Morgunblaðið - 06.11.1982, Side 13

Morgunblaðið - 06.11.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1982 13 if Fólk við borð úti í náttúrunni. „Þetta er svona þykjustukaffiborð," sagði Karólína, „því fólkið er ekki með neitt kaffi eða bolla.“ „Þetta er amma mín, Karólína, en hún bjó í Turnherberginu á Hótel Borg. Svona man ég eftir henni, þar sem hún sat og horfði út um gluggann.“ „Þetta er fólk að bíða, ég veit ekki eftir hverju. — Það bara kom til mín og ég setti það á mynd.“ LjÓHmynd Mhl.: Kristján Einarsson Sovéskur fréttaþulur. Hann er að öllum líkindum að segja frá úrslitum kosninganna í Bandaríkjunum. Einkaaðili tekur á móti sjón- varpssendingum um gervihnött í fyrsta skipti hér á landi FYKIRT/EKIÐ Illjómbær hf. hefur komið sér upp tækjum til móttöku á sjónvarpsscndingum um gervihnött og var fréttamönnum í fyrradag boðið að fylgjast með sendingum sovéska sjónvarpsins í tilefni af því. Kom í Ijós að myndgæði voru mikil, ekki að sjá síðri en þegar horft er á íslenska sjónvarpið. Enn sem komið er, er þess að- eins kostur að sjá sendingar þessa gervihnattar, því gervi- hnettir ýmissa annarra landa eru ekki enn komnir upp. Sovéski gervihnötturinn sem um ræðir nefnist Horisont I og er yfir miðbaug á 13 gráðu vestlægrar lengdar, í 36 kílómetra hæð yfir jörðu. Hann sendir efni á þrem aðskiljanlegum rásum og mátti einnig sjá við þetta tækifæri sjónvarpssendingar frá Kúbu. A árunum 1985 og ’86 er áætlað að koma upp gervihnöttum frá Vestur-Þýskalandi, Bretlandi, Luxemborg og Frakklandi og ættu sendingar frá þeim gervi- hnöttum að nást hér á landi með þessum útbúnaði, verði þær ekki truflaðar. Liggja þeir jafnvel bet- ur við okkur, þar sem þeir verða nær okkar lengdargráðu. Það er diskur, þrír metrar í þvermál, sem nemur sendingarn- ar, auk þess sem þörf er útbúnað- ar til að breyta sendingamerkjum hnattarins fyrir sjónvarp. Heild- arkostnaður þessa útbúnaðar uppkominn er um 300 þúsund krónur. Er jafnvel talið að tveggja og hálfs metra diskur sé nægjanlegur og er þá kostnaður- inn 250 þúsund. Opið hús verður í versluninni Hljómbæ að Hverfisgötu 103, laugardaginn 6. nóvember frá klukkan 10—16.00, þar sem þessi útbúnaður verður kynntur. Verið velkomin Bírna Ólafsdóttir, hárgreiöslumeistari. Margrét Guðmundsdóttir, hárgreiðslusveinn. f Orðsendíng tíl Kópavogsbúa Viö höfum nú tekið við rekstri hárgreiöslustofunn- ar aö Þinghólsbraut 19, Kópavogi. Við bjóöum auövitaö alla almenna hársnyrtingu svo sem: permanent, klippingu, lagningu, hár- þvott, litun, blástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv. Viö höfum opiö frá kl. 9—18 á virkum dögum og frá kl. 9—12 á laugardögum. Við tökum viö pöntunum í síma 40369.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.