Morgunblaðið - 06.11.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1982
11
Bjarni sýnir í „Happy-húsinu“
í DAG klukkan 14 verður opnuð
húsgagna- og málverkasýning í
Flugbjörgunar-
sveitin með
merkjasölu
Vetrarstarf Flugbjörgunarsveitar-
innar í Reykjavík hófst ad venju
með æfingum í Gigjökli helgina
25.-26. sept. sl. Stóð hún í tvo daga.
I*ar var æft isklifur og tryggingar i
ís, og gengið var á Hámund á sunnu-
daginn.
Allir flokkar sveitarinnar tóku
þátt í æfingu þessari en síðan
halda flokkarnir sjálfir æfingar
svo sem hjálp í viðlögum, fjall-
amennsku og rötun, og eru þær
æfingar tvisvar í mánuði auk
styttri og lengri ferða um helgar.
Allt þetta miðar að því að gera
félagana hæfari til að mæta áföll-
um er dunið geta yfir, t.d. björgun
úr flugslysum, leit að týndum og
aðstoð við samborgarana.
Því munum við leita til sam-
borgarana nú um helgina 6.-7.
nóv. með merki sveitarinnar og
bjóðum þau til kaups. Það er von
okkar að allir taki vel á móti
rauðklæddum sölumönnum okkar
og sýni það nú að það kunni vel að
meta störf okkar, því án stuðnings
frá landsmönnum öllum getum við
ekki haldiö sveit okkar í fullri
þjálfun.
Um þessa sömu helgi mun
kvennadeild FBSR, sem hefur ver-
ið okkar stoð og stytta í áravís,
halda kökubasar í safnaðarheimili
Langholtssafnaðar sunnudaginn
7. nóv. kl. 14.
Landsmenn við væntum stuðn-
ings ykkar því að okkar styrkur —
ykkar öryggi.
mtövrm- -
Ilappy-húsinu, Reykjavíkurvegi
64 í Hafnarfirði. Sýningin veröur
opin virka daga frá klukkan
9—22 og sunnudaga frá 14—22
fram til 21. nóvember.
Bjarni Jónsson hefur frá ár-
inu 1952 haldið einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum
víða um land og erlendis. Á sýn-
ingunni í Hafnarfirði eru eink-
um þjóðlífsmyndir, dýramynd-
ir, blómamyndir, landslags-
myndir og málaður rekaviður.
Kvenfélag
Kópavogs
með basar
Laugardaginn 6. nóvember kl. 2
e.h. ætla konur í Kvenfélagi
Kópavogs að halda árlegan basar
sinn, að Hamraborg 1, niðri.
I ár breytum við til og höfum
aðallega kökur á boðstólum, þó
er ekki loku fyrir það skotið, að
þar sjáist einnig venjulegir bas-
armunir.
Ágóðinn rennur í „Líknarsjóð
Áslaugar Maack" og í félags-
sjóð, en úr báðum þessum sjóð-
um hefur verið veitt í þágu aldr-
aðra.
Hlutverk „Líknarsjóðs Ás-
laugar Maack" hefur í rúm
þrjátíu ár verið — og er enn —
að styðja þá sem hafa þurft
þess með vegna sjúkleika eða
annarra erfiðra aðstæðna.
Við vonumst til þess, að
Kópavogsbúar og aðrir líti inn í
Hamraborg 1, niðri, á laugar-
daginn kl. 2 e.h. og styðji þessa
starfsemi okkar.
(FrétUtilkynning)
Kór Langholtskirkju
syngur í Fossvogskirkju
Kór Langholtskirkju flytur
Requiem eða sálumessu eftir
Wolfgang Amadeus Mozart um
helgina. Tónleikarnir verða
sunnudaginn 7. nóvember og
mánudaginn 8. nóvember og hefj-
ast báðir klukkan 21.00 í Foss-
vogskirkju.
Einsöngvarar eru Ólöf K.
Harðardóttir, Elísabet Waage,
Garðar Cortes og Halldór Vil-
helmsson. Félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands leika, kon-
sertmeistari er Michael Schelt-
en.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Bein lína
til Moskvu!
— Við höfum sett upp nýja
sjónvarpsloftnetió og
sýnum dagskrá rússneska
sjónvarpsins á skjánum.
Komið í verslun okkar í dag
og kynnið ykkur möguleikana
á að taka sjónvarpsefni frá
öðrum löndum inn í stofu.
Sjón er sögu ríkari.
Opið í dag
til kl. 16.00
HLJÐMBÆR
huombír sharp^
111111111
m
HLJOM-HEIMIUS-SKRIFSTOFUTÆKI !ífY«R,fJ?£PTU 103
_____ ____________ SIMI 25999 17244