Morgunblaðið - 05.08.1982, Side 3

Morgunblaðið - 05.08.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982 3 Karl á góða möguleika á að ná áfanga að Fide-meist- aratitli „ÉG GERÐI jafntcfli vió Nnrgard í áttundu umferóinni og ef ég næ jafn- tefli í síðustu umferðinni á morgun, næ ég áfanga að Fide-meistaratitli“, sagði Karl Þorsteins í samtali við Morgunblaðið, en hann teflir ásamt þeim Elvari Guðmundssyni og Stef- áni Þórissyni á skákmóti í Noregi, sem haldið er fyrir skákmenn sem eru 26 ára og yngri. í áttundu og næstsíðustu um- ferðinni vann Stefán sína skák gegn Einari Gauksel frá Noregi og er því með tvo vinninga. Elvar gerði jafntefli við Fide-meistar- ann Hakke frá Finnlandi og er með fjóra vinninga. Karl er nú í áttunda sæti eftir jafnteflið við Norgard, með fjóran og hálfan vinning og biðskák, sem að hans sögn á að vera unnin. Cudrin, sem var efstur fyrir átt- undu umferðina, tapaði fyrir Pis- dall, en þar með er Pisdall orðinn efstur með sex og hálfan vinning. Cudrin og Defirmian eru í öðru sæti með sex vinninga. Það eru því Bandaríkjamenn í þremur efstu sætunum. Karl kvað aðstöðuna á mótinu vera eins og best yrði á kosið og veðrið í Lillehammer mjög gott. Síðasta umferðin verður tefld í dag, en að því loknu taka þeir Karl og Elvar ásamt Jóni L. Árnasyni og Inga R. Jóhannssyni þátt í al- þjóðlegu móti, sem haldið verður á sama stað, en það er nokkru sterkara en það mót, sem þeir ljúka þátttöku í í dag. Margeir varð í 2. til 3. sæti MARGEIR Pétursson varð í öðru til þriðja sæti á alþjóðlega skákmótinu sem lauk í Kaupmannahöfn í gær. Margeir sem kominn var með sex vinninga tapaði í síðustu umferðinni fyrir alþjóðameistaranum Carsten Höi frá Danmörku. Við sigurinn gegn Margeiri hreppti Carsten Höi efsta sætið á mótinu, en hafði lengi framan af verið að baki efstu manna. Vinn- ingur í þremur síðustu skákum sín- um nægði honum til sigurs, en hann var jafnframt eini keppand- inn sem tapaði ekki skák á mótinu. Tveir keppendur náðu áfanga að al- þjóðlegum Fide-meistaratitli, þeir Niels Jörgen Fries Nielsen frá Danmörku og Van Mil frá Hol- landi. Lokastaðan á mótinu varð þessi: Carsten Höi með 6'A vinning af 9 mögulegum. 2.-3. Margeir Pét- ursson og Kozlof frá Sovétríkjun- um með 6 vinninga. 4.—5. Scheer- en, Hollandi, og Brinck-Claussen, Danmörku með 5V4 vinning. 6.-7. Niels Jörgen Fries Nielsen, Dan- mörku, og Van Mil, Hollandi, með 4‘/i vinning. 8.-9. Eric Bröndum, Danmörku og Arsenjev frá Sovét- ríkjunum með 2V4 vinning. Grafreitur fyrir gæludýr á Akureyri Dýraverndunarfélag Akureyrar hefur nú um nokkurt skeið leitað eftir því hjá bæjaryfirvöidum að fá landspildu undir dýragrafreit. Hef- ur málaleitan þessi nú fengið hljómgrunn og er málið að komast á lokastig. Þetta kemur fram í Akureyrarblaðinu Degi. í blaðinu segir að nokkur kostnaður sé því samfara að koma upp þessum grafreit fyrir gæludýr Akureyringa og hafi fé- lagið ákveðið að halda flóamark- að til þess m.a. að afla fjár til þessara framkvæmda. Skv. upplýsingum Mbl. hefur garðyrkjuráðunaut bæjarins verið falið að finna hentugan stað fyrir grafreitinn. stendur sem hæst í 6 verzlunum. Geysilegt vöruúrval. 10% afsláttur af vörum senn eru eldcí á útsölunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.