Morgunblaðið - 07.06.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Geir H. Haarde
aðstoðarmaður
fjármálaráðherra
GEIR H. Haarde hagfrædingur var í
gær ráðinn aöstoðarmaður Alberts
. Guðmundssonar fjármálaráðherra.
Geir er fæddur í Reykjavík árið
1951, sonur hjónanna Önnu
Steindórsdóttur Haarde og Tóm-
asar Haarde símafræðings. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1971, BA-
prófi í hagfræði frá Brandeis-
háskóla í Massachusetts í Banda-
ríkjunum 1973, MA-prófi í al-
þjóðastjórnmálum frá Alþjóða-
málastofnun Johns Hopkins-
háskóla í Washington DC 1975 og
MA-prófi í hagfræði frá Minne-
sota-háskóla 1977.
Geir hefur starfað sem hag-
fræðingur við alþjóðadeild Seðla-
banka íslands frá 1977. Hann er
núverandi formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna og skip-
aði 10. sæti framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir síðustu Al-
þingiskosningar.
Þessi mynd var tekin ki. 16.10 á sunnudaginn. Ský voru yfir öllum vestari
helmingi Vatnajökuls en rofaði til annað slagið yfir Grímsvötnum.
Gosið hefur náð upp á yfirborðið og hefur myndast lítil eyja í vökinni og
á henni miðri er smá gígur. Gufu leggur upp af eyjunni.
Morgunblaðið/Björn Rúriksson.
Forsetinn í opin-
bera heimsókn í
Barðastrandarsýslur
Miðhúsum, 6. júní. Frá frcttaritara Morgunblaðsins í A-Barðastrandarsýslu.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, kemur í opinbera
heimsókn í Barðastrandarsýslu
dagana 21.—23. júní. Stefán
Skarphéðinsson sýslumaður tekur
á móti forseta og fylgdarliði á
sýslumörkum Dala- og Austur-
Barðastrandarsýslu. Þaðan verður
ekið í Hótel Bjarkarlund og há-
degisverður snæddur. Frá Bjark-
arlundi fer forseti til Reykhóla og
skoðar Þörungavinnsluna. Frá
Reykhólum verður haldið út í
Flatey og skoðuð menningarverð-
mæti þar. Forseti og fylgdarlið
gistir í Flókalundi og tveimur
næstu dögum eyðir hún í Vestur-
Barðastrandarsýslu. Annars mun
dagskrá forseta ekki verða full-
gerð í öllum atriðum og erfitt
verður að velja og hafna, þar sem
viðdvöl er mjög takmörkuð á
hverjum stað.
Sveinn
Meginástæðan gengissig
og síðan gengisfelling
- segir Georg Ólafsson verðlagsstjóri um hækkanir á olíu og benzíni
Geir H. Haarde hagfræðingur.
„MEGINÁSTÆÐAN fyrir þessum
hækkunum á benzíni og olíum er geng-
issigið frá síðustu verðákvörðun og síð-
an gengisfellingin," sagði Georg
Ólafsson, verðlagsstjóri, ( samtali við
Mbl.
„Meðalverð á benzínbirgðum í
landinu er nú 293 dollarar fyrir
hvert tonn, en var við síðustu verð-
ákvörðun 275 dollarar, hefur hækkað
um 6,6% í dollurum. Síðan hefur
dollarinn hækkað um 30% milli
verðákvarðana, eða samtals um
Akranes:
Togari verður
fyrir vélarbilun
Akrancsi, 6. júní. Frá frctlaritara Morgunblaðsins.
TtXíARINN Óskar Magnússon AK
177 varð fyrir alvarlegri vélarbilun síð-
astliðinn föstudag og var dreginn til
hafnar af björgunarskipinu Goðanum.
Ekki er fullvíst hve mikil bilunin
er, en líkur eru jafnvel taldar á því
að skipt verði um vél í skipinu. Þetta
er mikið áfall fyrir atvinnulífið á
Akranesi, því búast má við því að
hluti áhafnarinnar missi skiprúm
sitt meðan viðgerð fer fram, auk
þess sem tvö af frystihúsum bæjar-
ins missa stóran hluta af hráefni
sínu. J-G.
38,4%. Til frádráttar þessari hækk-
un við verðákvörðun kemur síðan sú
staðreynd, að ákveðið hefur verið að
frysta gengið, en áætluð hækkun
þess hefur jafnan verið tekin inn í
ákvörðun um verðhækkun," sagði
Georg Ólafsson ennfremur.
