Morgunblaðið - 08.06.1982, Side 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
Litli leikklúbburinn á Listahátíð:
Sýna nýtt verk eftir
Böðvar Guðmundsson
Meðal dagskráratriAa á Listahá-
tíð að þessu sinni er leiksýning
Litla leikklúbhsins á ísafirði, sem
sýnir nýtt leikrit eftir Böðvar Guð-
mundsson, sérstaklega samið fvrir
leikklúhbinn. Starfsemi Litla
leikklúbbsins hefur verið mikil að
undanfornu og er óhætt að segja að
lcikklúbburinn sé með virkustu
áhugamannaleikhúsum á landinu.
Litli leikklúbburinn var í síð-
ustu viku í leikferð í Danmörku,
með tvær sýningar á leikriti Böð-
vars „Úr aldaannál" og voru við-
tökur þar mjög góðar. Við hittum
tvo forsvarsmenn leikklúbbsins,
þá Hafstein Vilhjálmsson og
Trausta Hermannsson, og spurð-
um þá um tildrög þessarar ferð-
ar.
„Það má rekja upphafið til
þess að við fengum boð um að
taka þátt í Leiklistarhátíð í Hró-
arskeldu vorið 1982,“ segir Haf-
steinn. Við ákváðum að taka þátt
í því og um leið var augljóst að
við þyrftum að gera eitthvað
stórt, fengum því Böðvar til liðs
við okkur og hann skrifaði fyrir
okkur leikrit. Það varð svo ekkert
úr því en í staðinn fékk Bandalag
íslenskra leikfélaga boð um að
senda áhugaleikfélag á Norræna
listahátíð í Næstved í Danmörku.
Þessi listahátíð er árviss atburð-
ur, þar eru sýndar kvikmyndir,
haldnir hljómleikar, og ýmsar
sýningar frá flestum Norður-
löndunum."
— Nú hefur leikklúbburinn
starfað i 18 leikár. Hefur klúbbur-
inn farið áður í leikferðir til ann-
arra landa?
„Trausti: Þetta er í fjórða sinn
sem leikklúbburinn fer utan.
Fyrst var farið á leikhúshátíð í
Gautaborg með leikritið Koppa-
logn eftir Jónas Árnason, síðan
fórum við til Færeyja með Pilt og
stúlku og til Bergen fórum við
með söngleikinn Sabínu eftir
Vestfirðinginn Hafliða Magnús-
son.“
— Hvenær var leikritið frum-
sýnt á ísafirði?
„Hafsteinn: Leikritið var frum-
sýnt annan í páskum og hefur
verið sýnt fyrir vestan níu sinn-
um við mjög góðar viðtökur.
Þetta hefur verið þrotlaus vinna,
það var æft á hverju kvöldi og
allar helgar í um átta vikur fyrir
frumsýningu. Leikstjóri er Kári
Halldór, tónlistina samdi Jónas
Tómasson, og Hilde Helgason
kom og æfði með okkur radd-
þjálfun.“
Á æfingu á hinu nýja leikriti Böðv-
ars Guðmundssonar, sem hann
samdi sérstaklega fyrir Litla
leikklúbbinn á ísafirði, en það hef-
ur verið sýnt á Listahátíð í
Næstved i Danmörku og verður
sýnt á Listahátíð í Reykjavík.
— Um hvað fjallar svo leikritið?
„Trausti: Leikritið byggir á
sannsögulegum atburði sem
gerðist á tímabilinu 1784—1786.
Nú, þarna er á ferðinni glæpamál
og gefin er innsýn í hvernig það
kemur við líf fólksins. Ég held
við förum ekkert út í að lýsa því
nánar, hvetjum frekar alla
brottflutta Isfirðinga og aðra til
að fjölmenna á þessa einu sýn-
ingu hér í Reykjavík sem verður í
kvöld. Að auki hefur Litli
leikklúbburinn gefið leikritið út í
leikritsformi og fæst það í flest-
um bókabúðum."
