Morgunblaðið - 08.06.1982, Blaðsíða 38
46
Stjórnmálaályktun
Heimdallar:
Sjálfstæðis-
stefnan ein
er fær um að
tryggja endur-
uppbyggingu
EFTIRFARANDI stjórn-
málaályktun var samþykkt á
aðalfundi Heimdallar:
Aðalfundur Heimdallar, hald-
inn 6. júní 1982, bendir á að sigur
Sjálfstæðisflokksins í sveitar-
stjórnarkosningunum 22. maí sl.
sýnir hvers hann er megnugur,
standi sjálfstæðismenn saman um
sjálfstæðisstefnuna, sem ein er
fær um að tryggja kröftuga
enduruppbyggingu islensks þjóð-
félags.
Sigur Sjálfstæðisflokksins í
sveitarstjórnarkosningunum
ítrekar enn frekar mikilvægi þess
að þingmenn flokksins standi á ný
sameinaðir á Alþingi íslendinga.
Aðeins með þeim hætti getur unn-
ist sá sigur í alþingiskosningum er
sjálfstæðisfólk væntir og þjóðin
þarfnast.
Oðaverðbólga og vinnudeilur
hafa einkennt íslenskt þjóðfélag
síðustu ár. Úrræðalausar ríkis-
stjórnir hafa rekið vandann á
undan sér, og nú er svo komið að
fyrirtæki í iðnaði og við sjávarút-
veg telja hvern dag sinn síðasta,
og stór hópur launþega á í erfið-
leikum með að sjá sér og sínum
farborða. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur mótað ítarlega stefnu til
lausnar verðbólguvandanum og til
uppbyggingar í íslensku atvinnu-
lífi. Sjálfstæðisfólk biður nú að-
eins um umboð til þess að sýna
hvernig leysa megi íslenskt efna-
hags- og atvinnulíf út úr víta-
hringnum.
Alþingiskosningar geta orðið
fyrr en varir. Óvissa um langlífi
ríkisstjórna og um aðgerðir gegn
aðsteðjandi vanda, hefur jafnan
einkennt samsteypustjórnir
vinstri manna. Skattar hækka og
framtak einstaklinganna er drepið
í dróma, sem að lokum leiðir til
þess að stjórnmálaáhugi almenn-
ings minnkar, stöðnum og sjálf-
virkar bráðabirgðaúrlausnir skrif-
finskubáknsins taka við. Eina
leiðin út úr ógöngunum er aukinn
stuðningur við Sjálfstæðisflokk-
inn, flokk mannúðarstefnu, ein-
staklingsfreisis og markvissrar
atvinnuuppbyggingar.
Heimdaliur ítrekar mikilvægi
þess að íslendingar tryggi áfram
öryggi sitt með varnasamstarfi
við aðrar vestrænar þjóðir. Allir
landsmenn hljóta að vilja stuðla
að friði í heiminum. Slíkt verður
best gert með sterku varnar-
bandalagi vestrænna þjóða á með-
an kommúnistaríki hafa þá yfir-
lýstu stefnu að ná heimsyfirráðum
með einum eða öðru hætti og á
meðan þau sýna hvergi tilslökun í
vígbúnaðaruppbyggingu. Því ber
frjálsum einstaklingum að and-
mæla og berjast gegn gerræðis-
stefnu þessara ríkja. Frelsi ein-
staklinganna til orðs og æðis, hvar
sem þeir búa í heiminum, er und-
irstaða þess að varanlegur friður
komist á.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
Ljósm. RAX.
Hér er allur hópurinn ásamt tveim fyrrverandi fegurðardrottningum, tem sáu um krýninguna. Frá vinatri: Unnur Steinson, sem kosin var
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar fyrir tveimur árum sfðan. Þá María Björk Sverrisdóttir, Guðrún Margrét Sólónsdóttir, Hildigunnur Hilmars-
dóttir, Kolbrún Anna Jónsdóttir, Fanndís Steinsdóttir og Elísabet Traustadóttir. Fyrir framan þ»r situr svo Guörún Möller.
Þar féllu mörg gleðitár
Sagt frá úrslitum í fegurðarsamkeppni
íslands og rætt við fegurðardrottningu
ísland 1982, Guðrúnu Möller
„Dómnefndin hefur lokiö störfum sínum, og
viö munum nú kynna úrslit í Fegurðarsamkeppni
íslands, tilkynnti Heiöar Jónsson, sem var kynnir
á Broadway á sunnudagskvöldiö, þegar valdir
voru fulltrúar íslands til aö taka þátt í hinum
ýmsu feguröarsamkeppnum vítt og breitt um
heiminn. Klukkan var 12 á miðnætti, þegar úrslit-
in voru kynnt og mikil spenna var í loftinu, en
gestirnir höfðu tekiö þátt í atkvæðagreiðslunni.
