Morgunblaðið - 05.08.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.08.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1982 41 fclk f m fréttum Silvia vill eignast fjórða Æ barnið L. ^ Carl Gustaf Svíakonungur við guðsþjónustu ásamt börnum sín- um Victoriu og Carl Philip. Fjöl- skylduhamingjan geislar af þeim. Silvia drottning ófrísk að þriðja barni sínu. + Eins og allir vita er Silvia drottning af Svíþjóð búin að eignast þriðja barnið sitt, telpu sem var gefið nafnið Madeleine Therese Amelie Josephine. Voru Madeleine Therese Amelie Josephine umsvifalaust gefnir titlarnir hertogaynja af Hels- ingjalandi og hertogaynja af Gestrekalandi. En meðan að Silvia lá enn á sæng barst sú fregn frá Drottn- ingholmhöllinni að Silvia ætlaði að eignast fjórða barnið. Heimil- islæknir sænsku konungsfjöl- skyldunnar, Gunnar Bjoerck prófessor, varð uppnuminn af hrifningu. „Drottningin hefur nú þegar og á mjög marga vegu ver- ið til fyrirmyndar fyrir sænsku þjóðina. Og með þessu er hún það enn meira en áður,“ sagði Gunnar Bjoerck sem einnig situr á sænska þinginu. „Drottningin sýnir okkur hversu hamingju- samar barnmargar fjölskyldur eru.“ Og sænskum konum vildi þessi sómalæknir segja: „Eignist fleiri börn — eins og drottningin okkar.“ Svía þyrsti mjög í að vita hvemig stæði á þessu frekar óvenjulega nafni konungsdóttur- innar og voru ýmis ólík sjónar- mið uppi um þau mál. Silvia drottning gaf því eftirfarandi yf- irlýsingu: „Konungurinn og ég höldum mjög upp á nöfnin Madeleine og Therese. Við völd- um þessi nöfn vegna þess að þau hljóma svo fallega og gleðja eyr- að.“ Hitt er svo annað að hin franska drottning Óskars svía- konungs hét Josephine, en systir hans hét Amelie og giftist sú Dom Pedro keisara af Brasilíu. í þokkabót heitir svo dóttir bestu vinkonu Silviu drottningar frá Múnchen-dögum hennar, Rosi Mittermaier, líka Ámelie. Sænskir tölvufræðingar hafa fengið þær upplýsingar hjá tölv- um sínum að í Svíþjóð heita 6.008 konur Madeleine og 4.245 heita Therese. Litla prinsessan mun því eiga þó nokkrar nöfnur. Fröken Herdís. Ég banna yður að vera með tamda apann yðar meðan þér vinnið hér á fæðingardeildinni. Nenne Björneberg fóstra gætir konungsbarnanna. Lax - laxveiði - lax Nokkrir stangardagar lausir í Laxá í Kjós. Upplýsíngar í símum 21085 og 21388 kl. 9—17. Höganás H! Um frostþol flísa Vegna frostþenslu vatns er áríöandi að vatn smjúgi ekki inn í flísarnar. Frostþol flísa fer eftir hæfni þeirra aö hrinda frá sér vatni. Höganás flísar eru § framleiddar með þaö í huga. Sé réttur gæðaflokkur valinn eru eiginleikar Höganás flísanna ávallt jafn < góðir óháð lit, munstri eða áferð. Tæknimenn okkar veita allar upplýsingar. Hafið samband við sölu- deild. Höganás - fyrirmynd annarraflísa HÉÐINN SEUAVEGI 2, SÍMI 24260. ÚTSALA Sumarefni á útsölu Afsláttur frá 25=4 Bútar Búöirnar sími 86355.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.