Morgunblaðið - 08.06.1982, Qupperneq 40
AUGLÝSINGASIMINN ER:
22480
JHvrgauiblabib
flfottttiiilifafeifr
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
|H*r0anitUbib
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1982
Englendingur beið
bana á Hólssandi
31 ÁRS gamall Knglendingur beið
bana í bílveltu á Hólssandi fyrir
austan Jökulsá á Fjölhim laust fyrir
klukkan 14 í gær.
Slysið átti sér stað skammt
fyrir austan brúna yfir Hólssels-
kíl, skammt frá bænum Hólsseli.
Fimm Englendingar voru í Range
Rover-jeppabifreið og mun öku-
maður bifreiðarinnar hafa misst
stjórn á henni í lausamöl með
Austlæga átt-
in kólnandi
— Þessum hlýindum valda
leifar af hitabylgju, sem gengið
hefur yfir Evrópu, en hins vegar
er þetU ekkert óvenjulegt veð-
urlag, kannski óvenju hlýtt, en
viðbrigðin eru auðviUð mikil,
sagði Trausti Jónsson veður-
fræðingur er Mbl. ræddi við
hann á Veðurstofu íslands í
gær.
Trausti Jónsson sagði að
hiti um helgina hefði víða ver-
ið í um 20 stigum á Norðaust-
urlandi, en svalt hefði verið
með ströndum. í gær var víða
þokuloft og svalt Norðanlands
og vestan, en hlýrra í inn-
sveitum. Þannig var hiti um 3
stig á Hornbjargsvita og 4 á
Raufarhöfn, komst í 15 stig í
Reykjavík í hádeginu, en féll
skömmu síðar niður í 12 stig,
hiti var 19 stig á Eyvindará,
17 á Grímsstöðum og 18 á
Síðumúla.
Ekki er gert ráð fyrir örum
breytingum í dag, en hæð yfir
Grænlandi er vaxandi og helst
má vænta kólnandi veðurs
norðanlands og lítilsháttar
úrkomu suðaustanlands, en
austlæga áttin verður áfram
ríkjandi.
þeim afleiðingum, að hún valt eina
veltu.
Hinn látni, sem var farþegi í
aftursæti, kastaðist út úr bifreið-
inni og lenti undir henni. Hinir
fjórir voru fluttir í sjúkrahúsið á
Húsavík, en enginn þeirra slasað-
ist aivarlega. Mennirnir voru á
leið úr Mývatnssveit í Ásbyrgi.
Þeir komu hingað til lands fyrir
nokkrum dögum. Range Roverinn
er gjörónýtur eftir veltuna.
Mínútan í
9.900 kr.
GJALDSKRÁ auglýsinga útvarps og
sjónvarps hækkuðu um mánaða-
mótin um sem svarar 20%.
Hvert orð í útvarpi kostar nú
frá 13 kr. upp í 52 kr. eftir flokk-
um. 7 sek. í sjónvarpi kosta eftir
hækkunina 1.800 kr. og 60 sek.
9.900 kr.
Flokkur 1 í auglýsingatíma út-
varps hækkaði úr 11 kr. í 13 kr.
hvert orð, flokkur 2 úr 18 kr. í 21
kr., flokkur 3 úr 22 kr. í 26 kr. og
flokkur 4 úr 44 kr. í 52 kr.
I sjónvarpi er verðskráin miðuð
við sekúndufjölda í útsendingu og
er gjaldskráin miðuð við 7 sek. og
upp í 60. 7 sek. kostuðu áður 1.500
kr. en kosta nú 1.800 kr. 60 sek.
hækkuðu úr 8.250 kr. í 9.900 kr.
Einstök veðurblíða setti svip á hátíðahöld sjómannadagsins um allt land.
Margt var sér til gamans gert og brugðu ungir jafnt sem eldri á leik.
Meðfylgjandi mynd tók Ragnar Axelsson í Nauthólsvík á sjómannadaginn.
Sjá nánar á miöopnu.
„Þú
aftur“
Lenti í árekstri við
lögreglubifhjól í
gær og á sunnudag
við sjúkrabifreið
Lögreglumaður á bifhjóli
var fluttur í slysadeild eftir
árekstur viö Lada-jeppa á
gatnamótum Suðurlands-
brautar og Vegmúla um
klukkan níu í gærmorgun.
Meiðsli hans reyndust ekki
alvarleg.
Tildrög slyssins voru þau, að
ökumaður Lada-jeppans ók
norður Vegmúla og beygði inn á
Suðurlandsbraut til vesturs.
Hann hugðist aka að húsagöt-
unni við Suðurlandsbraut og var
á öfugum vegarhelmingi þegar
slysið átti ser stað.
„Þú aftur,“ varð lögreglu-
manni að orði þegar hann kom á
slysstað, því daginn áður hafði
ökumaður Lada-jeppans lent í
árekstri við sjúkrabíl.
Sá árekstur varð á Kringlu-
mýrarbraut og mun ökumaður
Lada-bifreiðarinnar hafa ekið
fyrir sjúkrabifreiðina, þegar
hún var að fara framúr.
Allt steíhir 1 verkföll á
fimmtudag og föstudag
Deilan hefur harðnað undir þaö síðasta, en samn-
inganefndir ASÍ og VSÍ eru boðaðar til fundar í dag
ALLAR líkur benda nú til þess, að til
tveggja daga verkfalls flestra verka-
lýðsfélaga innan ASÍ komi 10.—11.
júní n.k., en innan ASÍ eru liðlega 60
þúsund félagar. — Það hefur ekkert
þokazt í samkomulagsátt á fundum
aðila síðustu daga og má segja, að
málið sé í hnút, sagði Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, í
samtali við Mbl. Samninganefndir
ASÍ og VSÍ hafa verið boðaðar til
fundar í dag klukkan 14.00, en litlar
líkur eru taldar á neinni hreyfingu.
