Morgunblaðið - 07.06.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐURIMEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐL
126. tbl. 70. árg.ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Kosningar í Bretlandi á fimmtudag:
Ekkert fær nú stöðvað
breska íhaldsflokkinn
Lundúnum, 6. júní. Frá Magnúsi Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaósina.
ALLAR líkur eru taldar á því, að
breski íhaldsflokkurinn meö frú
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra, í broddi fylkingar, muni
vinna yfirburðasigur í kosningun-
um, sem fram eiga að fara hér í
Bretlandi á fimmtudag. Forskot
íhaldsflokksins virðist heldur fara
vaxandi en hitt, því að í sjö skoð-
anakönnunum, sem gerðar voru
um helgina, hafði íhaldsflokkur-
inn að meöaltali 16% forskot á
helsta keppinaut sinn, Verka-
mannaflokkinn. „Ekkert getur
stöðvað Thatcher nú,“ sagði í aðal-
fyrirsögn Daily Mail í dag. Þau orð
hafa aldrei hljómað meira sann-
færandi en einmitt núna.
Kosningabaráttan hér í Bret-
landi er annars alls ráðandi í öll-
um fjölmiðlum. Þannig var eitt
síðasta dagskráratriði sjónvarps
hér í gærkvöldi spurningaþáttur,
þar sem þeir sátu fyrir svörum
Geoffrey Howe, fjármálaráð-
herra, af hálfu íhaldsflokksins
og Peter Shore fyrir Verka-
mannaflokkinn. Klukkan níu í
morgun var svo klukkustundar-
langur símaþáttur í sjónvarpi,
þar sem Michael Foot, leiðtogi
Verkamannaflokksins, svaraði
fyrirspurnum kjósenda víðs veg-
ar af landinu. Varð hann þar að
svara nær viðstöðulaust spurn-
ingum af margvísulegu tagi, s.s.
hver væri framtíðarstefna
Verkamannaflokksins í atvinnu- I inn myndi halda fast við núver-
og skólamálum og hvort flokkur- I andi stefnu sina í varnarmálum,
„Magga er sigurvegari“ segir á risastórum hanska, sem eiginmaður Margrét-
ar Thatcher, forsætisráðherra, hefur sett upp í kosningabaráttunni. Fáir
draga orðin á hanskanum í efa. simamynd AP.
en hún er að draga úr kjarnorku-
vopnum en leggja þeim mun
meiri áherslu á hefðbundin
vopn.
Blöð og útvarp gefa svo sjón-
varpi ekkert eftir í þessu efni.
Þrátt fyrir nokkur stóryrði
stjórnmálamanna í garð and-
stæðinganna virðist kosninga-
baráttan fara fram átakalaust.
Þó er talið að til meiriháttar tíð-
inda geti dregið annað kvöld en
þá er fyrirhugað að frú Thatcher
fari til Liverpool og tali þar á
útifundi. En einmitt í Liverpool
er atvinnuleysi mjög mikið og
andstaða við Thatcher og stefnu
hennar mikil í sumum hópum
samfélagsins.
Kosningabaráttan virðist hins
vegar ekki hafa nein teljandi
áhrif á daglegt líf hér í London.
Hvergi sjást skilti né borðar á
byggingum með áskorunum til
fólks um að kjósa þennan flokk-
inn eða hinn. Hægt er að ganga
Oxford-stræti á enda án þess að
nokkuð minni á, að kosningar
standa fyrir dyrum. Sá mikli
fjöldi ferðamanna sem nú
streymir til London, bæði frá
Evrópu og Ameríku, virðist láta
sér kosningarnar í léttu rúmi
en leggur þeim mur. meiri
áherslu á að skoða hvað heims-
borgin London hefur upp á að
bjóða.
Aukin spenna í Líbanon:
Efiit til verkfalla í
minningu innrásar
Uaimt C i.'iaí 4 1» ^^ /N 1. . 1 . 1 ..11 T~v • I /
Damaskus, Beirút, 6. júní. AP.
HÁTTSETTUR sýrlenskur embættismaður skýrði í morgun frá því, að Sýr-
lendingar myndu ekki taka á móti George P. Schultz ef hann færi um
Miðausturlönd. Hann bætti því jafnframt við, að ekki einu sinni styrjöld
myndi leiða til þess að Sýrlendingar kölluöu herlið sitt heim frá Líbanon.
Eina konan í ríkisstjórn Sýr-
lendinga, menningarmálaráðherr-
ann Najah Attar, sagði ennfremur
í langorðri yfirlýsingu, sem gefin
var út í dag, að fásinna væri að
ætla, að Sýrlendingar tækju á
móti Schultz fremur en Habib.
Líbanska þingið hóf í dag mik-
ilvægar umræður um samkomulag
Libana og ísraela um brottflutn-
ing herliðs þeirra síðarnefndu,
eftir að mótmælaverkföll höfðu
lamað hluta landsins í dag, er þess
var minnst að ár er nú liðið frá
innrás fsraela.
