Morgunblaðið - 05.08.1982, Side 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982
Þorlákshöfn:
Egilsbúð vígð við hátíðlega athöfti
Hjónin Gunnar Markússon og Sigurlaug Stefánsdóttir, sem ráöin hafa verið
að Egilsbúó.
lH>rlák.shöfn, 3. ágúsl
Á FUNDI sínum hinn 5. apríl sl.
samþykkti hreppsnefnd Ölfushrepps
að heiðra minningu Egils Thoraren-
sen með því að sameina bókasafn og
minjanefnd Þorlákshafnar og koma
þannig upp í Þorlákshöfn vísi að al-
hliða menningarmiðstöð, er kennd
verði við hann og nefnd „Egilsbúð**.
„í helgri bók segir: „Verið minn-
ugir leiðtoga yðar.“ Það er varla
hægt að segja annað en að eftir
þessari ósk hafi verið farið þegar
Þorláksmessa á sumri, 20. júlí, var
notuð til þess að opna Egilsbúð.
Þorlákur — Egill. Tveir Rang-
æingar, sem skiluðu því ævistarfi í
Árnesþingi að ekki er hægt að
ganga fram hjá nöfnum þeirra
þegar saga þess er skráð. Hér í
Þorlákshöfn tvinnast nöfnin svo
saman, að þessi rúmlega 750 ár,
sem eru á milli þeirra eins og
hverfa og saman skila þeir okkur
hingað sem við nú stöndum. Um
heilagan Þorlák segir skáldið frá
Djúpalæk, sem fyrstur kenndi
börnum hér á staðnum: „Þíns
nafns hefir verstöð hér notið, þá
náð hefir Guð henni veitt."
Þessi verstöð var að koðna niður
og stórbýlið komið í eyði þegar
Egill sneri taflinu við og lagði
grunninn að Þorlákshöfn nútíðar
og framtíðar. Egill Thorarensen
er fæddur að Kirkjubæ á Rang-
árvöllum 7. janúar 1897.“
Þegar nafn Egils er nefnt kemur
mönnum fyrst í hug Kaupfélag
Árnesinga. Þar hélt hann um
stjórnartaumana og byggði upp
stórveldi, en hann gerði fleira,
hann átti þann draum að höfn risi
í Þorlákshöfn. Sá draumur rættist
og þar með var lagður grunnur að
framtíð Þorlákshafnar og hefur
staðurinn blómgast vel síðan.
„Það er svo sem engin heims-
reisa þó farið sé frá Kirkjubæ að
Sigtúnum, en ætli það sé ekki
óhætt að segja að Suðurland liti
öðruvísi út í dag, en það gerir, ef
sú ferð hefði aldrei verið farin eða
ef Agli hefði fundist hún of stutt."
Hér er ekki unnt að rekja sögu
Egils frekar þó vert væri.
Hver eru svo tildrögin að stofn-
un Egilsbúðar?
Frá því 1977 hafa almennings-
og skólabókasafn verið rekin sam-
eiginlega og haft eina stofu í skól-
anum til afnota. Nú voru þrengsli
orðin það mikil í skólanum að nota
þurfti þessa stofu að fullu fyrir
kennslu. Því var ákveðið að skilja
söfnin að og flytja almennings-
safnið í ágætis leiguhúsnæði að
Unubakka 4.
Hinn 26. febrúar 1980 sam-
þykkti hreppsnefndin að stofna
minjanefnd hér í Þorlákshöfn og
var henni ætlað að skrá og safna
sem flestum náttúru- og sögu-
minjum staðarins.
„Það er þessi nefnd og bóka-
safnið, sem mynda kjarnann í
Egilsbúð. Það skal tekið skýrt
fram að það var ekki verið að
reyna að hressa við tvær hálf-
dauðar stofnanir með því að sam-
eina þær.“
Árið 1965 var bókaeign safnsins
119 bindi, og það ár voru lánuð úr
safninu 242 bindi.
í dag er bókaeign safnsins lið-
lega 3.000 bindi og útlán á síðasta
ári milli 6 og 7 þúsund eða 6 til 7
bækur á hvern íbúa á árinu, sem
þýðir að safnið er í dag eitt af
fjórum mest notuðu kauptúna-
söfnum landsins.
Minjanefndin hefur aðeins
starfað í rúm tvö ár en hefur þó
látið skrásetja allar tegundir
jurta sem hér finnast. Hún hefur
fengið fræðimann til þess að taka
saman þætti úr sögu sveitabæjar-
ins í Þorlákshöfn og er það verk
vel á veg komið. Einnig hefur
nefndin safnað saman gögnum og
grafið upp landamerki.
í KVÖLD, fimmtudagskvöldió 5. ág-
úst, heldur prófessor Sigurður Þór-
arinsson fyrirlestur í Norræna hús-
inu um eldvirkni á íslandi. Fyrirlest-
urinn verður fluttur á sænsku.
Safnað hefur verið úrklippum
og tekin ljósrit af því sem ritað
hefur verið um Þorlákshöfn í
dagblöð. Til er allgott yfirlit yfir
sögu Söngfélagsins í máli og
myndum, en önnur félög eru óunn-
in þó mikið sé til af gögnum og
munum þar um. Lítilsháttar er til
af listaverkum og náttúrugripum,
en mjór er mikils vísir.
Þau hjónin, Gunnar Markússon
og Sigurlaug Stefánsdóttir, hafa
verið ráðin að Egilsbúð. Við höf-
um lengi notið krafta þeirra bæði
við bókasafn og minjanefnd og þar
hefur sérhlífnin ekki ráðið ríkjum
og ekki spurt um tíma eða peninga
þegar eitthvað hefur þurft að gera
enda áhuginn fyrir starfinu mik-
ill. Ég vil nota tækifærið og óska
þeim hjónum svo og öðrum Þor-
lákshafnarbúum til hamingju með
þennan áfanga og alls góðs í fram-
tíðinni.
I tilefni af vígslunni var boðið í
kaffisamsæti og voru þar mættir
um 50 gestir, ræður voru fluttar
og gjafir færðar. Jónas Ingimund-
arson píanóleikari lék nokkur lög.
I stjórn Egilsbúðar eru: Bene-
dikt Thorarensen, formaður,
Oddný Ríkharðsdóttir, Sigurður
Þorleifsson, Guðrún Karlsdóttir
og Páll Þórðarson.
Hluti þessarar fréttar er feng-
inn að láni úr ræðu Gunnars
Markússonar á hátíðinni og kann
ég honum bestu þakkir fyrir. til-
vitnanir eru innan gæsalappa.
J.H3.
Að loknu kaffihléi verður sýnd
kvikmyndin „Jörð úr Ægi“, sem
Ósvaldur Knudsen tók af Surts-
eyjargosinu. Kvikmyndin er sýnd
með enskum texta.
Fvrirlestur um eldvirkni
á íslandi í Norræna húsinu
VERÐIÐ
HJÁ OKKUR
ER
SKORIÐ
NIÐUR
*
Sjón er sögu ríkari.
STÓRÚTSÖLUMARKAÐURINN
Kjörgarði, Laugavegi 59, kjallara, sími 28640.
• Herrajakkar.
• Unglingapils.
• Sokkar.
• Náttföt og margt, margt fleira.
• Buxur á alla fjölskylduna.
• Herraskór.
• Skíðavesti.
• Peysur á alla, konur og karla.
• Bolir.
STÓR-
UTSÖLUMARKAÐURINN
KJÖRGARÐI