VJ
„Skorum á alla brottflutta ísfirðinga og aðra að sjá sýningu Litla leik-
klúbbsins," sögðu þeir Trausti Hermannsson og Hafsteinn Vilhjálmsson.
Samkeppn-
istillögur ^
sýndar í As-
mundarsal
SÝNING á samkeppnistil-
lögum um bóknámshús Fjöl-
brautaskólans á Sauðárkróki
verður opnuð í Ásmundarsal,
húsi Arkitektafélags íslands,
Freyjugötu 41 í dag, þriðju-
daginn 8. júní og verður opin
fram til fimmtudags 10. júní,
frá kl. 13—17.
Urslit samkeppninnar voru
birt á Sauðárkróki á uppstign-
ingardag og var sýning á til-
lögunum á Sauðárkróki fram
til síðustu mánaðamóta.
Fyrstu verðlaun hlaut Guð-
finna Thordarson arkitekt.
Önnur verðlaun hlutu arki-
tektarnir Árni Friðriksson og
Páll Gunnlaugsson.
Þriðju verðlaun fengu arki-
tektarnir Börkur Bergmann,
Gunnar Friðbjörnsson, Sigríð-
ur Sigþórsdóttir og Sigurður
Björgúlfsson ásamt aðstoð-
armanni Önnu Laxdal.
Þá voru keyptar inn 2 tillög-
ur, reyndust höfundar annarr-
ar tillögunnar vera Magnús H.
Ólafsson arkitekt og Jóhannes
Ingibjartsson ásamt sam-
starfsmanni Jóni Runólfssyni.
Höfundar hinnar, innkeyptu
tillögunnar, eru Ingimar H.
Ingimarsson arkitekt, Ársæll
Vignisson, arkitekt, Þorsteinn
Magnússon, Gerard Delavault,
Henry Val Skowronski og
Svava Popovic.
Asakanir á hendur Cargolux um vopnaflug:
„Gáfum rádherra skýring
ar og þetta mál er leyst“
— segir Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux
Oðinn dró Dagrúnu til hafnar
STJÓRN Luxemborgar hefur farið
fram á skýringar flugfélagsins
Cargolux vegna flugs DC-8 flutn-
ingaþotu félagins frá S-Afríku til
Argentínu. í brezka blaðinu News of
the World var fyrir skömmu skýrt
frá því, að ásakanir hefðu komið
fram um, að i farmi vélarinnar hefðu
verið vopn; hugsanlega Exocet-
eldflaugar, sem m.a. grönduðu tund-
urspillinum Sheffield. Flogið var á
BÍÓHÖLLIN frumsýnir um þessar
mundir þrjár bandarískar kvik-
myndir sem heita „Allt í lagi vinur“,
„Kldribekkingar" og „Texas De-
tour“.
vegum dótturfyrirtækis Cargolux,
Air Uruguay.
Að sögn blaðsins, þá skýrði
brezkur þegn, Neale Millet, yfir-
völdum frá' fluginu. Hann hefur
verið rekinn frá Cargolux, að sögn
blaðsins. „Flugvél Air Uruguay
flaug milli Cape Town og Argent-
ínu í byrjun maí. Ég veit ekki hver
farmurinn var og hef engan áhuga
á að vita það. Við höfum rætt
Bud Spencer leikur aðalhlut-
verkið í „AHt í lagi vinur" og er
þar um að ræða grín- og slags-
málamynd í Trinity-stíl. Segir í
frétt bíósins að Bud Spencer sé í
essinu sínu í þessari mynd.
í „Eldribekkingum" eru Pris-
cilia Barnes og Jeffrey Byron í að-
alhlutverkum. Myndin fjallar um
fjóra háskólastúdenta, sem hafa
komið sér svo vel fyrir í skólanum
að þeir vilja ekki útskrifast. Fjór-
menningarnir eru með ráðagerð á
prjónunum og fara atburðirnir nú
að gerast hratt og blandast kyn-
ferðismál hér mjög inní, að því er
segir í frétt bíósins.
