Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
37
um, er hann gaf ekki kost á sér, til
ársins 1964, er hann féll frá.
í hans formannstíð var stefnan
mörkuð og fyrirtækið mótað með
þeim hætti að við búum enn að
þeirri gerð. Oft var stormasamt á
þeim tíma um menn og málefni,
en Elías stýrði málum í örugga
höfn og vegna þess var róðurinn
léttari fyrir okkur sem við tókum.
Fyrir það ber að þakka.
Ég tel að það hafi verið aðals-
merki SH í gegnum árin, að hafa
ekki haft í frammi hávaða eða yf-
irlæti í fjölmiðlum eða á manna-
mótum. Aðalatriðið hefur verið að
Gunnar GuAjónsson flytur ræðu sína
á aðalfundi SH.
Ljósm. Mbl.: Kristján Kinarsson
vinna að yfirlýstum tilgangi sam-
takanna og leitast við að þjóna fé-
lagsmönnum sem best. Það tel ég
að vel hafi tekist. Fátítt er að
heyra gagnrýni á SH fyrir það að
fyrirtækið skili ekki árangri. Það
eru aðrar kringumstæður, sem
hafa valdið því, að frystihúsin
hafa átt svo að segja í stöðugum
erfiðleikum í gegnum árin og þarf
þar ekki að líta lengra en til
heimatilbúinnar efnahagslegrar
upplausnar í þjóðfélaginu.
I þau 17 ár, sem ég hefi verið
stjórnarformaður þessara sam-
taka, hefi ég öðlast þá bjargföstu
trú, að Sölumiðstöðin hafi í fyllsta
máta sannað tilverurétt sinn og ég
á enga heitari ósk henni til handa
en að eigendur hennar, frystihúsa-
menn, muni hér eftir sem hingað
til halda áfram að slá skjaldborg
um hana, efla hana og henni tengd
fyrirtæki, svo og að stofna önnur
ný, eftir því sem þarfir og kröfur
timans leiða í ljós að sé nauðsyn-
•egt.
Ég sagði áðan, að á þessum að-
alfundi væru 17 ár síðan ég tókst á
hendur stjórnarformennska sam-
takanna. Þetta hafa verið mér
mjög verðmæt og spennandi ár.
Af stofnendum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna fyrir 40 árum var
aðeins einn sem var á aðalfundin-
um. Var það gamla kempan Einar
Guðfinnsson frá Bolungarvík, sem
hér situr við hlið Guðfinns, sonar
síns, en Guðfinnur er nú ritari
stjórnar SH og stjórnarformaður
Coldwater Seafood Corporation í
Bandaríkjunum.
Ljósm. Mbl.: Kristján Kinarsson
Ferðamálaráð:
Ferðaþjónustan öll í hættu komi
til verkfalla og verkbanna
„MINNUGIR þess að verkfall og
vcrkbann nú er ekki eingöngu mál
dagsins í dag, verkföll eða verkbönn
eru keðjuverkandi og um langa
framtíð geta verkföll og verkbönn
nú heft ferðamannaþjónustu, en hún
byggir tilvist sína að verulegu leyti á
þeim árstíma sem nú fer í hönd, en
stendur um skamma hríð,“ segir
m.a. í frétt frá Ferðamálaráði Is-
lands.
Þá segir í frétt Ferðamálaráðs
að lagður hafi verið grundvöllur
að nýrri atvinnugrein í landinu,
ferðamannaþjónustu, sem sé lík-
leg til að skapa ný atvinnutæki-
færi og myndu hugsanleg skæru-
verkföll, allsherjarverkföll og
verkbönn geta haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér. Skorar
Ferðamálaráð á alla er hlut eiga
að máli að þeir geri allt sem í
mannlegu valdi stendur til að
firra land og þjóð þeim voða sem
nú virðist steðja að.
i
KOMDU
SKOÐAÐU
OGREYNDU
nýju 4ra gíra etíavélina
Husqvarna
Gunnar Ásgeirsson hf.
G\ Suöurlandsbraut 16 Simi 9135200 Akurvík, Akureyri
SMITWELD
seturgæöin áoddinn
Rafsuðuvír- Rafsuðuvélar
Rafsuðumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. (yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evrópu er frá SMITWELD.
Sannar það eitt gæði hans.
SINDRA
Við höfum fyrirliggjandi í birgðastöð
okkar allar algengustu gerðir
SMITWELDS rafsuðuvírs og
pöntum vír fyrir sérstök verkefni.
Seljum.einnig:
SMITWELD RAFSUÐUVÉLAR
OG ÁHÖLD
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
ÞVÍ EKKI AÐ REYNA?
STALHF
PÓSTHÓLF 881, BORGARTÚNI 31, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 27222 & 21684
F Hann Dúddi er fluttur i Xj\
Dúddi hárgreiðslumeistari er fluttur frá Suðurlandsbraut 10 að Hótel Esju. ^ ^ Idttcl