Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
6+JU*, % MIÐBÆJARMARKAÐNUM BfJwi ^ Htfx/wi SlMI 27620 BbJwi % Ht+Jwi
Um fimmtíu eyjaskeggjar
fangar á Vestur-Falkiandi
Á SAMA tíma og brezkt herlið
þrengir hringinn um Port Stanley
hafa borizt fréttir um að 40—50
eyja-skeggjar, um 30 konur og börn
og karlar sem Argentínumenn geta
ekki notað til starfa, hafi verið fang-
ar argentinskra hermanna í Fox Bay
á Vestur-Falklandi í einn mánuð.
Um 1,600 Falklendingar munu
vera á Vestur-Falklandi og enginn
þeirra mun hafa iátizt, þótt ekkert
hafi spurzt til tveggja manna í
bænum Chartres síðan þeir fóru
upp á hæð til að skoða flak argent-
ínskrar þotu sem var skotin niður
að sögn Kim Sabido, fréttamanns
Independent Radio News. Hann
telur að Argentínumenn hafi um
1,000 hermenn á Vestur-Falklandi
og þejr séu m.a. búnir flugvélum.
Brezkir varðflokkar lentu í
átökum hjá argentínskum útvirkj-
um umhverfis Port Stanley á
sunnudag, og staðfest var að 5.
fótgönguliðs-stórdeildin, sem fór
með farþegaskipinu „Queen Eliza-
beth II“, hefði komið með árás-
arskipunum „Intrepid" og „Fear-
less“ til San Carlos „fyrir einni
viku“ — þannig að Bretar tefldu
fram um 8.000 mönnum gegn um
7.000 manna setuliði Argentínu-
manna í Stanley — og sækti til
Stanley.
Skipið er á heimleið til Bret-
lands með 700 menn af herskipum
sem var sökkt og Peter Jackson
skipstjóri segir að ekki ein einasta
argentínsk flugvél hafi sézt frá
skipinu í ferðinni. Veðrið hafi
Tugir napalmsprengna fundust á flugvellinum í Goose Green og auk þess napalmverksmiðja. Hér skoðar brezkur
flugliðsforingi sprengjurnar, sem voru reiðubúnar til notkunar gegn brezkum hermönnum.
hjálpað, því að þoka hefði verið
allan tímann. „QE2“ verður skilað
Cunard-skipafélaginu við heim-
komuna um 11. júní.
Press Association sagði að stór-
sóknar væri að vænta „innan
nokkurra klukkustunda" og
fréttaritarinn Michael Nicholson
sagði að „geysilega djarfar að-
gerðir“ væru hafnar, þótt ekki
væri hægt að segja frá þeim vegna
ritskoðunar. Argentínski yfirmað-
urinn, Mario Menendez hershöfð-
ingi, virðist hafa komið mönnum
sínum fyrir í varnarlínu um 1,6
km frá Stanley, en á föstudaginn
TÖLVUSKDLINN
Tölvunámskeið
Notendanámskeið
Námskeiðin standa yfir í 2 vikur. Kennt er 3 tíma á dag virka daga. Kl.
9.00—12.00 f.h.
Viö kennsluna eru notaöar viöskiptatölvur af algengustu gerö.
Námskeiöiö er ætlað hverjum þeim sem vill kynna sér notkunarmöguleika
míkrótölva viö rekstur fyrirtækja.
Á námskeiöum er tek'ö fyrir eftirfarandi m.a.:
Aö stjórna tölvu, diskettustöö og prentara.
Aö nota tölvur viö:
Fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald, lagerbókhald, iaunabókhald, rit-
vinnslu, gagnageymslu og áætlanagerö.
Forrit þessi spanna öll helstu notkunarsviö míkrótölva í viöskiptalífinu um
þessar mundir.
Aö loknu námskeiöi fá nemendur viöurkenningarskjal.
Innritun í síma 25400
var sagt. að varnarlínan væri 4,8
km frá bænum. Sagt er að Bretar
þurfi litlar áhyggjur að hafa af
stórskotahríð Argentínumanna.
Brezki yfirmaðurinnn, Jeremy
Moore hershöfðingi, sagði í viðtali
að Argentínumenn væru með bak-
ið að veggnum og dálítið meira
þyrfti að þjarma að þeim áður en
þeir yrðu yfirbugaðir. Hann
kvaðst mjög ánægður með hvernig
herferðin hefði gengið og sagði að
brezka herliðið væri viðbúið að
mæta argentínskri gagnárás, m.a.
fallhlífahermanna, þótt Argent-
ínumenn ættu lítið eftir af flug-
vélum, skotfærum og búnaði.
