Morgunblaðið - 08.06.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
33
Eftir ráðherrafund EFTA í Helsingfors:
EFTA-ríkin verði á varðbergi
gegn tilhneigingu ríkisstjórna
til að vernda atvinnugreinar
— segir Tómas Árnason viðskiptaráðherra
HelsingforH, 4. júní. Frá Freysteini Jóhannssyni fréttastjóra Mbl.
„í ÞVÍ mikla atvinnuleysi sem nú hrjáir V-Evrópu hefur gaett vaxandi tilhney-
ingar ríkisstjórna til að vernda atvinnugreinar í hverju landi, til þess að þær
gangi betur með því að þurfa ekki aö keppa við innflutning. Þetta er þróun sem
öll EFTA-ríkin verða mjög að vera á varðbergi gegn,“ sagði Tómas Árnason
viðskiptaráðherra í samtali við Morgunblaðið, eftir að ráðherrafundi fríverslun-
arsamtaka Evrópu, EFTA, lauk í Helsingfors í dag.
Tómas sagði að á ráðherrafund-
inum hefði ekki verið til umræðu
nein þau mál sem snerta ísland, eitt
EFTA-ríkja, sérstaklega. Hann
sagðist í ræðu sinni hafa lagt til að
efnt yrði til sérstakrar kynningarh-
erferðar í EFTA-löndunum á þýð-
ingu EFTA og viðskiptafrelsis.
Morgunblaðið spurði Tómas þá
hvort að hann teldi að eftir þennan
EFTA-fund í Helsingfors, að viðsk-
iptafrelsi ætti undir högg að sækja.
„Því er ekki að neita að menn eru
ákaflega hræddir við vaxandi
þrýsting á stjórnmálamenn og rík-
isstjórnir til verndaraðgerða, sér-
staklega þegar litið er til atvinnu-
ástandsins, en nú er talið að nær
tíundi hver maður í V-Evrópu gagni
atyinnulaus," sagði Tómas.
í gær sátu ráðherrarnir fund
ráðgjafanefndar EFTA. Einn full-
trúi íslands í þeirri nefnd er Davíð
Sch. Thorsteinsson. Hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að eitt
meginefni fundarins hefði verið álit
um ríkisstyrki og frjálsa verslun og
hefði í fundarlok verið samþykkt
samhljóða tilmæli til ráðherr-
anefndarinnar, sem m.a. kveða á
um að ríkisstyrkir alls konar séu nú
þegar komnir út í öfgar og brýn
nauðsyn sé til þess að þar verði
breyting á.
„Það er mikið vatn til sjávar
runnið síðan ég hóf máls á ríkis-
styrkjunum og afleiðingum þeirra
1977 eða 1978,“ sagði Davíð. „Þá
tóku engir undir mín orð nema
Svisslendingar. Aðrir sögðu þau
bara bull og vitleysu. Nú er þetta
hins vegar eitt aðal umræðuefnið
hér og menn viðurkenna ekki aðeins
að ríkisstyrkir séu til, heldur hitt
að með versanandi efnahagsþróun
og atvinnuleysi séu þeir komnir út í
öfgar og hafi verulega hindrandi
áhrif á frjáls viðskipti. í leiðara síð-
asta heftis EFTA-tímaritsins segir,
að ríkÍ8stjórnir hafi gripið til
styrkja í meira magni og fjöl-
breytni en nokkurntíman hafi áður
þekkst og í umræðum hér kom fram
að Svíar eyða um 2% þjóðartekna
sinna í styrki til iðnaðarins."
Davíð sagði að á síðastliðnu ha-
usti hefði ráðgjafanefndin falið
tveimur mönnum, einum úr hópi at-
vinnurekenda og öðrum úr röðum
verkalýðshreyfingarinnar, að ganga
Tómas Árnason
frá áliti um ríkisstyrki ogáhrif
þeirra á frjálsa verslun. Það álit
var svo lagt fyrir ráðgjafanefndina
í mars sl. í Sviss, en Davíð sagði að
mönnum hefði þótt það heldur veikt
og of mikil vörn fyrir ríkisstyrkina
og hefðu fulltrúar íslands haft
frumkvæði af því að álitinu var
hafnað, og undirnefnd sett á fót til
að semja nýtt álit fyrir fundinn hér
í Helsingfors. Davíð átti sæti í
þeirri nefnd af íslands hálfu.
I nefndarálitinu sem samþykkt
var í gær er m.a. skorað á ríkis-
stjórnir að hætta að niðurgreiða
vexti af útflutningslánum. Þetta at-
riði, sagði Davíð að væri reyndar í
EFTA-samningnum, en það væri
Davíð Sch. Thorsteinsson
brotið af öllum aðildarríkjum nema
Sviss. Nefndi Davíð niðurgreidda
vexti í afurðalánakerfinu sem dæmi
um brot af íslands hálfu. í fram-
haldi af þessu skoraði ráðgjaf-
anefndin á ráðherrana að sjá til
þess að EFTA-samningurinn væri
raunverulega haldinn! Þá sam-
þykkti nefndin tilmæli til ráðherr-
anna um að fram fari ítarleg ran-
nsókn á kostnaðinum af því styrkj-
akerfi sem þegar er komið á og
hvaða þýðingu það hafi haft á
viðskipti þjóða í millum. Ráðgjaf-
anefndin útilokaði ekki að grípa
þurfi til aðstoðar í vissum tilvikum,
en lagði áherslu á að slíkar aðgerðir
væru jafnan tímabundnar og menn
gerðu sér glögga grein fyrir kostn-
aðinum af þeim og þeim áhrifum
sem þau hafa.
