Morgunblaðið - 08.06.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
31
Irikalegt ásland
iávatplássum lai
fu«,< btiAA i («'*•<: vn:t« totuuo’ ?,V|
i£i ::. ■
inasat n eftir
Bláfjallaskáli:
Kostnaður 86%
fram úr áætlun
„VERÐUR að vara við því að hefja
stórfrarnkvæmdir í framtíðinni á
grundvelli jafn ófullkominna kostn-
aöarliða og hér var gert, en þær
sveitarstjórnir sem hlut eiga aö máli
samþykktu framkvæmdina á röng-
um forsendum,“ segir í bréfi fjár-
máladeildar borgarinnar sem lagt
var fram í borgarráði fyrir skömmu,
en þar kemur fram að heildar bygg-
ingarkostnaður við Bláfjallaskála
nam 12,9 milljónum króna, miðað
við verölag dagsins í dag.
I bréfinu kemur fram að sam-
kvæmt „endurskoðaðri kostnað-
aráætlun" sem lögð var fyrir borg-
arráð 3. júní 1980, hafi Bláfjalla-
skáli átt að kosta 2,98 milljónir
króna, sem jafngildir 6,95 milljón-
um króna miðað við núverandi
byggingavísitölu. Samkvæmt því
hafi framkvæmdakostnaður farið
86% fram úr áætlun. Varar fjár-
máladeild við því að hefja fram-
kvæmdir á grundvelli ófullkom-
inna kostnaðarliða, eins og segir í
bréfinu.
Davíð Oddsson borgarstjóri,
vakti máls á þessu á borgarstjórn-
arfundi sem haldinn var sl.
fimmtudag. í ræðu sinni sagði
Davíð, að gera ætti til þess kröfu
að þær upplýsingar sem borgar-
fulltrúar byggðu á við ákvarðanir
um ýmis mál stæðust í fram-
kvæmd.
Prestskosning á Suðureyri:
Umsækjandi hlaut
76,7% atkvæðanna
ATKVÆÐI voru í gær talin á bisk-
upsstofu frá prestskosningum er
fram fóru á Suðureyri í Súgandafirði
annan hvítasunnudag. Umsækjandi
var einn, sr. Kristinn Ágúst Frið-
finnsson, en hann vígðist þangað á
liðnu hausti. Umsækjandi hlaut 225
atkvæði af 228 greiddum eða 76,7%
og 3 seðlar voru auðir, en á kjörskrá
voru 296 og er kosningin því bind-
andi.
í prestskosningum tíðkast ekki
utankjörstaðakosning og þarf til
lagabreytingu og í frétt frá bisk-
upsstofu segir m.a. eftirfarandi
vegna þessa: A kjördag voru eðli-
lega allmargir Súgfirðingar að
heiman bæði í einkaerindum og
við vinnu, m.a. var togari staðar-
ins að veiðum. Stuðningsyfirlýs-
ingar bárust frá 22 þeirra sem
fjarverandi voru m.a. frá allri
áhöfn togarans Elínar Þorbjarn-
ardóttur. Séu stuðningsyfirlýs-
ingar taldar með atkvæðum
hækkar atkvæðahlutfallið upp í
84,4%. Að sögn Gests Kristinsson-
ar hreppstjóra voru aðeins tveir
sem ekki kusu af þeim sem heima
voru á kjördag. Sé litið þannig á
málið mætti segja að 230 manns
Stjórn Haf-
skips end-
urkjörin
Á AÐALFUNDI Hafskips hf. sl. fóstu-
dag, var stjórn félagsins einróma
endurkjörin. Hana skipa:
Albert Guðmundsson, formaður,
Ólafur B. Ólafsson, varaformaður,
Sveinn R. Eyjólfsson, ritari, Bjarni
Magnússon, Davíð Sch. Thorsteins-
son, Guðiaugur Bergmann, Gunnar
Þór Ólafsson, Haukur Hjaltason,
Hilmar Fenger, Jón Hákon Magn-
ússon, Jónatan Einarsson, Páll G.
Jónsson, Pétur Björnsson og Víðir
Finnbogason.
Framkvæmdastjórar félagsins
eru Björgólfur Guðmundsson op
Ragnar Kjartansson.
Fyrirlestur í
viðskiptadeild
PRÓFESSOR, dr. C.L. Barber frá
Manitoba-háskóla í Winnipeg,
flytur fyrirlestur í boði viðskipta-
deildar Háskóla íslands miðviku-
daginn 9. júní kl. 17.15 í stofu 158 í
húsi verkfræði- og raunvísinda-
deildar við Hjarðarhaga. Fyrir-
lesturinn nefnist „Is Keynes’ econ-
omics obsolete?"
Öllum er heimill aðgangur.
hafi haft möguleika á að kjósa og
af þeim hlaut sr. Kristinn Ágúst
225 atkvæði eða 97%.
Þá segir í frétt biskupsstofu að
vaxandi óánægju gæti í söfnuðum
vegna þess að utankjörstaðakosn-
ing skuli ekki leyfð og telji hrepp-
stjórinn að á minni stöðum mætti
vel hafa kosningu opna í 2—3 vik-
ur við prestskosningar. Síðan seg-
ir að kirkjustjórnin og fjölmargir
aðilar innan kirkjunnar hafi hins
vegar ítrekað óskað eftir breyttu
formi við veitingu prestakalla.
Þá er þess einnig að geta að ný-
lega hefur verið tilkynnt að heim-
ilað hafi verið að flytja prestssetr-
ið i Staðarprestakalli frá Stað til
Suðureyrar.
Aldrei glæsilegra úrval af garðhúsgögnum
V-þýzk gæðavara
Hagstætt verð
GEíslP
Út úr vítahringnum
Greinasafn eftir Eyjólf Konráð Jónsson.
„í umræðum á jnálþingi Félags frjálshyggjumanna 5. apríl 1980, sem
birtust i 1. hefti þessa árs, lýsti Friedrich A. Hayek I fáum oröum nýjum
tillögum sinum til lausnar verðbólguvandanum, en þær hafa vakið mikla
athygli erlendis. Þessar tillögur eru mjög svipaðar hugmyndum, sem Eyj-
ólfur Konráö Jónsson alþingismaöur kom orðum að I nokkrum blaða-
greinum 1978 og 1979 — áður en Hayek tók til máls.“
Frelsið 3. hefti 1980.
„Skattalækkun sú, sem patentlausn Eykons snýst um, kynni vissulcga
að stuðla að timabundinni lækkun verölags, en það er álitamál, hvort hún
drægi úr hraða verðbólgunnar og hversu varanleg áhrif þessarar aðgerðar
yrðu.“
Ólafur ísleifsson, Vísi 27. ágúst 1981
„Þvi er ekki að leyna, að þessi þáttur sóknarinnar gegn verðbólgu er
sérstaklega vandrrieðfarinn. f þvi sambandi hefur Eyjólfur Konráð Jóns-
son i grein f Mbl. i októbcr s.l. sett fram athyglisverðar hugmyndir, sem
þó hafa verið litið ræddar opinberlega."
Jónas H. Haralz 30. nóv. 1979
„Af lestri þessa rits vona ég að ljóst sé, aö hugmyndir Eyjólfs eru
hugmyndir meginþorra sjálfstæðismanna enda er þingflokkur
sjálfstæðismanna virkur þátttakandi i tillögugerð hans. Gjörbreytt stefna
hefur verið mótuð í efnahags- og atvinnumálum og hennrber að fylgja
fram til sigurs. Hér er að finna þá uppsprettu hugmynda og órku, sem
breytt getur ófremdarástandi því sem í þjóðfélagi okkar rikir.“
Árni Sigfússon form. HeimdaHar
Dreifing:
Almenna Bókafélagið
Austurstræti 18, Skemmuvegi 36, Kópavogi,
sími 25544. sími 73055.