Hann sagði að ekkert lægi á að
gera árásina, aðalatriðið væri að
allt yrði gert á réttan og skynsam-
an, hernaðarlegan hátt, en neitaði
að ræða tímasetningar og sagði að
argentínski yfirmaðurinn hefði
gott af ágizkunum. Ef árásin yrði
gerð áður en allur liðsauki og
búnaður bærist mundi það aðeins
kosta óþarfa mannfall, sem allir
vildu forðast. Ekki var sagt hven-
ær viðtalið var tekið.
Veður er enn slæmt á Falk-
landseyjum, þoka og kuldi, rigning
og stundum snjókoma, en sagt er
að það eigi ekki að koma í veg
fyrir árás. Þyrlumenn hafa verið í
stöðugum ferðum með birgðir,
þrátt fyrir þoku og slæmt skyggni,
og fréttaritari „Daily Mirror" seg-
ir að þeir séu orðnir hetjur brezka
herliðsins.
Fréttaritari BBC, Robert Fox,
neitar því að Herbert Jones undir-
ofursti, sem féll þegar hann
stjórnaði árásinni á Port Darwin
og Goose Green, hafi hótað að fara
í mál við BBC fyrir manndráp þar
sem útvarpið sagði að árásir á
þessa staði væru yfirvofandi. BBC
segist aldrei hafa útvarpað öðrum
fréttum en þeim sem hefði verið
hægt að afla í London. Fox, sem
kveðst hafa litið á Jones sem ná-
inn vin, segir að hann hafi aldrei
hótað aðgerðum gegn BBC.
Fréttaritari „Observer" segir að
brezkur varðflokkur hafi rekizt á
um fimm argentínska hermenn á
hæð skammt frá Stanley. Argent-
ínumennirnir virtust sitja að
snæðingi, en Bretarnir vildu reka
þá burtu svo að stöðvum þeirra
stæði ekki ógn frá þeim og skutu á
þá. Argentínumennirnir, sem voru
í fimm metra fjarlægð, svöruðu í
sömu mynt en hörfuðu síðan og
skutu á undanhaldinu. A.m.k. þrír
Argentínumenn féllu.
Samkvæmt skoðanakönnun í
Bretlandi eru 57% Breta fylgjandi
árás á Stanley, þótt það kosti mik-
ið mannfall, og aðeins 3% vilja að
Bretar afsali sér yfirráðum. Útan-
ríkisráðherra Argentínu segir að
baráttunni verði haldið áfram og
Bretum verði komið á óvart.
Ráðstefna óháðra ríkja lýsti yfir
stuðningi við Argentínu í Havana
og Fidel Castro bauð Argentínu-
mönnum vopn. Spítalaskipið
„Hydra“ kom með 51 særðan
Breta til Montevideo.
Argentína hefur keypt vopn frá
minnst fimm löndum síðan átökin
hófust — aðallega ísrael og Líbýu
en einnig Brazilíu, Perú og Ven-
ezúela — að sögn „New York Tim-
es“. Keyptar hafa verið 24 ísra-
elskar Dagger-þotur, nokkrar
Mirage-þotur, eldflaugar til að-
gerða í lofti og nokkrar gagn-
skipaflaugar, m.a. Exocet.
Vill auka umsvif norsks
sjávarútvegs að mun
<)sló, frá Jan Krik Lauré, fréttaritara Mbl.
NEFND, SKIPUÐ af norska ríkinu, hefur komist að þeirri niðurstöðu
að auka megi umsvif norska sjávarútvegsins að miklum mun. Nefnir
nefndin m.a. fjölda staðreynda máli sínu til stuðnings. Nú starfa um
50.000 manns við sjávarútveg í Noregi.
Tegundir á borð við skötusel Nú fer 75% fiskafla Nörð-
og steinbít ásamt nokkrum öðr- manna í mjöl og lýsi. Nefndin er
um sjaldgæfari má nýta á mun
betri hátt en gert hefur verið. Þá
má einnig auka vinnslu á þangi,
skelfiski, auk þess sem auka má
vinnslu á alls kyns hliðarfram-
leiðslu. Þá leggur nefndin til að
fiskúrgangur verði betur nýttur
en verið hefur.
þeirrar skoðunar að auka megi
þann hluta, sem fer til manneld-
is, að miklum mun. Þá er enn-
fremur lögð áhersla á aukna
fiskirækt, en nú þegar rækta
Norðmenn mikið af laxi og ur-
riða.
EF ÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU