Morgunblaðið - 07.09.1982, Side 41

Morgunblaðið - 07.09.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982 21 I IDrúltlr | Arnór valinn besti leikmaður helgarinnar í Belgíu — Magnús skoraði fyrir Tongaren ARNÓR Guðjohnsen gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Lokeren um helgina er liðið lék gegn Beer- chot á útivelli. Lcikur liðanna endaði með jafntefli, 2—2. Arnór fékk mjög lofsamleg ummæli í belgísku blöð- unum í gær og var þar valinn leik- maður umferðarinnar sera leikin var ura helgina og fær hæstu einkunn fyrir leik sinn. Er honum alls staðar hrósað mjög og sagt, að framfarir hans séu bæði ótvíræðar og mjög miklar. Fyrra mark Arnórs var stór- glæsilegt. Skoraði hann með hjól- hestaspyrnu frá vítateigshorninu. Síðara mark Arnórs var skorað með löngu skoti sem fór í boga yfir markvörðinn. En mikill snúningur var á boltanum. Magnús Bergs lék sinn fyrsta leik með Tongeren og fór vel af stað. Hann lék í stöðu miðherja og náði að skora eitt mark og fékk góða dóma fyrir leik sinn. Þeir Pétur Pétursson og Lárus Guð- mundsson áttu báðir góðan leik með liðum sínum, þó svo að þeim tækist ekki að skora mörk. Úrslit í leikjunum í Belgíu urðu þessi: Beveren — F(’ Liege 6—0 Beercbot — Lokeren 2—2 Tongeren — SUndard Liege 2—2 H Bnigetr — Wmregem 2—1 Anderlecbt — Winteralag 2—1 Seraing — Lierae 0—2 Waterarbei — RWD Wolenbeek I—t Kortrijk — SK Bruges rrestaA tibent — FC Antwerp 1—I Evrópumeistaramótiö í frjálsíþróttum í Aþenu: ítalinn Cova sigrar óvænt í 10 km hlaupi Evrópumeistaramótið í frjáls- íþróttum hófst í Aþenu í Grikklandi. Keppt er á nýjum og glæsilegum leikvangi þar í borg, og voru 80 þús- und manns viðstaddir setningarat- höfnina og íþróttakeppnina að henni lokinni í gær. Strax á fyrsta degi fór fram undankeppni í 100 og 800 metra hlaupum karla og kvenna, spjótkasti karla og langstökki kvenna, en úrslit fengust í tveimur greinum, 10 km hlaupi karla og kúluvarpi kvenna. Sigurvegari í 10 km hlaupi varð ítalinn Alberto Cova, sem er 23 ára, á 27:41,03 mín. Hann hefur náð góð- um árangri í langhlaupum siðustu tvö árin, en var þó ekki talinn sigur- stranglegur. Annar varð A-Þjóðverj- inn Werner Schildauer á 27:41,21 og þriðji Martti Vainio frá Finnlandi á 27:42,51. Stórhlauparinn Carlo Lop- ez frá Portúgal, sem setti Evrópumet í sumar og vann ólympíubronzverð- laun 1976 varð fjórði á 27:47,95 min. Gífurleg keppni var milli þessara fjögurra á síðasta hring. Fimmti var Bretinn Julian Goater á 28:10,98, ft- alinn Salvatore Antibo fimmti á 28:21,07 og Bretarnir Steve Jones og Charles Spedding sjöttu og sjöundu á 28:22,94 og 28:25,91 mín. Austur-þýzka kraftakonan Iliona Slupianek sigraði eins og vænta mátti í kúluvarpi, varpaði 21,59 metra, en hún er ólympiumeistari og heimsmetshafi í greininni. Önnur varð Helena Fibingerova frá Tékkó- slóvakiu með 20,94 og þriðja sov- ézka stúlkan Nunu Abashidze með 20,82 metra. Keppni á Evrópumeistaramótinu stendur fram á laugardag. Keppt verður til úrslita í dag í 100 metrum karla og kvenna, langstökki kvenna, spjótkasti karla og 20 kílómetra göngu. • Arnór Guðjohnaen á ná hvern stórleikinn af öðrum. og Jón áttu ekki möguleika „Þeir Jón og Einar áttu við ramman reip að draga. Það er mikið af sterk- um mönnum hér,“ sagði Sigurður Bjömsson varaformaður FRÍ í sam- tali frá Aþenu í gær. Sigurður sagði að Jón Diðriksson UMSB og Einar Vilhjálmsson UMSB hefðu ekki átt möguleika á að komast áfram í sín- um greinum á Evróipumeistaramót- inu í frjálsíþróttumm, sem hófst í gær. Einar kastaði spjótinu 72,26 metra í undankeppninni, en hann hefði þurft að kasta 80 metra til þess að komast í úrslitakeppnina. Tæpir tveir tugir spjótkastara kasta til úrslita. Einar vann m.a. danska methafann og einn Svía í undankeppninni og einn Breta. Hins vegar er þessi árangur Einars talsvert frá hans bezta í ár, hann var öruggur með 77-78 metra, en Islandsmet hans frá í fyrra er 81,22 metrar. Jón Diðriksson varð sjötti í sín- um riðli á 1:50,30 mín., var rúmri sekúndu frá íslandsmetinu, sem hann setti fyrr í sumar. A-Þjóð- verjinn Detlef Wagenknecht sigr- aði í riðlinum á 1:47,67, annar varð Spánverjinn Coloman Trabado á sama tíma, þriðji Finninn Jorma Harkonen á 1:47,82, Gary Cook Bretlandi fjórði á 1:48,14 og Hol- lendingurinn Arno Kormeling fimmti á 1:48,48 mín. Sebastian Coe, heimsmethafinn í 800 m, sigraði auðveldlega í sín- um riðli á 1:48,66 mín. Undan- keppnin fer fram í dag, þriðjudag, og úrslitin á morgun. ágás. Frlðlsar Ibrðltlr „Sigurbumsson" skýtur Stuttgart á toppinn — engu líkara en að „Sigurbumsson“ hafi dýnamít í fótunum segir Bild ÁSGEIR Sigurvinsson hreinlega blómstrar þessa dagana hjá liði sínu Stuttgart. I síðustu tveimur leikjum sínum með sinu nýja liði hefur Ás- geir skorað þrjú glæsileg mörk og verið aðaldriffjöðurin í leik liðsins. Það er ekki óraunhæft að ætla að Ásgeir Sigurvinsson sé nú að komast á hátind knattspyrnuferils síns. Ás- geir hefur átt við þrálát meiðsli að stríða að undanfornu en þrátt fyrir þau hefur honum tekist að sýna Sjguibumsson IsdrieBen^B Stuttga rt hodi Von KLAUS SCHLUTTER und PAUL HERTRICH „Diesmal wor Sigurvinssoi > í mm NUmberg, S. Septeeiber 0:1 gtgM ttvttgart, da mufite der NUmberger Stadlonspreclter die Club-Fans beruhigen: „Denken Sigurvinsson uberragend, morgen mochen Allgöwer oder Kempe unser Spiel", erklört Kapitön Bemd (Allgöwer) oder Sigurbums- son (Sigurvinsson) schieBenl jjjj. Die beiden trafen dreimol. Beí E: Bayern MUnchen hotte Cser- ::::: snilldartilþrif og eiga þýsku blöðin varla nógu sterk orð til að lýsa hæfí- leikum hans. Eitt stærsta blað V-Þýskalands, Bild, sem gefið er út daglega í fjórum milljónum eintaka sagði eftir leik Stuttgart við Núrnberg. Ásgeir er frábær. Hann skaraði fram úr. Liðið sem skarar fram úr þessa dagana í Bundesligunni er Stuttgart. Fallegu mörkin eiga Knallgöver og Sigurbumsson en það nafn hefur Ásgeir verið gefið vegna þeirrar gífurlegu skothörku sem hann býr yfir. I Bild mátti lesa: Það er engu líkara en að Sig- urbumsson hafi dýnamít í fótun- um, slík er skotharka hans. Þá fékk Ásgeir mikla umfjöllun í blöðum í V-Þýskalandi í gærdag eftir að lið hans Stuttgart hafði sigrað 4—1. Ásgeir skoraði eitt mark og lagði upp annað og var álitinn besti maðurinn í liði Stutt- gart. Fékk hæstu einkunn fyrir leik sinn. Ásgeir virðist ekki ætla að valda áhangendum Stuttgart vonbrigðum. En hann tók þar við stöðu hins fræga knattspyrnu- manns Hanza Múller sem nú leik- ur með Inter Milan á Ítalíu. Var seldur þangað fyrir tvær milljónir marka. __ j»r.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.