Morgunblaðið - 07.06.1983, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Fjöldamorð
í Úganda
London, 6. júní. AP.
UM fimmtán þúsund manns
kunna að liggja í valnum eftir
að hersveitir stjórnarinnar og
lögregla tóku til sinna ráða í
héruðum uppreisnarmanna
norður af Kampala í Úganda
nýlega, sagði í Lundúnablaðinu
Sunday Telegraph um helgina.
Um eitt hundrað þúsund
manns hafa misst heimili sín,
segir í fréttinni ennfremur, og
hefur um þriðjungi þeirra ver-
ið safnað saman í sérstakar
kvíar undir ströngu eftirliti.
Upplýsingarnar um dauðsföll-
in munu hafa komið frá hern-
um í Úganda og uppreisnar-
mönnum.
Drepsótt
í Ghana
Arcra, Ghana, 6. júní. AP.
MEIRA en fjörutíu manns
hafa látið lífið af völdum kól-
erufaraldurs að sögn ríkisút-
varpsins í Ghana í dag. Líkur
benda til að orsök sóttarinnar
sé eitrun vatnsbirgða eftir
harða þurrka í nokkra mánuði.
Börn í
árekstri
( ullompton, Englandi, 6. júní. AP.
Árekstur varð í dag milli
flutningabifreiðar og strætis-
vagns með skólabörnum með
þeim afleiðingum að kennari
lét lífið en fjörutíu og þrír
særðust, meirihlutinn skóla-
börn. Áreksturinn varð við bæ-
inn Cullompton í Suðvestur-
Englandi og voru börnin á leið
í sumarleyfi til Frakklands.
Konur
lifa lengst
Washington, 6. júní. AP.
í Bandaríkjunum lifa nú
þrjátíu og tvö þúsund manns,
sem náð hafa hundrað ára
aldri, og eru þrír fjórðu hlutar
þeirra konur, að sögn mann-
talsskrifstofu í Washington í
dag. Samkvæmt sömu heimild
búa nú meira en 232 milljónir
manna í Bandaríkjunum og er
það fimm milljóna aukning frá
árinu 1980.
RóiÖ um götur Kölnar
Mikil flóð hafa verið víða í Vestur-Þýskalandi í vor vegna þrálátra rigninga og hafa margar ár flætt yfír bakka
sína. Rín hefur í tvígang lagt undir sig gömlu borgina í Köln og þá hafa menn orðið að bjargast á þann hátt, sem
hér sést, með því að róa eftir götunum. AP
Koivisto sækir
Andropov heim
Krá Harry Granberg, fréttaritara Mbl. í Finnlandi, 6. júní.
FORSETI Finnlands, Mauno Koivisto, kom í dag til Moskvu til fímm daga
heimsóknar þar sem hann mun endurnýja til tuttugu ára vináttu- og viðskipt-
asamning Finnlands og Sovétríkjanna. Þetta er fyrsta heimsókn Koivistos til
Moskvu og er hann jafnframt fyrsti vestræni leiðtoginn sem heimsækir
Sovétríkin síðan Yuri Andropov kom til valda.
Vináttu- og viðskiptasamningur ens forseta.
Finnlands og Sovétríkjanna, sem
verið hefur einn af hornsteinum
finnskrar utanríkisstefnu eftir
stríð, var í upphafi undirritaður
árið 1948. Hefur hann síðan verið
endurnýjaður með vissu millibili
og síðast árið 1970, í tíð Kekkon-
Finnsk sendinefnd fór til
Moskvu fyrir tveimur vikum til að
semja um nýjan viðskiptasamning
við Sovétmenn. Var tilgangur
samningsviðræðnanna sá, að auka
innflutning til Finnlands frá Sov-
étríkjunum, en viðskipti landanna
voru Finnum hagstæð um u.þ.b.
925 Bandaríkjadali árið 1982. Ráð-
gera Finnar nú að kaupa jarðgas,
hráolíu og fullunnar vörur af Sov-
étmönnum í ríkari mæli en áður.