Georg Ólafsson sagði einnig, að
inni í umræddri hækkun á benzíni
væri hækkun ríkisins á vegaskatti
um 67 aura, úr 3,40 í 4,07 krónur, eða
um 19,7% í samræmi við hækkun
byggingarvísitölu, en slíkt er heimilt
samkvæmt reglugerð. Hækkunin
væri í raun meiri, þegar margföld-
unaráhrif söluskattsins kæmu inn í
dæmið, eða um 85 aurar. Hlutur
ríkisins í 3,10 króna hækkun hvers
lítra nú ‘er um 1,72 krónur, eða
55,5%.
Meðalverð á birgðum gasolíu í
landinu er nú 251 dollari hvert tonn,
en við síðustu verðákvörðun var
verðið 279 dollarar, eða hefur lækk-
að um 10%, sem kemur til frádráttar
um 30% hækkun á gengi dollarans,
sem veldur síðan áðurgreindri 15%
hækkun.
Meðalverð á svartolíubirgðum í
landinu er nú 195 dollarar, en var við
síðustu verðákvörðun 190 dollarar,
eða hefur hækkað um 3%. Síðan
koma áhrif hækkunar á gengi krón-
unnar um 30% til, þannig að hækk-
unarþörfin er mun meiri í svartolíu
en gasolíu.
Þess má geta, að hver lítri benzíns
kostaði 9,45 krónur 6. júní í fyrra, en
kostar nú 19,30 krónur, eða hefur
hækkað um 104,2%. Verð á hverjum
lítra gasolíu á sama tíma í fyrra var
3,65 krónur, sem þýðir að hver lítri
hefur hækkað um liðlega 130%. Þá
kostaði hvert tonn af svartolíu 6.
júní í fyrra 2.470 krónur, eða hefur
hækkað um 181,4%.
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
var inntur eftir ástæðu þess, að fisk-
verð hækkar nú um 24 —25%.
„Ástæðan er sú, að 8% hækkun hef-
ur orðið á fiski upp úr sjó, en síðan
kemur til frádráttar 7% olíugjald,
sem hefur verið fellt niður, en til
viðbótar koma síðan áhrif af hinu
nýja 29% gjaldi, sem fiskkaupendur
verða að greiða útgerðinni,“ sagði
Georg Ólafsson.
Seyðisfjörður:
Norröna í
fyrsta skipti
til landsins
FÆREYSKA skipið Norröna,
sem kemur í stað ferjunnar
Smyrils, kemur til Seyðisfjarð-
ar í fyrsta skipti á morgun.
Aætlaður komutími skipsins er
klukkan 13.00 og verður ýmis-
legt gert til hátíðabrigða í til-
efni af komu skipsins. Seyð-
fírðingar munu fara út á fjörð-
inn á bátum sínum og taka á
móti skipinu með færeyska og
íslenska fána. Eftir að skipið
hefur lagst að bryggju er ráð-
gert að það verði opið bæjar-
búum til sýnis, en klukkan
15.00 hefst móttaka um borð í
skipinu fyrir bæjarstjórn og
hluthafa, en fyrirtæki og ein-
staklingar á Austurlandi hafa
gerst hluthafar í skipinu.
Töluverðar framkvæmdir
hafa verið á Seyðisfirði
vegna þessarar nýju ferju og
er sú aðstaða stórbætt, þar
sem afgreiðsla skipsins fer
fram. Rennan þar sem skipið
leggur að hefur verið breikk-
uð, þar sem þetta skip er tölu-
vert breiðara en Smyrill var.
Ferjan Norröna getur flutt
1000 farþega og 250 bíla i
einu.
Björgvin Bjarnason
útgerðarmaður látinn
Björgvin Bjarnason, útgerðarmaö-
ur á ísafirði um árabil, lést í gær í
sjúkrahúsi í Óðinsvéum í Dan-
„Minnislisti“ rfkisstjórnarinnar um sérstök athugunarverkefni:
Þingmenn séu ekki forstöðu-
menn fjármálastofnana
r _
- „Minnislistinn er ekki bindandi,“ segir Tómas Arnason forstjóri Framkvæmdastofnunar
,ÉG TÓK þátt í þessum samningum cn ég tel þetta ekki bindandi. Hann
er eingöngu til athugunar fyrir ríkisstjórnina, en ekki í stjórnarsáttmálan-
um. Það stendur til að endurskoða lögin um Framkvæmdastofnun og
ríkisstjórnin ætlar að gera það, en þessi minnislisti er ekki bindandi,“
sagði Tómas Árnason forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins, er Mbl.
spurði hann, hvort sú staðreynd, að hann hefði farið beint úr ráðherrastól
í forstjórastöðu Framkvæmdastofnunar væri ekki í trássi við „minnis-
lista“, sem stjórnarfíokkarnir gengu frá um leið og stjórnarsáttmálanum.