I myndinni „Texas Detour" er
einnig fjallað um ungt fólk en þar
er söguþráðurinn nokkuð annar,
ungt fólk á ferðalagi og atburðir
sem henda það. I þessari mynd
leikur Priscilla Barnes einnig að-
alhlutverk ásamt Patrick Wayne.
þetta mál við utanríkisráðherra
Luxemborgar vegna þess, að þotan
er skrásett hér í Luxemborg og
vegna eignaraðiidar Cargolux að
Air Uruguay. Við gáfum ráð-
herranum skýringar og þetta mál
er leyst; þetta er búið mál,“ sagði
Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux
í samtali við Mbl.
— Hvaða skýringar voru gefn-
ar?
„Það er á milli okkar og stjórn-
valda í Luxemborg. Það var flogið
með samþykki yfirvalda í S-Afr-
íku og Argentínu og löglega að
öllu staðið. Hver farmurinn var
veit ég ekkert um, en það er yfir-
lýst stefna Cargolux og Air Uru-
guay að fljúga ekki með vopn og
skotfæri. En að við fljúgum með
hluti sem kunna að passa í vítis-
tæki, er ekki okkar að sanna og við
höfum ekki leyfi til að opna kassa
og kanna það. Það er yfirvalda
sem gera útflutningsskýrslur og
tollayfirvalda að ganga úr skugga
um það. Þegar að er gáð, þá er
hægt að nota alla hluti til hernað-
ar. En þessir hlutir voru ekki
skráðir sem hernaðartæki," sagði
Einar Ólafsson.
„Að beiðni brezku stjórnarinnar
hefur rannsókn farið fram á þessu
máli, en hvað út úr þessari rann-
sókn hefur komið get ég ekki sagt.
Mér er kunnugt um ásakanir á
hendur Cargolux. Við höfum náið
samstarf við brezk stjórnvöld um
þetta mál og höfum heitið Bretum
fullum stuðningi í deilunni um
Falklandseyjar," sagði talsmaður
utanríkisráðuneytisins í Luxem-
borg í samtali við Mbl.
Ólafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra, sagði að íslenzk yfirvöld
hefðu engin afskipti haft af þessu
máli.
Á hvítasunnudag fór dró varðskip-
ið Oðinn togarann Dagrúnu frá Bol-
ungarvík til hafnar. Sveifarás í vél
togarans brotnaði þar sem skipið var
að veiðum á Látragrunni. Á svæðinu
voru um 30 islenzkir togarar að veið-
um.
Fremur slæmt veður var þegar
Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn hafa myndað meirihluta i
hreppsnefnd. Á hrcppsnefndarfundi
laugardaginn 5. júní var Hjörleifur
Guðmundsson Alþýðuflokki kjörinn
oddviti og varaoddviti Hilmar Jóns-
son sparisjóösstjóri, Sjálfstæðis-
flokki. Sveitarstjóri verður áfram
Úlfar Thoroddsen.
Óðinn tók Dagrúnu í tog. Á leið-
inni til lands bað skipstjórinn á
Gylli frá Flateyri varðskipsmenn
að taka skipverja, sem hafði feng-
ið „gor“ úr maga þorsks í augað, í
land. Skipverjinn var fluttur til
lands.
Einmuna veðurblíða er hér í dag,
20. stiga hiti kl. 11 í morgun. Sjó-
mannadagurinn var haldinn hátíð-
legur í gær af miklum myndar-
skap, samfelld dagskrá allan dag-
inn. Skemmtu menn sér hið bezta í
veðurblíðunni. Stjórnandi hátíðar-
haldanna var sem fyrr Birgir Pét-
ursson. Páll
Bíóhöllin frumsýn-
ir þrjár kvikmyndir
Patreksfjörður:
Alþýðuflokkur og Sjálfstæð-
isflokkur mynda meirihluta
Patreksfírði. 7. júní.