Morgunblaðið - 07.06.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Gagnsókn í
E1 Salvador
San Salvador, 6. júní. AP.
STJÓRNARHERINN í El Salvador náði um helgina aftur á sitt vald hernað-
arlega mikilvægu fjalli í norðausturhluta landins eftir harðvítuga bardaga við
uppreisnarmenn. Naut stjórnarherinn
en mikið mannfall varð hjá báðum.
Fjallið, sem um er að ræða, ber
heitið Cacahuatique og er það
fimm þúsund feta hátt eldfjall í
um hundrað og sjötíu kílómetra
fjarlægð norðaustur af höfuðborg-
inni. Bardagarnir áttu sér stað á
sama tíma og sérlegur sendimaður
Reagans Bandaríkjaforseta, Rich-
ard Stone, átti fund með stjórn-
arleiðtogum og hélt hann á laug-
ardag áfram til Costa Rica á
stuðnings sprengjuflugvéla og þyrlna,
kynnisför sinni um svæðið.
f fréttum frá Managua, höfuð-
borg Nicaragua, segir í dag að þrír
bandarískir sendiráðsstarfsmenn
hafi verið reknir úr landi fyrir að
leggja á ráðin um „glæpsamlega
starfsemi" gegn stjórnvöldum í
Nicaragua. Bandaríska sendiráðið
í höfuðborginni neitaði ásökunun-
um harðlega.
Ný stjórn tekin
við í Portúgal
SÓSÍALISTAR og sósíaldemókratar náðu á laugardag samkomuiagi um mynd-
un samsteypustjórnar og er þetta í fyrsta sinn, sem flokkar vinstra megin við
miðju fara með meirihlutavald í þinginu.
Samningaviðræður milli flokk-
anna hafa staðið í mánuð en eftir
kosningar 25. apríl sl. urðu sósíal-
istar stærsti flokkurinn á þingi.
Leiðtogi hans og væntanlegur for-
sætisráðherra, Mario Soares, sagði
við undirritun stjórnarsáttmálans,
að þessir tveir flokkar hefðu góðan
meirihluta á þingi en þyrftu auk
þess á að halda stuðningi fólksins í
landinu. Væntanleg ríkisstjórn er
sú 15. síðan lýðræði komst aftur á í
Portúgal árið 1974.
Helsta viðfangsefni stjórnarinn-
ar verða efnahagsmálin, sem eru
erfið úrlausnar. Meðal þeirra að-
gerða, sem ákveðið hefur verið að
grípa til, er að opna þjóðnýttar
greinar eins og banka- og trygg-
ingastarfsemi fyrir einkaframtak-
inu; afnema bann við meira en 17%
kauphækkun; endurskoða vinnu-
löggjöfina og að gera umtalsverðar
endurbætur á lögum um eignar-
hald á landi.
Nýja stjórnin hefur mikinn
meirihluta á þingi. Sósíalistar hafa
101 þingmann, sósíaldemókratar 75
og stjórnarandstaðan, kommúnist-
ar og kristilegir demókratar, hefur
samtals 73.
Keisarinn í voryerkunum
Hirohito, Japanskeisari, með Panamahatt og í gúmmístígvélum,
er hér að planta út hrísgrjónaplöntu í lítinn akur við keisara-
höllina. Áður fyrr var keisarinn talinn kominn í beinan karllegg
af guðunum og því þótti það til mikillar blessunar fyrir jarðar-
gróðann að hann legði hönd á plóginn við vorverkin. AP
Lokað fyrir
öll veðmál
Lundúnum, 6. júní. Frá Magnúsi Sigurðs-
syni, frétUmanni Morgunblaðsins.
SVO sterkar Ifkur eni taldar á yfir-
burðasigri íhaldsflokksins í þing-
kosningunum í Bretlandi á fimmtu-
dag, að hin fræga veðmálastofa
William Hill er hætt að taka við
veðmálum um úrslit kosninganna.
Talsmaður veðmálastofunnar
sagði í dag, að úrslit kosninganna
væru augljós og að allir veðjuðu á
einn veg, þ.e. að íhaldsflokkurinn
sigri. Því hljóti veðmálastofan að
tapa stórfé haldi hún áfram að
taka við veðmálum um úrslit
kosninganna.
Venusarfar
út af örkinni
Moskva, 5. júní. AP.
SOVÉTMENN tilkynntu í dag um
nýjan könnunarleiðangur í átt til
Venusar og sögðu að geimfari því er
framkvæma á könnunina hafí verið
skotið frá öðrum gervihnetti, sem
þegar er á braut umhverfís jörðu.
Samkvæmt sovézku fréttastof-
unni Tass á geimfarið, Venera-15,
að koma til Venusar i fyrrihluta
októbermánaðar og bendir orðun
tilkynningarinnar til að reynt
verði að lenda því mjúklega á yfir-
borði reikistjörnunnar. Segir í
fréttinni að tilgangur tilraunar-
innar sé að halda áfram rann-
sóknum á yfirborði og andrúms-
lofti Venusar.
í mars 1982 lentu sovézkir vís-
indamenn Veneru-13 og Veneru-15
með góðum árangri á Venusi og
náðu þá fyrstu litmyndunum af
reikistjörnunni ásamt jarðvegs-
sýnum.
Venera-15 mun ferðast 300
milljón kílómetra vegalengd áður
en hún nær til Venusar.
Við sjáum ekki ástæðu
til að lúra lengur á þess-
um fjórum Alfabílum
sem eftir eru af síðustu
sendingu.
Við eigum bílana á
staðnum og víljum selja
þá strax. Þess vegna
bjóðum við þessa ítölsku
glæsívagna á giafverði:
Alfa Sud 1,3
Kr. 289.500
Alfa Sud 1,5
kr. 308.300
Það fara fjórír nýjír Alfa
Romeo á götuna í dag
verður þú á eínum
þeírra? Wm
JÖFUR
HF
U
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600