Einnig hefur sovézka fréttastofan
TASS skýrt frá því að í bígerð sé
samvinna á sviði skipasmíða,
efna- og pappírsiðnaðar, í bygg-
ingu iðnvera og í lagningu jarð-
gasleiðslu til Finnlands. Munu
viðræður Koivistos við Sovétmenn
koma inn í mál sem þessi.
Iðnríki brýnd
til að gefa eftir
Belgrad. JúgÓNlavíu, 6. júní. AP.
í RÆÐU sem hann hélt í dag við
setningu sjöttu ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um þróun og viðskipti
(UNCTAD) hvatti aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, Javier Perez de Cueli-
ar, til „samstöðu um aðgerðir“ auk
tilslakana af hálfu iðnríkja við
þróunarlöndin varðandi fjárhags-
aðstoð og viðskiptakjör.
Aðalritarinn sagðist efa að
efnahagsbata væri að vænta í iðn-
ríkjunum ef fátækum þjóðum
væri ekki gert kleift að örva hag-
vöxt hjá sér. Búist er við að tals-
Sjötta þjóðþingið kemur saman í Kína:
Javíer Perez de Cuellar, aðalritari
Forseti kjörinn og
steftia Dengs studd
Peking, 6. júní. AP.
ZHAO ZIYANG, forsætisráðherra í Kína, setti í dag sjötta þjóðþingið og lýsti
því í setningarræðu sinni, að miklar framfarir hefðu orðið í landinu og að
stjórnmálaástandið væri sem óðast að komast í „eðlilegt horf“.
Þrjú þúsund fulltrúar sitja
þingið, sem haldið er í Alþýðuhöll-
inni í Peking og stendur í 17 daga.
Talið er, að fyrir þinginu liggi
fyrst og fremst tvö mál, að kjósa
forseta, þann fyrsta í 14 ár, og að
lýsa yfir stuðningi við áætlanir
Deng Xiaopings, leiðtoga komm-
únistaflokksins, um nútímalegar
framfarir í landinu. Talið er víst,
að nýi forsetinn verði Li Xiannian,
78 ára gamall fjármálasérfræð-
ingur, en lítil sem engin völd
fylgja forsetaembættinu í Kína.
Þjóðþingið kom síðast saman árið
1978 eftir að „fjórmenningaklík-
unni“ hafði verið steypt og menn-
ingarbyltingin var um garð geng-
in.
I ræðu sinni sagði Zhao, að
vegna breyttrar stefnu hefði mik-
ill hagvöxtur verið í Kína á síð-
ustu árum og að t.d. hefði orðið
32,6% framleiðsluaukning í iðnaði
og landbúnaði milli áranna 1978
og 1982. „Landbúnaðurinn hefur
losað sig úr viðjum langvarandi
stöðnunar og sótt fram á öllum
sviðum," sagði Zhao og benti á, að
hagvöxturinn i landbúnaði hefði
orðið 7,5% á ári þrátt fyrir mikil
áföll af náttúrunnar hendi. Kín-
verskir bændur fá nú greitt eftir
afköstum og er það breyting frá
því, sem áður var þegar öllum var
tryggt framfæri án tillits til
vinnuframlags. í Kína voru með-
altekjur á mann í landbúnaði árið
1978 um 1625 kr. ísl. en eru nú um
3250 kr.
SÞ.
menn þróunarlandanna, sem var-
að hafa við yfirvofandi gjaldþroti
nokkurra ríkja, muni mælast til
þess að vestræn ríki auðsýni
meira örlæti en þau hafa gert á
undanförnum árum. Á hinn bóg-
inn var svo að sjá sem fulltrúar
Bandaríkjastjórnar myndu taka
þvert fyrir kröfu þróunarríkjanna
um 90 billjónir dala til viðbótar
við það fé sem ákveðið hefur verið
að veita þeim á árinu 1984—1985.
Einnig er útlit fyrir að Bandaríkin
muni neita að fallast á meiri hátt-
ar áætlun um að tryggja lág-
marksverð á mikilvægum hráefn-
um frá þriðja heiminum.
