-
ander náði undirtökunum. Vann
þriðju lotuna örugglega, 6—0, og
þá fjórðu, 6—4.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
Miiller með
til Spánar
VESTUR-þýska knattspyrnu-
landsliðið komst heldur betur í feitt
um helgina er liðið mætti tveimur
andstæðingum af lakara taginu í æf-
ingaleikjum. Alls skoraði þýska
landsliðið 28 mörk í leikjunum
tveimur og fékk aöeins á sig 2.
Fyrri leikur liðsins var á föstu-
dagskvöld gegn unglingaliði (21
árs og yngri) frá Baden-héraðinu.
Lokatölur urðu 19—2, landsliðinu
í vil, eftir að staðan hafði verið
11—1 í hálfleik. Rúmlega 5000
manns sáu miðherjann hávaxna
Horst Hrubesch skora sex sinnum
í leiknum. Rummenigge skoraði
þrjú mörk, Felix Magath og Klaus
Fischer 2 hvor, Breitner, Muller,
Reinders, Hannes, Stielike og
Matthaus eitt hver. Alls léku 18
þeirra 19 manna, sem í landsliðs-
hópnum eru, í þessum leik.
Liðið tók síðan annan léttan æf-
ingaleik um helgina. Mætti þá lið-
inu Baden úr sama héraði, að
viðstöddum 10.000 áhorfendum.
Heldur urðu úrslitin skaplegri
fyrir heimamenn að þessu sinni,
en stórskellur var það engu að síð-
ur, 9—0 landsliðinu í vil. „Við vor-
um ekki nógu beittir þegar upp að
markinu kom,“ sagði Jupp Derw-
all, einvaldur þýska liðsins eftir
þennan leik. Flestir hefðu þó lík-
ast til verið ánægðir með afrakst-
urinn. Rummenigge og Fischer
skoruðu tvö mörk hvor og þeir
Kaltz, Briegel, Hrubesch, Litt-
barski og Stielike eitt mark hver.
Um helgina var frá því skýrt, að
tengiliðurinn snjalli Hansi Muller
færi með þýska landsliðinu til
Spánar eftir allt. Mjög hafði verið
óttast, að hann gæti ekki farið
vegna meiðsla í hné og m.a. kvart-
aði hann undan eymslum í hné
eftir fyrri æfingaleikinn, sem hér
er sagt frá að ofan, um helgina.
Eftir læknisskoðun var sá úr-
skurður kveðinn upp, að hann
þyrfti ekki að gangast undir að-
gerð eins og svo mjög hafði verið
óttast. Flestum ber saman um að
Múller komi til með að verða lykil-
maður í v-þýska landsliðinu í
sumar.
Berruti milli
heims og helju
ÍTALSKI gullverðlaunahafinn í 200
metra hlaupi á Ólympíuleikunum í
Róm 1960, Livio Berruti, liggur milli
heims og helju í sjúkrahúsi í Novara
á Ítalíu eftir harðan árekstur tveggja
bifreiða. Berruti var þekktur fyrir að
hlaupa alltaf með dökk sólgleraugu,
hvort sem sól skein í heiði eða rigndi
sem syndaflóð væri.
ísland keppir
í Dyflinni
ÍSLENZKA frjálsíþróttalandsliöið
hefur dregist í riðil með Danmörku,
Noregi, Hollandi og frlandi í Evr-
ópubikarkeppninni í frjálsíþróttum á
næsta ári. Keppnin fer fram í Dyfl-
inni á írlandi 20. og 21. ágúst 1983.
Lasse Viren
keppir í Peking
FINNSKI hlaupagarpurinn Lasse
Viren, fjórfaldi Ólympíumeistarinn,
er ekki dauður úr öllum æðum.
Hann hefur þekkst boð um að keppa
í höfuðborg Kínaveldis, Peking, dag-
ana 18. til 20. júní. Keppir hann ann-
að hvort í fimm eða tíu kílómetra
hlaupi.
heimsmet á ferlinum, en er þessar
vikurnar að ná sér eftir meiðsl í
fæti.
Stórhlauparinn Sebastian Coe.
• Hansi MUIIer, hinn snjalli v-þýski
knattspyrnumaöur, fer meö landsliö-
inu til Spánar. Hér er hann að glugga I
ítalskt dagblaö. Hann mun leika á ft-
alíu næsta keppnistímabil. Þaö veröur
Ásgeir Sigurvinsson sem mun taka
viö stööu Hansa hjá Stuttgart-liöinu