Morgunblaðið - 07.06.1983, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
ið að slíku í Danmörku og þá í
tengslum við brezku stofnunina
„Save the Children". Hann kvaðst
hafa lengi dreymt um að aðstoða
við slík verkefni með tónlistinni
og nú væri sá draumur hans að
rætast.
Frá bhðamannafundinum í Biskupsstofu. Talið frá vinstri: Gunnlaugur
Snævarr framkvstj. útgáfu kirkjunnar, Skálholts, Gunnar Kvaran sellóleik-
arí og Guðmundur Einarsson framkvstj. Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Morfiibliéié/Giéjói.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Gunnar Kvaran heldur tón-
leika víðs vegar um land
í DAG leggur Gunnar Kvaran selló-
leikarí upp í þriggja vikna tónleika-
ferð um landið til styrktar starfi
lljálparstofnunar kirkjunnar. í för
með Gunnari verða Gunnlaugur
Snævarr framkvæmdastjóri útgáfu
kirkjunnar, Skálholts, og fulltrúi frá
lljálparstofnuninni. Þá mun Skál-
holt gefa út plötu með sellóleik
(■unnars Kvarans í tilefni fararinn-
ar, en allur ágóði af sölu hennar
mun renna í neyðarsjóð Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar.
Á fundi með blaðamönnum
sagði Guðmundur Einarsson
framkvæmdastjóri Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, að í ársbyrjun
hefði Gunnar Kvaran komið að
máli við biskup íslands, herra Pét-
ur Sigurgeirsson, og boðið fram
krafta sína í þágu Hjálparstofn-
unarinnar. Niðurstaðan hefði orð-
ið sú, að hann héldi tónleika víðs
vegar á landinu og léki inn á
hljómplötu, er seld yrði til ágóða
fyrir hjálparstarf á vegum kirkj-
unnar. Væri þetta framlag Gunn-
ars einstætt og stæði Hjálpar-
stofnunin í mikilli þakkarskuld
við hann sem og aðra þá, er hefðu
gert tónleikaferðina og útgáfu
plötunnar mögulega.
Tónleikar Gunnars Kvaran
sellóleikara á landsbyggðinni
munu nefnast „Ákall“ og verða
þeir fyrstu 8. júní á Höfn í Horna-
firði. Síðan er ferðinni heitið um
Austur- og Norðurland og verða
þeir síðustu á Hvammstanga í lok
júní. Áformað er, að Gunnar fari
um Vestfirði, Vesturland og Suð-
vesturhorn landsins í haust. Á
tónleikunum mun Gunnar leika
tvær svítur fyrir einleik á selló
eftir J.S. Bach, sónötu eftir Eccles
og þekkt smálög. Sums staðar
munu kirkjukórar taka þátt í
dagskránni og organistar viðkom-
andi byggðarlaga munu aðstoða
við undirleik. Á tónleikum Gunn-
ars mun fulltrúi Hjálparstofnunar
kirkjunnar gera grein fyrir starfi
stofnunarinnar, en söfnunarfé
rennur til neyðarsjóðs. Verkefni
hans eru margvísleg, en nefna má
aðstoð við líknarfélög innanlands
sem og verkefni í Póllandi, Suð-
ur-Súdan, Bangladesh og víðar. Þá
mun Gunnlaugur Snævarr kynna
útgáfu kirkjunnar, Skálholt.
Áðspurður kvaðst Gunnar
Kvaran ætíð hafa haft mikinn
áhuga á hjálparstarfi og m.a. unn-
VONDUÐ ,
VAKTÞJONUSTA
|
\W/
VARI
S: 29399
Sérþjálfaöir öryggisverðir okkar vakta fyrirtækl, stofnan-
ir, byggingalóöir, íbúöahús, geymsluport o.fl. allt eftir
þörfum yðar. Öryggisveröirnir eru i stööugu talstöðvar-
sambandi viö öryggismiðstöð okkar.
Sérstök verkefni, s.s. peningaflutningar, daggæsla í stór-
verslunum og önnur eftirlitsstörf vel og örugglega af hendi
leyst. Fyllsta trúnaðar gætt.
Öryggismiðstöð okkar — hin eina á landinu — er búin
tölvustýröum rafeindabúnaöi. Miöstööin starfar allan sól-
arhringinn og vaktar á „elektróniskan“ hátt stofnanir og
fyrirtæki um allt land. Hjálparbeiönir næturvaröa og
heimaliggjandi sjúklinga berast einnig til öryggismiö-
stöðvarinnar á örfáum sekúndum.
VAKTPJONUSTA
vi6 erum líka ódýrari
,ÖRYGGI YÐAR ER SÉRGREIN OKKAR*
NORRÖNA
VELKOMIM
TIL AUSTURLAMD5
Færeyska bílferjan Norröna frá Smyril Line kemur í fyrsta
skipti til Seyöisfjaröar á morgun, þann 8. júní kl. 13.00
Taflfélag Ólafs-
fjarðar endurreist
TAFLFÉLAG ólafsfjarðar hefur
hafið starfsemi á ný en hún hafði
legið niðri frá árinu 1976. Skák-
þing ólafsfjarðar var haldið dag-
ana 10. mars—21. apríl sl. og voru
þátttakendur 16. Teflt var eftir
Monrad-kerfinu. Skákmeistari
ólafsfjarðar varð Frank Herluf-
sen en unglingameistari Sigur-
björn Gestsson. Þá var og haldið
Hraðskákmót ólafsfjarðar og teflt
við Fljótamenn og Dalvíkinga. í
stjórn Taflfélags Olafsfjarðar eru
Frank Herlufsen, Jón R. Krist-
jónsson, séra Hannes Örn Blandon
og Björn Dúason.
Sumaráætlun 1983 koma - brottför 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14
HANSTHOLM laugard. 1100 1600 04/6 11/6 18/6 25/6 02/7 09/7 16/7 23/7 30/7 06/8 13/8 20/8 27/8 03/9
BERGEN sunnud. 0800 1000 05/6 12/6 19/6 26/6 03/7 10/7 17/7 24/7 31/7 07/8 14/8 21/8 28/8 04/9
TÓRSHAVN mánud. 0700 0900 06/6 13/6 20/6 27/6 04/7 11/7 18/7 25/7 01/8 08/8 15/8 22/8 29/8 05/9
SCRABSTER mánud. 2200 2359 06/6 13/6 20/6 27/6 04/7 11/7 18/7 25/7 01/8 08/8 15/8 22/8 29/8 05/9
TÓRSHAVN þriðjud. 1500 1700 07/6 14/6 21/6 28/6 05/7 12/7 19/7 26/7 02/8 09/8 16/8 23/8 30/8 06/9
SEYÐISFJÖRÐUR miðv.d. 1300 1700 08/6 15/6 22/6 29/6 06/7 13/7 20/7 27/7 03/8 JO/8 17/8 24/8 31/8
TÓRSHAVN fimmtud. 1300 1600 09/6 16/6 23/6 30/6 07/7 14/7 21/7 28/7 04/8 11/8 18/8 25/8 01/9
BERGEN föstud. 1700 1900 10/6 17/6 24/6 01/7 08/7 15/7 22/7 29/7 05/8 12/8 19/8 26/8 02/9
Allarnánari upplýsingar veitir
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
VIÐ AUSTURVOLL SIMI 26900
Umboðsmenn um landallt.