Sex stúlkur tóku þátt i
keppninni og hver af annarri
voru þær kallaðar fram þang-
aö til sú hlutskarpasta var orö-
in ein eftir, en það varð Guð-
rún Möller, 18 ára gömul
reykvísk stúlka. Hlaut hún titil-
inn fegurðardrottning íslands
fyrir árið 1982 og réttinn til að
keppa um titilinn Miss Uni-
verse, en sú keppni mun fara
fram í Perú. Einnig mun hún
taka þátt í keppni um titilinn
Ungfrú Skandinavía. Guðrún
var jafnframt kjörin Ijósmynda-
fyrirsæta ársins, en aö því vali
stóðu Ijósmyndarar dag-
blaðanna.
Fegurðardrottning Fleykja-
víkur var kjörin Fanndís
Steinsdóttir, hlaut hún réttinn
til aö keppa um titilinn Miss
World en sú keppni fer fram í
London.
Kolbrúri Anna Jónsdóttir var
svo kosin fulltrúi ungu kyn-
slóðarlnnar og mun taka þátt í
keppnl um titilinn Miss Young
International, sem fram fer í
Manilla á Filippseyjum.
Fleiri fulltrúar íslands munu
keppa erlendis. María Björk
Sverrisdóttir mun fara til Jap-
ans og keppa um titilinn Miss
International. Hildigunnur
Hilmarsdóttir fer á keppnina
um titilinn Ungfrú Skandinavía.
Guðrún Sólonsdóttir verður
fulltrúi íslands I Miss Nations
keppninni, sem mun fara fram
í Marokkó. Guðrún var einnig
kosin vinsælasta stúlkan í
hópnum af stallsystrum sínum
í keppninni og hlaut því titilinn
Ungfrú Vinátta.
Það var margt um manninn
á Broadway þetta sunnu-
dagskvöld og stúlkunum var
vel fagnað. Við ræddum við
Guðrúnu Möller, en eins og
sönnum fegurðardrottningum
sæmir, þá felldi hún gleðitár
um leið og úrslitin voru kynnt.
Spurðum við hana fyrst hvort
þetta hefði komið henni mjög
á óvart.
„Ég ætlaði varla að trúa
þessu, en auðvitaö finnst mér
þessi úrslit ósköp ánægjuleg
og var ég hrærð yfir undirtekt-
um fólksins í salnum."
Hvers vegna ákvaöst þú aö
fara í fegurðarsamkeppnina?
18 ára gömul reykviak stulka,
Guórún Möller var kosin Feg-
uröardrottning fslands.
„Ég var beðin um það og
töluvert ýtt á eftir mér. Einnig
hef ég gaman af fyrirsætu-
störfum. Ég hef veriö í Módel-
samtökunum undanfarin 4 ár,
en keppni á erlendri grund
getur veitt ýmis tækifæri í
þeim efnurn."
Fannst þér ekkert erfitt að
taka þátt í keppni sem þess-
ari?
„Nei, ekki svo mjög, loka-
stundin og spennan, sem
fylgdi henni, var einna erfiöust.
Það hjálpaði mér mikið að ég
er vön að koma fram og því
laus viö sviösskrekk, sem háir
mörgum.“
Hvaða ávinning finnst þér
þú hafa af því aö taka þátt í
keppni sem þessari?
„Þetta býður upp á
skemmtilega hluti eins og
ferðalög og kynni við ágætt
fólk.“
Finnst þér feguröarsam-
keppni í því formi, sem tíðkast,
ekki stinga í stúf viö þá um-
ræðu, sem hefur átt sér stað
um stöðu konunnar á undan-
förnum árum?
„Nei, alls ekki. Hér er um að
ræða gott tækifæri fyrir stúlk-
ur sem hafa áhuga á Ijós-
myndafyrirsætustörfum og vit-
um viö að margar íslenskar
stúlkur, sem tekið hafa þátt í
fegurðarsamkeppni erlendis,
hafa öðlast tækifæri, sem þær
hefðu annars aldrei fengið.“
Guörún Möller er dóttir
hjónanna Berta (söngvara)
Möller, lögregluþjóns, og Erlu
Möller. Hún lauk verslunar-
skólaprófi í vor og hefur því
tækifæri til aö gera hlé á nám-
inu og halda því áfram seinna,
eins og hún orðar þaö sjálf.
En hvað er framundan?
„Ég mun taka þátt í keppn-
inni Miss Universe í Perú, lík-
lega í lok þessa mánaöar.
Annars fer ég í viðræöur við
forstöðumenn keppninnar á
morgun og þá skýrast málin
betur," sagði hin nýkrýnda
fegurðardrottning íslands,
Guörún Möller.
Elísabet Traustadóttir aam boriö hafur titilinn Faguröardrottning
íalanda undanfarin tvö ór, krýndi Guórúnu Möllar og hér fagna þær
stöllur aigri. Hjé þaim stendur Kolbrún Anna Jónsdóttir, sam kosin
var Fulltrúi ungu kynslóöarinnar.