Þessi sjötta þróunar- og við-
skiptaráðstefna SÞ mun standa
dagana 6.—30. júní og sækja hana
um þrjú þúsund og fimm hundruð
fulltrúar frá um hundrað og sex-
tíu löndum. Talið er að skuldir
þróunarlandanna muni verða eitt
helzta þrætuepli ráðstefnunnar,
en álitið er að skuldirnar nemi nú
um 700 billjónum Bandaríkjadala.
Sovétríkin:
Vísað úr
landi fyr-
ir njósnir
Moskvu, 6. júní. AP.
BANDARISKUR sendiráðsmaður
hefur verið rekinn úr landi í Sovét-
ríkjunum fyrir njósnir og sagði
TASS-fréttastofan sl. laugardag, að
rússneska öryggislögreglan, KGB,
hefði staðið hann að verki.
Sendiráðsmaðurinn, Louis
Thomas að nafni, er annar Banda-
ríkjamaðurinn, sem vísað er frá
Sovétríkjunum á þessu ári fyrir
njósnir. í apríl sl. vísuðu Banda-
ríkjamenn tveimur Sovétmönnum
úr landi fyrir sömu sakir.
Þann nítjánda fyrra mánaðar
skýrðu sovésk yfirvöld frá því, að
barnfóstra í bandaríska sendiráð-
inu í Moskvu hefði verið gripin í
borginni Kalinin, um 150 km frá
Moskvu, þar sem hún var að dreifa
trúarritum til fólks í söfnuði
Votta Jehóva. Hún var tekin föst
en sleppt aftur og vísað úr iandi.
Moskva:
Saumuðu
handlegginn
aftur á
Moskvu, 6. júní. AP.
SOVÉSKUM skurðlæknum tókst
nú fyrir skemmstu að græða
handlegg á sjö ára gamla stúlku,
en hún hafði misst hann þegar
hún varð fyrir árás bjarnar í
æskulýðsbúðum í Moskvu.
Komsomolskaya Pravda, mál-
gagn æskulýðssamtaka komm-
únistaflokksins, skýrði frá þessu
sl. laugardag.
Litla stúlkan, Oxana, dvald-
ist hjá ömmu sinni í einu út-
hverfa Moskvuborgar þegar
hún frétti af því, að í æsku-
lýðsbúðum skammt frá væri
björn í búri, sem kallaður væri
Maxim. Dag einn þegar amm-
an var í vinnunni, fór Oxana að
skoða björninn. Henni tókst að
troða hendinni í gegnum vír-
netið fyrir búrinu og skipti þá
engum togum, að björninn
réðst á hana og læsti kjaftin-
um um handlegginn.
Starfsmenn í búðunum komu
stúlkunni strax til hjálpar en
þá var björninn búinn að slíta
handlegginn af. Þeir fóru með
stúlkuna og handlegginn á
sjúkrahús og þar var handlegg-
urinn saumaður á og tók að-
gerðin sex klukkutíma alls. Ox-
ana litla getur nú hreyft fing-
urna og allar horfur á að hönd-
in muni koma henni að fullu
gagni í framtíðinni.
Sjö Pólverjar og
Rússi í mótmæla-
svelti í Höfn
Kaupmannahdfn, 6. júní. AP.
SJÖ Pólverjar og einn Sovétmaður
fasta nú í Kaupmannahöfn til þess að
þrýsta á yfírvöld í heimalöndum sínum
til að sleppa ættingjum þeirra úr landi.
Sovétmaðurinn, Alexander Rezn-
itsky, hóf í morgun 18. dag mót-
mælaföstu sinnar. Reznitsky er sov-
éskur gyðingur og fékk að fara úr
landi fyrir tveimur árum. Hann hef-
ur misst 11 kíló og segist reiðubúinn
að halda eins lengi áfram og þörf
krefur. Hann berst fyrir því að sjö-
tugri móður hans verði sleppt úr
landi og leyft að fara til Vestur-
landa.
Aðeins hálfum kílómetra frá hon-
um hafast sjö Pólverjar við á sólstól-
um, umvafðir teppum og svefnpok-
um. Pólverjarnir fasta af svipuðum
ástæðum og Reznitsky. Þeir eru að
berjast fyrir þvf að fá eiginkonur
sínar og börn til Danmerkur.