Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1982
41
fclk í
fréttum
Vill ekki taka peningana sína
meö sér yfir í næsta iíf
+ Haustið 1974 byrjaði milljóna-
mæringurinn Douglas McMinn að
gefa milljónirnar sínar. Hann
seldi fjögurra milljóna punda
fyrirtæki sitt og deildi stórum
hluta peninganna milli starfs-
fólksins. Einnig byggði hann
miðstöð fyrir gamalt fólk og
blinda og styrkti spítala sem átti
að fara að loka.
„Ég hefði getað keypt mér
skemmtisnekkju áður fyrr, en ég
er ekki sú manngerð. Peningar eru
mér ekki mikilvægir. Ég kom alls-
laus í þennan heim, og ég ætla út
úr honum allslaus," segir Douglas
McMinn. „Enn þann dag í dag set-
ur það mig úr jafnvægi að hugsa
um hve ég var alltaf hungraður
sem krakki. Ég átti ekkert."
Douglas McMinn vill fara út úr
heiminum eins og hann kom í
hann.
Douglas McMinn og hundurinn hans.
+ Jóhannes Páll páfi II talar við þrjú börn klædd
í pólska þjóðbúninga á sunnudaginn var, í Krist-
alshöllinni í London, þar sem hann messaði yfir
u.þ.b. 20 þúsund Pólverjum sem búa í Bretlandi.
Nýr formaður Amerísk-
skandinavíska félagsins
+ Dr. Patricia McFate, fræðikona og fyrrverandi
stjórnarmeðlimur í National Endowment for the
Humanities (NEH) tók við stöðu formanns Amer-
ísk-skandinavíska-félagsins (ASF), þann 13. maí síð-
astliðinn, og er hún fyrsta konan sem innir þetta
starf af hendi.
Dr. Patricia lauk BA-prófi í leikhús- og sjón-
varpsfræðum, og meistaragráðu og doktorsgráðu í
enskum og irskum bókmenntum. Að auki liggja eftir
hana nokkrar bækur.
COSPER
Eigum viö að kaupa nokkra mjólk í dag?
+ Bill Fawcett, einn af þeim
sem fann upp Falklandseyja-
stríðsleikinn hvílir sig milli ten-
ingskasta í Chicago. Fawcett seg-
ist hafa fundið leikinn upp þegar
hann sat í rólegheitum yfir vín-
giasi. Falklandseyjastríðsleikur-
inn cr leikinn á hemaðarkorti af
Suður-Atlantshafinu.
BENIDORM
BEINT
LEIGUFLUG
GÓDIR
GISTLSTAÐIR
BROTTFARARDAGAR:
23/6, 14/7, 4/8, 25/8, 15/9
ATH.: OKKAR VERÐ
FLYMOGLE-S
Fljúgandi furðuhlutur eða hvað?
1. Flymo GLE-S er lauflétt loftpúðasláttuvél búin 1400w rafmótor
(fæst einnig með bensínmótor).
2. Flymo GLE-S slær í aUar áttir undir þinni stjóm, jafnt hóvaxið
gras sem lácrvaxið, blautt eða þurrt.
3. Flymo GLE-S slær kanta og toppa milli garðheUnanna eins og
ekkert sé og smýgur undir runna og tré án þess að skilja eftir
sig sár.
4. Flymo GLE-S er jafn auðveld í garðinum eins og ryksuga innan
dyra því hún er með rafmagnstengingu sem hægt er að fram-
lengja.
5. Flymo GLE-S er öflugasta rafmagnssláttuvéhn á markaðnum.
6. Flymo GLE-S tekur sama og ekkert pláss í geymslunni þvíþú
leggur handfangið alveg saman.
7. Flymo GLE-S hefur marga fleiri kosti. Líttu inn á næsta útsölu-
stað og kynntu þér þá.
8. Flymo GLE-S kostar aðeins kr. 2.750. - (gengi 1.5.82).
FLYMO - Er það nokkur spurning?
B.B.BYGGINGAVÖRUR HE
SUOURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331.