Þá sagði Davíð að nefndin hefði
hvatt ráðherrana til að grípa til al-
mennra aðgerða til að bæta
starfsskilyrði atvinnuvegnna og
auka hagnað fyrirtækja og sagði
Davíð það merkilegan áfanga að
fulltrúar atvinnurekenda og verka-
lýðshreyfingar hefðu getað orðið
sammála um slík tilmæli til stjórn-
málamannanna.
Á blaðamannfundi sem haldinn
var að loknum ráðherrafundinum í
dag var m.a. spurt um viðbrögð
ráðherranna við þessum tilmælum
ráðgjafanefdarinar. Þá var bent á -
að í tilkynningu þeirri sem gefin
var út að ráðherrafundinum lokn-
um væri lögð áhersla á nauðsyn
þess að haldnar séu reglur um
frjáls alþjóðaviðskipti og að svok-
allaðar verndarráðstafanir hefðu í
för með sér minnkandi atvinnu og
lægri tekjur í þeim löndum sem eru
jafn háð utanríkisviðskiptum og
EFTA-löndin eru. Per Kleppe,
framkvæmdastjóri EFTA, sagði að
hann teldi víst að ríkisstjórnir
EFTA-landanna myndu taka til-
mæli og áskoranir ráðgjafanefnd-
arinnar til vandlegrar athugunar
og finnski viðskiptaráðherrann,
Esko Ollila, sem var í forsæti á
ráðherrafundinum gat þess að hann
teldi pólitískan vilja til þess að
minnsta kosti að auka ekki ríkis-
styrkjakerfið og alls ekki að nota
það til að hindra fríverslun. Frá 1.
júlí nk. er Tómas Árason formaður
EFTA-ráðsins og mun hann stýra
fundi þess í Genf 8. nóvember nk.
og einnig fundum ráðgjafanefndar-
innar 5. og 6. október, en þeir verða
einnig haldnir í Genf.
I íslensku sendinefndinni hér í
Helsingfors voru auk þeirra Davíðs
og Tómasar, Þórhallur Ásgeirssonn
ráðuneytisstjóri, Hannes Jónsson
sendiherra, Valgeir Ársælsson,
Björn Líndal, deildarstjóri í viðsk-
iptaráðuneytinu, Hjalti Gair
Kristjánsson og Árni Árnason frá
Verslunarráði og Agnar Tryggvas-
on frá SÍS.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
í til sölu j J^þjónust^;
Víxlar og skuldabréf i umboössölu. Fyrirgreiöslustofan, Vesturgötu 17, simi 16223, Þorleifur Guö-~ mundsson, heima 12469. Steypum heimkeyrslur, bilastæöi og göngubrautir. Uppl. í síma 81081 og 74203. Hilmar Foss lögg. skjalaþ. og dómt. Hafnar- stræti 11, sími 14824.
TV''"-
tilkynníngar'
Tjaldsvæöin
á Laugarvatni
veröa opnuö fimmtudaginn 10.
júni meö afgreiöslu í Tjaldmiö-
stööinni, er hefur til sölu fjöl-
breytt vöruúrval.
Tjaldmiöstööin Laugarvatni.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30. RaBÖumaöur Einar J.
Gíslason.
Miðvikudagur 9. júní
Kl. 20.00. Esjuhlíöar. Skraut-
steinaleit og létt kvöldganga.
Verö 60 kr. Frítt f. börn meö full-
orönum. Farið frá BSi, vestan-
veröu. Sjáumst
Útivist.
■ WÐŒO HREYSn-ALLAA Hl, ■
■ OEOVERNCMRFtUIO ISLANOSB
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
fundir — mannfagnaðir
Byggung Kópavogi
Aðalfundur BSF Byggung Kópavogi veröur
haldinn þriðjudaginn 8. júní kl. 20.30 að
Hamraborg 1, 3. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga stjórnar um framhaldsaöalfund.
3. Stofnfundur 7. byggingaráfanga.
4. Önnur mál. Stjórnin.
bátar — skip
................. ■
Fiskiskip til sölu
176 lesta byggður í Noregi 1964 (yfirbyggður)
29 lesta stálbátur, byggður 1979, 17 lesta
eikarbátur byggður 1976
Fiskiskip Austurstræti 6 2. hæö
sími 22475, heimasími sölumanns 13742
Jóhann Steinason H.R.L.
Rækju- og frystitogari
til sölu
Stærð 146x31x13 fet DNV. 1165 hestafla
ALFA aöalvél. 400 rúmmetra lestarrrými, ca.
205 ts. frosnar rækjur. Frystigeta ca. 15 ts. á
24 klst.
Upplýsingar veitir
Aalesund Shipping As.,
O.A. Devoldsgt. 13
6000 Aalesund
Noregi,
sími 071-25022, telex 43206.
Dúddi og Matti hafa opnað nýja glæsilega hárgreiðslustofu í hinum nýuppgerðu húsakynnum
að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2, sími 83055
hjcíDúdcldOgVldttd