Morgunblaðið - 08.06.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
47
„Yrði til þess að glæða þjóð-
hátíðarhöldin auknu inntaki“
Kvennaframboð og Alþýðubandalag hlynnt
samkomu herstöðvaandstæðinga 17. júní
Á FUNDI borgarráðs þann 1. júní sl. var lagt fram bréf frá
Samtökum herstöðvaandstæðinga, þar sem þess var farið á
leit við borgaryfirvöld, að heimiluð yrði útisamkoma á vegum
samtakanna á þjóöhátíðardaginn, 17. júní.
Á fundinum voru kynnt drög að
bréfi borgarstjóra til samtakanna
og samþykkti borgarráð bréfið
með 3 atkvæðum gegn 2. Borgar-
ráðsmenn Sjálfstæðisflokksins
greiddu atkvæði með, en Sigurjón
Pétursson, fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir greiddu atkvæði á móti. Á
fundinum lagði Sigurjón fram
bókun, sem Ingibjörg Sólrún lýsti
sig samþykka, en í bókuninni segir
að sjálfsagt sé að heimila Samtök-
um herstöðvaandstæðinga afnot
af einhverju grænu svæði borgar-
innar þann 17. júní. „Slíkt yrði til
þess að glæða þjóðhátíðarhöldin
auknu inntaki að mínu rnati," seg-
ir í bókuninni.
í bréfi borgarstjóra til samtak-
anna kemur m.a. fram að almennt
væru ekki gerðar athugasemdir af
hálfu borgaryfirvalda við funda-
höld undir berum himni. Kunnugt
sé að Reykjavíkurborg gangist
fyrir umfangsmiklum hátíðar-
höldum fyrir alla borgarbúa á
þjóðhátíðardaginn. Ekki þyki rétt
að leggja bann við útifundarhöld-
um annarra aðila á útivistarsvæð-
um borgarinnar, en til þess sé
mælst að samkomuhald her-
stöðvaandstæðinga verði ekki lát-
ið bera upp á 17. júní.
Rúben trúður kom í fyrsta sinn fram í Norræna húsinu á sunnudaginn var, en á
morgun, miðvikudag, hefst sirkusskóli hans. Sirkusskólinn fer þannig fram að
börn sem þar taka þátt koma í Norræna húsið kl. 15 og velja sér hlutverk.
Ilndirbúningsvinna stendur til kl. 17, en kl. 17.30 hefst sirkussýning fyrir foreldra
og aðra sem áhuga hafa á að fylgjast með því sem fram fer. Skólahaldiö verður
endurtekið með sama hætti á fimmtudag. A laugardaginn verður svo sirkussýning
þar sem Rúben leikur listir sínar fyrir gesti og gangandi. Myndin hér aö ofan var
tekin á sýningu Rúbens í Norræna húsinu sl. sunnudag. k«.
Helgarskákmót
á Hvolsvelli:
Jóhann Hjart-
arson bar
sigur úr býtum
FIMMTÁNDA Helgarskák-
mót tímaritsins Skákar og
Skáksambands Islands fór
fram á Hvolsvelli um síðustu
helgi og bar Jóhann Hjart-
arson sigur úr býtum. Hlaut
hann 8 vinninga af 9 mögu-
legum. 1 öðru sæti varð Jón
L. Árnason með 7,5 vinninga
og jafnir í 3.-4. sæti voru Jó-
hannes Gísli Jónsson og Karl
Uorsteins. Verðlaun voru
5000 krónur fyrir fyrsta sæti,
3000 fyrir annað sæti og 2000
fyrir það þriöja.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Jóhanni
Þóri Jónssyni, ritstjóra Skákar,
var teflt í nýju bókasafni á
Hvolsvelli og sagði hann að allar
aðstæður hefðu verið mjög góðar.
35 keppendur tóku þátt í mótinu
og sagði Jóhann að þetta væri
jafnsterkasta Helgarskákmótið
sem haldið hefði verið.
Hlutskörpust í kvennaflokki var
Sigurlaug Friðþjófsdóttir, skák-
meistari Norðurlanda, en í „Old
boys“-flokki varð Halldór Karls-
son efstur. í unglingaflokki urðu
tveir keppendur efstir og jafnir,
Tómas Björnsson og Davíð Ólafs-
son.
Þrír menn voru heiðraðir á mót-
inu fyrir vel unnin störf í þágu
skáklistar í Rangárvallasýslu, en
þeir eru Snorri Þorvaldssoji,
Snorri Ólafsson og Stefán Jónas-
son.
Aukaverðlaun voru veitt fyrir
besta árangur á fimm síðustu
mótum, en verðlaun þessi eru
15.000 krónur. Helgi Ólafsson
vann til þeirra og er þetta í þriðja
skiptið sem hann hlýtur aukaverð-
laun fyrir árangur sinn á Helg-
arskákmótum. Helgi var búinn að
vinna til þessara verðlauna áður
en mótið á Hvolsvelli fór fram.
Tímaritið Skák færði bókasafn-
inu, þar sem mótið fór fram, að
gjöf allar þær bækur sem Skák
hefur gefið út, en þær eru á milli
20 og 30 talsins.
Því nú er sumar — sumar
Umboðsmenn STÆí
um land allt
Þórthamar, Stykkiahólmí,
Eplið, ÍMtirði,
RAM, HÚMvík,
Skógar, Egilntöðum,
Báran, Grindavík,
Bakhútið, Hatnarfirði,
Eyjabaar, Veatmannaayjum,
ísbjörninn, Borgarneai,
LEA, Olatavik,
Patróna, Patrekatiröi,
Álfhóll, Siglufirði,
Palóma, Vopnafirði,
Auaturbær, Rayðarfirði,
Kauptélag Rangæinga,
Hvoltvelli,
Alþena, Blönduóti.