Á listanum eru rakin þau atriði sem ríkisstjórnin ætlar að taka til
sérstakrar athugunar en einn liðurinn fjallar um að þingmenn skuli ekki
gegna störfum forstöðumanna fjármálastofnana.
Steingrímur Hermannsson fárra daga. Steingrímur sagði
forsætisráðherra tók í sama
streng og Tómas og sagði að á
meðan ekki væru ákveðnar
breytingar hvað varðaði Fram-
kvæmdastofnun væru hlutirnir
auðvitað í sama horfi og verið
hefðu. Hann sagðist aftur á móti
hafa í hyggju að taka Fram-
kvæmdastofnunina til endur-
skoðunar og myndi hann skipa
nefnd til þess verks innan ör-
einnig, að það gæti orðið flókið
mál að setja lög um áð þingmenn
megi ekki sitja í slikum stofn-
unum og að hann hefði t.d. ein-
vörðugu verið með tilmæli á rík-
isstjórnarfundi um að ráðherr-
arnir gegndu ekki launuðum
störfum hjá lánastofnunum, en
því hefði verið mjög vel tekið.
Þá sagði forsætisráðherra að
engin lög væru í landinu sem
bönnuðu þingmönnum að vera
bankastjórar, en það hefði hins
vegar orðið að þegjandi sam-
komulagi við bankana og þing-
flokkana að það yrði ekki gert.
Varðandi forstjórastöðu Tómas-
ar sagði Steingrímur: „Ég lít
ekki á það sem óeðlilegan hlut að
Tómas hafi farið í þessa stöðu og
tel reyndar fulla þörf á því að
hafa þarna mann sem þekkir til
þar sem Sverrir er farinn út. Það
verður ekki gripinn upp maður á
stundinni. Hins vegar veit ég að
Tómas er sammála þessari
hugmynd á minnislistanum, en
það verður að bíða þess tíma að
málið verði tekið fyrir og athug-
að.“
Tómas Árnason sagði að-
spurður um hvort hann væri
sammála þessari hugmynd að
þingmenn veittu lánastofnunum
ekki forstöðu: „Þegar um það er
að ræða hvað alþingismenn
mega gera og hvað ekki, þá
finnst mér mörg störf koma til
greina. Ég get til dæmis nefnt
kennslustörf, sem margir al-
þingismenn stunda. Það er nátt-
úrlega kjörinn vettvangur til að
misnota aðstöðu sína með áróðri,
ef menn vilja. Hins vegar er ég
ekki þeirrar skoðunar að ástæða
sé til þess að alþingismenn gegni
slíkum störfum. í sambandi við
Framkvæmdastofnun er þetta
þannig að forstjórar þar ákveða
enga lánveitingu. Hver einasta
lánveiting verður að samþykkj-
ast af sjö manna stjórn. í bönk-
unum aftur á móti ákveða
bankastjórar lánveitingar. Á
þessu er geysilegur munur."
Björgvin Bjarnason
mörku, eftir aö hafa gengist þar und-
ir skuröaögerö.
Björgvin var fæddur 14. ágúst
1903 á bænum Nolli í Suður-
Þingeyjarsýslu, elsti sonur hjón-
anna Bjarna Bjarnasonar vega-
verkstjóra og Auðar Jóhannes-
dóttur. Fárra ára fluttist hann
með foreldrum sínum til ísafjarð-
ar, þar sem hann ól mestan sinn
aldur síðan. Þar stundaði hann út-
gerð í fjölda ára. Árið 1951 fluttist
hann til Reykjavíkur og átti og
rak rækjuverksmiðju á Langeyri
við Álftafjörð frá 1959—1973.
Hann átti við vanheilsu að stríða
síðustu árin.
Björgvin Bjarnason var giftur
Elínu Samúelsdóttur, sem lést ár-
ið 1971. Þau eignuðust einn son.