Varnarmálanefnd þingsins, svo
og nefndir þær er fjalla um utan-
ríkismál, dóms- og efnahagsmál,
hittust á fundi í morgun fyrir
luktum dyrum til þess að ræða
samninginn, sem tókst á milli
þjóðanna fyrir tilstilli Banda-
ríkjamanna, Wazzan forsætis-
ráðherra og Salem utanríkisráð-
herra sátu báðir fundinn og vörðu
samkomulagið, sem sætt hefur
mikilli gagnrýni af hálfu Sýrlend-
inga.
Lögreglan í Beirút handtók í
morgun 21 árs gamlan vinstri-
sinna, sem grunaður er um morð-
tilraun á hæstsetta diplómat Líb-
ýumanna í Beirút í gærkvöld. Haft
er eftir óstaðfestum heimildum í
útvarpi, að Khaled Osman Alwan
hafi viðurkennt að hafa hleypt af
sjö skotum að Abdel-Khader
Abdel-Khader Ghoka. Símamynd AP.
Ghoka í gærkvöld. Diplómatinn
liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Abdullah Bin Abdul-Aziz, krón-
prins Saudi-Arabíu, ræddi seint í
gærkvöld við Hafez, Sýrlandsfor-
seta, um leiðir til þess að binda
endi á innbyrðis deilur þær, sem
ógnað hafa framtíð Frelsissam-
taka Palestínumanna. A sama
tíma funduðu háttsettir aðstoð-
armenn hans með fulltrúum PLO.
Lítill fögnuður ríkti í ísrael í
dag yfir ársafmælis innrásar
þeirra inn í Líbanon. Stríðinu, sem
í upphafi var talið að aðeins stæði
í nokkra daga, er enn ekki lokið og
hefur kostað a.m.k. 100 ísraela líf-
ið. Tass-fréttastofan sovéska sagði
í dag, að innrás ísraela hefði enn
ekki náð að brjóta andspyrnu PLO
á bak aftur, en virtist í auknum
mæli skapa sundrungu á meðal
þeirra sjálfra.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Káre Willoch á fund
Noregskonungs:
Leggur
ráöherra-
lista fram
Osló, 6. júní. Frá Jan Erik Lauré,
fréttaritara Morgunbladsins.
KÁRE WILLOCH, forsætisráðherra
Noregs, gengur á morgun á fund
Ólafs konungs með ráðherralista
hinnar nýju þriggjaflokka ríkisstjórn-
ar Norðmanna. Með myndun þessar-
ar nýju stjórnar fá Norðmenn meiri-
hlutastjórn á ný.
Flokkarnir þrír, sem eiga aðild að
ríkisstjórninni, eru Hægriflokkur-
inn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og
Miðflokkurinn. Þeir hafa þegar
komið sér saman um stefnu stjórn-
arinnar, en áhöld eru um hvernig
skiptingu ráðherraembætta skuli
háttað.
Miðstjórnir Miðflokksins og
Kristilega þjóðarflokksins lögðu
um helgina blessun sína yfir sam-
komulagið, sem flokkarnir höfðu
komist að í síðustu viku, og þar með
var síðustu hindrununum rutt úr
vegi.
Aðaldeila flokkanna snýst sem
fyrr segir um skiptingu ráðherra-
embætta og þá einkum hver fái
embætti utanríkisráðherra. Hægri-
flokkurinn er harður á þeirri skoð-
un sinni, að Svenn Stray skuli halda
embættinu, en hinir flokkarnir
tveir girnast þetta embætti. Þeir
segja ennfremur, að ótækt sé að
Hægriflokkurinn fái embætti for-
sætis-, fjármála- og utanríkisráð-
herra. Ekki virðist leika á því nokk-
ur vafi, að Willoch verður áfram
forsætisráðherra og Rolf Presthus,
fj ármálaráðherra.
I hnattferð á
víkingaskipi
Aberdeen, 6. júní. AP.
NÁKVÆM eftirlíking þúsund
ára gamals víkingaskips kom í
dag til Aberdeen frá Noregi.
Skipstjórinn er Ragnar Thors-
eth og er siglingin til Aberdeen
fyrsti áfanginn á leið hans um-
hverfis hnöttinn á þessu skipi.
Thorseth, sem m.a. ætlar að
koma við í Reykjavík á næsta
ári á leið sinni til Bandaríkj-
anna, fékk góða fylgd síðasta
spölinn til Aberdeen, þar sem
hnísa slóst í för með honum og
sigldi í kjölvatninu i þrjá
tima.
Thorseth ætlar sér þrjú ár
til hnattferðarinnar. Frá
Aberdeen helkdur hann áleið-
is til Lundúna síðar í þessari
viku.