Vinnuveitendamsambandið lýsti
sig reiðubúið fyrir helgina, að ræða
um ákveðna heildarlausn mála, en
skilyrði fyrir slíkri Iausn var sú, að
öll aðildarsambönd Alþýðusam-
bandsins væru inni í myndinni. Það
var hins vegar ljóst, að Rafiðnaðar-
samband Islands og byggingar-
menn voru ekki tilbúnir, að gang-
ast inn á þá lausn mála, en full-
trúar þeirra voru boðaðir til fundar
hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi
til að ræða málin.
Forystumenn Alþýðusambands-
ins komu því á framfæri við vinnu-,
veitendur á óformlegum fundum
aðila fyrir helgina, að þeir væru til
viðræðu um lausn málsins, sem
gerði ráð fyrir 4% grunnkaups-
hækkun á alla línu, auk ýmiskonar
leiðréttinga. Vinnuveitendur lýstu
því hins vegar yfir, að þessar
hugmyndir ASÍ-manna væru mun
hærri, en þeir gætu fallizt á.
Alla helgina þokaðist því ekkert í
samkomulagsátt með aöilum og að
„Þorskkropp á Halanum“
Talstödvarrabb við Guðjón Kristjánsson,
skipstjóra á Páli Pálssyni frá Hnífsdal
„ÞAÐ er eitthvað af þorski að
koma á miðin; það hefur verið
þorskkropp á Halanum og vestur
úr — þetta 3—4 tonn í hali og um
15 tonn af þorski á dag. En það er
ekkert nýtt að þorskur sé ekki á
miðunum í maí. Þorskur hefur
komið í byrjun júní og sú held ég
sé raunin nú,“ sagði Guðjón
Kristjánsson, skipstjóri á togaran-
um Páli Pálssyni frá Hnífsdal í
talstöðvarrabbi við Mbl., en þá var
togarinn á útleið eftir að hafa farið
inn um helgina. Strekkingsvindur
var af norðaustan en ekki mikill
sjór.
„Þorskurinn hefur verið
óvenju horaður; afleiðing þess að
lítið hefur verið um æti í haust
og vetur og hrygningin hefur
gengið nærri fiskinum; — hefur
komið eins og þvengur til baka.
Við getum ekki sótt fisk annað
yfir veturna og svo kveina menn
þegar afli kemur ekki í land.
Þorskurinn hagar sér ekki eftír
einhverri pöntun; þó hann hafi
verið á miðunum hér í fyrra, þá
þarf svo ekki að vera í ár. Togur-
unum er bannað að sækja hann
þar sem hann er. Húnaflói hefur
verið lokaður togurum síðan
1976. Við tókum um 700 tonn á
ári þar fyrir lokun. Gátum hafið
veiðar þar snemma vors. En
svæðunum var lokað og þrátt
fyrir að fiskifræðingar og aðrir
hafi mælt með opnun hefur
báknið í Reykjavík ekki séð
ástæðu til þess að opna það,“
sagði Guðjón. Hann sagði að
Páll Pálsson hefði veitt um 2200
tonn frá áramótum; um 900 tonn
af grálúðu, um 200 tonn af karfa
og um 900 tonn af þorski en
minna af öðrum tegundum.
sögn verkalýðsforingja, sem Mbl.
ræddi við í gærdag hefur deilan
heldur harðnað undir það allra síð-
asta. — Málið er í einum allsherj-
ar hnút og það er alveg ljóst, að
mikil breyting verður að verða á
afstöðu manna, ef á að takast að
afstýra fyrirhuguðu tveggja daga
verkfalli flestra aðildarfélaga ASÍ
10.—11. júní nk., sagði einn af for-
ystumönnum Alþýðusambandsins í
samtali við Mbl. Annar forystu-
maður í verkalýðshreyfingunni,
sagði alveg ljóst, að hugmynd
Vinnuveitendasambandsins um
allsherjarlausn mála, væri alveg út
úr myndinni, í því formi, sem hún
var kynnt. Hún væri háð slíkum
skilyrðum, að vonlaust væri að fall-
ast á þau, en m.a. væri gert ráð
fyrir því, að öll verkalýðsfélög með
lausa samninga yrðu með í mynd-
inni. Vinnuveitendur benda aftur á
móti á, að þeir geti alls ekki litið á
það sem neina lausn, ef aðeins hluti
verkalýðsfélaga verður inni í
myndinni.
Áhrif fyrirhugaðra verkfalla
10.—11. júní n.k. eru nokkuð mis-
munandi. Má nefna, að allt innan-
landsflug flugfélaganna mun
stöðvast, en hins vegar verður
millilandaflug væntanlega með
eðlilegum hætti, þar sem verka-
Iýðsfélögin á Suðurnesjum taka
ekki þátt í væntanlegu tveggja
daga verkfalli, en hafa hins vegar
boðað allsherjarverkfall frá og með
21. júní n.k. hafi samningar ekki
tekizt. Þá fengust þær upplýsingar
hjá skipafélögunum, að verkfall
myndi ekki hafa teljandi áhrif á
starfsemi þeirra. Áætlun skipanna
yrði hagað í samræmi við aðstæð-