Morgunblaðið - 05.08.1982, Side 17

Morgunblaðið - 05.08.1982, Side 17
 il i — MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982 17 Málþing á Kjarvalsstöðum: Erum viö á réttri leið? í SAMBANDI við sýninguna sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum verð- ur efnt til málþings í kvöld. Verður þar rædd spurningin: Erum við á réttri leið? Málshefjandi verður Eggert Ásgeirsson. Er þess að vænta að margir vilji koma til að láta í Ijós skoðanir sínar og hlusta á hvað aðrir hafi til málanna að leggja. I fyrri viku voru tvö málþing. Á hinu fyrra skýrði Ólafur Ólafsson landlæknir frá því að meðalævi íslendinga hefði lengst mjög verulega alveg á síðustu ár- um þannig að nú væri hún senni- lega orðin lengst í heiminum. Þessi lenging er að langmestu vegna verulega lækkaðrar dánar- tíðni í aldursflokkunum 65 ára og eldri. Má rekja þessa lækkuðu dánar- tölu að nokkru leyti til bættrar heilbrigðisþjónustu, leitarþjón- ustu, minni tóbaksreykinga og bættrar öldrunarþjónustu. Land- læknir taldi þó að miklar líkur bentu þó til þess að stórhækkaður ellilífeyrir aldraðra og gott efna- hagsástand í landinu eftir 1970 hafi aukið lífslengdina verulega. Hann taldi að erfitt væri að koma með óyggjandi sannanir í þessu máli og þyrfti að byggja á líkum. Vöktu þessar upplýsingar land- læknis mikla athygli fundar- manna og spunnust umræður mest um áhrif vinnu, starfsloka og fæðuvals á heilsufarið. í svörum landlæknis koma fram að skv. skýrslum Alþjóðavinnumálastofn- unarinnar væri vinnutímalengd hvergi meiri en hér nema í Hond- úras. Greinilegt væri að atvinnu- leysi hefur mjög slæm áhrif á heilsufar, dánartíðni væri hvað mest hjá öldruðum fyrsta árið eft- ir að fólk lætur af störfum. Sækir þá oft að þunglyndi og kvíði, sjálfsmorðum fjölgar. Það megi telja gott hér á landi hve fólk heldur lengi áfram störfum með einhverjum hætti. Það getur að vísu verið of mikið stundum. Hitt er og víst að það er ýmsum hættu- legt að setjast í helgan stein. Elli- lífeyrisþegar erlendis leituðu í vaxandi mæli eftir endurhæfingu. Hvaða ráð væru þeim gefin. Að hreyfa sig meira! Á síðara málþingi ræddi Stein- dór Steindórsson frá Hlöðum, fyrrum skólameistari um kyn- slóðabil. Vakti það að vonum áhuga manna hvaða skoðanir þessi reyndi skólamaður hefði á málinu. Verður fyrirlestur Steindórs birtur síðar hér í blaðinu. í um- ræðum var rætt um orsakir kyn- slóðabilsins, breytingar á húsnæð- Mikið pantað með Herjólfi á Þjóðhátíðina í Eyjum Miklar annir eru nú hjá Herjólfi í siglingum milli lands og Eyja í sambandi við þjóðhátíð Vestmannaeyja um næstu helgi. Er mikið búið að panta með skipinu til Eyja og fer það tvær ferðir á fimmtu- dag og föstudag með þjóðhá- tíðargesti. Upppantað er í klefa og mikið er búið að panta fyrir bíla, en pláss er laust í setusölum að sögn Ólafs Runólfssonar fram- kvæmdastjóra Herjólfs. isástandi og atvinnuháttum. Þá var rætt um hvaða áhrif aldurs- skipting skólakerfisins hefði. Þá var það enn rætt sem verið hefur til umræðu á fyrri málþingum að aldraðir hefðu sig of lítið í frammi um aðgerðir í eigin málum og með því að taka meiri þátt í uppeldis- málum yngstu kynslóðarinnar. (Fréttatilkynning.) Samtök áhugafólks um grjót- og torfhleóslu réðust í það verkefni að byrja að hlaða kot úr torfi á Árbæjarsafns- svæðinu yfir verslunar- mannahelgina. Eins og fram kom í viðtali við Tryggva Hansen í Morgunblaðinu á laug- ardag eru samtökin að horfast í augu við fá- tækraárin, en þau eru þeirrar skoðunar, að meira hafi verið um kot- búskap fyrr á öldum en margir hafa haldið hingað til. Sá er átti hugmyndina að hleðslu kotsins var Sveinn Ein- arsson, bóndi frá Hrjót, en samtökin hafa ákveðið að gefa Árbæjarsafninu kotið að verkinu loknu. Nýtt vídeótromp -C6 Enn einu sinni kemur X á óvart meö glæsilegu nýju myndsegulbandi sem fengiö hefur frábærar móttökur og var meöal annars valiö tæki mánaöarins í ágústhefti What Video r •• uÉalm .. j • . □ : «1 u O *; L * iHiVh. i mc 1 k 432 Frábært tæki á frábæru verði 16.650 st.gr. mest seldu Beta-tæki heims £5 Hafnargötu 38 Ksflavik - Siml 3883 JAPIS Brautarholti 2 Sími 27133 myndbandaleigan Barónsstíg 3 Nýja Beta myndbandaleigan býöur ykkur velkomin. Mikiö úrval af 1. flokks myndum, eingöngu í Beta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.